Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1983, Side 3
DV. FIMMTUDAGUR 9. JUNI1983.
3
HalldórÁsgrímsson
sjávarútvegsráðherra:
Tomas
mikil-
vægur
stofnun-
inni
Eru framsóknarmenn sammála
því að bindandi samkomulag sé
milli stjómarflokkanna um að
leggja kommissarakerfið I Fram-
kvæmdastofnun niður fyrir
haustið? ,,Það er samkomulag um
það eitt að endurskoða lögin um
stofnunina, en á því eru engin tíma-
mörk,” svaraöi Halldór Asgríms-.
son sjávarútvegsráðherra í
morgun.
I DV á þriðjudag fullyrti Friðrik
Sophusson, varaformaður Sjálf-
stæðisflokksins, að kommissara-
kerfið ætti aö leggja niður fyrir
haustið. Einnig væri bindandi
samkomulag milli stjórnarflokk-
anna um að forstööumenn lána-
stofnana létu af störfum þar ef þeir
settustáþing.
Með þessu hvoru tveggja kvað
Friðrik ljóst að Tómas Ámason,
fyrrverandi ráðherra, ætti ekki
langa setu framundan sem fram-
kvæmdastjóri Framkvæmdastofn-
unar.
Um þetta vildi Halldór Ásgríms-
son ekki segja annað í morgun, en
getið er hér að framan, nema að
mjög mikilvægt væri fyrir stofn-
unina aö þar kæmi nú maður sem
þekktiþartil.
„Það er ýmislegt sem þarf að
laga þar,” sagði ráðherrann.
-HERB.
Kunnur Masali kom máli
lögfræöinganna af stað
,, Það var um miðjan janúar að Rann-
sóknarlögreglu ríkisins barst kæra frá
ákveðnum manni vegna stulds á
tveimur ávísanaeyðublöðum og einnig
fölsunum á þeim. Nam upphæð ávísan-
anna 115 þúsund krónum.”
Þetta sagði Hallvarður Einvarðsson
rannsóknarlögreglustjóri í samtali við
DV i febrúar síðastliðnum um upphaf
lögfræðingamálsins. Eins og fram kom
í blaöinu í gær hefur saksóknari nú
ákært héraðsdómara, lögfræðing og
sölumann fyrir auðgunarbrot.
Maðurinn sem kærði ávísanastuld-
inn og kom þar með málinu af stað er
kunnur bílasali í Reykjavík. Við yfir-
heyrslur hjá Rannsóknarlögreglunni
játaði bróðir bílasalans aö hafa stoliö
ávísanaeyðublöðunum og falsað ávís-
animar. Kvaðst bróðirinn, Þórir Hall-
dórsson, hafa neyðst til að gera þetta
til að greiða Sigurberg Guðjónssyni,
héraðsdómara íKópavogi, okurlán.
Þar með var boltinn farinn að rúlla.
Héraösdómarinn var yfirheyrður.
Almenningur fékk fyrstu vitneskju um
málið eftir að fjölmiðlar höfðu frétt af
leyniför rannsóknarlögreglumanna
með leiguflugvél seint á sunnudags-
kvöld, 30. janúar, norður á Akureyri.
Lögreglumennirnir fóru til aö yfir-
heyra Steindór Gunnarsson, lögfræð-
ing þar í bæ, en bróðir bílasalans taldi
hann einnig hafa hlunnfarið sig.
Rannsóknarlögreglumennirnir
fluttu Steindór með sér suður síðdegis
á mánudag. Þriðjudaginn 1. febrúar
síðastliðinn voru þeir Sigurberg og
Steindór úrskurðaðir í gæsluvarðhald
vegna gruns um umfangsmikil auðg-
unar- og fjármunabrot, Sigurberg til
16. febrúar en Steindórtil 9. febrúar.
Steindór var leystur úr haldi 8.
febrúar en Sigurberg 10. febrúar.
Rannsókn hélt hins vegar áfram og
gekk óvenju vel, miðað við þaö sem
gengur og gerist með mál af þessu
tagi. Að rannsókn lokinni var málið
sent til embættis ríkissaksóknara. Þar
haföi Jónatan Sveinsson saksóknari
með það að gera. Akæra var svo gefin
útífyrradag.
Sigurberg Guðjónssonhéraðsdómari
er sakaður um fjárdrátt, fjársvik og
okur. Steindór Gunnarsson lögfræðing-
ur er sakaður um fjársvik. Þórir Hall-
dórsson sölumaður er sakaður um
skjalafals.
Það mun fátítt aö dómarar hérlendis
þurfi að svara til saka fyrir svo alvar-
leg brot sem fyrr var greint frá. Fara
þarf heila öld aftur í tímann, til ársins
1885, til að finna dæmi þess. Þá varð
sýslumaður Isafjarðarsýslu og bæjar-
fógeti Isaf jarðar, C. Fensmark, uppvís
að stórfelldri sjóðþurrð. Var hann
dæmdur í átta mánaða betrunarhúss-
vinnu og háa fjársekt.
A þriðja tug þessarar aldar var
bæjarfógeti í Reykjavík sakaður um að
hafa ekki ávaxtað dánarbú og aðra
sjóði sem embættið varðveitti. Ekkert
varð úr þvímáli.
-KMU
„ Aldeilis f rábær ferð'
— segir Franzisca Gunnarsdóttir sem var
fréttamaður DV um borð í ms. Eddu
„Þetta hefur verið aldeilis frábær
ferð. Mjög góð stemmning og mikið
fjör um borð. Það eru allir á því að
ferðin hafi verið geysilega góð afslöpp-
un og mikil tilbreyting,” sagði frétta-
maður DV, Franzisca Gunnarsdóttir.
Hún fór í fyrstu ferð Eddu en skipiö
kom til Reykjavíkur í gær.
„Það eru nú 159 farþegar um borð í
skipinu, margir Islendingar, en einnig
mikið af Þjóðverjum sem komu um
borð í Bremerhaven.”
Að sögn Franziscu voru móttökumar
í bresku borginni N ewcastle glæsilegar
afhálfu ferðamálaráðsins breska.
-JGH.
Franzisca á leið um borð i Edduna i
Reykjavik isiðustu viku. Með henni
á myndinni er sonur hennar Gunnar
Gunnarsson. Og við sjáum ekki
betur en Höskuldur Skagfjörð rit-
höfundur hafi gripið tækifærið og
verið með á myndinni.
DV-mynd: S.
Sumarskóli, nám, útivist, íþróttir, skoðunar-
ferðir. Gist á úrvals heimilum. Ódýrir fyrsta
flokks kennarar. Viku ferðalag til Aviemore
eftir endilöngu Bretlandi.
Fáar íþróttir njóta jafnmikilla vinsælda og knattspyrnan.
Flestir ungir íslendingar læra að sparka bolta — við gefum þeim tækifæri á kennslu
og æfingum hjá einu elsta knattspyrnufélagi Bretlands, Aston Villa æfingabúð-
unum, undir handleiðslu þekktra knattspyrnumanna frá miðlandafélögunum og að
auki læra ensku um leið.
NÆSTA NÁMSKEIÐ 20. JÚNÍ:
Ferðaskrífstofa
Kjartans Helgasonar
Gnoðarvogi 44, Simi86255.
KNATTSPYRNUNÁM í UPPRUNALANDINU - ENGLANDI - SANDFIELD INTER-
NATIONAL.
Junior
Internationai
LÆRIÐENSKUÍ ENGLANDI
Byrjið að læra ensku á unga aldri, Upland
skólinn í Poole er viðurkenndur.
En það er ekki of seint að byrja
að læra ensku á miðjum aldri
eða efri árum. Enskan er
gjaldgeng víðast hvar og er
nauðsynleg í alþjóða viðskiptum.
Við höfum skóla, ACEG í
Bournemouth á suðurströnd Englands, fyrir fólk allt frá 15 ára aldri.
Farið næst 3. júlí og síðan mánaðarlega. 1500 íslendingar hafa stundað nám þarna
síðastliðin 6 ár.