Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.1983, Blaðsíða 37

Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.1983, Blaðsíða 37
DV. FIMMTUDAGUR3. FEBRUAR1983. 37 DÆGRADVÖL DÆGRADVÖL DÆGRADVOL ÞAU BJORGUÐU HALFRI MILUÓN ÚR ELDHAFINU ö/lum fínnst gaman að ferðast, en hvað eiga menn eð gripa tii bragðs þegar a/tt hækkar nema launin? Sigurvin Sveinsson i Kefíavik fann að- ferð sem hentaði honum og kannski mörgum öðrum. Mynd: emm. öllum finnst gaman að ferðast en ferðalög kosta peninga og nú á þess- ari gullöld kjaraskerðinganna neyðastmenntilþessað haldakyrru fyrir, nema þeir detti niður á ein- hverja óvænta leið til þess að fjár- magna gamaniö. Nýlega birtum við í DV samtal við íslensk hjónakom sem seldu ofan af sér kofann og átu upp andvirðið vestur í Mexíkó og sóru þess dýran eið að næstu kofar skyldu sannarlega fara sömu leið, því jafnglaðar stundir höfðu þau aldrei lifaö — vissulega snjöll og frumleg aðferð til aö útvega farar- eyri, en sennilega ekki aö allra skapi. En þaö eru til aðrar aðferðir, sýnu fábrotnari og Sigurvin Sveins- son og eiginkona hans, Jóhanna Karlsdóttir, duttu niður á eina slíka fyrir nokkrum árum. Þau hjónin búa í Keflavík og okkar maöur á Suður- nesjum, hann Magnús Gíslason, innti þau eftir þessari aðferð sem margir geta gripið til þegar allt annað þrýt- ur. 90 krónur á dag „Spamaður okkar hjónanna síðan við hættum að reykja fyrir 15 árum nemur líklega um 500.000 krónum í beinhörðum peningum, og því til við- bótar kemur svo betra heilsufar sem aldrei verður metið til fjár. Fyrir FERÐALÖG þessa peninga höfum við síöan skoðað okkur um i heiminum, bæöi í Evrópu og Ameríku,” sagði Sigurvin Sveinsson. — Hvað varstu gamall þegar þú byrjaðiraðreykja? „Eg byrjaði 16 ára gamall og í laumi. Fljótlega komst ég upp í rúma tvo pakka á dag, en tottaöi pípu þess á milli svona til tilbreytingar. Hún Jóhanna reykti líka fyrstu búskapar- ár okkar rúmlega háifan pakka á dag, og mér reiknast til aö tóbaksútgjöld okkar hafi numið um það bil 90 krón- um á dag á núverandi gengi. En þau útgjöld veittu okkur í rauninni enga ánægju, aðeins hrakandi heilsu.” Uppþvottaburstinn kom í góöar þarfir — Nú vilja margir hætta að reykja en eiga bágt með að stilla fýsnina; hvernig tókst þér það? „Þegar svo var komiö að ég gat ekki lengur gengið upp stiga með góðu móti vegna mæði, þá sá ég að ekki mátti við svo búið standa ef ég ætlaði að verða eldri. Mig minnir svo að það hafi verið árið 1968, þegar ég var að skoða landbúnaðarsýninguna og var orðinn lafmóður á röltinu um staðinn, að ég skildi að nú yrðum við að skilja aö skiptum, ég og vindling- urinn. Samt fleygði ég ekki pakkan- um, sem ég bar í vasanum. Mér þótti betra aö vita af honum á venj ulegum stað og geta boðið nikótíninu birg- inn.” — Þú komst svo að orði að reykingamar hefðu í rauninni ekki veitt ykkur neina raunverulega ánægju. ; „Reykingar eru mikið ávani. Osjálfrátt fálmaöi ég í vasann fyrstu vikurnar eftir að ég hætti, en ég lét það ekki eftir mér að fá mér vindling. Aftur á móti bauð ég kunningjunum þegar svo bar undir. Mér fannst ég ekki hafa ríka þörf fyrir tóbakið eftir að ég hætti. Samt neita ég því ekki aö í nokkrar vikur sótti að mér dálítiö eirðarleysi, en ég vann bug á því með því að finna mér eitthvað til dundurs. Uppþvotta- burstinn eða þurrkan var þá nær- tækast eða eitthvað annað innanhúss sem laga þurfti. Svona auðvelt var þetta nú.” Myndbandið með — Og svo fóruö þið aö ferðast? „Já, tóbakspeningarnir hafa næstum því alveg fjármagnað þær ferðir sem viö hjónin förum í á hverju ári. Heilsan fór batnandi, við losnuðum við reykingarkvillana, mæöi og hósta, auk sóðaskaparins sem þeim og pipunni fylgdi í híbýlum okkar og utanlandsferðirnar hafa veitt okkur óblandna ánægjul” Þau Sigurvin og Jóhanna fara ýmist til Evrópu eða Ameríku, þar sem ein dóttir þeirra er búsett. Tvisvar sinnum hafa þau skoðað Niagarafossana, seinna skiptið í fyrrasumar. „Eg tek svo ævintýrin heim með mér,” segir Sigurvin. „Myndbandið er jafnan með í förinni. Það nemur margt betur en mannsaugað og eyrað þegar hratt er farið yfir. Eg get ráðlagt öllum sem ánetjast hafa nikótininu að hætta reykingum — heilsunnar vegna fyrst og fremst — en líka vegna hins óheyrilega kostnaöar. Takist mönnum að hætta, þá sparast mikið fé og fyrir þetta fé veit ég fátt skemmtilegra en að ferðast,” sagði Sigurvin að lokum. emm/BH. Þessir gætu sennilega ferðast viða fyrir tóbakspeninganal Kvenþjóðin spjarar sig æ betur á vinnumarkaðinum, en sú vel- gengni er ekki alls kostar útlátalaus. Þegar eiginkonan aflar meiri tekna en bóndinn bitnar það á heilsufari hans og kynlifinu. Chevro- lettinn fór til Eyja Hann Kristinn Snæland er hýr á svip um þessar mundir, og það væri nú annaö hvort; hann er að viöa að sér efni í bók um íslenska fombíla og eftir að við birtum við hann samtal hér á síðunni fyrir skemmstu, hafa upp- lýsingarnar streymt inn í stríðum straumi. Okkur finnst sérstakleea vert að geta þess, að Chevrolettinn góðisem við töldum að farið hefði til Vestmanna- eyja einhvern tíma rétt eftir stríð og síðan horfiö sporlaust, hann er nú kom- inn í leitirnar. Þetta er árgerð ’47, Stylemaster Fastback. Utvegsmenn í Eyjum munu hafa gefið hann Guðjóni Magnússyni vélsmið, eins og við höfð- um spurt. Frá ættingjum Guðjóns fór bíllinn til óviðkomandi í Eyjum, með því fororði að hann yrði ekki seldur til meginlandsins, en til landsins fór hann nú samt með ferjunni einn góðan veðurdag og mun nú vera í höndum þeirra áhugasömu fornbílamanna Hinriks Thorarensen og Ásmundar Jónassonar í Hafnarfirði og væsir ekki um hann þar. Kristinn Snæland þarf ekki beinlínis að fórna vindlingnum til þess að kom- ast i ferðalög eins og hjónin i Keflavik, þvi að hann er sjómaður og siglir á farskipum um öll heimsins höf. MyndBH. Breiðdalsbfllinn Fombíllinn í Breiödal, sem við gát- um um, er einnig kominn í leitnirnar. Hann reyndist vera Chevrolet, fyrst keyptur til kaupfélagsins á Breiðdals- vík, síðan seldur að Þorgrímsstöðum á Breiödal og þaðan lá leiö hans suður eins og svo margra aldraðra, góðra 'þegna, eftir dyggilegan starfsdag. Hann mun nú vera í höndum Sigurðar Jónssonar hjá Esso. Þá bárust Kristni gleðifregnir af 6—8 bílum, sem þreyja þorrann inni í skemmu norður í Ingólfsfirði. Þar á meðal mun vera að minnsta kosti einn fólksbíll, en hitt eru vörubílar, ár- gerðir um eða fyrir stríð. Hjalti Skaftason á Skagaströnd hefur tvo gamla garpa í vörslu sinni, Ford ’47 og Dodge ’40, og að auki Chevrolet ’42, vörubíl, fullkomlega endurbyggöan, sem hann hyggst selja. Fleiri góðar fréttir bárust Kristni Snæland víðsvegar að af landinu, og vonandi greinir hann frá þeim í DV við annaðtækifæri.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.