Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.1983, Síða 17
DV. LAUGARDAGUR23. APRÍL1983.
Eitt nýjasta afsprengi „jeppaf jölskyldunnar” Jeep CJ—8.
Að aftan sést vel hve líkur „áttan” er til dæmis Isuzu Trooper.
Bflar
Bflar
Bflar
Bflar
Bflar
Jeep C'J-JS: Ný og lengri gerð
Jeep G. P. Model G. P. W. (General Purpose Wagon):
(Jeppi) !4 ton: Fjögra hjóla drif.
1 Höldur fyrir lyftu o. þ. u.
2 Sætisbak
3 Áhaldageymsla
4 Öryggisgrind
5 Benzingeymir
6 Geymsluhólf
7 Rúðuþurrka
8 Skipting fyrir lægra drif
9 Vél
10 Kælir
11 Kattarauga
12 Útblástursrör
14 (Drifskaftshemill): Aðalásshem-
ill, handhemill og tengsli
15 Aukagír
16 Skiptistöng fyrir framhjóladrif.
Ævintýrið
Min bvrjaði
ístríðinu
Nú nýverið var sagt frá því hér í
DV að bandaríski herinn hefði á-
kveðið að hætta notkun gamla góða
herjeppans en ákveðið aö taka í
notkun á næstu fimm árum alveg
nýja gerð, sérhannaða fyrir herinn.
Þar meö lýkur meira en fjörutíu ára
dyggri þjónustu. Jeppinn sá fyrst
dagsins ljos í byrjun heimsstyrjald-
arinnar síöari og þá af hreinni
nauðsyn. Þetta var grófur nýr farar-
skjóti. Aðstæðurnar heimtuðu að
hann væri hreyfanlegur hvert sem
væri, duglegur og óslítanlegur. Og
þaö var f jórhjóladrifið sem gerði það
aö verkum að hann skar sig úr
öðrum farartækjum.
Hermennimir litu á hann sem vin
sinn. Og það var hann í raun. Hann
flutti þá yfir holt og hæðir og í mörg-
um tilfellum bjargaði hann lífi
þeirra. I stríðslok hafði þessi farar-
skjóti hlotið þjóðsagnakennda frægð
og margur hermaðurinn gat ekki
varist aðdáun á hæfileikum hans. Og
nafniö Jeep, eða jeppi eins og
íslenska nafnið varð, er komið af
f ramburði á bókstöfunum GP í ensku
en stafirnir stóðu fyrir „general
purpose” eða alhliða notkun.
Almenningseign
eftir stríðið
Að stríðinu loknu bauð einn fram-
leiðendanna upp á almenningsgerð
þessarar frægu stríðshetju. Þetta
voru Willys verksmiðjumar og buðu
þær einnig upp á stóra station bíla,
alia úr stáli, sem þá var nýjung.
Síðan kom Jeepster og aðrar gerðir.
Henry J. Kaiser keypti Willys árið
1954 og hélt áfram aö framleiða fjór-
hjóladrifsbíla á sömu línu. Árið 1970
varð Kaiser síðan aö Jeep
Corporation. Aöaleigandi Jeep
Corporation er American Motors
Corp., sem em fjórðu stærstu bUa-
smiðjur Bandaríkjanna.
Skýringarmyndin af herjeppa hér að
ofan birtist í HVAR HVER HVAÐ,
Árbók Isafoldar 1947.
Á undanfömum ámm hefur jeppinn
upphaflegi átt mikiUi samkeppni að
mæta úr mörguin áttum. Helst hafa þá
Japanir sótt í sig veðrið og komið fram
meö skeinuhætta keppinauta.
Til að svara þessu hefur JEEP
kynnt nýja gerð, CJ—8, sem er lengri
en eldri gerðimar en mætir þá sam-
svarandi óskum eins og til dæmis Isuzu
Trooper.
CJ—8 er 450 sm langur á móti 367
hjá CJ—5 eins og „venjulegi” jeppinn
heitir. Lengri gerðin af honum, CJ—7,
er hins vegar 389 sm lö g •
CJ—8 er gerður til að flytja allt að
níu manns, þrjá frammi í og sex á
tveimur langbekkjum aftur í. Bekkina
er síðan hægt að leggja upp og fæst þá
gott pláss fyrir flutning.
Vélin er „standard” vél fjögurra
strokka, 2,5 lítra. Hægt er aö fá 4,2
lítra, sex strokka vél eða 2,4 lítra
dísUvél. BUUnn er nokkuö hár frá jöröu
því að minnsta hæð frá jörðu er 21
sentímetri og snúningsradíus er 11,46
metrar.
Margir muna eflaust eftir þvi að
jepparnir voru gjaman lengdir í yfir-
byggingu hjá Agli hér á árum áður og
bætt inn i grindina á mUU hjóla. Nú
hefur þetta verið leyst með þvi að
framleiöa bara lengri bíl.
CJ—7
Nú hefur venjulegi jeppinn sem fram tU þessa hefur verið tU í tvcimur gerðum, CJ—5 og 7, fengið nýtt útlit. Hliðar-
gluggar að aftan eru opnanlegir aftast. IJkt og á „áttunni” eru stórar dyr að aftan. Enn sem fyrr verður hægt að fá
bílinn með biæjum og eins í Renegade útfærslu.
CJ-10
Nýr pallbUl sem ætlað er að mæta þörfum verktaka og bænda. PaUurinn er 215 sm langur og 159
sm breiður.
Wagoneer
Toppurinn frá Jeep. Nú verður
Wagoneer með Selec-Trac sem
kemur í stað Quadra-Trac. Með
Selec-Trac er ýmist hægt að vera í
fjögurra hjóla eða tveggja hjóla drifi
og fer skiptingin fram með einum
rofa í mælaborði. Þetta tryggir
öryggi fjórhjóladrifsins og spar-
neytni venjulegs drifs án þess að
snúa þurfi driflokum eða fara úr
ökumannssæti yf irleitt.