Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1983, Page 13

Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1983, Page 13
DV. FIMMTUDAGUR 9. JUNI1983. 13 Frá fimm flokka viðræðum undir stjórn Svavars Gestssonar. b) 6 mánaða fæöingarorlof fyrir ail- ar konur. c) samfelldur skóladagur barna og takmörkun hæfilegs fjölda nem- enda í bekk. d) fullnægjandi dagvistun fyrir öll börn, þannig að það geti orðið val foreldra en ekki hins opinbera eins og nú er, hvort böm njóti við- unandi dagvistunar meðan for- eldrar vinna. Til fjármögnunar slikrar uppbyggingar mætti nota 1% af A.-hluta fjárlaga 1983, sem mun nema 130 milljónum króna eða tæplega and viröi eins togara. e) bættir möguleikar til fullorðins- fræðslu og endurmenntunar. f) endurskoðun trygginga- og lífeyrismála húsmæðra. Þessar aðgerðir miða annars veg- ar að því að fjárfesta í uppeldi og umönnun barna, sem aldrei verður ofgert og hins vegar að auka áhrif kvenna í þjóðfélaginu með því að efla menntun þeirra og efnahagslegt sjálfstæði. Fjármögnun þessara fram- kvæmda byggist svo á því að breyta forgangsröð þeirra verkefna, sem ríkiðtekuraðsér. Þær stjómarmyndunarviöræður, sem við tókum þátt í, snerust aö mestu um efnahagsmál og urðu flest- ir aðrir málaflokkar að víkja fyrir umræðu um þá Gilitrutt, sem kæmi að vitja nafns hinn 1. júni. Fannst okkur sárlega vanta þar meiri um- ræðu um ýmis önnur mikilvæg mál. Verðbótatfflögur Kvennafistans Við töldum það meginatriði í fyrir- huguðum efnahagsaðgerðum að vemda kjör hinna lægst launuðu, en i þeim hópi eru konur f jöimennar. I þeim tilgangi bárum við fram tillögu um verðbætur á laun, sem við álitum aö nýtast muni best þeim sem lægst eru launaðir. Þjóðhagsstofnun reikn- aöi síöan út fyrir okkur töluleg gildi þessarar tillögu. Meðallaun allra launþega (ASI, BSRB og BHM) sam- kvæmt taxta eru nú 12.230 krónur. Við leggjum til, að 20% af meöallaun- um, þ.e. 2.446 krónur komi sem föst krónutala i verðbætur ofan á meðal- laun og öll laun þar fyrir neðan. Síð- an komi helmingur þeirrar krónutölu ofan á næsta f jóröung launa þar fyrir ofan, en engar verðbætur í efsta fjórðungi iaunastigans. Þessi tillaga felur í sér skerðingu verðbóta á hærri laun, en veitir meira en fullar verðbætur þeim sem standa i lægstu þrepum launastigans. Samkvæmt þessari tillögu nytu um 80% félaga i ASI og rösklega 60% allra launþega fullraverðbóta. Heildarupphæð þessara verðbóta í júnímánuði, ef þær hefðu verið greiddar, eru áætlaðar um 170—260 milljónir króna. Til samanburðar má nefna, að verðbætur samkvæmt bráðabirgðalögum ríkisstjómarinn- ar eru taldar hafa numið 180 millj- ónum króna, í júnímánuöi. Ef okkar tillögu hefði veriö beitt hefðiheildar- upphæð greiddra verðbóta verið mjög sambærileg við ráðstöfun ríkis- stjórnarinnar en dreifing fjárins mun réttlátari. Úrræði ríkisstjórnarinnar I stað þess hefur rikisstjórnin valið að gefa 8% verðbætur upp allan launastigann, sem viðheldur og eyk- ur enn á þann launamismun, sem þegar er of mikill. Þannig fá þeir, sem við lökust kjör búa, tæplega 1000 króna uppbót til að mæta þeim hækkunum, sem orðnar eru á nauð- þurftum eins og búvöru, en þeir sem hafa t.d. 35.000 króna laun fá 2.800 króna uppbót. Þó að enginn fagni launaskeröingu eru menn sannarlega misvel í stakk búnir að mæta henni og er það furðu skammsýn ráðstöfun ríkisstjómar- innar að ætla að þjarma svo illa að láglaunafólki. Hún segist hafá aö markmiöi „Vemdun kaupmáttar lægstu launa og lífskjara þeirra sem þyngst framfæri hafa”. Samt er þeim „mildandi aðgerðum”, sem boðið er upp á, ekki beint i samræmi við tekjur en dregið úr áhrifum þeirra með því að dreifa þeim of víða. Þær rata því ekki þangað sem þeirra er mest þörf og duga skammt þar sem þær lenda. Tekjutrygging lifeyrisþega, sem hækkar um 5% umfram laun og mæðra- og feðralaun, sem hækka um 100% (með einu bami) þ.e. úr 250 krónum í 500 krónur á mánuði eru að- gerðir, sem beinlinis eru ætlaöar þeim, sem verst em settir. Báðar em alltof rýrar til þess að veita mark- tækan stuðning. Þó að reynt hafi ver- ið að taka tillit til þeirra, sem eiga böm undir 7 ára aldri og þeirra, sem eru að byggja sér húsnæöi, em þeir margfalt fleiri, sem engar viðunandi bætur fá en búa þegar við kröpp kjör og munu eiga erfitt með að mæta þeim verðhækkunum, sem þegar eru orðnar og enn eiga eftir að dynja yf- ir. Hverjir borga brúsann? Ríkisstjórnin nýja segist hafa aö meginmarkmiði atvinnuöryggi og hjöðnun verðbólgu og er það vel. En er okkur sama hvað það kostar og hverjir borga brúsann? I stjórnar- sáttmála segir að „Aðeins meö við- tækum, samstilltum aðgerðum, er taka til allra þátta hagkerfisins, er unnt að vinna bug á þeim þrenging- um, sem nú steðja að þjóðarbú- skapnum...” Samt hefur nú aðeins verið átt við launin. I bráðbirgðalögum ríkisstjómar- innar segir í 4. gr. kafla um fjár- málaráðstafanir til vemdar lífskjör- um „Á árinu 1983 er fjármálaráö- herra heimilt að lækka rikisútgjöld frá því sem ákveöið er í fjárlögum fyrir árið 1983 um allt að 300 milljón- ir króna.” Þama er fjármálaráð- herra gefið mikið vald án samráðs við ríkisstjómina. Hvaðan á aö taka þetta fé? Er líklegt að byggingu Seöiabankans verði frestað? Hvaðan kemur ríkisstjóminni um- boð til að nema úr gildi launasamn- inga? Var afnám samninga og lækk- un verðbóta á stefnuskrá Framsókn- arflokksins eöa Sjálfstæðisflokksins fyrir kosningar? Var kosið um þau nástrá, sem láglaunafólki er nú boð- in handfesta í? Nú eru rétt liðin tvö hundruð ár síð- an Móöuharðindi hófust með Skaft- áreldum svo að land, fólk og fénaður eyddist. Ekki var nema lítill hluti þeirra harðæra af manna völdum og Islendingar lifðu af þótt nær þeim væri gengið. Okkur er ekki vandara um nú en þá, en byrðunum verður að skipta þannig að hver beri sem hann þolir. Hafi ríkisstjórnin viljað sýna dirfskuog þor til að takast á við vand- ann, hví brast hana þá kjark til aö bæta kjör þeirra, sem hlífa skyldi? Reykjavík,7. júní 1983 Guðrún Agnarsdóttir þingmaður Kvennalista A „Við töldum það meginatriði í fyrirhuguð- ^ um efnahagsaðgerðum að vernda kjör hinna lægst launuðu, en í þeim hópi eru konur f jölmennar. í þeim tilgangi bárum við fram til- lögu um verðbætur á laun, sem við álítum að nýtast muni best þeim sem lægst eru launaðir.” Ríkisst jórn í klemmu að ræða. Hún er aö berjast við að halda á floti þrotabúi fyrri ríkis- stjómar, sem sat lengur en sætt var. Engu að síður verður núverandi ríkisstjóm að verja afleiðingar gerða hinnar fyrri á meðan þeir sem þar bára þyngsta ábyrgð hjúpa sig englaskikkjum og blása í herlúöra væntanlegrar kjarabaráttu. Aðhald og kynning Ætli hin nýmyndaða ríkisstjórn að lifa af þann darraðardans, sem framundan er, verður hún að gera Seðlabankastjóri og þjóðhagsstjóri gáfu þingmönnum upplýsingar í stjóraar- myndunarviðræðunum. tvennt. Hún verður í fyrsta lagi að sýna geysimikið aðhald í öllum opin- beram rekstri og hún verður í öðru lagi aö sjá til þess aö almenningur fái réttar upplýsingar um aðgerðir hennar. Bregðist annað hvort geta ráðherramir farið aö taka til á þess að réttar upplýsingar um aðgerðir hennar — bæði þær sem þegar hafa verið ákveðnar og þær sem á eftir eiga að koma — berist al- menningi í aðgengilegu formi. Yfir fólk dynur nú vel upp settur og einfaldur áróður forsprakka laun- • „Ætli hin nýmyndaða ríkisstjórn að lifa af þennan darraðardans, sem fram undan er, verður hún að gera tvennt. Hún verður í fyrsta lagi að sýna geysimikið aðhald í opin- berum rekstri og hún verður í öðru lagi að sjá til þess að almenningur fái réttar upplýsingar um aðgerðir hennar.” borðunum h já sér mjög fljótlega. Hún má hreint ekki líða opinberum stofnunum að hækka gjaldskrár sínar að geðþótta. Þær verða að lifa í takt við þjóöfélagið og ef tekjur þeirra hrökkva ekki til verða þær hreinlega að draga úr framkvæmd- um og ef til vill rekstri. Himinninn hrynur ekki yf ir okkur, þótt einum og einum opinberam starfsmanni verði sagt upp, eða þótt einn og einn vinnu- flokkur þurfi að hætta að vinna uppi á öræfum á tvöföldu eða þreföldu kaupl Þá verður ríkisstjórnin að sjá til þegasamtaka, sem allt í einu sjá kjaraskerðingu detta niður úr skýjunum, en varðar ekkert um aödraganda hennar eða orsakir. Það er lágmark aö þeir tugir manna sem hafa atvinnu sína af því árið um kring að reikna út verðbólguna og afleiðingar hennar geti stunið ein- hverju út úr sér i fjölmiðlum um hvað aðgerðirnar í raun og vera þýða, eöa í þaö minnsta skrifað bækling á skiljanlegu máli, sem dreiftermeðalfólks. Hvorugt þessara atriða ætti að vera hinni nýju ríkisstjórn ofraun. Þrátt fyrir ákaflega óheppilega byrjun á stjórnarferli getur hún enn áunnið sér traust fólks aö nýju. Hún gerir þaö með því að sýna fólki að hún ætli að beita raunveralegu aðhaldi, en ekki sýndaraðhaldi geð- þóttaákvarðana, og hún gerir það með því að kynna undanbragðalaust hvað hún hefur í pokahorninu, svo fólk geti fljótlega borið saman svart- nættishjal launþegaforingjanna og árangur stjómarathafna. Þing eða ekki þing? Þegar þetta er skrifað er ekki ljóst hvort sumarþing verður kallað saman eða ekki. Eðlilega sækir stjómarandstaðan það fast, enda mun hún nota slíkt þing, ef saman verður kallað, til þess að fylkja liði sínu til orrustu og þyrla upp miklu áróðursmoldviðri. I raun og veru er ekki hægt annað en hlæja aö því, þegar stjórnarþingmenn þykjast geta sett einhver skilyrði I slíkum málum og stjórnarandstaðan lofar öllu fögru, vitandi að ótal leiðir eru bæði til að svíkja slík loforð og finna leið framhjá þeim í skjóli breyttra aðstæðna. Fari svo að þing verði kallaö saman mun verða styttra en ella í hörð átök milli ríkisstjórnar og stiómarandstöðu, ekki síst á vinnu- markaönum. Það er því 1 jóst að verði sumarþing ofan á þarf ríkisstjórnin að miða geröir sínar við það og hafa sem mest af efnahagsaðgerðum til- búið, svo unnt verði að hafa heildaryfirsýn yfir málin þegar á því þingi. Magnús Bjarnfreösson.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.