Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.1983, Qupperneq 3

Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.1983, Qupperneq 3
DV. ÞRIÐJUDAGUR19. JULI1983. 3 „ÞAÐ ER MIKILVÆGAST AD AKA Á JÖFNUM HRADA” * —segir Gísli Jónsson, sigurvegarí í Sparaksturskeppni DV og Vikunnar „Heildamiðurstaöa keppninnar er að ef fylgt er ströngum reglum, ekiö á spameytnum bílum og ökumenn era góðir þá er hægt að ná ótrúlegum árangri i bensínsparnaði,” sagði Sig- ,urður G. Tómasson, dómari i Spar- aksturskeppni DV og Vikunnar. Keppninni lauk sem kunnugt er á Lækjartorgi á sunnudagskvöld og reyndist Gisli Jónsson sigurvegari er upp var staöið. Mjótt var á mununum og keppnin hörkuspennandi alian timann. Keppendur skiptust á um að hafa forystu, en Gísli keyrði síðasta áfangann af mikilli skynsemi og náði aö vinna upp forskot sem mótherji hans, Kristín Bima Garðarsdóttir, hafði fyrir siðasta áfanga. Sigurður G. Tómasson, dómari sparaksturskeppninnar, er starfs- maöur orkusparnaðarnefndar og fylgdist hann grannt með bensíneyðslu keppenda allan tímann. Hann sagði við keppnislok: „Það er von okkar að þessi niðurstaða geti orðið öllum hvatning til þess að spara bensin. Það á ekki sist við á þessum síöustu og verstu tímum. Eg tel aö keppnin hafi verið til góðs, en það er auðvitað ómögulegt að segja hvaöa áhrif hún hefur. Það verður auðvitað ekki hægt að sýna prósentulega lækkun bensin- eyðslu i kjölfar keppninnar en hún hefur skapað umræðu um orku- sparnað, þama er sýnt f ordæmi og þaö. er hvort tveggja mikilvægt.” Sigurvegarinn i Sparaksturskeppn- inni, Gisli Jónsson, er prófessor í verk- fræði við Háskóla Islands. Hann hefur unniö mikið að verkefnum sem. tengjast orkuspamaði á einn og annan hátt og nægir þar að nefna tilraunir hans með rafmagnsbila. Gísli var spurður að því hvaö væri lykiiatriðið í sparakstri. „Veigamest er aö halda sem jöfnustum hraöa og forðast allar snöggar hraðabreyt- ingar. I þessari keppni var mikilvægt að nýta timann sem best. Eg reyndi aö Sigurvegarinn í sparmksturskeppninni: Gísll Jónsson, ásamt aðstoðar- manni sinum, Ólafi KJartanss yni verkfræðingi. Kristin Bima Garðarsdóttír og aðstoðarmaður hennar, Linda Oís Guðbergs- dóttír, veittu þeim Gisia og Óiafí harða keppni en urðu að iáta í minni pokann um stðir. DV-myndir: Bj. BJ. DV-mynd: Ámi Snœvarr. nýta allar brekkur, vera á jafnasta hluta vegarins til aö minnka mót- stöðuna. En það er fyrst og fremst það að aka á jöfnum hraöa sem skiptir máli. Eg vil leggja áherslu á það að miöað við mælinákvæmni vorum við eigin- lega alveg jöfn. Það munaöi svo litlu að það er varla hægt að tala um sigur- vegara.” — Hvernigreyndistbíliinn? „Hann kom mér á óvart, sérstaklega hvaö hann er duglegur. Svona lítill bíll er náttúrlega ekki gerður fyrir verstu vegina en hann var ágætur, tók til dæmis aldrei niðri á leiðinni. Hann er tiltölulega mjúkur. Nú, vegimir voru víðast hvar í ágætu lagi en þó var víða pottur brotinn einkum þar sem var búið aö leggja undirlag fy rir nýja vegL Einna versti kaflinn var á Skeiðarár- sandinum. Vegurinn þar var mjög haröur og óþéttur.” — Heldurðu að ökumenn hugsi nægjanlega um hvað hægt er að spara mikið með sky nsamlegu aksturslagi? „Nei, ég er ansi hræddur um að margur gefi þvi ekki nægjanlegan gaum. Þó kom það mér á óvart hversu margir óku á svipuðum hraða og við, 50—60 km. meðalhraða. Það er mjög afslappandi aö aka á þessum hraða, meira að segja ökumaðurinn getur notið útsýnisins. Auk þess að þetta er ákjósanlegur hraði hvað orkuspamað varðar, stórminnkar slysahættan. Að mínu mati var þessi Sparaksturs- keppni DV og Vikunnar virðingarvert framtak og vel staðið að henni. Eg vona að hún verði mönnum hvatning til orkuspamaðar.” -ás. PÓSTSENDUM imuF Glæsibæ sími 82922 Ný sending M ALLORC A og LON DON Brottför alla þriðjudaga: 1, 2, 3 eða 4 vikur á Mallorcaog 2 dagar ókevpis í London á heimleiðinni: Þið veljið um dvöl í bestu fáanlegu íbúðum og hótelum ó Magaluf-ströndinni eða annars staðar á þessari para- dísareyju Miðjarðarhafsins þar sem sjórinn, sólskinið og skemmtanalífið er eins og fólk vill hafa það. Nýr ferðamáti og aukið ferðafrelsi sem kostar þó ekkert Aðrar ferðir okkar: Maita, Costa Brava, Tenarife, Franska Rivíeran, Landið helga, Egyptaiand október, Thailandnóv. ogdes. meira en bundnar leiguferðir. Þið fáið að auki 2 heila daga í London í kaupbæti, með gistingu og morgun- verði, á heimleiðinni. Þú ferðast eins og kóngur og drottning i áætlunarflugi og nýtur frábærrar þjónustu Flugleiða og IBERIA á áfangastöðum og í háloftunum. FLUGFERDim SÓLARFLUC VESTURGÖTU 17.- SÍMAR 10661 - 15331 0G 22100

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.