Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.1983, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.1983, Blaðsíða 14
 14 DV. LAUGARDAGUR 23. APRIL1983. Hefur jafnréttíd ankist á 40 árum? - litíð í f áséð bréf Jochums M. Eggertssonar sem hann skrifaði islenskum konum í tílefni lýðveldisstofnunarinnar sautjánda jání 1944. Árið 1944 samdi alþýðufræðimaðurinn, skáldið og búfræðingurinn Jochum M. Eggertsson (Skuggi) bréf, sem hann lét fjölrita, en fáir munu hafa lesið. Innihald þessa bréfs er um margt merkilegt að skoða, ekki síst nú, tæpum fjörutíu árum eftir að það var skrifað. Hvatinn að þessum skrifum Skugga var hversu rýr hlutur kvenna var við lýðveldis- stofnunina, sautjánda júní 1944. Þann dag kusu þingmenn Svein Björns- son sem fyrsta forseta landsins. Engin kona sat þá á þingi. í þessari hvatningu Skugga til íslenskra kvenna koma fram margar áhugaverðar hugmyndir sem vert er að dusta rykið af — og vert er að spyrja sig að aí- loknum lestrinum hvort íslensk jafnréttisbarátta standi enn í sömu sporum og hún gerði þegar lýðveldi okkar var stofnað. Við birtum hér bréf Skugga, orðrétt með sömu stafsetjun og það var skrifað. ekki aö taka hana til fyrirmyndar.. .. Konan hefur löngum veriö skoöuö sem ógróin jörö, er vænta mætti af upp- skeru, en þó jafnframt sem nokkurs- konar búpeningur og verzlunarvara, og þeirri blekking er ekki aö fullu út- rýmt enn, hvorki meö þeim sjálfum eða karlmönnunum. Af þessu leiöir að alin hefur verið upp í konunni viss teg- und af minnimáttarkennd samfara takmarkalausri fómfýsi handa sínu eigin ímyndunarafli, sem í raun réttri er ekkert smáræöi, en karlmenn aldrei geta skiliö. Þess vegna hafa konur svift sjálfa sig þeirri staöreynd, er tungan nefnir „tækifæri”. Konur þekkja engan greinarmun á tækifæri og sjálfum sér, og hver og ein álítur sjálfa sig vera tækifærið. Hlutverk konunnar er aö fæöa líf og fóstra þaö; þar af leiðandi hefur konan aðal-upp- eldishlutverkiömeöhöndum.. .. Kjósið konu fyrir forseta og sendið konur á þing, þá mun okkur Islending- um vel famast. Konur hafa miklu meiri stjómmálahæfileika en karlar vegna inna miklu „diplómatísku” hæfileika, sem þeim er í blóð borin. Konur standa jafnfætis körlum að sálargáfum, en þeirra sálargáfur eiga ekki aöalrætur sínar í þrótti raunsæis- ins, líkt og karlmannanna, vegna ævarandi minnimáttarkenndar gagn- vart vöövastyrk og líkamsþrótti karl- mannsins, er fmmstæö sjálfsbjargar- viöleitni og illar venjur hafa helgaö og staöfest frá örófi alda meöan mannkyn jaröar vorrar er enn ekki hafiö upp úr dýraríkinu. — Röksemd og staöreynd tækifærisins hefur þvi verið af konunni tekin, en henni aftur bætt sú ytri blindni meö miklu meiri innsýniseigin- girni og fórnfúsari sjálfúö en karl- manninum. — Hversu köld og vilja- sterk, sem konan kann aö vera, lætur hún þó ávallt stjómast af tilfinningum, án þess að ganga úr skefjum, og hefur því ríkari réttlætiskennd, erkarlmann- inum virðist á kostnað dómgreindar- innar. Konan reynist því óvæginn keppinautur og harðvítugur dómari kynsystra sinna, sérstaklega ef um það er aö ræða, aö vinna hylli karl- | j. - cmmMcur w?m* JcrMcnn A d'pij 4rc/■££jlf&nxéra- kiwvna. . ( J7 /*W)\ íj f „íslenzkar konur! Hvar voruö þér við stofnun og endurreisn ins nýja ís- lenzka lýöveldis, þann 17. júní 1944? Þér greidduð atkvæöi með endurheimt frelsisins! Hvi geröuö þér það? Gerðuð þér þaö til aö láta karl- þjóöina forsmá yöur og fyrirlíta, meira en nokkru sinni? . . .islenzkar konur! Þér hafið meiren helming af atkvæða- magni þjóöarinnar á yöar valdi og get- iö tekiö öll völd á Islandi í yöar hendur, hvenærsemyöursýnist!. . . tslenzkar konur! Án yðar væri ís- lenzk þjóö ekki til! Hver þakkaði yöur á inni miklu lýöveldis-þjóöhátíð, þann 17. júní 1944, og mælti fyrir minni yðar viö þaö tækifæri? Enginn!... Hver minntist móöurinnar, innar íslenzku móöur, sem hélt uppi merki lífsins og landsins í niöurlæging og hörmungum ófrelsisáranna, — móöur íslenzku þjóðarinnar, móöur íslenzkra sona, móöur allra íslenzkra barna! — Hver minntist þín? Enginn! íslenzkar kon- ur! Aldrei hefur annaö eins tækifæri biðiö yöar, og meira en biöið — hrópaö til yðar: „Hví heyrið þér ekki menn!” Eru konur ekki menn? Þær eru ekki karlmenn, og eiga aldrei aö veröa þaö, en þær eru menn engu aö síður — kven- menn.” Eru konur óæðri verur en karlar? „Bókstafur heilagrar ritningar telur konuna óæöri, samkvæmt I. bók Móse, 6. kapítula: „Synir guös kvongast dætrum mannanna!” Þ.e. karlmenn- irnir eru synir guðs, en konur dætur mannanna, þess vegna skulu böm, en þó einkum synir, kennd feörum sínum en ekki mæörum, þó óneitanlega væri þaö mikill hagur fyrir ættfræöina að kenna börn viö mæöur sínar, en ekki feður, því auðveldara væri þaö miklu að réttmæðra en réttfeðra, meö því sjaldan mun leika vafi á um móöernið, enda mun þessu breytt í framtíöinni þegar kvenmenn hafa náö fullu frelsi og fullu jafnrétti viö karlmenn. — Jafnvel ættartala raunsæisskáldsins og hetjunnar miklu frá Nazareth, er þannig, aö ættfræðingar nútímans ættu 7rS{i-rJiJLvr-/umtvr./ n i . . ifcsrcz/r ('AWtj ... jhir (?féic£cC'UÍ0\aitar ftí!/y. iúozc, /9? , . ... y ^ cyé&'jf&uAjOi f eJt'/Ci, Tf-Áft c- 'O-q -C'Cicju'rsj/ftnj/of'na* . • (/ÍjMlzfda,. - <S -/)7cr$br»t CýM'Jtenas, wrucitifA’rS)' /izicutfa ';iác Acijéi • — . . i f'ýfc Q/ojucpj' /saJ í ur (jg (f/r?? q/áYuj/cJ ■filSfU -jfr/Ydc Ódtácte ■Jcsrncz, /cncóúi' Júác-f /tart/cUdL Ja 'yAo'ofo'cYtnu/?, ? f / j jJaa. zp7'u Ka rOpjrni/ ijj/c/ipac j• fö'r tfr-u/ có/t. rY u??o fbccJ pjbU'fJci-?' / _Jit &£áfío fihfc cAfoÁjfi/ ci/ a/ca ?? siár'/rx's/iqa-Yj'maw? £áf/ cr j, 'Sdci fifiá-c fic'icico'icia Óaa?7? /fi.J-ú??/, /9^/ f c/á, /?z/cW /fo? M//r Úa'//ar cij t'/ra 7r/ct<?uf jJa f , vL/sLlájía c lícnuj'J yci’t- £ru/ fiii' Jft/c /cZí/suci/cur ap /ftfT<Lírr?'/ uJa'r, S.igó??'/n<?/'?'U-?ri. u??/>? - M/«-m '? ý. . if y-ccm/ca'r Æ/nur / /fi//écrci /?? />t/Í7X?>cj/.n' t’s//'//?//c_fij/<9- <&r/????ar Áfinttrr ‘pinr fiafi/J (fi'ca-sf- ■uctr? 3ó ár fiafi/ fcc.s??/r?cia7'j/t c-c •Afio'/'Cjfiiýi Yj/ fiafiruS z?/J Aci v/a. / ,fi , ... . éyiíiz / j/t'f /ÍJifi* £?? Acs/r>//tri afi a/- /na fcrJtvá fd/'r aý fitfrn'&Ya,, 7/??£.ora. is) naJcfciu . Jc/? ?z/ T - 'ÍJftC'a/T ???a v/jap/ ???<zfic/-n, 'pDiff/ad Y, .Jnóz', fi/n -JifiYt,--’ 1 /fi/út c -OTuc <6ér a j Qcfia. fi^AJu /a^ic/C ; .//■/ (Jg fi'c'/s/ á- 7?ú-fa ?7 ftuft ? 7 /,-nar .'. J/n yJa'r .rSáfts/Jft*e/cji &(/ '„/• , , ,. t ’ . ■ . \ ftiU/t- új(i<í.uiJ,-,íh,er.a/c‘Í ftaavri /ft. JJt-71, /J/V, a-o /„irrni , t/Jtz r ? /a /rc'. J /ae/cijar-c. ? ufit-c' Jrrt-q:„ j/j/tcr/œn/Jr.i <" ft/tcrftrt, r/a-n rut//cr, /-a Jr/t/.ta . , , ■ , CyjJwjrZ/CÚ ayíaa2 jJ-c-cý ,/. 7' '//, -ar; O; 2ú t /z /:///; , oti /t/, ■nf/tfu.. - /;,/-? £t'an/<C wéJuaoíutm. ot.ýi./t cz ,/ /;</;?/.<:fr, 7 cftL/c js/j. ■ //■_ ,ft t,--c?,T /fa.nýT, <;/:/ ,.'?/<; '?///; ?‘ cTj-ftaiJ-ih oof1?. cft/a//?:/ /?/.<,- '-/tc J/i??9r;7co/-uc.- ft?ucr-m -//ft-/ o-rAí /,u//t.rá. ??//./,-<? f /??-, c yot, aj ýftyni. e j-a rftii! 'Zftr' trt/cft/tt/- á.s(ccj/i JUaaryiac-a. fta/ / ’zj/cc J .////?< ftá/JJ i. /r,i/,r„/<..;/ J//-?^'íJOcarcja?' wc,<;a.ru<ctc//?< y, /tffriu jJ/Ji .JijiC'/-ft<lcnar c, /■;- i'tvr At?c/c/cccr^ /Jnc/.t :./??-/</',?: / iójauji OJ ft/Jct, . /(-0/7071./ cCi; j/ljfta < ft.'J/ jcccc aa ,j/c?rfti,//? Í/c ccj /'cjc///?'' ?/-/«/? r Cccc./ s/Ji/- Já.Z o/;:?./<?<,-.: , //-?:■/ rrty ycrJ/u J <mcJ/ccrccra Upphaf brófs Skugga til íslenskra kvenna, eins og Jochum lét fjölrita þaö og gefa út fyrir tæpum fjörutiu árum. Fáir munu hins vegar hafa lesið fjöl- ritiö, og þykir það reyndar haria fáséð gersemi i dag. mannsins, en þó jafnframt hjálpfús og líknsöm þeim sem bágt eiga og rataö hafa íógæfu. Vegna blindni konunnar, á stundu tækifærisins, hefur hún þó týnt sál sinni, en fundið hana hjá karlmannin- um og gerst ambátt hans og leikf ang til að finna hana aftur. Meö þessu hefur konan blekkt karlmanninn svo hrapal- lega, aö hann veöur í þeirri víllu og svima, að hann eigi hverja þá konu, er hann kemst yfir, meö öllum hennar hlunnindum, gögnum og gæðum, og leggst í hernað og fjandskap viö kyn- bræöur sína til að ná undir sig nýlend- unum. En gamli drottinn og aörir nátt- úrulegir skaparar himins og jarðar vita betur og brosa að þessu helvízku brölti, því þeim hefur fyrir löngu skil- ist, aö karlmaðurinn er í þessu efni miklu heimskari en konan.” Sögulegur arfur „íslenzkar konur! Sú kynslóö, sem nú á aö taka viö þessum miklu gæöum, má ekki vera rótarslitin viö fortíö sína. Vér megum enga stund gleyma menn- ingarverömætum feðra vorra og mæðra, þótt fátæk væru af jaröneskum auöi. Vér megum enga stund gleyma hvernig velgengni vor er undir komin. Þaö vorar og sumrar, en vetrar á ný. Vér megum enga stund gleyma sjálf- um okkur, er áttu forfeöur, er sátu hér tötrum klæddir og hálf hungurmorða, viö engan húsakost, varnarlausir fyrir hallærum og farsóttum, en frelsiseldar þeirra kulnuðu aldrei aö fullu og lifðu af í sögnum og Ijóðum, er studdi lífs- þrána og sjálfsbjargarviöleitnina og varpaði geislum fram í ókomna tím- ann, svo þjóöin varö aldrei vonlaus um framtíöina. Vér eigum djúplægar ræt- ur í lífskjörum, háttum og siöum og allri menning forfeðra vorra, þær ræt- ur mega aldrei slitna og vér megum aldrei glata frelsi voru aftur. Vér skulum ekki treysta á annan Jón Sigurðsson og aðra Ingibjörgu Einars- dóttur, jafnvel þótt hin fyrri reyndust alira manna ágætust væri þó betra aö vera án þeirra, til sömu starfa í fram- tíöinni. Hér eftir ber hverjum einum íslend- ingi að gera sjálfan sig frjálsan í oröi og verki. — Enginn getur öölast fullt, sannarlegt frelsi nema fyrir aögjöröir sjálfssín: — „Þrælajörð þér veröldin verður verk þín sjálfs nema geri þig frjálsan.” Þér haf ið jafnrétti — Takið það „íslenzkar konur! Hversvegna eruö þér aö halda kvennafundi og heimta jafnrétti á borð viö karlmenn? — Jafnrétti sem þér eigið aö guös og manna lögum! Hví takiö þiö ekki eign yöar og ráðstafið henni sjálfar? . . ,ís- lenzkar konur! Mætti ég alira virðing- arfyllst og í dýpstu alvöru og auðmýkt tilkynna yöur, aö framvegis eigiö þér að stjórna þessu landi! .. .tslenzkar konur! Frelsi landsins, frelsi þjóöar- innar, frelsi okkar karlmannanna, allt veltur þetta á yöar frelsi! Meðan kon- an er ekki fullkomlega frjáls, (eöa veit ekki aö hún er þaö) og nýtur síns eigin frelsis, getur karlmaöurinn ekki oröiö frjáls heldur. .. .Þér hafið einskis aö krefjast af karlmönnunum. Þér hafiö jafnrétti og meir en það. — Meir en helmingur allra Islendinga eru konur, og þér vitið aö þér hafið kosningarétt og kjörgengi til jafns viö karla. — Þér eruð í meirihluta á kjörskrám íslend- inga!” Ný Sturlungaöld? „íslenzkar konur! Áriö 1945, kemur til yðar kasta aö kjósa fyrsta þjóö- kjörna forseta ins nýja, endurreista, íslenzka lýöveldis eöa þjóðveldis. — Það er algerlega á yöar valdi hver „Forsetinn” veröur, hvort hann verö- ur heldur karl eða kona! ” íslenzkar konur! Þér veljiö „Forset- ann” úr yðar hópi. Karlmenn koma sér aldrei saman um forsetaefni. Það ger- ir flokkaskipunin og flokkavafstrið. Hver flokkur er sem átumein í þjóðfé- laginu. Þaö voru fjórir stjórnmála- og Frá lýðveldishátiðinni sautjánda júni 1944. Jochum feða Skugga eins og hann nefndisig) fannst hlutur kvenna ihátíðinni litill og rýr og varþað hvatinn að skrifum hans. Fyrri myndin sýnirhvar Gisli Sveinsson, forseti sameinaðs alþingis, lýsir því yfir að stjórnarskrá lýðveldisins íslands sé gengin i giidi. Fremst á þeirri mynd sést rikisstjórnin, þeir Björn Þórðarson, Vilhjálmur Þór, Einar Arnórsson og Björn Ólafsson. Seinní myndin sýnir hvar Páll Isólfsson stjórnar söng á lýð- veldishátiðinni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.