Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.1983, Page 7
DV. FIMMTUDAGUR11. ÁGUST1983.
7
Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur
HARKA í NEYTENDAMÁLUM
Neytendur virðast víða njóta meiri
réttar með lögum en þeir gera á
Isiandi. Nýlega fengum við sent
tímaritið Félagið Island-Israel sem
gefið er út af samnefndu félagi. I því
er grein um neytendamál í Israel
meðai annars efnis.
Brot gegn lögum um neytendamál
eru hart dæmd í Israel samkvæmt
greininni. Þannig var ofnaframleið-
andi nýlega dæmdur til að greiða 25
þúsund sekala sekt (um 16 þúsund
íslenskar krónur) fyrir að auglýsa á
villandi hátt. Fyrirtækið hafði hlotið
viðurkenningu heimsþekktra sam-
taka fyrir gasofna til húsahitunar.
Það framleiddi lika bökunarofna
sem gæðamatið náði hins vegar ekki
til. I auglýsingu var hins vegar gefið
í skyn að allir ofnar fyrirtækisins
hefðu hlotið þessa miklu viðurkenn-
ingu.
Verslunareigandi í Tel Aviv var
um svipað leyti dæmdur til að greiða
15 þúsund sekala sekt (um 10 þúsund
íslenskar krónur) fyrir að selja eina
flösku af bjór á hærra verði en leyfi-
legt var. Munurinn var þá aðeins
innan við 40 aura íslenskra. Sami
kaupmaður hafði reyndar brotið enn
meira af sér því að hann hafði einnig
selt kotasæludós á 60 aurum meira
! en leyfilegt var. Þá hafði hann komið
| fyrir í gluggum og hillum vörum sem
ekki voru verðmerktar. Dómarinn
taldi ástæðu til að taka hart á
þessum brotum til þess að koma í
veg fyrir að kaupmenn misnotuðu
sér traust almennings.
DS.
Vi
EGG
Margir kaupmenn hafa undanfarið
boöið egg á hálfgerðu útsöluverði.
Lægsta verðið sem við höfum heyrt um
er 35 krónur fyrir kilóið. Það hefur
verið boðið í þó nokkuð mörgum versl-
unum. Og við höfum heyrt að þetta
kostaboð hafi boriö árangur, sé miðaö
við kaupmenn. Fólk hefur gert sér ferð
í þær verslanir sem bjóða ódýr egg og
keypt frá 5 og upp í 20 bakka af
eggjum. Auðvitað hefur það svo keypt
allt mögulegt annað í leiðinni þannig
að kaupmenn hafa ekki tapað á þessu
kostaboði.
Egg eru ákaflega góð og holl sé
þeirra neytt í hófi. Enginn ætti þó að
borða nema 4—5 egg á viku. Meira af
eggjum getur valdið því að aukið
kólesteról taki að safnast fyrir í blóð-
inu. Og þá er vissara aö vara sig.
Hjartasjúklingar ættu að takmarka
eggjaneyslu eftir mætti.
Gallinn við það að hamstra egg er að
gömul egg eru ekki nærri því eins góð
og ný. Þegar ekki er vitað hversu
eggin, sem seld eru, eru gömul er erfitt
að vita hversu lengi er óhætt að geyma
þau. Hægt er að marka aldur eggjanna
með einfaldri tilraun. Brjótið eitt egg
og látið það renna alveg út á flatbotna
disk. Nýtt egg hefur seiga hvítu og
fasta rauðu. Hvítan fer ekki langt út
um diskinn og rauðan stendur vel og
skýrt upp úr henni. A gömlum eggjum
flýtur hvítan hins vegar mun meira út
og rauðan verður flöt eða því sem
næst. Notið gömul egg fremur í
Núerueggin ódýr:
ERU BEST í HÓFI
bakstur og aðra matargerð en til þess
að boröa þau ein.
Egg geymast best í kæli. Þó er það
svo að þau eru yfirleitt ekki geymd í
kæli i verslunum. Kaupendur geta ekki
vitað hversu lengi þau eru búin að
standa í heitri versluninni þegar þau
eru keypt. Ekki mun þó vera óalgengt
að það sé upp undir vika.
Egg taka í sig bragö séu þau geymd
lengi með mat sem sterk lykt er af.
Geymið því ekki eggin við hliðina á
lauknum eða spægipylsunni. Best eru
þau geymd í einangrunarbökkum þeim
sem þau eru oftast seld í. Ef þið kaupið
eggin í kílóum upp á gamia móðinn
getið þið keypt eggjabakka einu sinni
og notað hann síðan aftur og aftur
undir eggin úr pokunum.
Egg eru mjög þægileg sem viðbót við
hvers konar mat. Þau gera afganginn
af sunnudagssteikinni drýgri og lyst-
ugri. Soðin egg og steikt eru góö með
brauði og áleggi og jafnvel út í súpur.
Eggjaköku er hægt að búa til úr hvers
konar kjöt- og grænmetisafgöngum,
osti og bragðmiklum sósum. Þá er það
hugmyndaflugið sem gildir. Sjálfsagt
er að nota sér hin ódýru egg á meðan
þau fást. Til dæmis með því að baka
kökur og brauð sem síðan eru sett í
frystinn og geymd til dýrari eggja-
tima.
-DS.
ladídas
■
■
HELSINKI:
■
í 100 M HLAUPI
S KVENNA VORU BÆÐI
5 GULL OG SILFURHAFI
ÍADIDAS.
■
■
■