Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.1983, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.1983, Blaðsíða 5
DV. LAUGARDAGUR 23. APRIL1983. Sagan um Frank Sinatra er sagan um fátæka drenginn frá Hoboken, New Jersey, sem kom, sá og sigraði. Sagan um milljónamæringinn sem byrjaði sem blaðburðardrengur og íþrótta- fréttamaður áöur en hann fékk stóra tækifærið. Hann er allt í senn: elskaður fyrir söng sinn, gagnrýndur fyrir sam- band sitt við Mafíuna og hataður fyrir hrokasinn. „Þaö er ýmist i ökkla eða eyra með Frank, þú annaöhvort hatar hann eöa elskar,” er haft eftir breskum tón- listargagnrýnanda. Frank Sinatra er maðurinn sem eys skömmum yfir blaðamenn, kýlir ljós- myndara kalda — eða leggur á sig langferð til að heimsækja heimili fyrir munaðarlaus börn. Hann er gersam- lega óútreiknanlegur. Ekki fyrir ýkja löngu kom út bók um Frank Sinatra, The Frank Sinatra „Þó maöur taki i hönd einhvers manns i einhverjum klúbbnum þýðir það ekki að viðkomandi sé nánasti vinur manus, eða er það.. . ?” Scrapbook heitir hún. Við flettum bók- inni. Mafía og stórpólitík Mafía og stórpólitík. Frank Sinatra á hagsmuna að gæta á báðum stöðum. Sérstaklega hafa ásakanir um tengsl hans við Chicago-mafíuna veriö hon- um óþægur ljár í þúfu. — Hvaö segir hann sjálfur um þær ásakanir? „Þótt maður taki í hönd einhvers manns í einhverjum klúbbnum þýöir þaö ekki að viðkomandi sé nánasti vin- ur manns, eða er það?” Það er alveg greinilegt að Frank finnst það erfiður biti að kyngja, þessi eilífi söngur un tengsl hans við Mafí- una. Svar hans þar að lútandi, semhér aö ofan greinir, er eina svarið sem hann hefur gefið í gegnum tíðina ef spurt hefur verið. Og hvað sem öðru líður hefur aldrei nokkurn tíma verið hægt að hanka Frank á nokkru eöa færa nokkrar sönnur á tengsl hans viö Mafiuna. I byrjun sjöunda áratugarins varð allt að gulli í höndum Sinatra. Þá stóö hann í ýmsum „forretningum” og hann þénaöi mikla peninga. Það var einkum í spilabænum Las Vegas, sem Frank þreifaði fyrir sér. Hann keypti sig inn í hið fræga Sands Hotel. Hann eignaöist spilavíti og græddi á tá og fingri. Allt lék í lyndi. En þá var það aö einhver kærði Sin- atra. Sagði að hann sæist oftar og oftar í félagsskap Sam Giancanna mafíu- foringja. Þegar þessi kæra kom fóru yfirvöld í Las Vegas að íhuga hvort ekki ætti að loka spilavítum Sinatra ef þetta væri rétt. Ákveðiö var að láta nefnd í málið, sem skyldi kanna hvort eitthvað væri hæft í þessum áburði. En ekki kom til þess því aö Sinatra kom sjálfviljugur og skilaði leyfunum fyrir spilavítunum... John F. og Sinatra Þegar John F. Kennedy var kjörinn Frank Sínatra Skín skiírír Frank Slnatra, dýrkaður skemmtikraftur, en hefur mikið verið gagnrýndur fyrir líkleg tengsl sín við undirheima Ameriku. FIMSRT HUGVIT STRÖMBERG hardbýll nauuru stæðum svo scm raka og ísingu. STRÖMBERGs r rafbúnaður vinnu Sib'eriu sem ofsah Stærsti hluti fram i yfir 60 töndum 1?v:

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.