Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1983, Page 36
44
DV. MANUDAGUR18. APRÍL1983.
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Albert prins og Ceciiia Peck sjást œ oftar saman og þykir éstarbrimi skína úr augum þeirra.
Verður dóttir
Gregory Peck
furstaynja Mónakó?
Albert, sonur Rainiers Mónakó-
fursta og Grace Kelly, hefur aldrei
veriö eins mikið í sviðsljósinu og Karó-
linasystirhans.
Nú vekja hins vegar ástamál hans
fullt eins mikla athygli og karlastand
Karólínu því að erlendir fjölmiðlar
hafa komist á snoðir um samband hans
og Ceciliu, dóttur leikarans fræga,
Gregory Peck.
Cecilia er tuttugu og fjögurra ára
gömul og er dóttir Peck og annarrar
eiginkonu hans, Veronique. Þykir hún
ekki aöeins lík fööur sínum heldur
minna töluvert á Karólinu, systur Al-
berts.
Albert stundar framhaldsnám í New
York og hefur sést víða með Ceciliu, á
óperum, myndlistarsýningum og
víðar.
Slúðursögur ganga um aö Rainier
fursti hyggist segja af sér og mun Al-
bert þá taka við. En krafa Mónakóbúa
er aö hann finni sér kvonfang hiö
fyrsta. Þykir Cecilia hafa flest það til
brunns að bera semtil þarf.
Hún er fögur, af góðum ættum, talar
reiprennandi frönsku (er frönsk í aðra
ættina) og er kaþólikki.
Foreidrar Ceciliu, Gregory Peck og
Veronique, önnur eiginkona hans.
Cecilia þykir likjast föður sinum
mjög.
Tótf árum og nokkrum plastiskum skurðaðgerðum síðar. Glæsileg og
vinsæl gamanleikkona.
Goldie Hawn þurfti að hafa fyrir
því að komast upp á toppinn. „Fyrst
fékk ég alls engin hlutverk,” segir
hún. ,,Stjóramir sögðu að ég væri
með of stórt nef og of útstæða höku.”
Hún tók mark á þeim og lét laga til
andlitið á sér. „Þá tók ekki betra við,
ég fékk að leika heimskar ljóskur.
Striplaðist um í bikiní, brosti og
sagði bara já og nei. ”
Með dugnaði tókst henni að fá betri
hlutverk og nú efast fáir um að hún
sé ein besta gamanleikkona heims-
ins. En hún gerir sér grein fyrir því
að þegar aldurinn færist yfir mun
enginn vilja líta viö henni í vel laun-
uð hlutverk í gamanleikjum. Þess
vegna starfar hún samhliða sem
kvikmyndaframleiðandi. „Það er
eina leiðin til að geta haldið áfram í
kvikmyndum. Eg veit að stjömu-
tímabilið mitt rennur út og þá hef ég
til annars að hverfa.”
Goldi Hawn fyrir 12 árum, ósköp
venjuleg.
Þar var ort
um flokkana
D B A
Einn fundarmanna, Reynir Ragnarsson, lögreglu-
maður í Vík, orti þessar vísur á meðan á framboðs-
fundi stóð. Við fengum leyfi hans til að birta vísurnar
en Reynir var nokkuö tregur til þess í fyrstu þar sem
hann taldi hér um allt of mikinn leirburð að ræða.
G
C
Sjálfstœdisins sýndarsvid
sífellt skal hér sýna.
Hallast allt á aðra hlid
hafi þeir ekki reist þad vid
sem stjórnin var ad týna.
Nidurtalningin nýtist enn
notist í smáum skömmtum
flytjum inn bœði mýs og menn
med innflutningshöftum.
Alþýðuflokki er leiðin Ijós
leiðina betri leiða
afsegja alla til lands og sjós
en atkvœði bara veiða.
Eining urn íslenska leið
að Alþýðubandalags sið
brugga her, bana seið
berjast um sovéskan frið.
Félagshyggjuna farið er
ferlega að kynna
Vimma flokk við kjósum hér
vegna verka sinna.
-JGH