Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.1983, Page 21

Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.1983, Page 21
DV. LAUG ARDAGUR 23. APRIL1983. 21 Sérstæð sakamál Sérstæð sakamál Giovanni Fenaroli, eiginmaður Mariu, kemur til róttarhaldanna i fyigd lög- reglumanns. ómögulega: aö sanna aö Rossi annar hefði verið farþegi meö lestinni frá Róm til Mílanó nóttina eftir að moröið var framið. Við gefumGuarini orðið: „Ég reyndi nú aö fara aðra leið, þá að finna þennan Rossi annan meðal kunningja Fenaroli í Mílanó. Og ef það tækist — reyna þá að finna vitni sem voru meö lestinni umrædda nótt og athuga hvort þau könnuðust við mann- inn.” Við rannsóknina kom í ljós, aö Fenaroli hefði átt vingott við stúlku eina í Mílanó. Hún var að vísu látin fyrir nokkru, en síðan samkvæmt öruggum heimildum hafði hann verið eiginkonu sinni trúr og tryggur. Fenaroli var að eðlisfari gjafmildur maöur og hafði sýknt og heilagt verið að ausa g jöfum í þessa vinkonu sína og fjölskyldu hennar. Þrátt fyrir að hún var látin hélt Fenaroli enn sambandi við f jölskyldu hennar. Einn fjölskyldumeðlima hennar var ungur maður að nafni Raoul Ghiani. Ferill hans og annarra ættingja var grandskoðaður með mestu leynd í samráöi viö rannsóknarlögregluna í Mílanó. Ghiani vann hjá dótturfyrirtæki ameríska fyrirtækisins Borroughs í Mílanó. Starfsfólkið þar vann allt eftir stimpilklukku. Stimpilkort Ghiani mið- vikudaginn 10. og fimmtudaginn 11. september 1958 voru skoðuð. Kom í ljós að fyrri daginn hafði Ghiani stimplað sig út klukkan 18.40, nógu tímanlega til að ná vélinni til Rómar. Daginn eftir stimplaði hann sig ekki inn fyrr en klukkan 11.30. Hann hefði því haft næg- an tíma til að komast frá jámbrautar- stöðinni aðfyrirtækinu. Guarini fann líka skýringuna á því hvers vegna Rossi annar hefði afþantað fyrra flugfarið. Þá nótt var Maria Fenaroli alls ekki heima hjá sér. Hún hafði heimsótt bróður sinn og gist þar. Það var ákvörðun sem hún tók nánast fyrirvaralaust, en lét þó mann sinn vita. Ástæðan var sú, að hálfgerð örvænting ríkti í Piazza Bologna- hverf inu því að undanfariö hafði morð- ingi gengið laus í hverfinu. Hafði hann ráðist á konur sem vom einar heima og allar höfðu þær verið rændar. Ástæðan fyrir því að morðið á Mariu Fenaroli var ekki sett undir sama hatt var sú aö litlu sem engu haföi verið stolið. Það var skoðun Guarini. Guarini áleit sem svo aö hér hefði ekki verið á ferðinni ránmorö, þótt reynt hafi verið að láta líta svo út. Maria Fenaroli haföi verið hrædd um líf sitt eins og aðrar konur í hverf- inu og hafði hún pantað sérstakan lás á útidyrnar. Þegar lásasmiöurinn boð- aöi forföll og sagðist ekki koma fyrr en næsta dag ákvað Maria að vera hjá bróður sínum. Daginn eftir setti lása- smiðurinn lásinn í og Maria var róleg heima við. Guarini var viss um að þetta væri ástæðan f yrir því að morðinu hafði ver- ið frestað og þess vegna hafi Rossi ann- ar afpantað f armiðann. Enn eitt ýtti undir grun Guarini: Sachhi, bókhaldarinn hjá Fenaroli í Mílanó, hafði heyrt að Fenaroli hafði hringt til konu sinnar og sagt að hún myndi fá gest sem ætlaði að fá að gista hjá þeim. Það væri frændi sinn.Þegar hringt yrði á bjöllunni skyldi hún fara út í glugga og spyrja hver þetta væri. Ef hann svaraði: Eg er frændi hans Giovanni, væri henni óhætt að henda . húslyklinum út um gluggann. Þannig kæmist „frændi hans Giovanni” sjálfur óhindrað inn í hús- ið. Með öðmm orðum: hafði Maria sjálf hleypt morðingja sínum inn í húsiö? Guarini þótti þetta liggja ljóst fyrir. Giovanni Fenaroli var handtekinn. Skiptar skoðanir um sekt Fenaroli og Ghiani Saga Sacchi var mikilvægt sönnun- argagn í Fenarolimálinu aö áliti margra. Sumir létu þó ekki sannfær- ast. Þaö spurðist út að mjög hart hefði verið gengið á Sacchi í yfirheyrslum. Tímunum saman hafði lögreglan setið yfir honum og spurt hann í þaula. Að lokum varð hann svo aðframkominn að hann vissi ekki lengur hvað hann sagði. Rossi er mjög algengt nafn á Italíu og í hverri viku er einhver herra Rossi sem pantar flugmiða eða afpantar. Það er næsta algengur atburður. Það að sá Rossi, sem Guarini leitaði að, fannst ekki, gat átt sér ýmsar skýr- ingar. Jafnvel þá að einhver pantaöi sér farmiða undir fölsku nafni en þó á engan hátt viðriðinn Fenaroli-málið. En sem sagt, Raoul Ghiani var hand- tekinn. Stimpilkortið þótti vitna um sekt hans, þótt hann þvemeitaði að hafa átt nokkurn hlut að máli. Grun- semdir Guarini varðandi sekt Raoul Ghiani styrktust enn er myndir af hon- um birtust í blööum og þó nokkrir far- þegar gáfu sig fram, sem þóttust hafa verið með honum í lestinni. Sumir sögðust meira að segja hafa talað við hann. Þá voru liðnir allmargir mán- uðir frá því að atburöimir höfðu átt sér stað og því fannst sumum sem frá- sagnir þessa fólks væm lítils virði. Akæmvaldið var þó á öðru máli. Sá háttur sem hafður var á að sanna sekt Ghiani og Fenaroli þótti mörgum vægast sagt vaf asamur, enda var hann gagnrýndur mjög. Reyndar efuöust margir og efast enn að Ghiani og Fenaroli væm þeir seku. Gagnrýnendumir bentu á að þegar lík Mariu Fenaroli fannst var haft eftir lögreglunni í blöðum: Piazza Bologne- morðinginn lætur enn til skarar skríða. Það var hægt að draga hring um athafnasvæði þessa morðingja í Piazza Bologne-hverfinu í Róm þar sem svo margar konur höfðu orðið fyrir barð- inu á honum. Enda voru þær konur, sem þarna bjuggu viti sínu fjær af hræðslu. Eiginkonur skipuöu eigin- mönnum sínum að koma heim áöur en myrkva tæki og bönnuðu þeim að fara út á kvöldin. Engri konu fannst hún óhult svo lengi sem morðinginn væri laus. Svona haföi þetta gengið um nokkurt skeiö. Rómar-lögreglan varð fyrir talsverðu ámæli fyrir að komast ekki til botns í málinu. Almenningur heimtaði að eitthvað yrði aö gert. Dæmdir á líkum Ef lögreglan vildi halda áliti sínu og andliti yrði að upplýsa þessi mál. Það fékk Guarini líka að vita frá yfirmönn- um sínum þegar hann var settur í Fenaroli-málið. Á það var litið sem kaldhæðni ör- laganna að tveir menn, Fenaroli og Ghiani, skyldu teknir og dæmdir fyrir morðið á Mariu Fenaroli — menn sem gætu á engan hátt hafa átt þátt í hinum morðunum. Almenningurvarvissum að sami maður hefði komið Mariu Fen- aroli fyrir kattarnef og rænt aðrar. Ghiani og Fenaroli játuðu ekkert þrátt fyrir langar og strangar yfirheyrslur. Þeir voru því dæmdir á líkum í lifs- tíðarfangelsi. Fenaroli var settur í fangelsi á Elbu. Þar kynntist hann konu sem oft heimsótti fangelsið. Hún var viss um að Fenaroli væri saklaus. Hún reyndi ásamt lögfræðingi hans aö fá málið tekið upp að nýju, en án árangurs. Til að leggja áherslu á hversu viss hún væri um sakleysi hans giftist hún honum. Það var haldin brúðkaups- veisla í fangelsinu með kampavíni og tilheyrandi. Fjölskylda Fenaroli tók þátt í veislunni, líka bömin hans. Nýja konan heimsótti hann oft þar til hann lést í fangelsinu árið 1975. Raoul Ghiani var í fyrstu fluttur í fangelsi í Pianosa, en samkvæmt eigin ósk var hann fluttur nokkru síðar í fangelsi í Flórens, þar sem auðveldara væri fyrir fjölskyldu hans og vini að heimsækja hann þar. Þaðaðhannneit- ar að vera náöaður líta margir á sem sönnun þess að hann sé saklaus. Það þykir áhrifamikil mótmælaaðferð. Þegar morðið á Mariu Fenaroli varð uppvíst og Guarini og hans menn mættu á staðinn sagði einn sérfræðing- anna augljóst að morðinginn hlyti að hafa haft sígarettu í munninum við verknaðinn. Um það vitnuðu aðstæður. Raoul Ghiani reykir ekki í dag — og hann reykti ekki heldur þá. .. HÚSBYGGJENDUR Að halda að ykkur hita er sérgrein okkar: Afgreiðum einangrunarplast á Stór-Reykjavíkursvæðið frá mánudegi til föstudags. Afhendum vöruna á bygging- arstað viðskiptamönnum að kostnaðarlausu. Hagkvæmt verð og greiðsluskilmálar við flestra hæfi. I Aðrar söluvörur: Glerull — Steinull — Múrhúðunarnet — Útloftunar- pappi — Þakpappi — Plastfolía — Álpappír — Spóna- plötur: venjulegar/rakaþolnar — _ Pjpueinangrun: frauð- plast/glerull. Borgamesi simi93-73röll Kvöjdsími og helgarslmi 93—7355 HVAÐ GETUR KVÚLDVORRÓSAROLÍAN GERT FYRIR ÞIG? Reynið sjálf og dæmið. Fæst í öllum helstu matvöruverslunum og sérverslunum með ho/lustumat. Heildsölubirgðir. ELMARO HF. s#m/ 21260. STAÐGREIÐSLU- AFSLÁTTUR AF SMÁAUGLÝSINGUM FRÁ OG MEÐ 1. APRIL. Ákveðið hefur verið að veita 10% afslátt af þeim smáauglýsingum íDV sem eru staðgreiddar. Það telst staðgreiðsla ef auglýsing er greidd daginn fyrir birtingardag. Verð á einni smáauglýsingu af venjulegri stærð, sem er kr. 200,- lækkar þannig íkr. 180,- efum staðgreiðslu er að ræða. Smáauglýsingadei/d, Þverholti 11 - sími27022.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.