Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.1983, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.1983, Blaðsíða 23
Popp Popp DV. LAUGARDAGUR19. MARS1983 Hér í eina tíð skemmti eidra fólk sér við að giska á hvort hársíðir táningar væru kari- eða kvenkyns. Siíkar getraunir heyrðu sögunni til í lok slðasta áratugar, þegar snoðklipptir pönkarar og ung snyrtimenni í Hollívúddstíl gengu um götur. IMú hefur það hins vegar orðið einn ganginn enn að sagan endurtekur sig. Og er orðið næsta skammt milli endursýninga. Nýrómantíkin sem svo er kölluð fékk ungmenni til að draga fram afkáraleg föt að nýju (sem aldrei hafði kannski fallið niður), og það sem meira er; nú mála sig allir. Má á ný oft ekki á milli sjá hvort táningurinn var eitt sinn drengur eða stúlka. ...... . . . . Gott dæmi um þetta vandamál sem snúiö hefur aftur er breski táningurinn George O’Dowd. Hann er söngvari í hljómsveitinni Culture Club. Og hefur það fyrir siö aö mála sig í framan og segir fólki aö kalla sig Boy George. Þrátt fyrir þaö hafa margir velkst í vafa. Til aö mynda var hann kjörinn söngvari og söngkona liðins árs í vinsælda- kosningum eins blaðsins um síðustu áramót. En hann er strákur. Sjálfur segist Boy George ekki hirða hið minnsta um hvað annað fólk hefur um hann að segja. „Utlit mitt kemur engum öðrum við en mér sjálfum. Fólki finnst ég vera abnormal. Mér finnst það aftur á móti vera þess galli. Að rembast við að vera normal gerir fólkið abnormal. Skólinn kennir okkur að vera steypt í sama mót. Persónuleiki hvers og eins er bugaöur í skólum og allir koma út steyptir í sama form.” Alit drengins á skólanum er ekki bara í nösunum á honum. Sextán ára hætti hann í námi og sneri sér aö tiskunni. Eg las í Mogganum að hann hefði opnað tvær tískuverslanir í Bretlandi, þar af aðra í London. Hvað sem því líður vann hann um tíma í kvenfatatískuverslun sem hét og heitir The Foundry og stendur við tískustrætið Carnaby Street í Lundúnum. En Boy George er ekki nema einn fjórði af Culture Club. Hann sér þar um allan söng og textasmíð. Hinir eru Jon Moss, trommur, Roy Hay, gítar og hljómborð og Michael Craig, bassi. Þeir þrír sjá um að semja músíkina. Hvenær þeir hófu að spila saman hef ég ekki getað aflað mér upp- lýsinga um. Hins vegar hef ég það fyrir satt að ekki hafi munaö nema hársbreidd að Georgie boy (frb. djordsí boj) tæki við hlutverki Anna- bellu Lwin, söngkonu Bowwowwow. Hann æfði meira að segja meö hljóm- sveitinni í eina þrjá daga. Það mun síðan hafa verið blaðamaöur sem stakk upp á því að Georgie léti Bowwowwow lönd og leið og setti saman eigið band. Oft hefur gaspur blaðamanna haft verri afleiðingar. Culture Club þurfti ekki að bíða lengi eftir velgengninni. Fyrstu smá- skífurnar vöktu fljótlega athygh. Fyrst kom White Boy, þá I’m Afraid Of Me og loks hið undurfagra Do You Really Want To Hurt Me. Á haust- dögum í fyrra sendu fjórmenning- arnir frá sér fyrstu breiðskífuna, Kissing To Be Clever. Það var ekki að ósekju sem Culture Club komst of- arlega á lista yfir björtustu vonir í árslok. Á þessu ári hafa hjólin haldið á- fram að snúast. Lagiö Time (Clock Of The Heart) hefur náð miklum vinsældum, bæði hér á landi og eins úti í heimi. Japanir hafa mjög hrifist af Cult- ure Club og Boy George sérstaklega. Sagt er að Japanir hafi meiri áhuga á „image” (sem erfitt er að snúa) hljómsveitar heldur en tónlist hennar. Vinsældir þeirra þar eystra má marka af því að stórtviskífirma japanskt fékk Boy George til að aug- lýsa framleiðslu sína. Aður höföu vínandaframleiðendumir fengið Steve Strange, Madness og Bananrama í lið með sér. Kanar og Kanadamenn ku sömuleiðis hrifast af framkomu Georgie boy. Uppáhaldshljómsveit hins ljúfa Georgier annars Madness. Segir þá gera góöa hluti og ekki ástæða til George O'Dowd = Boy George = Georgie boy = strákur. annars en að taka undir meö honum. Georgie segist sjálfur vera enginn asni þótt öndverð skoðun sé ríkjandi að eigin sögn. Blaðamaður Melody Maker segir hið sama og lýsir honum sem „sólíd, skarpskyggnari, jarð- bundinni bisnesstýpu með vingjarn- lega framkomu”. Glæsileg einkunn. „Eg er mjög mikil tilfinninga-' manneskja og læt hjartalagið ráða,” segir bisnesstýpan að vísu. Og um texta sína segir hann: „Flestir texta minna eru mjög persónulegir og fjalla um ástina á fremur ruddafenginn hátt. Ekki vegna þess að ég hafi sjálfur verið óheppinn í ástum, heldur vegna þess að það er auðveldara að skrifa sorg- lega texta. Samt er enginn heims- endistónn í þeim. Mér er ekkert gefið um slíka texta eins og til að mynda Leonard Cohen á vanda til.” Kissing To Be Clever er breiöskifa sem ég vil mæla með. Tónlist Culture Club er fönkkennd blönduð með suð- rænum áhrifum og því mjög vel danshæf. Mikið ber á brassablæstri og Boy George er góður söngvari. Syngur með tilfinningu. Þótt þessi fagurmálaði fagurgali fái alla athygli fjölmiðla er ekki síöur á- stæða til að skjalla svolítið mennina þrjá sem standa með honum. Sem fyrr sagði sjá þeir um að setja saman músíkina. Og þegar allt kemur til alls er það músíkin sem lifir en maðurinn sem deyr. Eöa er þaöekki satt? -TT.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.