Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1983, Blaðsíða 9
DV. FIMMTUDAGUR 9. JUNI1983.
9
öryggisgæsla israelsku bersveitanna í S-Líbanon er mjög ströng og þo er mann-
fall þeirra þar talsvert. Nú hefur Gemayel, forseti Líbanon, skoraö á Israelsmenn
að láta fanga í Ansar-fangabúðunum lausa.
Líbanon:
Útlönd Útlönd
GEMAYEL VILL
FÁ FANGA LAUSA
Þessi yfirlýsing forseta Líbanons er
fyrsta opinbera viðurkenningin á því
að stjórnvöld í Líbanon hafa reynt að
fá fangana látna lausa til þess að vinna
sér góðvilja PLO en Gemayel forseti
vill umfram allt að herir PLO yfirgefi
Líbanon.
PLO-samtökin hafa neitaö að viður-
kenna friðarsamningana milli Israel
og Líbanon og hafa neitað að draga sitt
8 þúsund manna herlið á brott frá land-
inu samkvæmt því.
Forseti Líbanon, Amin Gemayel,
hefur skorað á Israelsmenn að leysa
þegar úr haldi alla þá fanga sem
geymdir eru í búðum nærri þorpinu
Ansar í Suður-Líbanon. Þar geyma
Israelsmenn alla þá sem grunaðir eru
um að vinna fyrir eða hafa samúð með
PLO, samtökum Palestínuaraba.
Yasser Arafat, leiðtogi PLO, hefur
haldiö þvi fram að fangar í Ansar séu
pyntaðir.
-S-Afríka:
Þrírskætih
liöar hengdir
Dómari við Hæstarétt Suður-Afríku
neitaði í gærkveldi beiðni um gálga-
frest frá þrem svörtum skæruliðum
sem voru síðan hengdir í morgun. Það
var Curiewis hæstaréttardómari, sem
upphaflega dæmdi mennina til dauða
fyrir hermdarverk, sem neitaði um
gálgafrestinn. Ástæðan fyrir beiðni
fanganna var sú að einn þeirra hefur
höfðað mál á hendur s-afrísku öryggis-
lögreglunni fyrir illa meðferð þegar
hann var handtekinn. Lögfræðingar
hinna dæmdu héldu því fram að ef
gáigafrestur yrði ekki veittur gætu
skæröuliöamir þrír ekki borið vitni við
réttarhöldin.
Dómarinn tilkynnti lögfræðingum
verjenda úrskurð sinn fyrir luktum
dyrum og var blaöamönnum ekki
veittur aðgangur. Dómarinn tilgreindi
ekki ástæður fyrir því að hann neitaði
um frestun á aftöku.
HongKong:
GETULAUSA
LÖGREGLUMÓNA
Lögreglumenn ættu að vera getu-
lausir, eða taka pillur til þess að bæla
kynhvöt sina að öðrum kosti, sagði
dómari í Hong Kong eftir að hann haföi
heyrt frásagnir vitna af því hvað gerð-
ist er fimm lögregluþjónar voru sendir
í rannsóknarleiðangur í gleðihús eitt
þaríborg.
Lögregluþjónarnir voru sendir til
fundar við gleðikonur, birgir af sérlega
merktum peningaseðlum, og áttu þeir
að þykjast vera þurfandi viðskipta-
vinir. Þetta var liður í viðleitni lög-
regluyfirvalda í Hong Kong til þess að
ráöast gegn hópi manna sem kæröur
var fyrir að hafa lifibrauð sitt af ósið-
legu líferni stúlknanna. Dómarinn,
Sirinarain Maharaj, dæmdi mennina
saklausa af þeim glæp og sagði að lög-
regluþjónamir hefðu sóst eftir stúlkun-
um en ekki stúlkurnar eftir viöskiptum
þeirra.
Tveir af lögregluþjónunum fimm
sem á gleðihúsið fóru viðurkenndu aö
þeir hefðu átt erfitt með að standast
þær freistingar sem stúlkurnar buöu
upp á Þeir sögðu að stúlkurnar hefðu
flett þá klæðum og strokið þá og
kjassað. Einn lögregluþjónanna eyddi
90 mínútum að sögn við þaö að str júka
einni stúlknanna en neitaði því alfarið
að samskipti þeirra heföu orðiö meiri.
„Hún var of gömul,” sagði hann.
„Það er eðlilegt að lögregluþjónar
sem em ungir, heilsugóðir og hraustir,
hafi ekki fullt vald á ástríðum sinum,”
sagði dómarinn og mælti með að fram-
vegis yrðu slík störf falin getulausum
mönnum, eða mönnum sem tækju
pillur til þess aö bæla kynhvöt sína.
Júgóslavía:
Átta farast í námaslysi
Átta júgóslavneskir námaverka-
menn létust og tugir lokuðust inni
þegar sprenging varð í kolanámum við
Áleksinsc, 160 kilómetra austur af
Belgrad. Giftusamlega tókst til með
björgun þeirra sem lokuðust inni en
sumir þeirra voru á allt að 800 metra
dýpi.
Sprenging mun hafa orðið er neisti
komst i gas sem safnast hafði fyrir i
námagöngunum. Gas hamlaði einnig
björgunarstörfum.
Litir: hvitt og dökkblátt leflur
m / rennilásabandi.
Stærðir: 25—27
Verð kr. 537,-
Litur: hvítt leflur, reimaflir.
Stærflir: 25-27.
Verfl kr. 576,-
Litir: hvitt og dökkblátt leflur
m/rennilásabandi.
Stærflir: 25-27
Verðkr. 599,-
Leflurskör m/rennilás.
Stærflir: 28-34
Verfl kr. 769,-
Stærflir: 35—38
Verfl kr. 814,-
Stærðir: 39-40
Verfl kr. 879,-
Litir: hvitt, grátt og blátt leflur
Stærflir: 28—34
Verð kr. 633,-
Stærflir: 35—38
Verð kr. 703,-
Stærflir: 39—41
Verfl kr. 795,-
Litur: hvítt lakkleður
Stærðir: 35—40
Verð kr. 659,-
Litur: blátt/hvítt leður
Stærflir: 35-40
Verð kr. 710,-
Litur: hvítt/svart lakkleður
Stærflir: 35—40
Verð kr. 754,-
Vörumarkaðurinnhf.
J Ármúla 1a — sími 86113.
MALLORCAFERÐIR -22dagar
MEÐ 7 DAGA SKEMMTISIGLINGU
UM MIÐJARÐARHAF. kr. 28.700,-
BROTTFARARDAGAR: 15. JLINÍ, 6. OG 27. JÚLÍ
17. ÁGÚST, 7. OG 28. SEPTEMBER.
Viðkomustaðir.:
Mallorca — Tunis — Sardinia — Korsíka — Menorka.
Efnt til skemmti- og skoðunarferða á öllum viðkomustöðum. Verð
miðað við dvöl i tveggja manna herbergjum um borð með baði.
Þrjár máltíðir á dag og skemmtanir innifaiið. Sundlaug og sólbaðs-
aðstaða um borð.
Það býðst ekki betra verð á góðri sólarlandaferð með skemmti-
siglingu um Miðjarðarhafið.
SÉRSTAKTKYNNINGARVERÐ 15. júni - 22 dagar.
Með dvöl í Palma á góðu hóteli, með morgunverði,
eða í íbúðum.
Einnig er hægt að fá samskonar Mallorcaferðir með dvöl á hinu
vinsæla íbúðahóteli Trianon á Magaluf baðströndinni eða í lúxus-
viHum í sólskinsparadís Mini Folies, eða golfhótelinu Rey don
Jaiome, Santa Ponta.
fílotíð þetta einstaka tækifæri á kynningarverðinu.
Mallorcaferð ásamt skemmtisiglingu á Miðjarðarhafinu tíl Túnis og
Þriggja Paradísareyja.
Takmarkaður sætafjöldi á þessum kynningarverðum.
Aðrar ferðir okkar:
Costa Brava, Mallorca, Grikkland, Malta,
Tenerife, Franska Rivierian
FWGFERDttZ
SÓíAkFWG
Vesturgötu 17.
Símar
10661 - 15331 og 22100.