Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1983, Síða 18
18
DV. LAUGARDAGUR19. FEBRUAR1983.
VÖRUPALLAR
Aburðarverksmiðja ríkisins óskar eftir tilboðum í smíði vöru-
palla.
Tilboösgögn eru afhent á skrifstofu verksmiðjunnar í Gufu-
nesi.
Tilboðum sé skilað til skrifstofunnar fyrir kl. 11.00 miöviku-
dagiim 23. mars 1983.
Askilinn er réttur til aö taka hvaöa tilboði sem er eða hafna
þeim öllum.
ABURÐARVERKSMIÐJA RIKISINS
- Ef ni meðal annars: -
TÖKUM GÖMLU sími
SKÍÐIN UPP í 13072
SKÍÐA-LEIGAN -
SKÍÐABÚÐIN VIÐ
UMFERÐARMIÐSTÖÐINA
Eftir tveggja ára reynslu af skíðaleigu bjóðum
við nú einnig til sölu þau vörumerki sem hafa
reynst best.
Erbacher skíði (vestur-þýsk gæði).
Hope bindingar (japönsktækni).
Tecnica skór (ítölsk hönnun).
Viltu prófa áður en þú kaupir?
„Stærsta sam-
fellda kynning
á íslenskrí, tánlist
sem haldin hef-
ur veríð erlendis99
— Göran Bergeiftdal teklnn tali
Fáir hafa á undanförnum árum beitt
sér jafnötullega fyrir því að kynna
íslenska konserttónlist í Svíþjóö og
Göran Bergendal. Hann hefur skipu-
lagt fjölda hljómleikaferöa íslenskra
tónlistarmanna í Svíþjóö og aö auki
kynnt íslenskar tónsmíöar I f jölmörg-
um útvarpsþáttum.
Nú vinnur hann aö þeirri mestu
kynningarherferö á íslenskri tónlist
sem taliö er aö hafi veriö gerö á er-
lendri grund. Ætlunin er aö næstkom-
andi sumar fari hópur íslensks
tónlistarfólks til Svíþjóðar og haldi þar
40 tónleika víðs vegar um landiö.
Gamall íslandsvinur
Göran Bergendal var staddur hér-
lendis nýlega viö undirbúning þessarar
herferðar og notuöum viö tækifæriö og
spjölluðum stuttlega við hann. Hann
var fyrst beðinn um aö segja örlítil
deili á sjálfum sér.
„Eg er 45 ára aö aldri, tónlistarfræö-
ingur aö mennt og starfa hjá opinberri
stofnun sem sér um aö skipuleggja tón-
leikahald í Svíþjóð. Að auki fæst ég viö
aö skrifa um tónlist og einnig er ég með
fasta tónlistarþætti í sænska útvarp-
inu,” segir hann. „Svo má auðvitað
kalla mig gamlan Islandsvin,” bætir
hannviökíminn.
— Spilar hann sjálfur?
„Nei,” segir hann og hlær. „Eg kann
ekki aö spila á neitt hljóöfæri, ég kann
bara aö tala og skrif a um tónlist”.
íslensk tónlist ekki betri ,en
öðruvísi
— Hvaö veldur þessum áhuga hans
á íslenskri tónlist?
„ Jú, þannig er mál meö vexti að áriö
1972 sat ég meðal annars í ritstjórn
tónlistarblaös nokkurs. Viö ákváðum
aö gera greinarflokka um tónlistarlíf á
hinum Noröurlöndunum og þaö kom í
minn hlut að fara til íslands. Eg vissi
svo til ekkert um land og þjóö, en ég
heillaðist,” segir Göran og kímir enn.
,,Ég eignaðist strax góöa vini hér,
Þorkel Sigurbjömsson og Atla Heimi
Sveinsson ásamt fleirum. Síðan hef ég
haldiö sambandi viö land og þjóö og
komið hingaö oft á undanfömum
árum.”
— Hvaðmeðtónlistina?
„Islensk tónlist er í sjálfu sér ekkert
betri en tónlist annarra landa, en hún
er öðruvísi. Þaö sem heillar mig mest
er hversu einlæg hún er. Sem dæmi um
þaö get ég nefnt aö höfundar hér gera
lítið aö því að reisa sjálfum sér
tónlistarleg minnismerki meö því að
semja mikil og löng verk, eins og títt er
um tónskáld erlendis. Hér semja menn
tónverk fyrir daginn í dag. Tónverk
sem liggur við aö flutt séu samdægurs
ogþau erusamin.”
Tónlistin ber keim
af sögu landsins
— Eitthvaö fleira, sem vakti áhuga
hans á íslenskri tónlist?
„Já, hinn þjóðfélagslegi þáttur tón-
listarinnar. 1 svona litlu samfélagi eins
og hér verður tónlistin mun nær f ólkinu
en annars staöar. Þar af leiðir aö hún
nær til hlutfallslega stærri hóps. Ég
held aö þessi nálægö staf i af þeim keim
sem tónlistin ber af landinu og sögu
þess. Um þetta hef ég skrifaö litla bók
og í vetur hef ég veriö með röö útvarps-
þátta í sænska útvarpinu, einmitt um
tengsl íslenskrar tónlistar við
þjóöfélagiö.”
Auk þessara þátta um íslenska
tónlist sér Göran vikulega um óska-
lagaþátt í sænska útvarpinu. „Þessi
þáttur er einungis fyrir nýja tónlist.
Þangaö skrifar fólk og biður um aö fá
aðheyra tónverk eftirStravinsky, Þor-
kel Sigurbjömsson, svo aö einhverjir
séu nefndir. Eg held bara aö þessi
þáttur sé einsdæmi í sinni röð í heimin-
um,” segir Göran, og er ekki laust við
aö hann sé örlítið hreykinn á svip. „Ég
hef séö um þennan þátt í fjöldamörg
ár, enda er ég þeirrar skoöunar aö
maöur eigi að gera lengi þaö sem
maður tekur sér fyrir hendur en í
smáum skömmtum svo aö maður fái
ekki leiða á því,” bætir hann viö og
kímir á ný.
Er ekki
að selja landið
— Meginástæða fyrir dvöl hans hér
nú?
„Ég er hér aðallega til aö tmdirbúa
kynningu á íslenskri tónlist í Svíþjóö
næstkomandi sumar. Þá á ég bæði við
tónlistarlegan undirbúning en einnig
hef ég átt viöræöur viö fulltrúa
menntamálaráðuneytisins um fjár-
mögnun þessarar kynningar. Þar aö
auki er ég aö viöa aö mér efni í út-
varpsþætti og aö kanna möguleika á að
sænskir tónlistarmenn komi hingaö til
lands til tónleikahalds.”
— Kynningarherferð?
Það er ótrúloga mikil andleg fjarlægð milli Norðurlandanna á tónlistarsvið-
inu.
„Þama er um aö ræöa stóran hóp ís-
lensks tónlistarfólks sem mun koma
fram á 40 tónleikum víös vegar um
Svíþjóö. Meöal þeirra, sem verða
þama á ferðinni, má nefna Hamra-
hlíðarkórinn, hluta af Islensku hljóm-
sveitinni, Manuelu Wiesler flautuleik-
ara og Þorkel Sigurbjömsson. Þetta
veröur, aö ég held, stærsta samfellda
kynning á íslenskri tónlist sem haldin
hefur veriö erlendis. Ég er að vona að
þetta geti orðið til þess aö ljúka upp
augum fólks fyrir Islandi, þessu
nágrannalandi sem Svíar vita því
miöur allt of lítiö um. Eg er þó engan
veginn aö reyna aö selja landið, heldur
er ég aö reyna aö vekja áhuga fólks á
Islandi meö því aö kynna fólki tónlist
landsins.”
Frelsuðust algerlega
Stærstu tónleikar íslenska tónlistar-
fólksins í ferðinni veröa á tónlistar-
hátíö sem er haldin í bænum östersund
í sambandi við vömsýninguna Expo
Norr sem veröur þar í sumar. Á þess-
ari tónlistarhátíð verður meðal annars
flutt verk sem Þorkell Sigurbjömsson
hefur tekið aö sér að semja fyrir hátíö-
ina.
„Þaö er geysilegur áhugi fyrir þess-
ari komu íslenska tónlistarfólksins til
östersunds og hann á rætur sínar aö
rekja til þess aö ég tók með mér hingað
til lands í haust tónlistarmenn frá
östersund, og nú eru þeir algerlega
frelsaðir,” segir Göran og skellihlær.
„Annars er íslensk tónlist töluvert vel
kynnt í Svíþjóö. Manuela Wiesler hefur
til dæmis unniö stórkostlegt starf við
kynningu á íslenskri tónlist. Þá má
einnig nefna Þorkel Sigurbjörnsson