Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1983, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1983, Page 8
8 DV. LAUGARDAGUR19. FEBRUAR1983. Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON. Framkvæmdastjóri og útgáfusfjóri: HÖRÐUR EINAFJSSON. Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSONog ELLERT B. SCHRAM. Aóstoðarritstjóri: HAUKUR HELGASON. Fréttastjórar: JÓNAS HARALDSSON og ÓSKAR MAGNÚSSON. Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P.STEINSSON. Ritstjórn: SÍÐUMÚLA12—14. SÍMI84611. Auglýsingar: SÍÐUMÚLA33. SÍMI27022. Afgreiðsla,áskriftir,smáauglýsingar,skrifstofa: ÞVERHOLTI11. SÍMI27022. Sími ritstjómar: 84611. Setning, umbrof, mynda- og plötugerð: HILMIR HF., SÍÐUMÚLA12. Prentun: ÁRVAKUR HF„ SKEIFUNNI19. Áskriftarverð á mánuði 150 kr. Verð í lausasölu 12 kr. Helgarblað 15 kr. Frá oröum til athafna Viðskiptaþing Verslunarráðsins ræðst ekki á garðinn þar sem hann er lægstur. Hvorki meira né minna en alhliða aðgerðir í efnahagsmálum eru lagðar til grund- vallar í stefnumörkun þess. Þar kennir margra og gildra grasa. Sjálfvirk tenging launa við verðlagsvísitölu skal afnumin, útgjöld ríkis- sjóös skorin niður um 2000 milljónir króna, verðlag gefið frjálst, verðtrygging kjarasamninga bönnuð, vextir gefnir frjálsir, fráhvarf frá óarðbærri atvinnuuppbygg- ingu, les: byggðastefnu, sveitarfélögum bannaður atvinnurekstur, veiðileyfi seld hæstbjóðanda. Ákvarðanir eru tímasettar, áætlanir tíundaðar nákvæm- lega og hver einstakur liður skilmerkilega sundurliðaður og útskýrður. Segja má bæði í gamni og alvöru að leiftur- sóknin margfræga verði að hjómi í samanburði við þessa hernaðaráætlun V erslunarráðsins. Með því er ekki verið að gera lítið úr framtaki verslunarráðsmanna. Það er lofsvert þegar samtök at- vinnulífsins setja fram heillega stefnu um efnahags- úrræði og að baki henni liggur vinna og hugsun. I stað nöldurs og barlóms sýna menn jákvæða afstöðu og þora að leggja fram tillögur af einurð og hispursleysi. Verslunarráðið byggir stefnu sína á því grundvallar- atriði að fr jáls markaður sé betri kostur en miðstýring ríkisvaldsins, forsendan er frjálshyggja í stað ríkis- hyggju. Að því leyti hefur Verslunarráðið rétt fyrir sér að hin pólitíska stefna sósíalískra viðhorfa, ríkisafskiptin, boðin og bönnin, lögbundin niðurtalningin, hvað þá neyðar- áætlun yfirþyrmandi miðstýringar, er ekki lausn á efna- hagsvanda. Ríkisst jórnir síðasta áratugar hafa fetað þá slóð í meiri eða minni mæli, með þeim afleiðingum að verðbólga er meiri en nokkru sinni fyrr, þjóðartekjur fara lækkandi, viðskiptahallinn eykst, erlendar skuldir hrannast upp. Stefna styrkja og niðurtalningar, opinberra afskipta og óarðbærrar atvinnuuppbyggingar hefur beðið skipbrot. Hún hefur í rauninni runnið sitt skeið á enda, hvort sem stjórnmálamenn og kjósendur í næstu kosningum vilja viðurkenna það eða ekki. Verslunarráðið hefur kjark til að segja það og vill söðla um. Hvort sveifla möndulsins geti orðið svo mikil, sem áætlanagerð verslunarmanna gerir ráð fyrir, er annað mál. Hlutimir eru einfaldir og auðleystir á blaði en verri og flóknari viðureignar þegar til framkvæmdanna kemur. Þar ráða auðvitað mestu hin pólitísku skilyrði. Sjálf- stæöisflokkurinn gerði til að mynda þá skoðun heyrin- kunna í síðustu kosningum að stefna ómengaðrar frjáls- hyggju skyldi upp tekin eftir þær kosningar. Þjóðin reyndist ekki tilbúin í þau stakkaskipti. Leiftursóknin hlaut ekki byr. Hinn pólitíski veruleiki segir mönnum að þjóðin mundi enn ekki vilja kjósa yfir sig svo róttækar breytingar, jafnvel þótt öngþveitið sé algjört á hinn bóginn. Fólk er nefnilega tregt til að hlaupa öfganna á milli. Hitt verður aldrei nógsamlega áréttað að efnahagsmál Islendinga verða aldrei í sómasamlegu lagi fyrr en stefna frelsis og framtaks ræður ferðinni; stjómvöíd hverfi írá orðuni íii athafna. Að því leyti er stefna Verslunar- ráðs rétt. þótt deila megi um útfærslu og þjóðin þurfi enn tíma til að sannfærast um ágæti hennar. ebs. FRAMBJÓBENDUR ÓSKAST Nú berast þær fréttir af Vestfjörft- um aö óánægöir sjálfstæðismenn ætli aö bjóöa þar fram. Fréttinni fylgir aö ánægöir sjálfstæðismenn séu frek- ar óánægöir meö þetta. Þaö gerist æ ofan í æ, á síöustu ár- um, aö óánægðir flokksmenn gera uppreisn gegn flokksaga og bjóöa fram. Þannig varö Eggert Haukdal óánægöur meö þaö sæti sem honum var boöiö upp á á lista Sjálfstæðis- flokksins við síðustu þingkosningar og bauö þá fram sérlega í nafni hluta Suöurlandsk j ördæmis. Og stundum veröa sjálfstæöis- menn ekki óánægöir fyrr en eftir kosningar. Þá veröa þeir svo óánægöir aö þeir taka sér ráöherra- stóla í skapraunabætur. Þannig eru óánægðir sjálfstæðis- menn sýknt og heilagt aö skaprauna Úr ritvélinni ÓlafurB. Guðnason þá sjálfstæöismenn? Svör óskast send hvert á land sem er, nema ekki áritstjórnDV). En þó hugmyndin um auglýsingu eftir frambjóöendum sé góö veltur mikið á framkvæmdinni. Þaö er auö- vitað ekki nóg að auglýsa eftir slíku í Lögbirtingablaöinu nema stefnan sé sú að bjóöa aðeins fram lögfræöinga. Þá skiptir einnig höfuömáli hvaöa menntun, reynslu og viðhorf um- sækjandi verður aö hafa. Svo dæmi sé tekið um þau skilyröi sem um- sækjandi um sæti á Usta óánægöra sjálfstæðismanna yröi að uppfylla þá má nefna aö maðurinn yröi auðvitað að vera sáraóánægður. Ef hann væri hundfúll væri þaö auðvitað betra. Auglýsing frá óánægðum sjálf- stæðismönnum myndi til dæmis veröa einhvern veginn svona: Framagjarnir fý/upokarf Samtök óánægöra sjálfstæðismanna óska aö ráöa frambjóö- endur! Af sérstökum ástæöum eru nú laus sex sæti á lista óánægöra sjálfstæðismanna viö þingkosningarnar á sumri komanda. Við leitum nú að fólki við okkar hæfi til aö skipa þau sæti! Umsækjendur þurfa aö vera: óánægðir, (bæöi almennt og sértækt, sérlega með Sjálfstæöisflokkinn), karlkyns (aö mestu leyti) og áhugasamir. Hér gæti oröiö um framtíðarstarf að ræöa! Umsóknir ásamt upplýsingum um aldur, menntun og fyrri störf sendist um hæl! (Algjörum trúnaði heiíið!) Öllum er frjálst að sækja um en þeim sem heita Gunnar Thoroddsen, Sigurlaug Bjarnadóttir, Halldór Hermannsson, Pálmi Jónsson, Friöjón Þóröarson eða álíka nöfnum er heitið sérlega velviljaðri athugun! Nefndin ánægöum sjálfstæðismönnum. Og ekki eru aörir flokkar ónæmir fyrir þessu aö heldur. Nema Alþýöu- bandalagiö. Þar er enginn ánægöur. I frásögn dagblaös eins af þessum tíöindum er haft eftir einum for- svarsmanni óánægðra sjálfstæöis- manna eftirfarandi: „Viö erum nú aö vinna viö aö koma þessu í gang á öllum vígstöðvum — auglýsum núna eftir mönnum á framboöslista og reynum aö flýta þessu eins og viö vgetum.” Þarna er athyglisverð hugmynd á ferö. Það hefur lengi verið eitt erfiö- asta verkefni stjórnmálaflokkanna aö koma saman listum. I gamla daga komu nokkrir áhrifamenn saman (gjarna kallaöir „flokkseigendur”) og settu saman lista. Auövitaö fóru margir í fýlu, þegar listinn var síöan geröur opinber, en meöan stétt „flokkseigenda” var og hét varö þaö aldrei meira en fýlan hjá þeim óánægöu. „Flokkseigendurnir” voru of valdamiklir til þess að óánægöir, vonsviknir flokksmenn þyröu aö rísa gegn þeim. Síöan leiö stétt „flokkseigenda” undir lok eða henni hnignaði aö minnsta kosti. Þá kom aö prófkjara- áfanganum. Hugmyndin á bak viö hann var sú að kjósendur ættu ekki aðeins að kjósa lista heldur einnig þá sem skipa ættu listana. Kjósendur viröast hafa kunnað því fyrirkomu- lagi bærilega vel en frambjóðend- urnir síöur. Einhver hélt því fram aö prófkjörin væru slæm því frambjóö- endur yröu þar með aö berjast gegn frambjóðendum sem þeir ættu síðan aö berjast meðjín þetta er auðvitaö vitleysa. Meöan stétt „flokkseig- enda” var og hét s1óp.«* ;r-~ujófr- endur um þaö aö hljóta náð í augum herranna. Þá fór slíkt bara fram bak viö tjöldin. Hins vegar hefur kannski hinn almenni kjósandi (hver sem hann nú er) hrokkiö dálítið viö þegar tjöldin voru dregin frá. En fyrir þá sem hyggja á þing- mennsku sem ævistarf eru prófkjör- in slæm. Þaö er eins með kjósendur og síldina eða loönuna aö áöur en nokkurn varir hverfa þeir á braut. Og þingmaöur án þingsætis er eins og útgeröarmaöur án aflatrygginga- sjóðs. Þess vegna er hugmynd óánægöra sjálfstæöismanna á Vestfjöröum góö. Þaö er auðvitað langauöveldast, einfaldast og sanngjarnast, aö aug- lýsa eftir frambjóöendum og áskilja sér auövitað allan rétt til að taka öll- um, sumum, eöa jafnvel engum. (Meöal annarra orða; talsmaöur óánægðu sjálfstæöismannanna segir aö þetta verði framboð „óánægöra sjálfstæðismanna og óháöra”. Hvaö merkir þetta? Er h»: vlð > óháöa sjálfstæðismenn”? Ef svo er er sá ágæti flokkur nú þríklofinn! Eöa er hér átt viö „óháða” almennt? Ef svo, þá óháöa hverju? Einnig má spyrja, ef „óánægðir sjálfstæðismenn” eiga samleiö meö „óháöum” utanflokka- mönnum, eru þeir ekki þar meö utan- flokka? Hvers vegna kalla þeir sig Þess er auðvitað óþarfi aö geta hér aö umsækjendur veröa aö vera ein- dregnir fylgjendur Sjálfstæöisflokks- ins en mjög andsnúnir honum um leiö. Þaö er deginum ljósara aö meö svona auglýsingu verður þaö átaka- minna og auöveldara á allan hátt aö skipa lista heldur en meö prófkjörum eöa þess háttar aöferðum. Meö því aö auglýsa eftir frambjóðendum á þennan hátt er hægt aö setja ákveön- ar lágmarkskröfur, t.d. um reynslu! Það er til dæmis augljóst að þaö þýöir ekki aö senda reynslulausa menn á þing. Alþingi er mjög sér- hæföur vinnustaður og viövaningar hafa ekkert þangaö að gera1 -- það m.wi F-*'ur að með þessu fyrir. komulagi er fyllsti trúnaöur meö þaö hverjir sækja um og hægt aö halda framboöslistanum sjálfum leyndum mun lengur. Þaö er mikill kostur aö hafa nafnleynd í framboðum! Þá er minni hætta á aö fólk kjósi í ein- hverri vitleysu. Þetta er greinilega forvalsaöferö framtíöarinnar!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.