Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.1983, Blaðsíða 19
DV. FIMMTUDAGUR11. AGUST1983.
19
»ttir
íþróttir
íþróttir
íþróttir
íþróttir
ÍjKKI
JPINU
10. Jan Leitner, Tékk. 7,84
11. Oganez Stepanian, Sov. 7,74
12. AtanassAnanassov, Búl. 7,69
13. Lee Mu-Tsaik, Taiwan, 7,57
Annar besti árangur Mike Conley
betri en Ungverjans og því hlaut hann
annaö sætiö. -hsim.
HGODUR
iBÍAHAFI
iaíka sigurvegari 400 m
irvinsælíHelsinki
um löngu, fjaöurmögnuöu skrefum,
var þeim mim sterkari á beinu braut-
inni og Skamrahl geröi sitt ítrasta til
að fylgja honum. En honum uröu á
mikil mistök, leit þris\’ar til vinstri á
síðustu 20 metrunum til aö fylgjast
með Cameron og missti svo Banda-
ríkjamennina fram úr sér. Bert
Cameron hefur um árabil veriö einn al-
besti 400 m hlaupari heims. Á annan
besta heimstímann í ár, 44,62 sek.
Úrslit.
1. Bert Cameron, Jamaika, 45,05
2. Mike Franks, USA, 45,22
3. Sunder Nix, USA, 45,24
4. Erwin Skamrahl, V-Þýsk., 45,37
5. Hartmut Weber, V-Þýsk., 45,49
6. Thomas Schönlebe, A-Þýsl., 45,50
7. Michael Paul, Trinidad, 45,80
8. Gerson Souza, Brasilíu, 45,91
I 400 m grindahlaupi kv’enna kom
mjög á óvart aö Ekaterina Fesenko,
Sovétríkjunum, sigraöi heimsmet-
hafann og Evrópumeistarann Önnu
Ambrasene, einnig Sovét. Hljóp á 54,14
sek. Annar besti tími sem náðst hefur á
vegalengdinni. Aðeins heimsmetið
betra, 54,02 sek. -hsím.
Leikmenn FH fagna Pálma Jónssyni heldur betur eftfr að hann hafði jafnað í 1—1.
DV-mynd E J
Eyjamenn jöfnuðu
á síðustu stundu
„Vonbrigðin geta varla verið meiri.
Við vorum ívið betra liðið ef vægt er til
orða tekið,” sagði Leifur Heigason,
þjálfari FH-inga, eftir jafnteflisleikinn
í Kaplakrika gegn Vestmannaeyingum
2—2.
Þaö voru heldur daprir FH-ingar
inni í búningsklefanum að leik loknum,
enda skiljanlegt, því FH hafði misst
unninn leik úr höndunum á siöustu
minútu framlengingunnar.
Leikur liöanna í undanúrslitum bik-
arkeppninnar var hinn skemmtileg-
asti. FH-ingar byrjuöu af miklum
krafti og þaö leyndi sér ekki aö þeir
ætluöu sér ekkert annað en sigur. A 6.
min. átti Pálmi hörkuskot af vitateig
sem Aöalsteinn markvörður Eyj-
amanna varöi meistaralega í hom.
Viðar skaut svo þrumuskoti úr auka-
spyrnu stuttu seinna og aftur stýröi
Aöalsteinn knettinum í hom. Á10. min.
kom svo fyrsta markið og það skoruðu
Eyjamenn úr sínu fyrsta hættulega
upphlaupi. Hlynur fékk þá boltann
óvænt eftir varnarmistök og skoraöi
framhjá Halldóri.
Þaö sem eftir var hálfleiksins sóttu
FH-ingar meira og hættulegasta mark-
tækifærið kom eftir hornspyrnu Við-
ars, en Sigurþór skallaöi beint í fang
Aðalsteins.
Seinni hálfleikurinn byrjaði eins og
sá fyrri endaði eöa með látlausri sökn
Hafnfirðinga. Þeir uppskáru svo mark
á 84. mín þegar Pálmi skallaði laglega
í netið eftir fyrirgjöf Óla Dan. Jafntefli
varuppgjörliðannaaö90mín. loknum
og varö því að framlengja í 2X15 mín.
] Ekkert mark var skoraö í fyrri hluta
framlengingarinnar.
Á 110. mín. leiksins skoraöi Pálmi
, svo aftur með því að pota tánni i bolt-
ann á markteig. Aödragandinn var sá
: að Aðalsteinn hafði varið fast skot en
hélt ekki boltanum sem fór beint á
Pálma. Mínúturnar liðu svo hver af
annarri og f jölmargir áhorfendur voru
orðnir kampakátir. En á síöustu mín.
leiksins sendi Ágúst Einarsson Eyja-
' maður saklausan bolta að FH-markinu
1 sem Halldór hefði ekki átt að eiga í erf-
| iðleikum með. Hann missti þó knöttinn
! niður og í gegnum klofið á sér og eld-
j snöggur Tómas Pálsson var ekki lengi
! að athafna sig og renna boltanum í autt
markið. Jafntefli 2—2 og liðin verða að
mætast aftur og þá í Vestmannaeyj-
, um. -AA.
Akranes í úrslit bikars-
ins annað áríð í röð!
— Skagamenn unnu öruggan sigur á Breiðabliki 4:2 í undanúrslitum á Skaganum
Frá Sigþór Eiríkssyni — fréttamanni
DV á Akranesi.
Akurnesingar sigruðu Breiðablik í
undanúrslitum bikarkeppninnar á
Akranesi með fjórum mörkum gegn
tveimur. Leikurinn var merkilega góð-
ur miöað við nokkuð erfiðar aðstæður.
Jafnræði var með liðunum í fyrri hálf-
leik og skoruðu liðin þá sitt hvort
markiö.
I seinni hálfleiknum náðu Blikamir
forystu, en eftir það var aðeins eitt lið
á vellinum, svo miklir voru yfirburðir
Skagamanna. Þeir skoruðu þrjú mörk
á síðustu átján minútum leiksins og
bikarmeistararnir frá í fyrra tryggðu
sér þar með rétt til að leika til úrslita í
ár.
Eftir 8 mín. leik átti Sveinbjörn gott
færi á markteig eftir sendingu frá Sig-
þór en skot hans fór rétt framhjá
markinu. Blikarnir náðu skyndisókn 4
mín. síöar. Sigurjón Kristjánsson
sendi þá boltann á kollinn á Hákoni
Gunnarssyni en skalli hans fór einnig
framhjá. Á 20. mín. misstu Skaga-
menn, sem höföu verið ívið meira í
sókn fram að þessu, boltann og vara-
maður Blikanna sendi langan bolta
fram á Hákon. Hann komst svo inn
fyrir Skagavömina, hljóp í átt að
markinu með varnarmennina á hælun-
um og skoraði örugglega framhjá
markverðinum, Bjama Sigurðssyni
sem reyndi að bjarga með úthlaupi.
Eftir markið reyndu Skagamenn allt
þeir gátu að jafna en enn náðu Breiða-
bliksmenn skyndisókn sem endaði með
því aö Sævar Geir brenndi af í góðu
færi.
Á 42. mín. kom svo jöfnunarmark
Akumesinga. Sveinbjöm óð upp að
endamörkum og renndi knettinum út á
Guðbjöm Tryggvason sem skoraði í
fjærhornið stöngin inn.
I byrjun siöari hálfleiks komu
Blikamir mjög ákveðnir til leiks og
náðu forystunni á 55. min. Hornspyma
var tekin af Hákoni Gunnarssyni, hann
sendi á Sigurjón sem gaf boltann fyrir
markið og þar var Jón G. Bergs
mættur út við fjærstöng og skallaöi í
markið.
Eftir þetta tóku Skagamenn leikinn
algjörlega í sínar hendur, þeir settu á
fulla ferð og Blikamir áttu í vök að
verjast. Með tveggja mínútna millibili
voru þeir mjög nálægt því að jafna og
var Sigurður Halldórsson þar á ferð-
inni í bæði skiptin. Fyrst skallaði hann
í þverslá og síðan var bjargað á mark-
Öruggur sigur Úlfars
Nissan-mótið svokallaða, sem er
keppni drengja 18 ára og yngri í golfi,
fór fram á golfvelli Golfklúbbs Reykja-
víkur um helgina síðustu. Eins og fyr-
irfram var búist við sigraði 'Ulfar
Jónsson GK nokkuð örugglega í keppni
án forgjafar, lék á 85 höggum. Annar
varð Amar M. Ölafsson GK á 89 högg-
um og þriöji Karl Ömar Karlsson GR á
93 höggum.
I keppninni með forgjöf sigraöi Sig-
urður Sigurðarson GR, lék á 77 högg-
um nettó. Annar varð Gunnar Sigurðs-
son GR á 79 höggum nettó og þriðji Úlf-
ar Jónsson GK á 81 höggi nettó en hann
er aðeins með f jóra í forgjöf.
Samhliða þessu móti drengjanna
tóku öldungar fram kylfur sínar og
léku 18 holur á opnu móti.
í fyrsta sæti urðu þeir Hafsteinn Þor-
geirsson GK og Svan Friðgeirsson GR
á 66 höggum. Sama höggafjölda not-
uðu þeir Jóhann Benediktsson GS og
Baldvin Haraldsson GR og í þriðja sæti
urðu þeir Sverrir Norland GR og Guð-
mundur Öfeigsson GR á 67 höggum
Keppt var með forgjöf. -SK
línu af varnarmanni Blikanna. Á 72.
mín. kom svo jöfnunarmarkið. Svein-
bjöm braust þá upp kantinn eftir
góðan samleik við Sigþór, sendi svo á
Guðbjöm sem skoraði með þrumuskoti
úr þröngri aðstöðu 2—2. Nú var sókn-
arþunginn orðinn ailur Skagamanna
og þeir komust yfir á 76. min. Dæmd
var aukaspyma á Blikana. Arni
Sveinsson tók þá spymu, gaf á Guð-
björn sem nikkaði knettinum aftur yfir
sig og vömina og Guðmund í markinu.
3—2 fyrir Skagann og þrenna Guð-
bjarnar orðin staðreynd. Áfram hélt
cinstefnan og Skaginn bætti sínu f jórða
marki við á 85. mín. þegar Sigþór
skallaöi í markiö eftir fyrirgjöf.
Það er vafi á að nokkurt íslenskt lið
hefði ráöið við Akurnesinga eins og
þeir léku seinni hálfleikinn. Þeirra
bestu menn vom Guðbjöm sem var
náttúrlega maður dagsins með sitt
Hat-trick. Þá léku þeir Sigurður Lárus-
son, Sigurður Halldórsson og Árni
Sveinsson vel.
Hjá Breiðablik bar Olafur Bjömsson
af en Hákon og Sigurjón komu einnig
vel frá leiknum.
Dómari var Guðmundur Haraldsson
og dæmdi mjög vel þó um erfiðan leik
hefði verið að ræða.
SE/AA.
íslandsmet
hjá Tryggva
íKarlsruhe
Selfyssingurinn Tryggvi Helgason
setti nýtt íslandsmet í 100 m bringu-
sundi í keppni i Karlsruhe í Vestur-
Þýskalandi um helgina. Synti á 1:10,62
mín. en eldra islandsmet hans var
1:10,77 mín.
Tryggvi synti þar sem gestur en
hann er nú með sænska sundlandslið-
inu. Það tók þátt í þriggja landa keppni
íKarlsmhe. Astralía sigraði. Hlaut271
stig, Vestur-Þýskaland 230 og Svíþjóð
218 stig. Mjög góður árangur náðist.
I 100 m skriðsundi sigraði Greg
Fasala og setti nýtt Ástralíumet á 50,96
sek. Mark Stockwell, Ástraliu, varð
annar á 51,28 og Per Johansson, Svi-
þjóð, þriðji á 51,81 sek. I 400 m skrið-
sundi sigraði Staffan Pfeiffer, V-
Þýskalandi, á 3:56,13 mín. Michael
Gross, V-Þýskalandi, annar á 3:56,91
mín. Hann varð einnig annar í 200 m
flugsundi á 2:01,79 en Ástralíu-
maðurinn Paul Rowe sigraði á 2:01,57
mín. Pfeiffer sigraði í 1500 m skrið-
sundiá 15:30,51 min.
1100 m bringusundinu sigraði Brett
Stocks, Ástralíu, á 1:04,83 og Peter
Lang, V-Þýskalandi, þriðji á 1:05,30
mín. I 200 m bringusundi sigraöi
Glenn Beringen, Ástralíu, á 2:21,22
mín. 1100 m skriðsundi kvenna sigraði
Agneta Eriksson, Sviþjóð, á 57,52 sek.
Susanne Schiister, V-Þýskalandi,
önnurá58,0 sek.
hsim.
Tryggvl Helgason. Selfossi.
Hafsteinn
þjálfar hjá SKÍ
Hinn kunni skiðamaður, Hafsteinn
Sigurðsson, hefur verið ráðinn þjálfari
alpagreinaliðs SKÍ næsta timabil.
Hafsteinn hefur C-stigs próf þjálfara
og hefur verið við þjálfun hjá ísfirð-
ingum og Húsvíkingum. Hann er
margfaldur íslandsmeistari í svigi og
stórsvigi.
-AA.
Kringlukastið
austur-evrópskt
IþrAttakonur frá Austur-Evrópu voru í sex
fyrstu sætunum í krínglukasti á HM í Helsinki ígær. Úrsiit:
1. Martina Opitz, A-Þýsk. 68,94
2. Galina Murashova, Sovét, 67,44
3. Maria Petkova, Búigaríu, 66,44
4. Tzvetanka Hristova, Búl. 65,62
5. Gisela Beyer, A-Þýsk. 65,26
6. Zdenka Silhava, Tékk. 64,32
7. Ria Stalnian, Holl. 63,76
8. Mcg Ritchie, Bretl. 62,50
9. Florenta Craeiunescu, Rúm. 62,14 -hsim.