Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1983, Page 9

Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1983, Page 9
DV. MÁNUDAGUR 18. APRlL 1983. 9 Útlönd Utlönd Utlönd Utlönd Fjöldi hýddur í Pakistan I aöalfangelsi Karachi í Pakistan voru 132 herskáir múslimar húöstrýkt- ir í gær en 84 höföu veriö hýddir þar á föstudaginn. Herréttur deildi út þessum refsing- um eftir að 282 menn höfðu verið hand- teknir þegar shia-múslimar reyndu aö efna til mótmælagöngu í höfuðborg Pakistans á föstudaginn. 150 voru látnir lausir en 132 dæmdir tilhýðingar og sumir allt aö eins árs fangelsis jafnframt. Hver og einn hlaut 10 til 15 vandarhögg. Um 2000 manns höföu tekið þátt í kröfugöngunni og kom til átaka viö lög- regluna sem reyndi aö dreifa mann- safnaöinum. Kröfuganga shia var farin vegna deilu sem staöiö hefur milli þeirra og sunni-múslima um hvorir eigi mosku eina í úthverfi Réttarhöld vegna eitur- slyssins í Soveso höfuöborgarinnar. Róstur uröu út af þessari deilu í síð- ustu viku og var kveikt í verslunum, íbúöarhúsum og bifreiöum. Tólf létu lifið í átökum í febrúar og mars og gekk svo langt aö útgöngubann var leitt í gildi í sumum hlutum Karachi. Eiturverkanimar eftir sprenginguna í efnaverksmiðjunni í Soveso draga enn dilk á eftir sér. Myndirnar eru af fórnardýrum og mannlausa þorpinu, þar sem hreinsun er enn ekki lokið. Viðsjár íísrael Þrátt fyrir mótmæli Israela, sem andvígir eru frekara landnámi gyð- inga á hernumdu svæöunum, notar ísraelsstjórn þjóðhátíöardaginn í dag (þann 35. frá stofnun Israelsríkis) til þess að lýsa yfir stofnun nýs bæjarfé- lags á vesturbakka Jórdan. Þaö er herstöö uppi í Gerizim-fjalli nærri Nablus sem fær réttindi kaup- túns og skal hér eftir kallast „Efra Nablus”. — Nablus er annars stærsti bæraraba á vesturbakkanum. Friðarsinnar og andstæöingar land- náms á hernumdu svæðunum hafa for- dæmt þetta og andmæla því ennfremur aö þjóöhátíöardagurinn sé með þess- um hætti nánast helgaður samtökum rétttrúnaöar gyðingum sem ákaft vilja landnám á hernumdu svæöunum. Þessir aöilar hafa skoraö á lands- menn aö snúa hátíöarhöldum í tilefni dagsins yfir í mótmælaaðgerðir og hef- ur lögreglan i Tel Aviv og Jerúsalem mikinn viöbúnaö til þess aö halda uppi lögumogreglu. Réttarhöld hefjast í dag yfir mönn- unum sem stjórnuöu efnaverksmiðj- unni í Soveso á Italiu, þar sem spreng- ing fyrir sjö árum olli einhverri verstu eiturmengun er sögur f ara af í Evrópu. I nokkrum hámælum hefur verið aö undanförnu í Frakklandi og V-Þýska- landi dulargáta um hvaö orðið hafi af banvænum eitruöum úrgangsefnum sem hreinsuö voru upp eftir mengunarslysið. Grunur hefur leikiö á því aö þeim hafi veriö laumaö úr landi og ætlaö til óþekktra „öskuhauga”, annaö hvort í Frakklandi eöa V-Þýska- landi þar sem fólki óar viö. — En úr- gansefnin, geymd í 41 tunnu, virðast ger- samlega horfin. Nokkrum forráöamönnum verk- smiðjunnar er gefiö aö sök að hafa sýnt ábyrgðarleysi í skorti á aögæslu sem rekja megi orsakir slyssins til. Eitur- mengunin geröi um 1800 hektara lands óíbúðarhæfa og olli fólki heilsutjóni. — Verksmiöjan var í eigu svissnesks fyrirtækis, Hoffmann-Laroche. Framleiöslustjóri verksmiöjunnar var drepinn af vinstrisinna hryöju- verkamönnum 1980. Háar skaöabótakröfur hafa veriö lagðar fram í málinu, bæði frá einstaklingum og bæjarfélagi en um Umsjón: Guðmundur Pétursson Eru Bretar að guggna á Falk- landseyjum? Lundúnablaðiö Times boöar aö vænta megi í næsta mánuöi umsagnar áhrifamikillar þingnefndar um þá stefnu Breta aö ætla aö halda Falk- landseyjum og verja þær með her- valdi. Býst blaöið viö því aö nefndin telji ekki stætt á þeirri stefnu til lengd- ar. Thatcher-stjórnin hefur haldið því fram aö Bretland eigi ekki annarra kosta völ en verja Falklandseyjar fyrir Argentínu. Heldur hún úti fjölmennu vamarliöi með herskipum á og viö eyjarnar. Vamarliöiö er meir en tvisv- ar sinnum fjölmennara en íbúamir, sem em um 1800 talsins. Times heldur því fram aö þingmönn- um í nefndinni — og meirihluti þeirra er í íhaldsflokki Thatchers — ói kostnaðurinn af útgerð vamarliðsins svo langt í burtu meö öllum erfiöleik- unum viö birgðaflutninga þangaö. Segir blaöiö aö nefndarmenn séu á því aö besta lausnin séu samningar viö Argentínu til mjög langs tíma um aö þeir fái eyjamar en helst þó ekki fyrr en eftir nokkrar kynslóöir. Dansfólkið brann inni Eldur kom upp í tveim næturklúbb- um í S-Kóreu í gærkvöldi en báöir voru í sama húsi. Vitað er um 22 diskódans- ara sem f ómst í eldinum og aö minnsta kosti 70 sem slösuöust. Flest þetta fólk var táningareða rétt yf ir tvítugt að aldri, því aö þama voru samankomin um 400 ungmenni þegar eldurinn braust út. Annar klúbburinn var á jarðhæö og þar björguöust allir út en hinn á annarri hæö. þrjátíu manns urðu fyrir eitmn vegna Unniö er aö því að rífa verksmiöjuna er taliö aö eðlilegt ástand ætti aö slyssins. niöur og hreinsa nánasta umhverfi og komastá íSovesoá næsta ári. Vor- in að taka upp nyjar vörur frá Lauréi og daniel hechter ve&'

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.