Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1983, Side 13
DV. LAUGARDAGUR19. FEBRUAR1983.
„Ég set fígúrur úr goðafræðinni ávallt i nútimalegt samhengi.
Frásögn/ástand
„Nú er ávallt ákveðin afgerandi frá-
sögn í verkum þínum?”
„Verk mín byggjast yfirleitt upp á
einhverju sem við getum kallað frá-
sögn en sem er í senn ástand og frá-
sögn. Þetta á ekki að vera lýsing, held-
ur vil ég reyna að teygja á frásögninni
ef við getum orðað það þannig og koma
á einhvers konar lestrarferli. Við get-
um kannski nefnt þetta skýrslu! Þá vil
ég að þetta ástand/frásögn sé opið
fyrirbæri sem hafi sinn óskilgreinda
aðdraganda. Og einnig að það gefi í
skyn að eitthvað eigi eftir að gerast.
Kunningjar mínir í Hollandi sögðu aö
ég yrði að útfæra þessar hugmyndir í
kvikmynd svo þetta ástand gæti
hreyfst og þannig komiö af stað raun-
verulegri frásögn. Við getum kannski
sagtaðþetta séuástandsmyndir!”
„Getur þú nokkuð gert betur grein
fyrir þessu „ástandi” sem þú talar
um?”
„Við getum kannski sagt aö það sé í
senn mótsagnakennt og eðlilegt. Sjáðu
til, ég nota oft ákveðnar þekktar fígúr-
ur úr goðafræðinni í verkum mínum en
ég set þær þó ávallt í nútímalegt sam-
hengi. Kentárinn fær kannski kampa-
vínsglas í hendina. Þannig rennur sag-
an, fantasían og raunveruleikinn sam-
an í eitt. Og í raun getum við ennfrem-
ur talað um samruna efnisáferðar og
myndefnis því ég reyni ávallt að mála
efnislega itakt við inntakið.”
„Getur þú tekið dæmi um þetta
„ástand”?”
„Sjáðu t.d. þessa mynd hérna (mynd
nr. 1). Hér eru mennirnir í furðulegu
ástandi, kannski fullir. Ef úlfaldinn
væri hins vegar eðlilegur þá væri hann
hálfasnalegur, ekki satt. Þannig að ég
gerði hann í samræmi við allt „ástand-
ið” í myndinni, hann er með vindil og
einn öfugan fót! Þaö var annars dálítið
skrýtið sem kom fyrir þegar ég var bú-
inn með þessa mynd. Mér fannst allt í
einu aö þetta væri „Innreiðin í Jerúsal-
em” þar sem Kristur sæti á úlfaldan-
um. Ég hljóp strax og náði í bibliuna,
fletti upp í bókinni og svo einkennilega
vildi til að ég lenti einmitt á þeim kafla
íbiblíunni!”
„Þegar maður skoðar myndir þínar
eru þær æði f jölbreytilegar en þó ávallt
keimlíkar, hvað er stíll að þínu mati? ”
„Stíllinn (löng þögn) er þetta djúpa
ego, —þarsemenginn ereins.”
G.B.K.
8SBORNE
OSBORNE er emstakur tölvukostur fyrir stofnanir,
skóla, námsmenn, sérfræðinga og alla þá sem vilja
ná hámarks árangri, án of mikils tilkostnaðar.
( verði OSBORNE tölvunnar er innifalinn hug-
búnaður að andvirði 32.000 kr.
Hugbúnaður er:
Stýrikerfið CP/M 2.2.
Forritunarmálið MBASIC,
C.BASIC—II,
Áætlanagerðarforritið SUPERCALC,
Ritvinnsluforritið WORDSTAR og
Póstlistaforritið MAILMERGE.
OSBORNE hefur innbyggt: Tölvuskjá, lyklaborð,
2 diskettustöðvar og 64 RAM vinnsluminni,
Z80A örtölvu.
Par sem OSBORNE er einstaklega hentugt og
hagkvæmt atvinnutæki hafa margir háskóla-
kennarar valið hana í sína þjónustu.
Prentarar við OSBORNE kosta frá 14.000 kr., en
DAISYWRITER 2000 Ritvinnsluprentari kostar
37.000 kr., og STROBE Litateiknari kostar
39.500 kr.
Með leturhjólsprentaranum DAISYWRITER 2000,
er OSBORNE eitt fullkomnasta og ódýrasta rit-
vinnslukerfi sem völ er á (80.000 kr).
Með litateiknaranum STROBE M100 getur
OSBORNE sett upp eplakökur, súlurit og fl. ( lit
á A4 blöð eða glærur.
OSBORNE verður fljótléga fáanleg með UCSD- p
System stýrikerfi oq qetur þá keyrt
FORTRAN-77.
Að auki er úrval forrita í boði, framleiðendur
hennar gefa út OSBORNE-tímarit, tölvuskólinn
FRAMSÝN og tölvufræðsla SFI bjóða námskeið í:
ritvinnslu, áætlanagerð m/SUPERCALC, forritun I
BASIC og notkun stýrikerfisins CP/M.
OSBORNE kostar 43.819 kr. (USD = 18.7)
Símar: 82980 & 82055
„Maður hleðst upp af ákveðnum upplýsingum, þetta form sá ágiglugga."
Ljósm. GBK.