Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.1983, Síða 16
16
DV. FIMMTUDAGUR11. AGÚST1983.
Spurningin
Myndir þú vilja sam-
eina Ólafsvík og
Hellisand?
(Spurt f Ólafsvík)
Hugrún Stefnisdóttlr afgrelðslu-:
maður: Nei, alls ekki, mér finnst I
Hellissandur standa það lélega miðað i
viðOlafsrfk.
Krlstín Þórarinsdéttlr, vinnur á Hótel
Nesi: Nei, alls ekki.
Sigríður Guðmundsdóttir húsmóðir:1
Nei takk, Olafsvík verður hún s jálf.
Gunnar Hauksson, starfsmaður hjá!
Rarlk: Ef þaö væri báðum til hagsbóta j
þá tel ég það sjálfsagt.
Bergsveinn Jóhannesson stýrimaður: |
Nei, ég held ekki.
Heigi Kristjánsson, starfsm. við
Landsbankann: Já, það yrði sterkara
bæjarfélag í framtiöinni, það yrði
annað stærsta á Vesturlandi og ætti
auðveldara með aUa fyrirgreiðslu.
Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur
Slæmt að eggin
eru ekki dagsett
9022—1434 hringdi:
Eg er orðin leið á því að kaupa fúlegg á
niðursettu veröi. Það kemur fyrir hvað
eftir annað, þegar maður kaupir tíu
eggja pakka á vægu verði og telur sig
hafa gert góð kaup, aö 2—3 egg eru fúl.
Það er að mínu mati forkastanlegt
að ekki séu upplýsingar utan á eggja-
bökkunum um hvenær eggjunum er
verpt eða þeim pakkað. Maður veit í
rauninni ekki hvort þetta eru ný egg,
tveggja daga eða tveggja ára gömul.
Einnig væri ákjósanlegt að geta
keypt ák\-eðnar stærðir af eggjum.
Ég vil heldur greiða örlítið hærra
verð fyrir eggin og fá þá sjálfsögðu
þjónustu í staðinn að vita hvað þau eru
gömul þegar ég kaupi þau.
nmmnm i*
9022—1431 kvartar yfirþvi að oggja-
bakkar séu akki dagsettir.
Hildegard Þórhallsdóttir hringdi:
Ég var i menntaskóla á stríðsárunum
á Liibeck Kielarsvæðinu þar sem
sprengjuárásimar voru verstar. Þiö
getið ekki ímyndað ykkur hvað það var
hræðilegt. Viö sátum í loftvamar-
byrgjum á nætumar og mig dreymdi
um að þegar stríðinu lyki mundi ég
kaupa mér rúgbrauð og fá mér sneið
með smjöri og osti. „Mikið ertu vit-
laus, sagði vinkona mín. ,,Ég ætla að
kaupa mér eina appelsínu.”
Ég flutti til Islands því ég vildi ekki
aö bömin mín yrðu hermenn. Island er
yndislegt land og hefur hjálpað mér að
gleyma öllu því hræðilega sem ég sá í
stríöinu.
Nú um síðustu helgi var atómvopn-
um mótmælt. Þá komu margar grein-
ar í blöðunum um þetta mál. I DV 5.
ágúst, birtust tvær sérstaklega góðar
eftir Steingrím J. Sigfússon alþingis-
mann og Guömund Georgsson lækni.
Ég virði mikils það sem þeir höfðu að
segja. En Haraldur Blöndal skrifaði
sama dag í DV og sagði meðal annars:
„Bandaríkjamenn voru grandalausir.
Þeir voru ekki þátttakendur í Evrópu-
styrjöldinni.”
Þeir köstuðu samt sprengjum yfir
okkur í Þýskalandi. (Þess má geta
Haraldi Blöndal til fróðleiks að þeim
var varpað úr flugvélum af gerðinni
B—17 og Flying Buttress.)
Eg var með í friðarkeðjunni á laug-
ardaginn og valdi mér stað rétt við
Friðarkeðjan sem mynduð var milli rússneska og bandaríska sendiráðsins i Reykjavík laugardaginn 6.
ágúst.
rússneska sendiráðið, einmitt af því að
ég er algjörlega ópólitísk. En mér
finnst samt að einhverjir aðrir aðilar
en hemámsandstæðingar ættu að
standa fyrir mótmælum gegn atóm-
stríði vegna þess að allir sem fylgja
þeim eru stimplaðir kommúnistar.
Mér finnst ekki eiga að blanda kröf-
unni um Nato burt af Islandi saman við
kröfuna um aldrei aftur atómstríð.
Stjórnmálamennimir íslensku hafa
samþykkt herinn hér og ég treysti
þeim fyllilega. En erum við ekki öll
friðarsinnar og óttumst
atómsprengjuna?
ÞAÐ Á EKKIAÐ BLANDA SAMAN
KRÖFUNNIUM HERINN BURT OG
MÓTMÆLUM GEGN ATÓMSTRÍÐI
Verður
maður að
leita til
Japans?
^ 0910—0873 skrilar:
Af því að Mazda-umboðið hefur ekki
lengur nauðsynlega varahluti, s.s.
ventalok og heddpakkningar í Mazda-
fólksbíla langar mig að fá upplýst hvar
hægt sé að fá þessa hluti erlendis.
Verður maöur að leita til Japans eftir
varahlutum?
Er það fastur siður hjá afgreiðslu-
mönnum ykkar í varahlutum að vísa
viðskiptavinum á fyrirtæki úti í bæ,
sem ekki eru til, bara til að losna við
þá?
Stefán Ingólfsson annast pantanir á
varahlutum fyrir Mazda-bifreiðamar
og hann svarar:
Að öllu jöfnu eigum við þetta til en
það geta alltaf komið göt í lagerinn og
það gerðist fyrir skömmu. Núna eigum
við nægar birgðir aftur.
Ef sh'kt kemur upp á að visað sé á
fyrirtæki úti í bæ. sem ekki em til era
það mistök í afgreiðslu sem við hljót-
um að biðjast af sökunar á.
Vendalok og heddpakkningar i Mazda-btia fengust ekki um skeið, en nú hefur umboðið fengiö nægar
birgðir að nýju svo eigendur bílanna þurfa ekkl eð skreppa tH Japens eftir verehlutum.