Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.1983, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.1983, Blaðsíða 9
DV. LAUGARDAGUR19. MARS1983 9 láta ljós ekki loga aö óþörfu! Draum- urinn um ódýra orku meö virkjun fall- vatna landsins hefur nefnilega breyst í martröð. Það var fariö of geyst og tekin hættulega há erlend lán sem leggjast nú á almenna raforkunotend- ur með fullum þunga. Og augum var lokaö fyrir þeirri grundvallarbreyt- ingu sem ég drap á hér aö ofan og leiddi til þess aö orkufrekur iönaöur getur ekkert borgað fyrir rafmagn eins og upplýst var á alþingi sl. vor. Samt voru þá geröar samþykktir á alþingi sem þýöa aö áfram verður haldiö á þessari braut — veröi þær ekki endurskoðaöar frá rótum. Á þessu sviði virðist afar erfitt að skapa skiln- ing á því hve sá raunveruleiki sem við blasir er frábrugðinn þeim draumheimi sem leiöandi stjórnmálamenn og sér- fræöingar þeirra hrærast í. Það gefur raunar tilefni til aö skoöa nánar hlut sérfræðinga í rangri stefnumörkun eins og vikiö verður aö síðar. Skýring- ar á því aö draumsýn er tekin sem veruleiki á þessum vettvangi, enda þótt blákaldar staöreyndir blasi viö, má vafalaust rekja til orsaka sem um margt eru skyldar þeim sem áöur voru nefndar. Það eru svo margir sem ekki vilja heyra á það minnst aö endalaust áframhald á hagvexti og velmegun er ekki mögulegt. Stjórnmálaflokkamir og talsmenn þeirra veröa því aö kepp- ast um aö lýsa yfir stórhug sínum og djörfum áformum í þessum efrium eigi þeir aö eiga von um aö halda fylgi sínu eöa auka það. Þannig hefur myndast vítahringur: hin falska draumsýn verður sífellt glæsilegri í gagnkvæm- um samskiptum stjórnmálamannanna og kjósenda — en veruleikinn sveipast þoku. Ég vona aö lesandi, sem náð hefur hingaö, hafi gert sér ljóst aö þau úreltu og vafasömu þjóöfélagslegu markmiö sem minnst var á í upphafi tel ég m.a. bundin fiskveiöi- og efnahagsstefnu, sem leiðir til rányrkju og ofnýtingar, og virkjana- og stóriöjustefnu, sem leiðir til varasamrar skuldasöfnunar, sem getur reynst efnahagslegu sjálf- stæði þjóðarinnar hættuleg og farin er aö bitna með þunga á almenningi. Og er þá komiö aö því aö leita frekari skýringa en þegar hafa veriö nefndar á því hversu erfitt reynist aö hnika þess- ari stefnu til og vekja til endurmats á henni. Sú leit getur væntanlega skýrt nokkuð hvaöa möguleikar kunna aö vera á að þoka hér um en um þaö verð- ursvo fjallað í lok síðari greinarinnar. Hvers vegna reynist örðugt að breyta viðhorfum og stefnu? Hér er ekki tækifæri til að benda á nema fátt eitt af því sem ástæöa gæti verið til aö skoða þegar leitast er við að svara þessari spurningu. Ég hef þegar vikiö aö hinum erfiöu aöstæöum sem rikja á markaöstorgi stjómmálanna: Rótgrónar hugmyndir um endalausan vöxt framleiðslu og iífsþæginda móta viðhorf og kröfur frá almenningi til valdhafa um að engu verði fómað. Sé þeim annt um völdin veröa þeir að taka undir kröfurnar með því að heimila áframhaldandi lántökur í erlendum bönkum og rányrkju á fiski- miðum. Þeir verða meira aö segja að tryggja þeim allt of stóra flota sem hana stundar „eðlilegan rekstrar- gmndvöll”. Sem allra flestir kjósend- ur veröa jafnan aö eiga von á nýjum togara, verksmiðju eöa virkjun! Þrátt fyrir heiðarlegar tilraunir til aö spyrna viö fótum af hálfu sumra stjómmálamanna, leiðara- og greina- höfunda í dagblöðum og ýmissa sem láta í sér heyra um þjóömál á öörum vettvangi sést lítill vottur um árangur. Sú skoðun virðist útbreidd að það séu nógir peningar til í þessu þjóöfé- lagi”. Þeir eru bara ekki í réttum höndum — þ.e.a.s. mínum! Og þaö telja margir einhverjum stjómmála- flokki að kenna — jafnvel öllum — eöa þá „kerfinu”! A.m.k. er ljóst aö áhugaleysi á starfi stjómmálaflokk- anna og vantrú á þeim fer vaxandi. T.d. sýna skoöanakannanir Dagblaös- ins, Vísis og Helgarpóstsins undanfar- in ár aö allt að helmingur aöspurðra reynist aö jafnaði ófús aö taka afstöðu með neinum stjórnmálaflokki en er fús til aö fara um þá háðulegum orðum, s.s. „ráða ekki viö neitt” eöa „þaö er sami rassinn undir þeim öllum.” Og síðasta hálfan annan áratug hafa þau framboö sem hefur tekist aö kynna sig sem einhvers konar uppreisn gegn „kerfinu” eöa „gömlu flokkunum” jafnan átt sigurinn vísan, allt frá I- lista framboöinu í Reykjavík í alþing- iskosningum 1967 til kvennaframboða í síöustu sveitarstjómarkosningum. Ályktanir af þessarí þróun læt ég bíða þar til í lokin. Ég vil þó strax geta þess aö ég held að framtíöin sé þeirra stjómmálaflokka og hreyfinga sem tekst aö rífa sig út úr þeim varasama vítahring loforöa og loftkastalasmíði sem ég vék að hér aö ofan og þora að reifa málin án þess að segja hálfan sannleikann. Flokka sem móta stefnu sína án þess aö slíta það samhengi sem nauðsynlegt er aö skoða málin í. En jafnframt skal fúslega viður- kennt aö það er ekki létt verk aö rjúfa þennan vítahring. Á því eru m.a. sögu- legar skýringar sem rekja má til þró- unar atvinnulífs, tækni, vísinda og hug- myndafræði fyrri alda. Ekki er ástæða til aö rekja þaö aö neinu marki hér en mig langar þó til að birta hér til skýr- ingar stutta tilvitnun í erindi sem Þor- steinn Helgason flutti á ráöstefnu um aðstoð við þróunarlöndin á vegum „Kirkjuritsins” í Skálholti i fyrra: Á 19. öld fékk sú skoðun smám sam- an mikið fylgi aö allt horfði nú til betri vegar; aö allt sem hræröist þróaöist stööugt upp á viö. Þróunar- kenning Darwins skýröi þetta í dýra- ríkinu. Báöar meginhugmynda- stefnur 19. aldar, frjálshyggjan og sósíalisminn, einkenndust af þessari bjartsýni um þróun samfélaganna þrátt fyrir ýmis hliðarspor, átök og erfiðleika sem þær geröu ráð fyrir. Þannig segir Karl Marx í formála fyrir fyrstu útgáfu höfuðrits síns, Fjármagnsins, þar sem England er jafnan viömiöun hans: „Þaö land sem er þróaðra í iðnaði sýnir því minna þróaða aðeins mynd sinnar eigin framtíöar. 4) Hér er að mínu mati vikið aö einni meginskýringu á því hve torvelt reyn- ist aö endurskoða vaxtahugmyndir fyrri tíma þótt nýr raunveruleiki blasi viö. I báöum áhrifamestu hugmynda- stefnum 19. og 20. aldar, frjálshyggju og sósíalisma, hefur í rauninni veriö lögö megináhersla á efnahagslega vel- ferð tengda iðnvæðingu og tæknilegum framförum. Lögmál hins frjálsa markaðar eiga að tryggja hana sam- kvæmt kenningum frjálshyggjunnar. En samkvæmt kenningum Marx áttu framleiðsluöflin í auövaldsþjóðfélag- inu að þróast á þaö stig aö krafan um breytta framleiösluhætti, sameignar- skipulag, yrði að knýjandi nauösyn. I ritum hans er hins vegar ekki aö finna haldbærar kenningar um hvemig tryggja megi þá lýöræöislegu þróun sem á að enda með afnámi rikisvalds- ins í sameignarskipulaginu eða útlist- un á þeim lifsháttum sem gætu ein- kennt þaö. Þeim lýsir Marx jafnan meö almennum orðum eins og t.d. í lok þriðja bindis „Auömagnsins”. Frelsi á þessu sviöi getur ekki falist í neinu öðru en því að maðurinn sem félagsvera, hinir sameinuöu fram- leiðendur, skipi samskiptum sínum viö náttúruna skynsamlega og láti þau hvíla á sameiginlegri stjórnun í stað þess að láta hana st jórna séreins og einhverju blindu afli; aö hann leysi þetta verkefni þannig aö sem minnstu afli sé eytt og við þau skil- yrði sem henta best eöli mannsins og sæma honum best. En þetta verður alltaf innan marka nauðsynjarinnar. Handan þeirra hefst þroski mann- legs máttar sem er takmark í sjálfu sér, hinn sanni heimur frelsisins sem þó getur aðeins dafnað á grundvelli nauðsynjarinnar. Grundvallarfor- senda þess er stytting vinnudagsins. 5) Frjálshyggjan gengur út frá þeirri forsendu að viðbrögö mannsins og hugsunarháttur séu fyrst og fremst mótuö af efnahagslegum hagsmunum hans og raunin varð sú þegar sósíalist- ar gengu fram til baráttu undir merki marxismans að efnahagslegir hags- munir hinna undirokuöu stétta voru settir á oddinn. Tilraunir til að skýra þá mynd af nýrri tegund samfélags manna og nýrri manngerö, sem Marx einnig lýsti einungis með almennum orðum, sátu á hakanum uns róttækir hugsuðir á Vesturlöndum tóku upp þráðinn um og eftir miðja þessa öld. Samhliöa því nýja iðn- og hagvaxtar- skeiöi sem hófst eftir heimsstyrjöldina síðari í auðvaldsheiminum reis bylgja þjóðfélagslegrar gagnrýni með heim- spekilegu, félagsfræðilegu og sálfræði- legu ívafi. Gagnrýnin beindist bæði að þróun þeirra lífshátta sem fylgdi í kjöl- far aukinnar sérhæfingar vinnuaflsins, fjöldaframleiðslu og fjöldamenningar og þróuninni í þeim ríkjum sem kenndu sig viö sósíalisma í Austur Evrópu. Rykið var hrist af áður glötuð- um æskuritum Marx og samtíminn m.a. skoðaður í ljósi skilgreininga hans á firringu mannsins í þjóðfélagi sem breytir vinnuaflinu og mannleg- um samskiptum í markaðsvöru. Hjá einum kunnasta hugsuöinum í þessum hópi, Erich Fromm, er þessa bitru lýs- ingu að finna á því sem gerðist hjá þeim sem gengu fram undir merki Marx: Sósíaldemókratar á Vesturlöndum og hinir hörðu andstæðingar þeirra, kommúnistar innan og utan Sovét- ríkjanna, breyttu sósíalismanum þannig að hann takmarkaðist ein- göngu við það efnahagslega með há- marksneyslu og hámarkstækni aö markmiði. Khruschev, sem mótaði hugtakið „gullas”-kommúnismi, lýsti kjarna málsins með sínum ein- falda og glaðklakkalega hætti: Markmið sósíalismans væri aö veita allri þjóðinni þá neyslugleði sem kapitalisminn gæfi aðeins minnihlut- anum. Sósíalismi og kommúnismi hvíldu á borgaralegum efnahyggju- hugmyndum. Sumt í æskuritum Marx (sem yfirleitt voru brenni- merkt sem „ídealistiskt” rugl „unga” Marx) var haft yfir líkt og guðspjöllin á Vesturlöndum. 6) Enda þótt ótölulegur skari gagn- rýninna, róttækra og mannúðarsinn- aðra hugsuða og höfunda á öllum Vesturlöndum hafi tekiö undir slíka gagnrýni og beitt henni af enn meiri skerpu og ástríðu gegn markmiöum og lífsháttum í neysluþjóðfélögunum í auðvaldsheiminum sjást þess aðeins ógreinileg spor í starfi stjórnmála- flokka vinstri manna. Þess sjást skýr- ari merki í stefnuyfirlýsingum þeirra — en í verkunum. Enda er hér um að ræða markmið sem ekki njóta enn stuðnings f jöldans — eru borin fram af tiltölulega þröngum hópi mennta- manna, s.s. námsmanna-, umhverfis- vemdar- og kvennabaráttuhópum. Þeir hafa yfirleitt ekki náð verulegum áhrifum á þjóðþingum, en nokkrum í sveitastjórnum. Ný stefnumið — gagnrýni. á neysluþjóðfélagið I seinni hluta greinarinnar veröur 'f jallað um þjóöfélagslega gagnrýni hér á landi — og visst endurmat sem greina má bæði í viðhorfum frjáls- hyggjumanna og sósíalista. Hér verð- ur að lokum birt samantekt Erich Fromm í bók hans „To have or to be” á því sem hann telur einkenna þjóöfé- lagslega gagnrýni í seinni tíð. Þrátt fyrir þá miklu breidd og þær ólíku hug- myndafræðilegu forsendur og vissu mótsetningar sem þama er um að ræða telur hann eftirtaldar hugmyndir og viðhorf vera sameiginleg hjá þeim höfundum og hópum sem þama er um að ræða: — Framleiðslan þjóni raunverulegum þörfum fólksins, ekki þörfum efna- hagskerfisins. — Nýja samskiptahætti manns og náttúm þarf að móta á grundvelli samvinnu en ekki rányrkju. — Samstaöa verður að leysa sam- keppni af hólmi. — Markmið allra félagslegra aögeröa verði að tryggja mannlega velferö og koma í veg fy rir vesöld manna. — Ekki sé keppt að hámarksneyslu heldur heilbrigöri neyslu sem eykur mannlega velferð. — Einstaklingurinn veröi virkur þátt- takandi í samfélaginu en ekki óvirk- uráhorfandi. Hér er vissulega um almenna lýs- ingu að ræða sem fróðlegt væri að reyna að gera ítarlegri og nákvæmari. Það verður þó einungis gert með óbein- um hætti í framhaldinu um leiö og ég vík að umræðu sem einkennist af skyldum viðhorfum hér á landi og reifa eigin hugmyndir um nærtæk verkefni okkar í lokin. En áöur en lengra er haldið gæti verið gagnlegt að birta stutta og kjarngóða lýsingu á því sem verið er að rísa gegn. Hún er tekin úr því riti um þjóðfélagsmál sem mesta athygli og umræður hefur vakið í Dan- mörku á seinni árum og var þýdd fljót- lega á allar helstu tungur Noröur- landaþjóða, þ.á m. íslensku. „Upp- reisn frá miðju” nefnist það og kom út í Danmörku árið 1978: Efnahagslegar framfarir hafa ekki jafnað muninn á ríkum og snauðum, hvorki innanlands né á alþjóðlegum vettvangi. Hin pólitíska þróun hefur á pappírnum veitt öllum hlutdeild í stjómuninni, en í reyndinni hefur hún aukiö bilið milli almennings og yfirvaldanna. Félagslegar framfarir hafa veitt einstaklingunum meira ör- yggi, en jafnframt slitið þá úr hinum nánari félagslegum tengslum. Framfarir í vísindum og tækni hafa skapaö stærra vandamál en þær hafa leyst — með vígbúnaðarkapp- hlaupi, umhverfismengun og rán- yrkju á náttúruauðlindum. Velferð- arsamfélagið á við vaxandi sálrænar þrengingar að stríöa, sem virðast eiga ræturí samfélagsgerðinni. I þessum orðum felst að mínum dómi ágæt samantekt á mörgu af því sem drepið var á hér á undan. Lokaorðin má skoða með hliðsjón af því aö nú er svo komið að nær helmingur sjúkra- rúma á Bretlandi og í Bandaríkjunum er notaður fyrir fólk sem á viö geðræn vandkvæði að etja. Því er ekki að undra að hugtakið „heilbrigt þjóðfé- lag” hafi orðið þjóðfélagsgagnrýnend- um seinni tima býsna hugleikiö. JánUriendi- verksmmjan að Grundarti íslenska jðmblendifélagið að Grundartanga JárnblendiverksmiAjan að Grundartanga ersú fyrsla sinnar legundar. sem byggð er a fslandi Hún tók til starfa vorið 1979 og Iramleiðir kisiljarn ur innfluttu hraefni og innlendri orku og selur alla Iramleiöslu slna á ef lendum markaöi. en um notkun Innanlands er vart að ræða I verksmiöjunni eru tveir rafbræðafdKfnar. sem framleitt geta 50 000 lonn al kisiljárni á ári. er^áCnægit til tramleiðslu 10-12 milljóna tonna af stáli VinmidfTsþörf verksmiöjunnar er um 175 manns Eigendur verj^fuð|unnar eru islenska rlklð. sem á meirlhluta hlulaljárins. or^rtfrska tyrirtaBkiö Elkem-Spigervorket a/s m klpncka jámblendifélagið lif. 1 Höfn 2 Hráefnageymsla 3 Færibandstregt (bak við nr 4 Þvottastöö (bak við nr 11) 5 Ofnhús 6 Kvarnarhús 7. Pokkunarhús 8 Járnblendigeymsla 9 Tengivirki Spennistöö f2) 11. Kælir 12. Siuhús 13 Kögglunarhús 14 Verkstæöi 15 Skrifstotur 16 Baöhús 17 Mötuneyti Talsmenn stjórnmálaflokkanna verða að keppast um að lýsa stórhug sínum og djörfum áformum eigi þeir að hafa von um fjöldafylgi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.