Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.1983, Síða 13
DV. LAUGARDAGUR19. MARS1983. 13 .
Komið að síðasta vatnsbólinu við
rætur Kilimanjaro. Guðrún Stefáns-
dóttir fyllir vatnsbrúsa sinn.
FLUGOGBILL •
sólolíu, myndavélum, regnfötum og
fleiri persónulegum munum.
Fyrsta dagleiöin er í gegnum mik-
inn og þéttan regnskóg eins og hann
gerist bestur í Tarzanmyndunum.
Regnskógur þýðir náttúrlega, eins og
nafniö gefur til kynna, einhverja
bleytu og hana fengum viö svo
sannarlega. Ef einhver var svo óhepp-
inn aö reka sig í trjágrein fékk hann,
og þeir sem næstir honum voru, um tíu
lítra vatnsgusu yfir sig en að öðru leyti
var léttur úöi yfir okkur allan daginn.
Fyrsti næturstaðurinn á fjalhnu er
Mandra-skálinn sem er í rúmlega tvö-
þúsund og sjöhundruö metra hæö.
Þama strax á fyrsta degi erum viö
komin töluvert hærra en hæsti tindur á
íslandi er. Þaö fyrsta sem mætir okkur
þar er fársjúkur maöur með f jallaveik-
ina. Tveir burðarkarlar höföu boriö
hann og keyrt á stórmerkilegum
sjúkrabörum úr fimm þúsund metra
hæö þann daginn og vom á leiðinni
niöur til Marangu. Ekki beint uppörv-
andi sjón aö sjá mannkertið svona á
sig komiö í byrjun feröar okkar, en
mikilleiki sjúkrabaranna bætti nokkuö
úr því. Sjúkrabömr þessar eru
venjulegar bömr, sem fest hafa veriö
undir eitt mótorhjóladekk með öllum
fjaöra- og demparaútbúnaði þannig aö
bæði er hægt aö keyra þær og halda á
þeim. Eina ráöiö viö fyrrnefndri
fjallaveiki er aö koma mönnum niöur
eins fljótt og hægt er og eftir aö niöur
er komiö jafna menn sig yfirleitt á ein-
um til tveimur dögum, nema þeir sem
deyja. Loftveiki þessi nefnist á fræöi-
máU Pulmonary Oedema og lýsir sér
þannig aö óeölilega mikill vökvi
safnast fyrir í lungunum, fólk á erfitt
meö andardrátt og andar ótt og títt
eins og hundur, þurr hósti og oft hóstar
fólk upp blóði. Andlitið veröur fölblátt
og auk þess fylgir þessu höfuöverkur,
svimi, ógleði, uppköst og máttleysi.
Þetta stafar af súrefnisskortinum þeg-
ar komiö er upp í mikla hæö.
Chloroquine og aspirín
________gegn malaríu_________
Um klukkan sjö, þegar tók að
dimma, voru allir buröarkarlamir
komnir aö skálanum nema einn. Þetta
þurfti endilega aö vera sá buröarkarl
sem bar útbúnaö minn. Þegar sóhn
sest kólnar mikiö og þar sem ég var
blautur var mjög bagalegt aö geta ekki
farið í þurr föt því þama var engin
upphitun. Tveir leiðsögumannanna
lögöu þá af stað meö Utinn olíulampa
aö leita aö buröarkarli niínum. Um
klukkan tíu komu þeú- aftur, annar
meö pokann minn á hausnum en hmn
meö buröarkarUnn á bakinu. Hann
haföi fengið slæmt malaríukast og
gefist upp á göngunni. ÞeU- höföu engrn
lyf svo viö gáfum þeim chloroquine og
aspirín töflur sem er læknislyfið gegn
malaríu:. Eftir þetta var sest að
snæðingi. Maturinn og ÖU þjónusta
kom okkur mjög á óvart. Uppdekkaö
borö meö dúki og munnþurrkum. For-
rétturinn var heit súpa og brauö. Þá
komu tvær geröir af kjöti, nauta- og
svínakjöt, meö kartöflum, baunum, sal-
ati og sósu. Eftirrétturinn var
blandaðir ferskir ávextir með rjóma —
og svo heitt kaffi á eftir. Leiösögu-
mennirnir sáu um allan matartil-
búnrng og þjónustu til borðs eins og út-
læröir væru. Sjálfir átu þeir ugali
(maísenamjöl sem soðiö er í þykka
köku) úti í eldhúsi, sem er UtiU kofi þar
skammt frá, ásamt burðarkörlunum.
Þama eru sérstakU- kofar fyrU- fjall-
göngugarpana og aörir fyrU- hjálpar-
kokka. Eftir þetta var lagst til svefns í
köldu, röku og ónotalegu loftslagi.
Hinn tuttugasta og áttunda júní
vöknuðum viö klukkan sjö viö þaö aö
leiðsögumennirnir færöu okkur heitt te
í rúmiö. Þá var sest aö morgunverðar-
borðinu sem ekki var af lakari
gerömni. Brauö, sulta, hafragrautur,
spælegg, beikon, ávextir og te. Á
meöan viö boröuöum gengu buröar-
karlamir frá farangrinum. Sá veiki
var sendur niður og einn af buröar-
körlunum meö honum þannig aö nú
þurfti aö þyngja í pokunum hjá hinum.
Náðhúsin hanga út
yfir klettabrúnina.. !
Lagt er af stað klukkan átta þrjátíu.
Fyrst um sinn er enn haldiö áfram í
gegnum regnskóginn en eftir tveggja
Ferðalangarnir við rætur hæsta
fjalls Afriku, Kilimanjaro, sem er
tæplega sex þúsund metra hátt.
Gunnar Levi Gissurarson er lengst
til vinstri. Við hlið hans stendur
Guðrún Stefánsdóttir, en hún þurfti
að hætta fjallgöngunni þegar
nokkur hundruð metrar voru eftir
vegna fjallaveikinnar sem þá fór að
sækja á hana. Mennirnir lengst til
hægri á myndinni eru tveir
IMorðmenn sem voru i samfloti með
Islendingunum upp fjallið.
tíma göngu komumst viö út úr honum.
Þá taka viö sjö dalir sem rölta þarf yfir
— upp og niður. Veðriö er frekar leiðin-
legt þennan dag, skýjaö og rigningar-
suddi, lélegt og stundum ekkert
skyggni vegna þoku.
Kilimanjaro er friðaður þjóögaröur
og þar lifir mikið af villtum dýrum. Viö
heyrum í þeim inni í skóginum en sjá-
um lítið vegna slæms skyggnis. Þó sjá-
um viö töluvert af öpum og smærri
dýrum en sem betur fer hittum viö
ekki fyrir buffalóa, fíia eða ljón, sem
lifa hér hka og láta stundum á sér
kræla.
Um hádegisbilið komumst viö upp
fyrir skýjabeltið. Þá tekur viö sól og
blíða. Þarna er áö og borðaður há-
degisverður.
Viö náum öörum fjallaskálanum
klukkan tvö. Nefnist hann Horombó og
er í rúmlega þrjú þúsund og fimm
hundruö metra hæö. Hér er boðið upp á
te og kökur en kaffi er komið á bann-
lista og er ekki á boöstólum eftir þetta
þar sem þaö eykur mjög á hjartslátt-
inn og er víst nógur fyrir, kominn yfir
hundraö og fimmtíu slög á mínútu. I
Horombó eru mjög skemmtilegir A-
laga skálar sem Norðmenn gáfu
Tanzaníu-mönnum áriö 1976. Þeir eru
byggðir á barmi klettasnasar og er
náöhúsunum sérstaklega skemmtilega
fyrir komiö. Þau hanga út yfir kletta-
brúnina og þaðan hefur maöur unaös-
legt útsýni yfir borgina Moshi og
Masai-sléttumar svo langt sem augað
eygir meðan maöur athafnar sig. Hér
er loftveikin og súrefnisskorturinn
farinn að segja til sín. Tveir félaganna
eru hálfslappir og leggjast fyrir.
Þama hittum viö Ameríkumann sem
búinn er aö dvelja nokkra daga í
Horombó-skálanum til aö aðlagast
hinu þunna loftslagi og búa sig undir
framhaldiö. Lágmarkstími til aö klífa
f jalliö er talinn vera fimm dagar og viö
stefnum aö því. Aörir taka sex til átta
daga til að gefa líkamanum tíma til að
aðlagast þessum breyttu aöstæðum og
ofgera ekki andlegu og líkamlegu
— sjá iiæstu sídu
Akstur að vild í 1 - 4 vikur.
Fjöldi bílategunda úr að velja.
Brottför vikulega mars — október.
9)
k!
0
£
gl
K
3:
J
Frá Luxemborg er fjöldi
fallegra leiða til margra
áugaverðustu staða álfunnar.
Bæklingur um akstursleiðir
í Mið-Evrópu fæst á skrifstofunni.
i fu • i'
V ' -7. " . W* v y -vv.
'jr v ^ í; ’Æv5
■émj
* ' á
Dæmi um verð:
Hjón með Ford Fiesta í 2 vikur:
Kr. 8.800.- fyrir manninn, =
kr. 17.600.- fyrir bæði.
Hjón með tvð bðrn 2-11 ára og Ford
Fiesta (B flokkur) í 2 vikur:
Kr. 24.110,- fyrir alla.
eða:
2xfullorðnir @6.740.- = 13.480.-
2 x barn @ 4.240.- = 8.480.-
Kaskótrygging = 1.400.-
4 x flugvallarskattur___= 750.-
Allskr. 24.110.-
Innifalið: Flug Keflavik-Luxemborg-
Keflavík. Flugvallarskattur. Bíla-
leigubíil með ótakmörkuðum akstri í
tvær vikur. Ábyrgðar- og kaskótrygg-
ing. Söluskattur. Ekkert aukalega
nema bensínkostnaður.
Bjóðum einnig flug og bíl
gegnum Kaupmannahöfn -
London og Glasgow
URVAL
við Austurvöll @26900
Umboðsmenn um allt land
IARO
uri Leri Gissurarsyni
fúnsdóttur