Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1983, Síða 12
12'
DV. LAUGARDAGUR19. FEBRUAR1983.
Helgi Þorgils Friðjónsson: „Maðurbýr tilsinn myndheim íbókstaflegrimerkingu.
Stfllinn er hid djnpa ego
þar sem enginn er eins
— spjallað við Helga Þorgils Friðjðnsson sem lilaut menningarverðlaun DV f yrir framlag sitt
Helgi Þorgils Friöjónsson er fæddur
7. 3. 1953. Hann var viö nám í Mynd-
lista- og handíðaskólanum á árunum
1971 til 1976. Hann stundaöi síðan nám í
Hollandi, fyrst í Frí akademíunni
veturinn 1976 til 1977. Og síðan viö Jan
van Eyck akademíuna frá 1977 til 1979.
Helgi er einn athyglisveröasti braut-
ryöjandi „nýja málverksins” hér á
landi. Hann hefur veriö sérstaklega
afkstamikill listamaöur. Haldiö fjölda
einkasýninga, fyrst í Gallerí Out-put
árið 1975, og tekið þátt í fjölmörgum
samsýningum bæði hér heima og
erlendis. Helgi hlaut menningarverð-
laun DV í ár fyrir myndlistarsköpun
sína.
Kiassískir listamenn
gáfu tóninn
Getur þú lýst fyrir okkur í stuttu
máli leiö þinni aö, ,nýja málverkinu”?
„Þetta hófst þegar ég var í skóla. Þá
hafði ég sérstakan áhuga á lista-
mönnum sem lögöu áherslu á línuna,
þessa grafísku teikningu. Þaö voru
þessir stóru meistarar eins og Picassó
sem gáfu tóninn. Síöar fór ég til Hol-
lands en þar kynntist ég verkum eftir
listamenn eins og Polke, Pink og
Kiefer. Þetta eru miklir teiknarar sem
kunna í verkum sínum aö miöla oft sér-
kennilegu andrúmslofti sem má
reyndar líka finna í ákveðnum stíl-
brögöum Picassos. Eg hreifst mikið af
þessum listamönnum sem og fleiri
Svisslendingum og Þjóöverjum. Það er
oft eitthvaö magnað andrúmsloft í
verkum þessara listamanna sem erfitt
er að koma oröum aö.
Þaö kemur annars oft upp sá mis-
skilningur aö þessir svissnesku teikn-
arar og núverandi ný-málarar séu hin
fullkomna andstæða conceptlistar-
innar. Þetta er mikill misskilningur og
algerlega röng ályktun því listhug-
til íslenskrar myndlislar á árinu
myndir þessara listamanna eru nefni-
lega náskyldar vissum concepthug-
myndum, þ.e.a.s. huglægu conceptlist-
inni þar sem reynt er aö miöla ákveönu
ástandi. Þetta er skiljanlegt þegar haft
er í huga aö conceptlistin hefur veriö
rikjandi og haft töluverð áhrif. Þaö er
nú einu sinni svo aö viö erum ekki
lengur á sjötta áratugnum. Sagan
hefur breyst og þaö er einmitt concept-
listin sem hefur valdið hvað mestum
breytingum í listinni á síöastliðnum
árum. I dag erum við jú að mála en
listin eöa málverkiö ber greinilega
merki conceptlistarinnar hvort sem
''-‘amenn hafa reynt aö foröast hana
ekki.”
Að skapa sinn heim
Hvert sækir þú efnið í þinn
myndheim?
„Þú segir myndheim og þaö má
undirstrika það því ég tel hann vera
hina raunverulegu forsendu fyrir öllu
myndverki. Maöur býr til sinn heim í
bókstaflegri merkingu sem er álíka
sannur og hver annar. Hver lista-
maður skapar þannig sinn heim sem
lifir í verkunum. Þetta er sérstaklega
algengt meöal listamanna sem vinna
kerfisbundið, sjáöu til dæmis'nokkra af
þessum abstraktmálurum sem eru
með sín lokuðu heimspekikerfi og
reyna aöeins aö nýta möguleika
þeirra.
Efnið sem þú talar um í mínum
verkum sæki ég fyrst og fremst í
sögur, munnmælasögur, Islendinga-
sögumar og þjóösögur. En auk þess
tekur maöur mikið beint úr umhverf-
inu eins og t.d. krot sem viö sjáum á
almennum veggjum eöa í strætis-
vagnaskýlum en þar má oft finna
ákveðin frumtengsl mannsins viö
umhverfið. Eða þá aö maöur verður
vitni aö einhverjum atburöi og síöan
kemur samverkandi mynd nokkru
seinna. Þá kemur fyrir aö ég mála
mynd og rekst síðan á einhvem hlut
eöa mynd sem ég set inn í heildina ef
mér finnst þaö eiga við. Þannig hlaðast
upp hjá manni ákveðnar upplýsingar,
,Innreiðm i Jerusalem Imynd nr. V.
umhverfislegar, félagslegar eöa
einstaklingsbundnar, sem maður síöan
reynir að setja upp í rökrétt samhengi
á myndflötinn.”
Óviljandiháð
,,Nú er oft mikiö háö í myndum
þínum”.
„Jú, þaö er talaö um ákveðið háð í
verkum mínum, en þaö er ekki visvit-
andi og alls ekki gert til aðniðra neinn.
En þar sem ég set oft saman ótrúlega
hluti á trúlegan hátt, eins t.d. hestur
meö kampavínsflösku, getur þaö
eflaust virst spaugilegt.”
„En af hverju þessir nöktu menn í
myndumþínum?”
„Það er einfaldlega vegna þess að
mér finnst naktir menn eðlilegastir.
Og ef ég setti þá í föt yröi myndin (eða
myndirnar) allt önnur.”
Tilgerðarlegur
draumur
„Getum viö talað um súrrealísk
áhrif í verkum þínum? ”
„Þaö eru margir sem vilja sjá í
verkum mínum ákveðin tengsl við
súrrealismann. En ég kannast
persónulega ekki viö þaö. Mér finnst
súrrealistanir mjög fjarlægir nema
kannski menn eins og Míró. Mér finnst
listamennirnir Ernst og Dalí vera
hreint út sagt leiðinlegir og þessi
draumur þeirra vera hálftilgerðar-
legur. Hins vegar getum við sagt aö
draumurinn í verkum mínum sé full-
komlega raunsær! Nei, það er allt
annaö andrúmsloft í þessum
súrrealistamyndum. Ástandiö, sem er
oftast nær frásögn, í minum myndum
tengist miklu fremur hinni ljóðrænu
hlið conceptlistarinnar. Hlutir og at-
burðir í verkum mínum eru í raun
ómögulegir, en á sama tíma svo eðli-
legir aö þeir viröast sannir. Þetta
ástand er kannski óraunhæft en þó ekki
súrrealiskt.”