Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1983, Page 40
27022 AUGLÝSINGAR SÍÐUMÚLA 33
SMÁAUGLÝSINGAR —AFGREIÐSLA SKRIFSTOFUR ÞVERHOLTI 11
86611 RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12—14
Hættatil hægri
„Eg tel að þessi könnun, eins og fyrri
skoöanakannanir síðustu daga, sýni að
það er hætta til hægri,” sagði Svavar
Gestsson, formaður Alþýðubandalags-
ins.
„íhaldið vinnur verulega á og þegar
svo er þá þurfa andstæðingar íhaldsins
auövitað aö sameinast. Við slíkar
aöstæður eiga vinstri menn ekki aö
skipta sér. Alþýðubandalagiö er eini
kosturinn til þess að sameina vinstri
menn og stendur greinilega, eftir þess-
ari könnun, skárst af þeim þremur
stjórnmálaflokkum sem hér hafa
starfað, auk Sjálfstæðisflokksins á
undanförnum áratugum. Spumingin
er því þessi: Hvemig vilja kjósendur
treysta andstöðu við framsókn hægri
aflanna ístjóm eðastjómarandstöðu?
Auövitað er geysilegur f jöldi óákveð-
inna í þessu þannig að það getur allt
gerstennþá,” sagðiSvavar.
-KMU.
Stein-
grímur
Hermanns-
son:
Ekki vonlaus um
aðþettabreytist
,,Þaö eru ákaflega margir sem ekki
taka afstöðu en engu að síður lít ég á
þetta sem alvarleg tíðindi,” segir
Steingrímur Hermannsson, formaður
Framsóknarflokksins, er honum em
birtar niðurstöður skoöanakönnunar
DV. „Það er nokkuð ljóst aö ef svona
fer þá er Sjálfstæðisflokkurinn aö
komast í þá aðstöðu aö þaö verður eng-
in ríkisstjóm mynduð nema með hon-
um. Hann getur valið með hverjum
hann vill mynda ríkisstjórn og ég lít
þaö mjög alvarlegum augum að liðið
annaö en Sjálfstæðisflokksins virðist
vera að sundrast í alls konar litlar ein-
ingar, Glistrupa og svo framvegis,
þannig aö ég tel þetta ákaflega alvar-
legt ef svona fer. Hins vegar er vika til
kjördags svo ég er alls ekki vonlaus
um aö þetta geti breyst á þeim tíma,”
segir Steingrímur Hermannsson.
SÞS
LOKI
Ég tel mig hafa komið vel
út í könnuninni, miðað
við mannfjölda.
sóttu tvo Rússa
Tvisvar sinnum fóru björgunar-
þyrlur frá varnarliðinu á Keflavíkur-
flugvelli til að sækja rússneska sjó-
menn og koma þeim undir læknis-
hendur um helgina. Hannes Haf-
stein, framkvæmdastjóri Slysa-
vamafélagsins, sagöi í viðtali við DV
að það hefði verið klukkan hálf níu á
laugardagskvöld sem skeyti barst til
Slysavamafélagsins með beiðni um
hjálp frá sovéska verksmiðju-
togaranum Balakhna, sem þá var
150 sjómílur suðvestur af Reykja-
nesi. í skeytinu sagði aö þeir
hefðu slasaðan sjómann um borð,
brenndan, en ekki sagt hversu illa.
Björgunarsveit varnarliðsins
brást vel við beiðni Slysavarna-
félagsins um aðstoð og var ákveðið
aö leggja af stað um morguninn svo
þyrlan yrði yfir skipinu í björtu. Það
varsvoseintumnóttinasemkom í
ljós að sjómaðurinn hafði brennst
um hádegi á sunnudag og lagði
þyrlan þá strax af stað ásamt tank-
vél. Þyrlan kom að skipinu rúmar 70
mílur suðvestur af Reykjanesi
klukkan fimm um morguninn og
gengu björgunaraðgerðir vel, enda
gott veður og gott í sjó. Þó tók
klukkutíma að hlynna svo að
sjúklingnum aö hann væri fær til
flutnings. Það var viö þessa rann-
sókn sem kom í ljós að hann var
brunninn djúpum og alvarlegum 3.
gráðu brunasárum um mestan hluta
líkamans. Þyrlan kom með sjúkling-
inn til lands klukkan rúmlega sjö að
morgni og var farið með hann beint á
gjörgæsludeild Landspítalans.
Þaö var svo klukkan hálf tvö á
sunnudag að önnur hjálparbeiðni
barst frá öðrum rússneskum verk-
smiðjutogara, Biryuza, sem var
staddur 170 sjómílur suðvestur af
Reykjanesi. Þeir báöu um þyrlu því
þeir hefðu alvarlegt sjúkdómstilfelli
um borð, mann með hjartasjúkdóm.
Og aftur hóf sig á loft þyrla frá
varnarliðinu. Lagöi af staö ásamt
tankvél og gekk það aö óskum og
kom þyrlan með sjúklinginn á
sjöunda tímanum í gærkveldi.
Ekki er vitað hvemig rússneski
sjómaöurinn sem fyrr var fluttur í
land brann en svo virðist sem
sovéskur togari hafi brunnið og
áhöfnin komist í verksmiðjuskipið
Balakhna. Enginn veit enn hvað varð
af togaranum sem brann. -óbg
Það var klukkan sjö i gærmorgun sem þyrla varnarliðsins kom með hinn illa brennda Rússa tiI Reykja-
vikur. DV-myndS.
Skoðanakönnun Hagvangs
Hagvangur kynnti um helgina
niðurstöður skoöanakönnunar á fylgi
stjómmálaflokkanna sem fyrirtækið
vann dagana 8. til 14. apríl síðastliö-
inn. Heildarúrtakið var 1300 manns
og fengust upplýsingar um lista frá
824 einstaklingum, eða 63,3% aö-
spurðra.
Meginniðurstaða könnunarinnar
er sú að við næstu alþingiskosningar
fengi Alþýðuflokkurinn 7,3% at-
kvæöa eöa 4 þingmenn kjöma.
Framsóknarflokkur fengi 16,8% og
13 þingmenn. Bandalag jafnaðar-
manna hlyti 9,9% fylgi og fimm
menn kjörna. Sjálfstæðisflokkur
fengi 44,9% og 26 þingmenn. Alþýðu-
bandalagið fengi 13,1% fylgi og 7
menn kjöma. Loks fengju Samtök
um kvennalista 7,2% og 4 þingmenn
og framboð sjálfstæðismanna á Vest-
f jörðum 0,8% og einn þingmann.
Með tilliti til heildarniöurstöðu
könnunarinnar birti Hagvangur
þingsætaskiptinguna í einu kjördæm-
anna, í Reykjavík. Samkvæmt því
fengi Alþýðuflokkur engan mann
kjördæmakjörinn, Framsóknar-
flokkur fengi einn þingmann, Banda-
lag jafnaðarmanna 2 menn, Sjálf-
stæðisflokkur 6, Alþýðubandalag
hlyti 2 þingmenn, og Samtök um
kvennalisti kæmi einum mánni að í
Reykjavík.
-SER
Samanburöur á
skoöanakönnunum
Vafalaust hefur fólk áhuga á að sjá samanburð á niöurstöðum þeirra þriggja skoðanakannana sem birtar DV ÞB Hagvangur Helgarpóst. Þingkosn.
hafa verið ; blöðunum nú á skömm- Alþýðuflokkur 7,3% 6,8% 7,3% 9,5% 17,4%
um tíma. Hér er því birt tafla sem Framsóknarfl. 17,9% 25,0% 16,8% 13,2% 24,9%
sýnir hvernig þeir sem afstöðu taka Bandalag jafn. 10,9% 9,1% 9,9% 11,6%
skiptast á framboðin samkvæmt Sjálfstæöisfl. 41,0% 34,8% 44,9% 43,1% 37,3%
þessum könnunum. Einnig eru birt Alþýðubandalag 15,0% 17,5% 13,1% 15,3% 19,7%
úrslit síðustu þingkosninga og út- Kvennaframboö 7,2% 6,0% 7,2% 6,3%
reikningar Þorvalds Búasonar eðlis- T-listi 0,3% 0,3% 0,8% 0,7%
fræðings, sem eru byggðir á skoðanakönnun DV og birtir inni í blaðinu. BB-listi 0,3% 0,5% -HH
Kjartan
Jóhannsson:
„Áskorun umað
vinnavel...”
Kjartan Jóhannsson, formaður
Alþýðuflokksins, hafði eftirfarandi að
segja um niðurstöður skoðanakönnun-
ar DV: „I þeim felst áskorun til
alþýðuflokksmanna og annarrar
jafnaðarstefnu að vinna vel fram að
kosningum.” ás
Vilmundur
Gylfason:
Líturvelút
„Þetta virðist lita mjög vel út fyrir
Bandalagið,” sagði Vilmundur Gylfa-
son í morgun um niðurstöðumar úr
skoðanakönnun DV. ,,Ef vel er unnið
þessa daga sem eftir eru þá sé ég ekki
betur en þetta eigi að geta orðið mjög
gott. Eg verð að segja þetta meö því aö
hafa alla fyrirvara eins og venjulega.
En ég held að það sé augljóst að það á
að geta verið sókn hjá okkar fólki. ” jbh
Albert
Guð-
mundsson:
„Þurfumaðherða
róðurinn”
„Eg hef það á tilfinningunni aö Sjálf-
stæöisflokkurinn sé frekar í sókn og
þessar tölur geta veriö vísbending um
að svo sé,” sagði Albert Guðmunds-
son, efsti maður á lista Sjálfstæðis-
flokksins í Reykjavík, þegar DV bar
undir hann niöurstöður skoðanakönn-
unar blaðsins.
„En þær segja okkur einnig að við
þurfum að herða róðurinn fram á síð-
ustu stundu. Um það þarf ekki að fjöl-
yrða að við þurfum á öllu afli okkar aö
halda.”
Sigríður
Dúna Krist-
munds-
dðttir:
Jákvætt
„Eg er afskaplega ánægð með
þessa niðurstööu. Þetta kemur vel út
fyrir okkur,” sagði Sigríður Dúna
Kristmundsdóttir, sem skipar efsta
sætið á Kvennalistanum í Reykjavík.
„Þetta er ákaflega jákvætt fyrir okk-
ur. Við getum horft björtum augum til
framtíðarinnar með þennan stuðning
aðbakiokkur.
Það er auðvitað spuming hversu
marktækt þetta er þegar svo stórt hlut-
fall svarar ekki. En hvað okkur varðar
er þetta samaniðurstaða og komið hef-
ur fram í öðmm könnunum. Ég tel það
athugunarvert að birta skoðanakann-
anir svo skömmu fyrir kjördag, því
þær em skoöanamyndandi. Ég álít að
kjósendur eigi að fá frið einhvern tíma
fyrirkosningar.” ÖEF