Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.1983, Page 36
07A00 AUGLÝSINGAR A/ SÍOUMÚLA33
1 1 . i SMÁAUGLÝSINGAR —AFGREIÐSLA
hverri i.. . SKRIFSTOFUR ÞVERHOLTI11
viku 4 ! • Q7/1 1 RITSTJÓRN OOO 8 1 SÍÐUMÚLA12—14 -
Hraðfrystihús
Patreksfjarðar:
Laungreiddídag
Ekki tókst að greiöa verkafólki í
Hraðfrystihúsi Patreksfjarðar laun í
gær, eins og áætlað hafði verið. Vinnsla
hófst engu aö síður í frystihúsinu og
fara launagreiðslur væntanlega fram i
dag.
Jón Kristinsson, forstjóri Hrað-
frystihússins, sagði í viðtali viö DV í
morgun að búið væri að útvega þaö
fjármagn sem þyrfti til að greiða fólk-
inu laun. Næmi sú upphæð 8—900 þús-
und króiium og hefði hún verið útveg-
uð í samvinnu við Landsbanka Islands.
„Vandi fyrirtækisins er þó engan
veginn leystur enn, enda er hann
stærri en þetta,” sagði Jón, sem kvaöst
ekki vilja tjá sig um hversu stórt heild-
ardæmiö væri. „Mál okkar eru nú til
skoöunar i Framkvæmdastofnun og ég
veit ekki enn hvað gerist í f ramhaldi af
því. En þarna er fyrst og fremst um að
ræða byggðarmál sem þarf að leysa.”
______________-JSS
SigríðurGröndal
komstekki í úrslit:
„Vard íslandi ekki
til skammar”
„Þetta gekk voðalega vel, þó ég
kæmist ekki í úrslit. Tage Ammen-
drup, sem er staddur héma, sagði að
minnsta kosti að ég hefði ekki orðið Is-
landi til skammar,” sagði Sigríöur
Gröndalsöngkona.
Hún er núna stödd í Cardiff í Wales
þar sem hún tók í gærkvöldi þátt í
undanúrslitum í alþjóðlegri söng-
keppni. Keppt er í fimm riölum og em
3—4 keppendur, hver frá sínu landi, í
hverjum riðli. Einn er valinn til þess
að komast áfram Or riðlinum hennar
Sigríðar var valin þýsk stúlka, Andrea
Trauboth.
„Það er búið að vera alveg óskap-
lega gaman og mér finnst ég hafa lært
mikið. Ég söng til dæmis með hinum
heimsfræga stjómanda Jemes Loc-
hard. Af honum lærði ég mjög mikiö.
Það er h'ka svo vel um okkur hugsað og
móttökurnar em hreint æðislegar,”
sagðiSigríöur.
Hún dvelur áfram úti fram yfir
lokakeppnina á laugardag. ds
Evrópumótið í bridge:
Töpuðum stórt
Islenska sveitin varð hart úti er hún
keppti viö Itali á Evrópumótinu í
bridge í gær. Unnu Italir umferðina
með 20 stigum en Islendingar fengu -3
stig. I gærkvöldi sigruðu Frakkar svo
Islendinga 17—3.
„Þetta hefur varla verið við
mennska að eiga,” sagði Guðmundur
Pétursson, fyrirliði íslensku sveitar-
innar, viö DV í morguri. Hann sagöi
jafnframt að Islendingarnir spiluðu
viöÞjóðverjaídagoglraíkvöld. -JSS
ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚLf 1983.
LOKi
Svo eru aðrir þorskar, vel
sjóaðir, sem lóta sig mat
engu skipta
SKYRSLA UM GÆÐAFLOKKUN ÞORSKS:
besta togarafiskinn
Um 90% af þorskafla togara og
botnvörpunga flokkuðust í fyrsta
gæðaflokk á fyrstu fimm mónuöum
ársins. Þetta kemur fram í skýrslu
Fiskifélags Islands, sem afhent var á
blaöamannafundi i gær. Er þetta i
fyrsta sinn sem skýrsla sem þessi er
gefin út. Var áöur talið óheppilegt að
útlendingar fengju að vita um gang
mála við fiskveiðar hér viö land en
nú hefur sú stefna verið tekin upp að
fela þau mál etóti lengur — hvorki
fyrir þeim né landsmönnum.
I skýrslunni kemur í ljós að þorsk-
afii linubáta svo og handfærabáta
flokkast nær eingöngu í fyrsta gæða-
flokk. Fæst þar af leiðandi miklu
hærra verð fyrir hann. Af þorskafla
netabáta fóru um 70% í fyrsta
fiokk en 90% af þorskafla togara og
botnvörpunga fóru í besta
gæðaflokk.
Af einstökum togurum fékk Rauði-
núpur frá Raufarhöfn einna besta
matið en 96J% af þarátafla hans fóru
11. fiokk. Tveir aðrir togarar voru þó
hærri, örvar HU og Hólmadrangur
SI, en afli þeirra er unninn um borö
svo þeir eru ekki sambærilegir viö
hina. Karisefni RE var með léleg-
asta matið — 35,2% — en þess ber að
geta að hann hefur siglt og selt
stóran hluta afla sins erlendis.
Þorskaflinn fiokkast mjög mis-
jafnlega á milli verstöðva og fer það
mikið eftir því hvort netafiskurinn
hefur verið í meirihluta eöa ekki.
Flokkast netafiskurinn mun verr en
fiskur sem veiddur er á línu, botn-
vörpu eða handfæri.
Aflahæsti netabáturinn á vetrar-
vertíöinni, Heimaey VE, sem kom þá
með að landi 1106 tonn, fær t.d. til-
tölulega gott mat. Var hann með 692
tonn af þorski og fóru 63,9% í 1.
flokk, 23,8% í 2. flokk og 12,1% í 3.
flokk.
-klp-
,Laxadans” gcetiþessi mynd heitid en hún er nýlega tekin í Elliðaánum. Nóg er víst af laxi þar um slódir og má sjá
marga laxa íFossinum í einu á lofti. DVmgnd G. Bender.
Yfir 5000 með Eurokort
„Það eru á sjötta þúsund manns
kotnin með kreditkort frá okkur og af
af þeim er um helmingur alþjóðleg
kort,” sagði Gunnar Bæringsson hjá
Kreditkortum hf. er við höfum sam-
band við hann til að forvitnast um
notkun kreditkorta hér á landi.
Þarna er um aö ræða hin svo-
nefndu Eurokort, sem jafnframt eru
tengd hinum víðfrægu Master-
kortum, en þau eru mjög mikið notuð
I Bandarik junum og Kanada.
Eurokortin geta þeir fengið sem
uppfylla ákveðin skilyrði en aftur á
móti þarf sérstakt leyfi til notkunar
alþjóða Eurokorta. Er það Seðla-
bankinn sem veitir það leyfi og hefur
það verið frekar vandfengið að und-
anfömu.
Gunnar sagði að Utvegsbankinn,
Sparisjóður vélstjóra og Verslunar-
bankinn hefðu byrjað með Euro-
kortin fyrir einu ári og væru vin-
sældir þeirra sífellt að aukast. Sæist
það best á því aö á sjötta þúsund
manns væm með slík kort og margir
bættust við í hverri viku.
Eurokortin er hægt að nota á nær
600 stöðum, víös vegar um land.
Annar stór aðili er að fara inn á
sama markað og Eurokortin. Þaö er
Visa-Island, en að því standa 5
bankar og 13 sparisjóður um allt
land.
Landsbankinn hefur verið meö
alþjóðlegt Visa-kort á boðstólum I
meira en ár, en það kort hefur ein-
göngu verið til notkunar erlendis.
Visa-Island munu koma I gagniö
einhvern næstu daga en enn hefur
ekki verið látið uppi hvaða reglur
munu gilda um þau eða hvort eih-
hverjar kvaðir verða settar á þau.
-klp-