Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1983, Síða 4
4
DV. MÁNUDAGUR18. APRÍL1983.
1200 manna skoðanakönnun DV nú um helgina:
Nýju framboðin rifa af
A-fíokkum og Framsókn
—Sjálfstæðisf lokkurinn styrkir stöðu sfna
Skoðanakönnunin bendir til að gamia fíokkakerfið riðlist á hinu nýja
Alþingi og stjórnarmyndun verði erfið.
Nýju framboðin, Bandalag jafnaðar-
manna og kvennaframboð, sópa til sín
fylgi frá Alþýöuflokki, Alþýðubanda-
lagi og Framsóknarflokki. Gamla
flokkakerfið hefur riölazt. Sjálfstæöis-
flokkurinn styrkir þó stöðu sína. Þetta
eru niðurstöður skoðanakönnunar,
semDV gerðinú um helgina.
Urtakið í skoöanakönnuninni var
1200 manns. 1 fyrri könnunum DV
hefur úrtakið veriö 600.
Frá því DV gerði síðast skoðana-
könnun, í febrúar, hafa orðiö athyglis-
veröar breytingar á fylgi framboð-
anna. Kvennaframboð fær nú um tvö-
falt meira fylgi en þaö hafði þá, enda
voru menn í febrúar í vafa um að af
kvennaframboðum yrði. Síðan í
febrúar hefur mjög dregið úr fylgi
Framsóknarflokksins. Heldur hefur
dregið úr fylgi Bandalags jafnaöar-
manna, en staða Alþýðuflokksins er
öllu skárri en þá var. Sjálfstæöis-
flokkurinn hefur fremur bætt við sig.
Alþýðubandalagið hefur einnig lagað
stöðuna frá því í febrúar. Framan-
greindur samanburður er miðaður viö
skiptingu þeirra sem taka afstöðu.
Þegar borið er saman við úrslit síðustu
þingkosninga, í desember 1979, kemur
riðlun gamla flokkakerfisins glöggt í
ljós. Fylgishlutfall Alþýöuflokksins
hefur lækkað um talsvert y fir helming.
Framsókn hefur tapað hátt í þriöjung
fylgis síns. Alþýöubandalagið hefur
tapað um fjórðungi. Þetta fylgi hefur
leitað yfir á nýju framboðin. Sjálf-
stæðisflokkurinn fær nokkru meira
fylgi en hann hafði í síðustu þing-
kosningum. Lítum nánar á niðurstöð-
umar.
Feikilegar sveiflur
Alþýöuflokkurinn fær nú 3,9% af
heildinni í úrtakinu eða 7,3% af þeim
semtaka afstöðu, samanboriö við5,7%
í könnuninni í febrúar og 17,4% í
síöustu þingkosningum.
Framsóknarflokkurinn fær nú 9,6%
af heildinni, sem gera 17,9% af þeim
sem taka afstöðu, á móti 22,1% í
febrúar og 24,9% í síðustu þing-
kosningum.
Bandalag jafnaðarmanna fær nú
5,8% af heildinni, sem gera 10,9% af
þeim sem taka afstöðu. Bandalagið
hafði fylgi 12,1% af þeim sem tóku
afstöðu í febrúarkönnuninni.
Sjálfstæðisflokkurinn nýtur nú fylgis
21,9% af heildarúrtakinu eða 41% af
þeim sem taka afstööu, samanborið
viö 40,6% í febrúar og 37,3% í síðustu
þingkosningum.
Alþýðubandalagið fær nú 8% af
heildarúrtakinu, sem gerir 15% af
þeim sem taka afstöðu, samanborið
við 13,9% í febrúarkönnuninni og
19,7% í síðustu þingkosningum.
Kvennaframboðið fær nú 3,8% af
heildarúrtakinu, sem gerir 7,2% af
þeim sem taka afstöðu, samanborið
viö 3,5% þeirra sem tóku afstöðu í
könnuninni í f ebrúar.
BB-listi framsóknarmanna á
Norðurlandi vestra og listi sérfram-
boðs sjálfstæðismanna á Vestfjörðum
njóta þó nokkurs fylgis samkvæmt
skoðanakönnuninni en þó ekki svo
mikils að sýnt sé hvort þau fá þing-
mann eða ekki.
1 skoðanakönnuninni nú voru 35,3%
óákveðnir og hefur þeim fækkað um 6,7
prósentustig síðan í skoðanakönnun-
inni í febrúar. 11,3% vildu ekki taka
þátt í könnuninni, sem er nánast sama
hlutfall og í febrúar.
Skipting þingsæta
Fari komandi þingkosningar í
samræmi við niðurstöður þessarar
skoðanakönnunar má búast við að
stjórnarmyndun gangi mjög erfiðlega.
Þingsæti mundu skiptast eins og nú
verður rakiö, ef svo færi:
Alþýðuflokkurinn fengi 4 þingmenn
og tapaði 6. Framsóknarflokkurinn
fengi samkvæmt atkvæöahlutfalli 11
þingmenn en hann fær meira þar sem
hann hagnast á kjördæmafyrirkomu-.
laginu um 1—2 þingsæti eins og reynsla
fyrri kosninga sýnir. Hann gæti því
fengið allt aö 13 þingmenn samkvæmt
skoðanakönnuninni og tapaði þá
fjórum.
Bandalag jafnaðarmanna fengi 6
þingmenn samkvæmt könnuninni.
Sjálfstæðisflokkurinn fengi 26 þing-
menn samkvæmt atkvæðahlutfallinu í
könnuninni en vegna kjördæma-
skipunarinnar tæki Framsókn að
j líkindum 1—2 þeirra sæta. Sjálfstæöis-
i flokkurinn hefði þá fengiö 24 þingmenn
j og bætt við sig tveimur f rá því sem nú
jer.
Alþýðubandalagið fengi 9 þingmenn
samkvæmt niðurstöðum könnunar-
innar og tapaði tveimur.
Kvennaframboðiö fengi4 þingmenn.
Úrtakiö í skoðanakönnuninni var
1200 manns, sem fyrr segir. Jöfn
skipting var milli kynja, helmingur
spurðra var á höfuðborgarsvæðinu og
því hinn helmingurinn utan þess.
-HH.
Kiðurstöður skoðanakönnunarinnar urðu þessar: 77/ samanburðar eru
teknar niðurstöður skoðanakönnunar DV i febrúar.
Nú ífeb.
Aiþýðufiokkur 47 eða 3,9% 2,7%
Framsóknarflokkur 115 eða 9,6% 10,3%
Bandalag jafnaðarm. 70 eða 5,8% 5,7% .
Sjálfstæðisflokkur 263 eða 21,9% 19,0%
Alþýðubandalag 96 eða 8,0% 6,5%
Kvennaframboð 46 eða 3,8%
BB-listi Nl. vest. 2 eða 0,2%
T-listi Vestf. 2 eða 0,2%
Óákveðnir 423 eða 35,3% 42,0%
Vilja ekki svara 136 eða 11,3% 11,2%
Ef aðeins eru teknir þeir sem tóku afstöðu verða niðurstöðurnar sem
hér segir. 77/ samanburðar eru niðurstöður i könnun DV í febrúar og
úrslit siðustu þingkosninga:
Nú ífeb. þingk.
Alþýðuflokkur 7,3% 5,7% 17,4%
Framsóknarf/okkur 17,9% 22,1% 24,9%
Bandalag jafnaðarm. 10,9% 12,1%
Sjálfstæðisflokkur 41,0% 40,6% 37,3%
Alþýðubandalag 15,0% 13,9% 19,7%
Kvennaframboð 7,2% 3,5%
BB-listi 0,3%
T-listi 0,3%
Svo mælir Svarthöfði Svo mælir Svarthöfði Svo mælir Svarthöfði
RITVÉL HANDA VÍSINDUNUM
Nýlega var Ólafur Jóhannesson ut-
anrikisráðherra í París að undirrita
menningar- og vísindasamning við
Frakka, einhverja gagnmenntuðustu
þjóð Vesturlanda. Segir í fréttum, að
ákvæði séu í þessum samningi þess
efnis, að ekki megi menningarsam-
skiptin kosta peninga. Á sama tíma
voru háskólalæröir menn hér heima
að þinga um vöxt og viðgang stéttar-
innar og hvernig væri búið að háskól-
anum. VLsindin bar þar á góma, en
yfir dyrum háskólans standa orðin:
Visindin efla alla dáð. Atvinnulaus-
astir allra háskóiamanna eru jarö-
fræðingar og náttúrufræöingar, en
það eru menn í greinum vísinda, sem
eru íslensk umfram önnur vísindi, ef
undan er skilið málið s jálft, sem auð-
vitað er uppspretta vísindalegrar
starfsemi á öllum timum. Ástæöan
fyrir atvinnuleysi jarðfræðinga og
náttúrufræðinga er eflaust sú stað-
reynd, að menningin og vísindin
mega ekki kosta peninga. Nú eru
hins vegar töluverðir iaunastreitu-
menn í Bandalagi háskólamanna,
sem una því að koma sér fyrir í opin-
beru kerfi og vinna þar eins og hverj-
ir aðrir skrifstofumenn. Vísindin í
skrifstofumennskunni á íslandi eru
að vísu ærin, en varla þarf að há-
skólamennta tugi fólks tU þess eins
að færa bækur og afgreiða skatt-
greiðendur með þaö skitirí af fyrir-
greiðslu, sem þeim feUur í skaut.
Vísindin við háskólann sjálfan eru
heldur bágborin og svo hefur verið
aUa tíð nema i þeim greinum, sem
flokkast undir íslensk fræði. Þó hefur
ekki verið rneiri sókn í þeim efnum
en svo, að enn eru ókönnuð bréfa-
skipti islenskra biskupa i páfadómi
viö Róm, og enginn hefur með
vísindalegum hætti litið aftur fyrir
ritaðar heimildir eftir ættum og upp-
runa íslendinga, og er Bjólfskviða
látin nægja sem heimUdir um for-
sögu okkar. Mætti þó rannsókn í því
efni létta af okkur frændsemisoki við
frumþjóðir á hinum Norðurlöndun-
um. Atvinnuleysi jarðfræðinga er
svo dæmi um afskiptaleysi okkar um
brýnar staðreyndir varðandi landið,
enda var háskólinn lengi aö taka við
og skUja kenningar Wegeners um
landrek. Af þeim sökum héldu menn
því fram aUt tU janúarmánaðar 1973,
að Helgafell á Heimaey og svæðið
þar í kring væri útdautt, enda hefði
ekki gosið þar í fimm þúsund ár.
Snemma á þrcttándu öld stóðu jarð-
eldar uppi á Reykjanesi í fimm ár
samfleytt, og er þá taUð að einir
fimm kUómetrar af nesinu hafi
sokkið í sæ. Atlantshafssprungan og
greinar hennar liggja yfir landið frá
suðvestri tU norðausturs, og er ólíkt
þægUegra að rannsaka hana hér en á
hafsbotni. Við reisum vatnsaflsvirkj-
anir á þessari sprungu, en höfum
jarðfræðingana atvinnulausa.
í raun mun háskólinn sem slíkur
hafa uppi Utla forustu fyrir vísindun-
um. Rikar erlendar stofnanir standa
undlr þekkingarleit á sviði heUbrigði
og annars sem máli skiptir. Ekki get-
um við keppt við þær um fé og mann-
afla. En við höfum hér heima hjá
okkur forvitnUeg viðfangsefni, ef
þau mega kosta peninga. Fátæktin
hefur farið þannig með lærða menn
við háskólann, að stórum hluta sinn-
ar akademisku ævi eyða þeir í pex
um laun og aðstöðu. Helsta áhuga-
mál hvers og eins þeirra er að fá rit-
vél, skrifstofu og skrifstofustúlku.
Það þykir hið gildasta stöðutákn í
þeirra hópi. Hver sá sem hefur skrif-
stofu og görl og ritvél í háskólanum
er hólpinn hvað snertir virðingu og
vísindalegan þokka. Ekki er að furöa
þótt slíkt gutl komi ekki miklu tU
leiðar. Sjálfan vantar háskólann
þróttmikla menn, sem heimta um-
svifafrelsi og rétt til að stunda þekk-
inguna með þeim hætti, að hún hafi
einhvern hag af því. Eins og cr fer
mestur tíminn í að hafa uppi á póli-
tiskum andstæöingum til að geta úti-
lokað þá frá umræðu — einkum á
þetta þó við í kjaftafögunum, sem
kommúnistar hafa cflt af öllum
mætti, en viösemjendur okkar,
Frakkar, hafa látið loka fyrir á há-
skólastigum.
Svarthöfði.