Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1983, Qupperneq 24
24
DV. LAUGARDAGUR19. FEBRUAR1983.
Fyrstu námskeiðin í Skákskóla
Friðriks Olafssonar eru nú hafin og
er aðsókn mun meiri en menn þorðu
að vona. Kennt er alla virka daga
vikunnar frá 17—22 og má heita
fullskipað i alla hópa, svo aö færri
komast að en vilja. Hin mikla
aösókn bendir til þess að brýn þörf
hafi verið á stofnun sliks skóla, enda
hefur það staöið til lengi en ekkert
orðið úr framkvæmdum fyrr en nú.
Islendingar hafa því, þrátt fyrir
mikinn skákáhuga, orðiö að láta sér
lynda að sitja á sama bekk og aðrar
vestrænar þjóðir, þar sem lítill
gaumur hefur verið gefinn að skák-
kennslu og -þjálfun. 1 löndum austan
járntjalds gegnir öðru máli. Þar er
unnið skipulega að skákkennslu og
tryggt að þeir efnilegustu fái með-
ferð við sitt hæfi.
Skákskóli Friöriks Olafssonar er
sá fyrsti sinnar tegundar hér á landi,
en alls ekki fyrsta tilraunin til skák-
kennslu á Islandi. Skák er viða kennd
í skólum og fyrir nokkrum árum
hleypti Skáksamband fslands svo-
kölluöu „Skólaskákmóti” af stokk-
unum þar sem sterkustu skákmenn
hvers skóla á landinu leiöa saman
hesta sína. Unglingastarf innan tafl-
félaganna er einnig töluvert, en þó
einkum hjá Taflfélagi Reykjavíkur
sem hefur alið upp margan skák-
meistarann. í mörg ár hefur TR
staðið fyrir unglingaæfingum á
laugardagseftirmiðdögum í húsa-
kynnum sínum á Grensásvegi 44. Þá
starfrækti félagiö sumarbúðir í
nokkur ár, fyrst í Skálafelli 1975 og
síðan í Skíðaskála Víkings í Sleggju-
beinsdölum. Þá má nefna Skákskól-
Um skúhþjúlfun
og skúkkonnslu
ann á Kirkjubæjarklaustri sem
starfað hefur undanfarin sumur við
góðan orðstír. Og svo mætti lengi
telja.
Hins vegar hefur ekki verið boöiö
upp á kennslu fyrir „lengra komna”
og fullorðna, fyrr en með tilkomu
Skákskóla Friðriks og að því leyti
kemur hann í stað þjálfaranna í
austantjaldslöndunum. Raunar er
allur samanburður viö þessi lönd
erfiður vegna annars konar
þjóðskipulags, en í skákmálum ættu
fslendingar þó að taka þau sér til
fyrirmyndar því að skákáhugi er þar
á svipuðu stigi og hér á landi. Aftur á
móti er sá reginmunur á að í þessum
ríkjum er talin viðurkennd starfs-
grein að vera skákmaður. Hér eru
þeir stundum nefndir iöju-
leysingjar.....
Ungverjar hafa á aö skipa sterku
skákliði með þá Portisch og Ribli í
broddi fylkingar. Þar í landi er skák-
listin tekin mjög föstum tökum enda
áhugi meðal almennings geysimikill.
Þeir leggja mikla áherslu á að þjálfa
unga skákmenn upp á réttan hátt svo
að þeir nái aö beisla sina hæfileika til
fulls. Allir skákmenn í Ungverja-
landi, sem hafa 2350 Eló-skákstig eða
meira, eiga þess kost að þiggja laun
hjá ríkinu hafi þeir áhuga á að leggja
skáklistina fyrir sig. Nú er árangur
af þessu aö koma i ljós því að Ung-
verjar eru nú taldir næststerkasta
skákþjóð heims, einungis á eftir
Með tilkomu Skákskóla Friðriks Olafssonar eiga ungungar sem stundað hafa
skák um nokkurt skeio kost á framhaldsmenntun. Myndin er frá unglinga-
skólamóti.
Sovétmönnum sem eru í sérflokki og
hafa veriö öll þessi ár.
Þar er skákþjálfun og -kennsla
náttúrlega líka í sérflokki. Skák er
skyldunámsgrein í mörgum skólum
og þeir allra efnilegustu fá inngöngu
í sérstaka skóla fyrir úrvals-nem-
endur. Þar eru fremstir í flokki
skólar sem tveir fyrrum heims-
meistarar standa að, Botvinnik-skák-
skólinn og Skákskóli Smyslovs. Stutt
er síðan Smyslov setti á fót skák-
skóla, en Botvinnik-skólinn hefur
starfað lengur og útskrifað marga
snjalla skákmenn. Karpov heims-
meistari er þar á meðal, en auk hans
má nefna Kasparov, Balashov, Jusu-
pov og Dolmatov.
Eg rakst á grein um Botvinnik-
skákskólann í sovésku tímariti frá
1978 sem verður því skemmtilegri
lesning sem lengra líður frá því hún
var rituö. Þar er fjallaö sérstaklega
um eftirlætisnemanda Botvinniks,
óvenju bráðþroska 14 ára pilt. í
greininni segir að piltur þessi hafi
haft geysilegan áhuga á mannkyns-
sögu í frumbernsku og m.a. 9 ára
gamall lesiö spjaldanna á milli
þykkan doðrant um Napóleon. Lýst
er í greininni er Botvinnik tekur
hann uh> að töflu, en varð að stoppa
hann af, því að hann fór svo hratt
yfir afbrigðin að Botvinnik gamli gat
ekki fylgst með. Piltur þessi hafði
unnið það einstæða afrek árið áður
aö verða unglingameistari Sovétrík j-
anna f yrir skákmenn 20 ára og yngri.
Nafn hans er Garrí Kasparov og nú
er hann annar sterkasti skákmaður
heims og er á uppleið. Botvinnik'
sjálfur spáði því fyrir mörgum árum
Reykjavíkwrmeistar atitill -
innhékk á einum impa
Reykjavíkurmeistarar i sveitakeppni
1983. Talið frá vinstri: Sigurður
Sverrisson, Valur Sigurðsson, Jón
Baldursson og Sævar Þorbjörnsson.
Eins og fram hefur komið í fréttum andi úrslitaleik um síöustu helgi á
þá sigraöi sveit Sævars Þorbjörnsson- Hótel Loftleiðum.
ar sveit Jóns Hjaltasonar í æsispenn- Fjórar sveitir kepptu til úrslita auk
AÐALFUNDUR
Iþróttafélagið Fylkir heldur aöalfund sinn í samkomusal
Arbæjarskóla laugardaginn 26. febrúar nk.kl. 13.30.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf
Lagabreytingar
Önnur mál ST JORNIN.
LANDSBANEIISLANDS
UTBOÐ
Landsbanki Islands óskar eftir tilboðum í að byggja hús í
Olafsvík. Húsið steypist upp á tilbúna botnplötu og skal því
lokið að fullu jafnt innanhúss sem utan ásamt frágangi lóðar.
Tilboðsgagna sé vitjað til skipulagsdeildar Landsbankans,
Alfabakka 10, eða til útibús Landsbankans í Olafsvík, gegn
skilatryggingu að upphæð kr. 7.000,00.
Tilboð verða opnuö þriðjudaginn 15. mars 1983, kl. 11.00 f.h., á
skrifstofu skipulagsdeildar bankans og jafnframt í útibúi
Landsbankans í Ölafsvík.
EVORA SNYRTIVÖRUR
Reynimelur 24 107 Reykjavik S. 20573
Emm aö stækka við okkur — ráðum
nýja söluráðgjafa.
Evora, vestur-þýskar gæðavörur, eru seldar í vinsælum
snyrtiboöum (heimakynningu).
Konur sem hafa áhuga á sölumennsku og snyrtivörum, hafiö
samband við okkur. Aldurslágmark 25 ára.
Undirbúningsnámskeið haldin í Reykjavík.
Evora umboðið
Reynimelur 24 Reykjavík, sími 20573.
þeirra ofangreindu, sveitir Egils Guð-
johnsen og Olafs Lárussonar, og voru
þær síðamefndu fljótt úr leik þrátt
fyrir að þær hefðu báðar gott forskot í
hálfleik við hinar sveitimar.
Vegna yfirburðasigurs Jóns í undan-
keppninni flutti hann með sér stig í úr-
slitakeppnina. Voru það 8 impar við
sveit Sævars en aöeins meira við
hinar. 1 hálfleik hafði Sævar unnið þá
upp og bætt við 10 impum. Hálfleiks-
staðan því 54—44 fyrir Sævar.
I seinni hálfleik vann Jón 13 impa á
en hann þurfti 14 og sveit Sævars varð
því Reykjavíkurmeistari á einum
impa.
Þegar svo litlu munar þá skiptir
hver slagur máli og áreiðanlega höfðu
allir spilarar Jóns mótið í hendi sér
einhvem tímann í leiknum.
Hér er spil frá úrslitaleiknum.
Vestur gefur/ a-v á hættu
Norouk
* ÁD876
'í? G
O AKD3
+ 853
Vtsil H Austuh
+ G1092 * 53
V A2 V D9864
O 109872 O G65
+ 62 + KD9
Súðvh
+ K4
K10753
O 4
+ ÁG1074
I lokaða salnum sátu n-s Sigurður
Sverrisson og Valur Sigurðsson en a-v
Hjalti Elíasson og Hörður Arnþórs-
son:
Vestur Norður Austur Suður
pass 1S pass 2H
pass 3T pass 3G
pass pass pass
Eðlilegar sagnir og góður lokasamn-
ingur. Valur fékk líka hámarksárang-
ur — ellefu slagi og 460.
A sýningartöflunni sátu hins vegar n-
fQ Bridge
Stefán Guðjohnsen
s, Símon Símonarson og Jón Ásbjöms-
son en a-v Sævar Þorbjömsson og Jón
Baldursson. Nú fóru sagnir á annan
veg:
Vestur Norður Austur Suður
pass 1L pass 1H
pass 1S pass 2 H
pass 3T pass 3G
pass 4 S pass pass
pass Sævar spilaði út laufakóng og áhorf-
endur fylgdust spenntir með. Við
fyrsta tillit virtist spilið standa og falla
með hjartaíferðinni, en samgöngu-
erfiðleikar vom hins vegar fyrir hendi.
Það var Ijóst, að gæfi Símon laufa-
kóng, þá var spiliö auðunnið. Prófið
sjálf.
Hann drap hins vegar á ásinn, spil-
aði fjórum sinnum trompi og Jón var
inni. Hann spilaöi nú tígli til baka,
Simon drap, spilaði hjartagosa og svín-
aði. Spilið er nú unnið þar eð Símon á
innkomu á blindan til þess að taka
hjartakóng sem er tiundi slagurinn.
Hefði Jón hins vegar spilað laufi,
þegar hann var inni á trompinu, þá
getur Símon samt unniö spiliö. Sævar
verður að gefa laufið og Símon fer
heim á tígul og spilar hjartagosa og
svínar. Jón spilar tígli og Símon tekur
tvisvar tígul og spilar lauf i.
Einn impi tapaður og mótið um leið.
I sveit Sævars spiluöu auk hans Jón
Baldursson, Sigurður Sverrisson og
ValurSigurðsson.
Allar sveitirnar í úrslitakeppninni
vom frá Bridgefélagi Reykjavíkur.
Lokastaðan í
GÁB-barómeternum:
1. Gunnar-Kristján stig 194
2. Vilhjálmur-Sigurftur 165
3. Sævar-Gísli 129
4. Sigfús-Kristmann 105
5. Páll-Leifur 76
6. Þorvarftur-Sigurftur 69
7. Larsen-Grímur 67
8.-9. Einar-GisU 64
8.-9. Jónas-Kristján 64
10. Eygló-Valey 52