Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1983, Síða 26
26
DV. LAUGARDAGUR19. FEBRUAR1983.
West Ham United er stofnað árið
1900 og var kosið inn í deildirnar árið
1919 og vann sig í fyrsta sinn upp í 1.
deild árið 1923 en féll níu árum siðar í
2. deild þar sem liöið lék næstu
tuttugu og sex árin að það vann sér
sæti í 1. deild og hélt þar sæti í
tuttugu ár að 2. deildin blasti við
félaginu á nýjan leik. Segja má að
velgengni féagsins hafi ekki byrjað
fyrr en Ron Greenwood tók við stjórn
félagsins árið 1957 og var hann fram-
kvæmdastjóri í næstum 17 ár áöur en
hann lét af störfum. West Ham hefur
ekki gengið vel að komast í hóp allra
efstu liöa í gegnum árin en hefur
gengiö þeim mun betur í bikarkeppn-
um og hafa þeir unnið enska bikarinn
þrisvar sinnum, síðast árið 1980 eftir
úrslitaieik við Arsenai en þá var liðið
í 2. deild og þótti þetta mikill sigur
fyrir félagið. í gegnum árin hefur
West Ham haft marga af snjallari
knattspyrnumönnum Englands i sin-
um röðum og má þar nefna heims-
meistarastjörnurnar Bobby Moore,
Geoff Hurst og Martin Peters og
aðra kappa eins og Biily Bonds,
Frank Lampard og Trevor Brooking
en þessir ieikmenn hafa leikiö með
félaginu i meira en 15 ár.
9 Frank Lampard
John Lyall iék sem ieikmaður
með West Ham United og er þeim
ferli iauk gerðist hann þjálfari
hjá félaginu og síöan aðstoðar-
framkvæmdastjóri en var gerð-
ur að framkvæmdastjóra félags-
ins árið 1974 svo hann hefur verið
einna lengst allra framkvæmda-
stjóra hjá félagi nú. Liðið hefur
tvisvar orðið bikarmeistari undir
hans stjórn og auk þess komist í
úrslit deildarbikarkeppninnar.
Hefur alltaf náð því besta út úr
leikmönnum enda óhræddur við
að kaupa leikmenn sem kannski
eru orðnir nokkuð gamlir enda
hafa þeir ávallt staðið sig vel
með liðinu. Er einn af virtustu
framkvæmdastjórum á Englandi
og kom mjög til álita sem ein-
valdur enska landsliösins ef
Bobby Robsons hefði ekki tekið
stöðuna.
Gengi félagsins hefur verið nokkuð
upp og ofan í vetur og má þar
kannski mest kenna um miklum
meiðslum h já liðinu.
West Ham United hefur ávallt leik-
ið mjög góðan sóknarleik og má því
kalla það sóknarlið sem ekki er
mikið um i ensku knattspyrnunni
nema kannski nú allra síðustu ár.
Leikkerfi West Ham er 4—3—3 og
er dálítið sérstakt miðað við önnur
lið að annar miðvörðurinn leikur
miklu framar og tekur mikinn þátt í
sóknarleik liðsins sem einnig er vel
studdur af bakvörðum og miðju-
mönnum en West Ham hefur verið
frægt fyrir sína góðu miðvaliarspil-
ara i gegnum árin.
• John Lyall sést hér ræða við Paul Goddard.
____John Lyall
Phil Parkes
(England)
— Markvöröur, hóf feril sinn hjá 3.
deildarfélaginu Walsall en hafði ekki
leikiö lengi með félaginu þegar
Queen’s Park Rangers festi kaup á
honum og var hann hjá því félagi
næstu tíu árin en var þá seldur til
West Ham fyrir 475.000 pund sem
þá var metupphæð fyrir markvörð.
Er talinn einn af bestu markvörðum
Englands.
Hefur leikið 558 deildarleiki fyrir
Walsall, Queen’s Park Rangers og
West Ham United.
Ray Stewart
(Skotland)
— Hægri bakvörður, hóf feril sinn
með Dundee United en hafði ekki
leikið lengi með félaginu þegar West
Ham festi kaup á honum fyrir háa
upphæð eða 400.000 pund og voru
margir hissa á framkvæmdastjóran-
um að kaupa svo óreyndan mann
fyrir þetta mikinn pening. En hann
hefur sýnt það og sannað að það var
síst of mikið verö enda einn allra
besti leikmaður liðsins í dag.
Hefur leikið 187 deddarleiki fyrir
Dundee United og West Ham United.
Frank Lampard
(England)
— Vinstri bakvörður, kemur úr
unglingaliðinu og hefur nú veriö leik-
maöur hjá félaginu í meira en 16 ár
og er enn ekkert á því að hætta.
Skoraði mark West Ham sem kom
þeim í úrslit á Wembley áriö 1980.
Hefur leikið 514 deildarleiki.
Billy Bonds
— Miðvörður, hóf feril sinn hjá
Charlton Athletic en var fljótlega
seldur til West Ham þar sem hann
hefur nú leikið í meira en 16 ár og
verið einn þeirra allra besti leikmað-
ur. Er mjög marksækinn af miðverði
af vera og hefur skoraö nálægt 50
deildarmörk með félaginu. Náði
aldrei að leika landsleik fyrir
England og fannst mörgum það
skömm fyrir þaö hversu góður leik-
maður hann er.
Hefur leikið 654 deildarleiki fyrir
Charlton Athletic og West Ham
United.
Alvin Martin
(England)
— Miðvörður, kemur úr unglingalið-
inu og var fljótur að vinna sér sæti í
aðalliði og er nú í dag talinn með
betri miðvörðum á Englandi. Missti
af heimsmeistarakeppninni á Spáni
vegna meiðsla en er annars fastur
maður í liði Englands.
Hefur leikið 158 deildarleiki.
Alan Devonshire
(England)
— Miðvallarspilari, kemur frá
utandeildarfélagi og er nú í dag orð-
inn heilinn á bak við spil West Ham
eftir að Trevor Brooking meiddist og
hefur auk þess unnið sér sæti í enska
landsliðinu. Er frægur fyrir sínar ná-
kvæmu sendingar á meðspiiara sína.
Hefur leikið 234 deildarleiki.
Francois van der Elst
(Beigia)
— Framherji, hóf feril sinn hjá
belgíska félaginu Anderlecht og var
einn aUra besti leikmaður þeirra
þegar hann ákvað að fara til banda-
ríska félagsins New York Cosmos en
var keyptur tU West Ham Utd. á síð-
asta keppnistímabiU. Var í Uði
Belgíumannna í heimsmeistara-
keppninniá Spáni.
Hefur leikið 43 deildarleiki fyrir
West Ham.
• Alan Devonshlre
9 Alvin Martin — miðvörður enska landsliðsins.
Lelkmeiui VVcsí Ham
9 Paul Allen
Paul Goddard
(England)
— Miðframherji, hóf ferU sinn hjá
Queen’s Park Rangers en hafði ekki
leikið lengi með félaginu þegar West
Ham bauð metupphæð í hann, 800.000
pund, og var því boöi tekið strax. Er
með betri miðframherjum á Eng-
landi en hefur ekki náö sér alveg á
striknúí vetur.
Hefur leikið 168 deildarleiki fyrir
Queen’s Park Rangers og West Ham
United.
Sandy Clarke
— Miðframherji, hóf ferU sinn hjá
Airdrie í Skotlandi og varð fljótlega
aöalmarkaskorari þeirra og voru því
mörg ensk félög farin að renna hýru
auga tU hans þegar West Ham festi
kaup á honum óvænt fyrir 200.000
pund. Hefur leikið 23 deildarleiki
fyrir West Ham United.
Ekki vitað hve marga leiki hann
lékfyrir Airdrie.
Paul AUen
— Miðvallarspilari, kemur úr
ungUngaliöinu og ávann sér sæti í
aðaUiöi skömmu fyrir úrslitaleikinn
gegn Arsenal árið 1980 og varð þá
yngsti leikmaður í úrslitaleik á
Englandi aðeins 16 ára gamall. Er
talinn framtíðarleikmaður West
Ham.
Hefur leikið 87 deddarleiki.