Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.1983, Side 23

Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.1983, Side 23
DV. LAUGARDAGUR23. APRIL1983. 23 Kvikmyndir Kvikmyndir Kvikmyndir SOMlt IMIL4M1S — kvlkmynd Richard Attenboroughs um Gandhi hlaut hvorki fleiri né færri en átta <lskarsverdlaun í ár. Það segir nokkuð um hversu gífurlegt stðrvirki myndin er. l»að tðk enda leikstjðrann tuttugu ðr að fullmðta verkið. Við greinum frá tilurð myndarinnar á kvikmyndasíðunni í dag. Hér sést tilræðismaður Gandhi votta honum virðingu sína nokkrum augnabiikum éður en hann dró upp byssu og skauthann. Gandhigekk iindverska Kongressfiokkinn i Suður-Afríku tilað geta barist fyrir jafnrétti samlanda sinna. Gandhi og er talið að fjórum sinnum fleiri ævisögur hafi verið ritaðar um líf Gandhi en sem nemur æviárum hans. Einn þeirra sem hefur alla sína ævi veriö einlægur aödáandi Gandhi er breski leikstjórinn og leikarinn Richard Attenborough. Hann gekk einnig meö þann draum í yfir 20 ár að gera kvikmynd um líf og störf Gandhi en það var ekki fyrr en sl. ár að draumur hans rættist þegar frum- sýnd var í London rúmlega þriggja tíma mynd undir leikstjóm hans, sem bar einfaldlega nafnið Gandhi. Ástæðan fyrir því hve treglega gekk fyrir Attenborough að búa til kvikmyndina um Gandhi var sú hve stórtækur hann ætlaði sér að verða í sniöum. Enginn vildi fjármagna myndina og þótt Attenborough reyndi ítrekað að fá indversku stjómina í lið með sér þá var hún treg til samstarfs enda erfitt fyrir hana að fjármagna stórmynd um lif og starf helsta andlega leiðtoga þjóð- arinnar á sínum tíma þar sem leik- stjórinn og flest allt tækniliðið væri breskt. Attenborough tókst þetta þó að lokum og kvikmyndaði stærstan hluta myndarinnar í Indlandi í góðri samvinnu viö indversk yfirvöld sem lögðu fram stóran hluta fjármagns- ins ásamt margvíslegri annarri aöstoð. Úr vörn í sókn Myndin hefst í Nýju-Delhí í janúarmánuði 1948 þegar Gandhi var myrtur af hindúa, trúarofstækis manni, sem fannst hann of linur og umburðarlyndur gagnvart þeim sem voru múhameðstrúar. Áhorfendurfá aö fylgjast meö útförinni og þegar Gandhi er borinn á líkbörum í viður- vist fjölmennis eftir aðalbreiðgöt- unni í Nýji'-Delhí sem liggur frá þinghúsi þeirra. Því næst skiptir myndin yfir til Gandhi, þegar honum ungum að árum, nánar tiltekið 1893, var hent út úr lest í Suður-Afríku vegna þess að hann neitaði að ferðast á öðru farrými, eins og lituöum innflytj- endum var skylt að gera samkvæmt þarlendum lögum. Gandhi, sem var að koma frá London nýútskrifaöur sem lögfræðingur, sneri vöm í sókn og gekk í indverska Kongressflokk- inn þar í landi. Þar lenti hann brátt í ýmsum útistöðum við yfirvöldin vegna þess aö hann stóð fyrir ýmsum aðgerðum til baráttu jafnréttis og gekkst fyrir því m.a. að indverskir innflytjendur brenndu opinberlega sérstök nafnskírteini sem þeim var skylt að bera. Meðan Gandhi dvaldist í Suöur-Afríku kynntist hann bandarískum blaðamanni að nafni Walker (Martin Sheen) sem hreifst mjög af jafnréttisbaráttu hans og átti eftir að veita honum mikinn stuðning síðar meir í lífinu. Þolinmæðina þraut Baráttu Gandhi í Suður-Afríku lauk með sigri Indverja sem náðu sínum jafnréttismálum fram. Gandhi sneri síðan aftur til heima- lands síns sem hetja árið 1915, ásamt eiginkonu sinni, Kasturba. I fyrstu lét Gandhi lítið að sér kveða en lýsti þó yfir vanþóknun sinni á evrópskum lífsmáta og klæðaburði margra félaga sinna í Kongressflokknum. I stað þess að dvelja í góðu yfirlæti hjá vinum og stuðningsmönnum sínum í Bombay, ákvaö Gandhi að ferðast um Indland til að sjá með eigin augum hvemig indverska þjóðin lifði og viö hvaða lífskjör hún bjó. Haföi þessi ferð mikil áhrif á Gandhi og að lokum stóöst hann ekki mátið eftir að hafa kynnst af eigin raun hvernig Bretar högnuðust á löndum hans og eftir að breski landstjórinn hafði slökkt allar vonir um að Indland fengi sjálfstæöi. Hann skipulagði verkfall meðal iðnaðarmanna í spunaverksmiðjum sem leystist upp í óeirðir sem kostuðu breska hermenn lifið. Bretar komu síöan hefndum fram með f jöldamorðunum í Amritsa 1919. Saltvinnslan Gandhi hélt ótrauður áfram sjálf- stæöisbaráttu sinni en gerði jafn- framt sitt besta til að forðast allt ofbeldi í andófi sínu gegn Bretum. Hann stjómaði t.d. herferð gegn inn- fluttum klæðum sem hann lét brenna á torgum úti og hvatti samlanda sína til að gera sín eigin klæði. Bæði fannst honum ófært að Indverjar klæddu sig að sið Breta svo og að breskir kaupmenn skyldu fá aö mata krókinn á kostnað landa sinna sem fengu skammarlega lágt verð fyrir að rækta bómullina sem notuð var til klæðagerðarinnar. mönnum, sem voru á leið yfir hin nýju landamæri Indlands og Paki- stan, lenti saman, logaði Indland í trúarbragðadeilum þar sem fjöldi manns var drepinn. Hryggur í bragöi ákvað Gandhi aö fasta í Kalkútta, þar sem bardagamir höfðu verið einna harðastir, þangað til friður kæmist á. Enn einu sinni kom í ljós trú og traust indversku þjóðarinnar, án tillits til trúarbragða, á Gandhi, því fljótlega komst kyrrð á í landinu. Það var svo nokkmm mánuðum síðar, þegar Gandhi var að verða heill heilsu eftir föstuna, að hann var myrtur af einum fylgismanni sínum. Sonur Indlands var fallinn. Eins og sjá má af framangreindu er hér um geysimikinn efnivið að ræða enda er sannkallaður stór- myndarbragur á kvikmyndaútgáfu Attenborough á æviGandhi. Er álíka lagt til myndarinnar og Lawrence of Arabia (1962 og E1 Cid 1961) á sínum tíma. Frábær leikur Attenborough leggur mikið upp úr myndrænni túlkun á efni sínu og eru því mörg atriðin sem kvikmynduð voru á Indlandi mjög falleg. Atten- borough byggir mynd sína upp sem heimildarmynd og fylgir mjög vel raunverulegum atburöum í lífi Gandhi. Aftur á móti virðist hann ekki reyna alvarlega að koma heim- speki Gandhi á framfæri við áhorf- endur, a.m.k. í vestræna eintaki myndarinnar. Utgáfan sem sýnd er í Indlandi hefur aukalega atriði sem sýnir þegar Gandhi fór upp á fjall nokkurt til að stunda innhverfa íhugun, og virðist sem Attenborough hafi ekki treyst vestrænum áhorf- endum til að kunna að meta það atriöi. . Að öðrum ólöstuðum er ekki hægt annaö en að dást að túlkun leikarans Ben Kingsley á Mahatma. Fyrir utan það að vera ótrúlega líkur Gandhi þá tekst honum á sannfærandi máta að leika Gandhi yfir fimmtíu ára tíma- bil enda hlaut Kingsley óskars- verðlaunin fyrir þessa túlkun sína. Segja má að flestir geti vel við unað hvemig til tókst við gerð mynd- arinnar, og þá síðast en ekki síst leik- stjórinn Richard Attenborough, sem vann það þrekvirki að stjórna upptöku myndarinnar m.a. í Ind- landi. Þetta er mynd sem svo sannarlega má mæla með þegar hún kemur til landsins. Baldur Hjaltason. Sterkasti leikur Gandhi var án efa gangan mikla, þegar hann fór frá heimili sínu niöur að sjó til aö vinna salt. A þessum tíma höfðu Bretar einkaleyfi á að vinna salt og var þessi aðgerð Gandhi mjög táknræn því salt var undirstaða lífs á Indlandi líkt og vatnið. Gangan endaði meö því að Bretar handtóku um hundrað þúsund manns. Var þetta atriði mjög áhrifa- ríktímyndinni. Arið 1942 hvatti Gandhi til almenns verkfalls til að knýja á um sjálf- stæöiskröfur sínar eftir að fundur um málefni Indlands í London, sem honum hafði veriö boðið að sitja, endaði án nokkurra ívilnana. Gandhi og kona hans voru skömmu síðar handtekin og sett í fangelsi þar sem eiginkonan andaðist, en Gandhi var sleppt árið 1944, sem var sama ár og George IV. bauð Indlandi sjálfstæði. Gandhi til mikilla vonbrigða, skiptist Indland vegna trúarbragðadeilna í múhameðstrúarríkiö Pakistan og Indland, sem hlaut formlegt sjálf- stæði árið 1947. Draumur rætíst Eins og gefur að skilja hefur mikið verið rætt og skrifað um líf og starf Gandhi hvatti indversku þjóðina til þess að gera sin eigin klæði og sést hér á myndinni spinna bómullarþráð. Stórmyndarbragur En Gandhi hafði enn við fjölmörg vandamál að glíma. Eftir að flótta- Mahatma var hann kallaður af löndum sínum þótt hann héti fullu nafni Mohandas Karamchand Gandhi. Þessi grannvaxni, látlausi Indverji vann hug og hjörtu sam- landa sinna og varð andlegur leiötogi indversku þjóðarinnar þótt hann hefði aldrei gegnt neinum háum embættum né hlotið póli- tískan frama. Gandhi barðist fyrir rétti hinna minnimáttar í Þjóðfé- laginu alla sína ævi og var í fárar- broddi þeirrar hreyfingar er barðist fyrir sjálfstæöi Indverja eftir síðari heimsstyrjöldina. Það sem gerði Gandhi frábrugðinn flestum þeim sem börðust fyrir bættum heimi var aðferðin sem hann beitti til að fá málefnum sínum framgengt. Hann hafði sem megin- reglu aö bjóða fram vinstri vangann ef sá hægri var sleginn, þ.e. baráttu og andóf án ofbeldis, sem hann fyrir- leit. En þótt Gándhi berðist alla sína ævi fyrir sínum bætta og betri heimi þá varhannmyrturaf trúarofstækis- manni þegar hann var 79 ára að aldri.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.