Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1983, Qupperneq 1
DAGBLAÐIЗVÍSIR
87. TBL. — 73. og 9. ÁRG. — MÁNUDAGUR 18. APRÍL 1983
1200manna skoðanakönnun DVnúum helgina:
Nýju framhoðin rífa af
Arfhkkunum ogFramsókn
Sjálfstæðisfíokkurinn styrkirstöðu sína
Nýju framboðin, Bandalag
jafnaðarmanna og kvennaframboð,
rífa til sín fylgi frá Alþýöuflokki,
Alþýðubandalagi og Framsóknar-
flokki, samkvæmt skoðanakönnun
sem DV gerði nú um helgina með
1200 manna úrtaki. Sjálfstæðis-
flokkurinn styrkir á hinn bóginn
stööusína.
Samkvæmt skoðanakönnuninni er
Alþýðuflokkurinn með 7,3% af fylgi
þeirra sem taka afstöðu. Hann haföi
17,4% í síöustu þingkosningum.
Flokkurinn fengi samkvæmt þessu 4
þingmenn og tapaði 6.
Framsóknarflokkurinn hefur sam-
kvæmt könnuninni 17,9% fylgi þeirra
sem taka afstöðu en hafði 24,9% í síð-
ustu þingkosningum. Hann fengi 12—
13 þingmenn samkvæmt könnuninni
enhefurnúl7.
Bandalag jafnaðarmanna fengi
10,9% samkvæmt könnuninni og 6
þingmenn.
Sjálfstæöisflokkurinn fær sam-
kvæmt könnuninni fylgi 41% þeirra
sem taka afstöðu en hafði 37,3% í síð-
ustu þingkosningum. Hann fengi
samkvæmt þessu 24—25 þingmenn
en hefur nú 22.
Alþýðubandalagið fengi sam-
kvæmt könnuninni 15% en hafði 19,7 í
síðustu þingkosningum. Flokkurinn
fengi samkvæmt því 9 þingmenn og
tapaði 2.
Kvennaframboð hefur samkvæmt
könnuninni 7,2% fylgi og fengi 4 þing-
menn. — Könnunin segir ekki með
neinni ákveðni til um hvort sérfram-
boð sjálfstæðismanna á Vestfjörðum
og BB-listi á Norðurlandi vestra fái
mann kjörinn.
Þorvaldur Búason eðlisfræöingur
hefur gert athugun á hugsanlegri
skiptingu óákveðinna samkvæmt
könnunum með DV-aðferöunum og
miðað viö fyrri reynslu. Ef
tilhneigingar í skiptingu þeirra
verða nú eins og áður hefur verið,
kæmi eftirfarandi út. Þá er miðaö við
að sama gildi um nýju framboðin og
áður gilti um framboö utan gömlu
flokkanna f jögurra:
Alþýðuflokkur fengi 6,8%, Fram-
sókn 25,0%, Bandalag jafnaðar-
manna 9,1%, Sjálfstæöisflokkur'
34,8%, Alþýðubandalag 17,5%,
kvennaframboð 6,0%, T-listi 0,3% og
BB-listi 0,5%. Þá fengi Alþýöu-
flokkur 4 þingmenn, Framsókn 16—
17, Bandalag jafnaöarmanna 5,
Sjálfstæðisflokkur 21—22, Alþýöu-
bandalag 10—11, kvennaframboð3.
-HH.
sjánánarum niðurstöðurábls.4og5
Víkingar
meistarar
— sjá blaðauka um
íþróttirbls. 21-28
Forsetinn
komínótt
„Ég held ég hafi ekki farið skemmti-
legri ferð,” sagði forseti íslands,
Vigdís Finnbogadóttir, er hún lenti á
Keflavíkurflugvelli skömmu eftir
miönætti í nótt. Handhafar forseta-
valds, Þór Vilhjálmsson, forseti
Hæstaréttar og Gunnar Thoroddsen
forsætisráðherra tóku á móti forseta
íslands.
ás/DV-mynd: S.
DV-FUNDURINNIKVOLD
hefst í Háskólabíói kl. 20.30
Kosningafundur Dagblaðsins—
Vísis verður í Háskólabíói í kvöld
klukkan 20.30. Þar koma fram tals-
menn allra þeirra lista er b jóða fram
í Reykjavík og er rétt að minna á að
þetta er eini sameiginlegi fundur
þeirra fyrir þingkosningarnar næst-
komandi laugardag. Lúðrasveit
Reykjavíkur leikur frá kl. 20.00.
Taismenn framboðslistanna eru:
Jón Baldvin Hannibalsson af A-lista,
Olafur Jóhannesson af B-lista,
Vilmundur Gylfason af C-lista,
Friðrik Sophusson af D-lista, Svavar
Gestsson af G-lista og Guðrún
Agnarsdóttir af V-lista.
Fundurinn hefst á framsöguræð-
um allra sex fulltrúanna en að þeim
loknum ber fundarstjóri, Magnús
Bjamfreðsson, upp skriflegar fyrir-
spumir frá fundarmönnum. Væntan-
legir fundargestir eru hér með
minntir á að hafa með sér skriffæri
og pappír. Að lokum flytur hver
f ramsögumaður stutt ávarp.
Fundargestum til þægindaauka
verður unnt að fylgjast með fundin-
um af sjónvarpsskjá í anddyrinu.
-pá