Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.1983, Side 9

Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.1983, Side 9
DV. ÞRIÐJUDAGUR19. JtJLl 1983. 9 Utlönd Utlönd Utlönd Útlönd ÁGREININGUR Á AÐALFUNDIOPEC — olíuverð verður óbreytt en deilt er um f ramkvæmdast jóra Á aöalfundi olíumálaráðherra OPEC-ríkjanna í Helsinki í gær var ákveðið að olíuverð og hámarks- framleiðsla olíu skuli enn vera óbreytt. Agreiningurinn á fundinum stendur nú um hver eigi að verða framkvæmdastjóri samtakanna. Ákvörðun oliumálaráðherranna þrettán þýðir að verð á hráolíu verður áfram 29 dollarar á tunnuna og hámarksframleiösla á dag 17,5 milljónir tunna samanlagt hjá öllum aðildarríkjunum. Það er í samræmi vð ákvörðun sem ráðherrarnir tóku á fundi sínum í London fyrir fjórum mánuðum er reynt var að koma í veg fyrir verðhrun á olíu á sama tíma og eftirspumin er lítil. Samhliða þessari ákvörðun lýstu Nígeríumenn því yfir að þeir myndu aftur draga úr framleiðslu sinni sem komin var fram úr leyfilegum mörkum þeirra. Vegna mikillar eftirspumar eftir nígerískri hráolíu framleiddu þeir. 1,7 milljón tunna á dag sem var 350 þúsund tunnum umfram þaö sem samkomulag rikjanna heimilaöi. Yamani, olíumálaráðherra Saudi- Arabíu, sagði á fundinum í gær að ef til vill þyrfti að kalla fundinn aftur saman fyrir áramót til að ræða olíu- verö og framleiðslumagn með hlið- s jón af aukinni eftirspurn eftir olíu. Erfiðasta vandamál þessa fundar verður að finna eftirmann Marc Nguema frá Gabon, sem verið hefur framkvæmdastjóri OPEC. Iranir vilja að sæti hans komi í hlut Hassan THATCHER SAUMAR AÐ ÞINGMÖNNUM Breska rikisstjómin hefur samþykkt aö hækka laun breskra þingmanna um 5,5% sem þýðir að árslaun þeirra munu nú hækka um jafnvirði 33 þúsund íslenskra króna. Breskir þingmenn hafa nú i árslaun um 600 þúsund krón- ur islenskar eöa 14,500 sterlingspund. Launahækkun þessi fékkst ekki átakalaust og lenti Thatcher forsætis- ráðherra í harðri rimmu bæði við þing- menn Ihaldsflokksins og Verkamanna- flokksins vegna þessa. Nefnd sem kjör- in hafði verið til að ákveða launahækk- un þingmanna lagði til að hækkunin yrði 31%. Forsætisráðherrann sagði að slík hækkun væri óverjandi á sama tima og rikisstjórnin væri að berjast fyrir þvi að halda launahækkunum op- inberra starfsmanna á bilinu 2 til 3%. Ríkisstjórnin lagöi til að launahækk- un þingmanna yrði 4% sem myndi að mestu renna til lífeyrissjóðsgreiðslna en það mætti harðri andstöðu allra flokka. Málamiðlunin varð því 5,5%. Kheradmand, forstjóra Iranska olíu- félagsins, ekki aðeins vegna hæfl- leika hans heldur einnig vegna þess að nú er komiö að Iran að tilnefna framkvæmdastjóra samkvæmt staf- rófsröð, en sú regla hefur viðgengist í samtökunum fram til þessa. Irakar, sem átt hafa í striði við Iran í þrjú ár, neita aö fallast á fulltrúa klerkastjórnarinnar og segjast munu beita neitunarvaldi gegn honum. Irakar gera sjálfir kröfu til embættis framkvæmdastjóra OPEC. Umsjón: Ölafur Friðriksson og Baldur Hermannsson S-Afríka: Öfgamenn ákæröir Eugena Terreblanche, leiðtogi öfgasamtaka hvítra i S-Afríku, verður ákærður ásamt þrem sam- starfsmönnum sínum fyrir hryðju- verkastarfsemi, að sögn yfirsak- sóknara Transvaal héraðs. Veröa mennirnir ákæröir fyrir að reyna eða ráðgera að fella ríkisstjórn S- Afríku með ofbeldi. Upphaflega var ætlunin að kæra mennina að- eins fyrir ólöglega eign skotvopna. Fjórmenningamir tilheyra Afrísku andspyrnuhreyfingunni, (Afrikaaner Weerstandsbeweging) og er einn þeirra borgarfulltrúi í Spring Town. Terreblanche fékk 18 mánaða skilorðsbundinn fangelsis- dém og sektir vegna ólöglegs vopnaburðar en sá dómur er ekki tengdur því máli sem hér um ræðir. ÞESSI GALVANISERAÐI MEÐ ÞYKKA LAKKINU Þrátt fyrir bensínhækkunina gyldir 50 kallinn ennþá. Spameytinn Þægilegur TIKALL A MANN Á UNO til Kefla víkur fyrir 50 kall! UNO eyðir bensíni fyrir fimmtíu krónur í ökuferð til Keflavfkur meðan farið með rútunni kostar 73 krónur. Það þýðir að fari fimm saman í UNO til Keflavíkurfá fjórirfrftt, og vel það. Þetta er alvöru kjarabót. Virðulegur Snar í snúningum EGILL VILHJÁLMSSON HF. F // A T Smiðjuvegi 4, Kópavogi. Símar 77200 - 77202

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.