Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1983, Síða 15
DV. LAUGARDAGUR19. FEBRUAR1983.
15
Guðríður Ölafsdóttir og Ragnar Sverrisson, leiðbeinendur í félags-
skapnum Samhygð. (DV-myndGVA)
„Meiriháttar uppáhoma99
— segja Samhygðarmenn sem gangast fyrir skemmtun
á Borginni á mánudag
Hefur ykkur dottið í bug að apar geti veitt? Þessi átta ára gamli api reynir það.
Að minnsta kosti brosir hann breitt. Kannski hann sé að fá bann stóra?
„Mánudagur til mikils er slagorö
þessarar skemmtunar. Og viö væntum
þess að sem flestir komi til okkar og
skemmti sér og öðrum,” sögðu
Guðríður Olafsdóttir og Ragnar
Sverrisson, leiðbeinendur í félags-
skapnum Samhygð, sem gengst fyrir
uppákomu á Hótel Borg á mánudags-
kvöld.
Samhygð er félagsleg hreyfing sem
berst gegn öllu er skaðar lífið, svo sem
ofbeldi, drykkjuskap og öðru í þeim
dúr. Samhygð er alþjóöleg hreyfing og
var stofnuð í Suður-Ameríku. fslands-
deild var stofnuð árið 1980 og starfar
nú víða um land.
„Við viljum fá fólk til að trúa á
framtíðina og fá það til að trúa því, að
það geti haft áhrif til batnaöar á allt,
sem miður fer. Við látum okkur velf erö
annarra miklu skipta,” sögðu þau
Guðríður og Ragnar.
— En hvemig starfið þið?
„Þetta er sjálfboðahreyfing. Við
göngumst fyrir f jársöfnun einu sinni á
ári og því fé, sem þá safnast, er varið
til að reka starfsemina áfram. Við
störf um í hópum og rekum s vokallaðar
samskiptamiöstöðvar í flestum hverf-
um. Þar hittumst við reglulega og
spjöllum saman. Og markmiðið er að
koma upp slíkum miðstöðvum í hverju
hverfi og úti um allt land.”
— Hafiö þið áður gengist fyrir uppá-
komu af því tagi sem verður á
mánudag?
„Nei, ekki er það nú. Þetta er
nýbreytni hjá okkur. En þarna verða
skemmtiatriði sem bæði viö og gestir
okkar koma til með að sjá um. Því
þarna stendur gestum til boða að troða
upp með hljóðfæraleik og annað slíkt ef
þeir hafa áhuga á. Við viljum því
hvetja ungt fólk á öllum aidri til að
koma og taka þátt,” sögðu þau Guðríð-
urölafsdóttir og Ragnar Sverrisson.
-KÞ.
BANDALAG JAFNAÐARMANNA
Nokkur fé/ög hafa veríð stofnuð og önnur
eru í undirbúningi.
FUNDUR
íbandalagsfélaginu verður á Hóteí Loftleiðum
mánudaginn 21. febrúarkl. 20.30.
ALLIR VELKOMNIR
Þjóðmálafé/agið FRAMSÝN.
Yor
orðin
leiðú
lohh-
unum
Vinkona okkar úr
Dallas, hún Sue Ellen eða
réttu nafni Linda Gray,
hefur látið lokkana falla.
Hún var orðin leið á að
vera með sömu hár-
greiðslu og svo margar
konur þannig að hún bað
hárgreiðslumeistarann
um pönkklippingu. Ekki
urðu allir jafnhrifnir af
nýju klippingunni því
framleiðandi Dallasþátt-
anna var að því kominn að
fá slag er hún mætti til
vinnu. Ekki fer sögum um
hvaö J.R. sagði en
ektamaöur hennar, sem
er með henni á myndinni,
virðist síður en svo óhress
með pönkuðu eiginkon-
una.
Hin fjölbreyttu einingahús frá ösp í Stylckishóliiii eru að öllu leyti íslensk
framleiðsla fyrir íslenskar aðstæður.
— Margar stærðir íbúðarhúsa — Traustir bilskúrar
— Sumarbústaðir í sérflokki — Margs konar innréttingar í öH hús
Bæklingurinn kominn
í nýútkomnum upplýsingabæklingi velur þú Aspar-einingaliús sem hentar
þér og þínum. Þar finnur þú glöggar teikningar og greinargóðar upplýsingar
nm aUa framleiðsluna. Ef þú hefur sniðugar bugmyndir breytum við gjarna
út frá stöðluðu teikningunum og sérsmíðum húsið samkvæmt þinum it
óskum.
Hafðu samband, við sendum þér bæklinginn.
Aspar liús L
ekki bara ódýr lausn |_H
Stykkishólmi Símar: 93-8225 og 93-8307
□
1 1 - 1
J