Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.1983, Blaðsíða 28
28
DV. FIMMTUDAGUR11. ÁGUST1983.
í gærkvöldi _______í gærkvöldi
Bjama Fel. frekar en Danina
Eg er víst einn af fáum tslending-
um sem ekki hafa lagt þaö i vana sinn
aö fylgjast meö bandarrka sjón-
varpsþættinum Dallas. Er þar sjálf-
sagt bæði um að kenna áhugaleysi á
þættinum og yfirleitt áhugaleysi á
efninu í s jónvarpinu okkar.
Ég neita því þó ekki aö ég hef af og
til gjóaö meö ööru auganu á þennan
vinsæla þátt — þaö er aö segja ef ég
hef veriö heima á miövikudags-
kvöldi- og það geröist í gærkvöldi. Eg
get ekki dæmt um hvort sá þáttur,
sem þá var sýndur var betri en ein-
hver annar. Efnið var í það minnsta
ansi flókið fyrir mig því ég vissi ekk-
ert hvaö gerst haföi á undan — hver
hélt við hvern eöa hvaöa gaur átti
hvaöa donnu sem birtist á skjánum
og var hver annarri fegurri.
Eitt er þó víst aö ef blessaður karl-
inn hann JR væri ekki í þessum þátt-
um yröi frekar lítið í þá variö.
Maðurinn heldur þeim uppi meö sín-
um einstaka ruddaskap sem gerir
það m.a. aö verkum aö jafnvel ró-
lyndustu konur verða bláar í andlit-
unum af heift út í hann þar sem þær
sitja í stólnum heima hjá sér.
Fréttamyndirnar frá heims-
meistaramótinu í frjálsum íþróttum
eru góöar og batna nú sjálfsagt aö
mun þegar danska sjónvarpið er far-
iö aö senda okkur efnið. Það má þó
alveg sleppa talinu hjá þeim.
Danskan hefur aldrei hljómaö neitt
sérstaklega fallega í mínum eyrum
og ég efast um að þeir séu margir
hér á landi sem skilja hvað dönsku
íþróttafréttamennirnir eru aö segja í
lýsingum sínum. Þá er nú betra aö
hlusta á hann Bjarna vin minn Fel.
— jafnvel þótt sumir kvarti undan
því aö hann endurtaki sömu setning-
arnar og orðin æriö oft í hverjum
þætti. Hann er þó helmingi betri en
Danirnir.
Á útvarpið hlustaði ég ekki en ann-
ars var lítið í dagskránni sem vakti
áhuga minn í gær. Þó var einn þátt- •
ur sem ég heföi viljaö heyra og sé eft-
ir að hafa misst af. Var þaö viðtals-
þáttur Vilhjálms Einarssonar viö
Alla ríka á Eskifirði. Það getur ekki
annað verið en eitthvert púöur hafi
verið í þætti meö þessum tveim
frægumönnum...
Kjartan L. Pálsson.
Guömundur Skarphéðinn Kristjánsson
lést 30. júlí sl. Hann var fæddur 26. júlí
1914 á Grund í Vatnsleysustranda-
hreppi. Foreldrar hans voru Kristján
Hannesson og Þórdís Símonardóttir.
Guömundur kvæntist Ölafíu Guö-
mundsdóttur og eignuöust þau þrjú
börn. Búskap hófu þau hjón í Hafnar-.
firöi en fluttu þaðan í Vogana á Vatns-
leysuströnd og byggðu þar hús. Til
Reykjavíkur fluttu þau áriö 1958 þar
sem þau hafa búiö síðan. Guömundur
vann ýmis störf, hin fyrstu viö sjó- og
landbúnaðarvinnu, svo vörubifreiða-
akstur, hafnargerö, vinnu í frystihúsi í
Vogunum og rak verslun um nokkurt
skeiö á sama staö. Útför Guðmundar
veröur gerö frá Fossvogskirkju í dag
kl. 13.30.
Gunnar Egilsson verslunarmaöur, er
lést miövikudaginn 3. ágúst í Borgar-
spítaianum, veröur jarðsunginn frá',
Fossvogskirkju föstudaginn 12. þ.m.
kl. 15.
Ölafur Tryggvi Gíslason, Hringbraut
50, veröur jarösunginn frá Fossvogs-
kirkjufimmtudaginnll.ágústkl. 15.
Eiríkur Ormsson rafvirkjameistari
veröur jarösunginn frá Dómkirkjunni
föstudaginn 12. ágúst kl. 13.30.
Ingólfur Þóröarson skipstjóri, Selvogs-
grunni 26, verður jarösunginn frá
Fossvogskirkju föstudaginn 12. ágúst
kl. 13.30.
Guðmundur í. Vilhjálmsson, Berg-
staöastræti 6c, lést aöfaranótt 9. ágúst.
Eyfríður Árnadóttir, Droplaugar-
stöðum, lést í Borgarspítalanum 9.
ágúst.
Bjarni Þór Magnússon frá Vattarnesi
viö Reyðarfjörö lést af slysförum 4.
ágúst sl. Jaröarförin fer fram f rá F oss-
vogskapellu miövikudaginn 17. ágúst
kl. 13.30.
Skúli Pálsson, Norðurtúni 6 Keflavík,
verður jarösunginn frá Keflavíkur-
kirkj u föstudaginn 12. ágúst kl. 14.
Nikulás Oddgeirsson vélstjóri, Háa-
leitisbraut 32, verður jarðsunginn frá
Fossvogskirkju föstudaginn 12. ágúst
kl. 10.30.
Sýningar
Leðurverk til sýnis
í Listmunahúsinu
Nína Gautadóttir sýnir leöurmyndverk sem
hún hefur unnið að í Afríku þar sem hún er bú-
sett. Opið virka daga frá kl. 10—18 og um
helgar frá kl. 14—18. Lokað er á mánudögum.
Sýningin stendur til 21. ágúst.
Ferðalög
Ferðafélag íslands
Dagsferðir sunnudaginn 14. ágúst:
1. kl. 08. Sneplafoss — Hestfjaliahnjúkur.
Gengið upp frá Asólfsstöðum. Verð kr. 500,-
2. kl. 13. Selatangar, þar sem gamlar sjóbúöir'
eru skoðaðar. Verð kr. 250,-
Farið frá Umferðarmiöstöðinni, austan-
megin. Farmiöar við bíl.
Ferðafélag Islands.
Jöklarannsókna-
félag íslands
Ferðir sumarið 1983:
1. Þverbrekknamúli föstudag 19. ág. til sunnu-
dags 21. ág. Lagt af stað kl. 20.00.
2. Jökulheimar föstudag 9. sept, til sunnudags
11. sept. Lagt af stað kl. 20.00.
Þátttaka tilkynnist f jórum dögum fyrir ferð
til Péturs Þorleifssonar í síma 66517 eða
Einars Gunnlaugssonar í síma 31531 og veita
þeir nánari upplýsingar.
Ferðanefnd.
Breiðfirðinga-
félagið í Reykjavík
fer í fjölskylduferð um Reykjanesskagann
laugardaginn 13. ágúst. Farið verður frá
Umferðarmiðstöðinni kl. 9 árdegis. Þátttaka
tilkynnist til Vikars s. 36855, Maríu s. 40417,
Olafs s. 31238 eða Bolla s. 81167. Fjölmennum.
Stjórnin.
Útivistarferðir
Helgarferðir 12.—14. ágúst.
1. Ct í buskann. Gist í húsi. Fallegt svæði sem
fáir þekkja.
2. Kjölur—Kerlingarf jöll. Gist i húsi. Snækoll-
ur — Hveradahr — Hveravellir (bað). Hægt
að fara á skíði.
3. Þórsmörk. Gist í nývígðum skála.
Gönguferðir fyrir alla.
4. Fimmvörðuháls — Básar. Brottför kl. 08.30
á laugardagsmorgun. Gist í skála.
Lakagígaferð 19.—21. ágúst. 200 ár frá
Skaftáreldum. Gist í húsi.
Upplýsingar og farseðlar á skrifstofunni,
Lækjargötu6a,simi: 14606.
Ctivistardagur fjölskyldunnar — pylsuveisla
á sunnudag.
Sjáumst. Ctivist.
2. 12.—21. ágúst (9 dagar): Egilsstaðir—Snæ-
fell—Kverkfjöll—Jökulsárgljúfur—Sprengisan
ur. Gist í tjöldum/húsum.
3. 18.—21. ágúst (4 dagar): Núpsstaðaskóg-
ur—Grænalón. Gist í tjöldum.
4. 18.—22. ágúst (5dagar): Hörðudalur—Hít-
ardalur—Þórarinsdalur. Gönguferð með við-
leguútbúnað.
5. 27.—30. ágúst (4dagar): Norður fyrir Hofs-
jökul. Gistíhúsum.
Upplýsingar um ferðirnar á skrifstofu F.I.,
öldugötu 3, s. 19533 og 11798.
Ferðaféiag tsiands.
Fyrirlestrar
Fyrirlestur um sögu
íslands í opnu húsi
Fimmtudaginn 11. ágúst mun dr. Sveinbjörn
Rafnsson prófessor haida fyririestur um sögu
Islands og fjallar hann aðallega um Skaftár-
eldana og móðuharðindin. Fyrirlesturinn
verður fluttur á sænsku og hefst kl. 20.30.
Að loknu kaffihléi kl. 22 verður sýnd
kvikmynd Osvaldar Knudsens„Sveitin milli
sanda”. Sýning hennar tekur um 30mín.
Bokasafn og kaffistofa Norræna hússins
verða opin.
I anddyri Norræna hússins stendur nú yfir
sýning á pastel- og vatnslitamyndum eftir
grænlensku listakonuna KISTAT LUND.
Sýningin er opin á venjulegum tíma hússins,
kl. 9—19, nema sunnud. kl. 12—19.
íþróttir
Sumarmót HSÍ.
Föstudagur 12. ágúst.
Hafnarfjörður:
Kl.
18.00m.fl. kv.. A KR-Fylkir
19.15 m.fl.kv. B Þróttur-Víkingur
20.30 mfl.ka. B Valur-Stjaman
21.45 m.fl.ka A FH-Haukar
Laugardagur 13. ágúst.
Hafnarfjörður:
Kl.
12.30 m.fl.kv.B FH-Þróttur
13.45 m.fl.kv.B Valur-Víkingur
15.00 m.fl.ka.B Grótta-Valur
16.15 m.fl.kv.B FH-Valur
17.30 m.fl.ka.A Þróttur-Fylkir.
Garðabær:
Kl.
14.00.2.fl.kv.AStjaman-lR
14.40 2.fl.kv.BKR-FH
15.20m.fl.kv.A Fram-Fylkir
16.35 m.fl.kv.AlR-KR
17.50 2.fl.kv.A Fram-Stjaman
Sunnudagur 14. ágúst.
Hafnarfjörður:
Kl.
12.30 m.fl.kv.AFyikir-IR
13.45 m.fl.kv.A KR-Fram
15.00
m.fl.kv.A IR-Fram
17.30 m.fl.ka.A Haukar-Þróttur
Garðabær:
Kl.
14.00 2.fl.kv.B Víkingur-KR
14.40 2.fl.kv.A ÍR-Fram
15.20 m.fl.kv.B Víkingur-FH
16.35 m.fl.kv.B Þróttur-Valur
17.50 2.fl.kv.B F.H.-Víkingur.
Crslitakeppni.
Mánudagur 15. april.
Hafnarfjörður:
Kl.
19.00 2.fl.kv.
19.45 meistaraflokkur kvenna.
21.00 meistaraflokkur karla.
Olís — BP — keppnin
NK. laugardag og sunnudag, þ. 13. og 14.
ágúst, fer fram á Grafarholtsvelli OLIS—
BP—KEPPNIN. Eins og nafnið bendír til eru
Olíuverzlun Islands og BP bakhjarlar þess-
arar keppni og gefa öll verðlaun til hennar.
Leikið verður í einum flokki með og án for-
gjafar. Leiknar verða 36 holur, 18 hvorn dag.
Ræst veröur út frá kl. 9.00 báða dagana.
Þátttaka tilkynnist í símum 82815 og 84735
til kl. 18.00 föstudaginn 12. þ.m.
Fimmtudagur 11. ágúst l.deildkv.
Akranesvöllur—IA: Valur kl. 19.00
Garðsvöllur—Víðir: KR kl. 19.00
Víkingsvöllur—Vikingur: UBK kl. 19.00
2. deild kv. A
Egilstaöav.—Höttur.Súlan kl. 19.00
Kaplakrikav.-FH: Fram kl. 19.00
Varmárv.—Aftureld.:Fylkir 4. flokkur Urslit 5. flokkur Crslit kl. 19.00
Tónleikar
Tónleikar í
D14 Kópavogi
Hin vinsæla hljómsveit Pax og Vobis ásamt
Nefrennsli leikur á tónleikum í D14 í kvöld,
Bella
Ég er búin að fiiina samninginn
við álfyrirtækið — Hann var undir
U-inu af því að ég hafði skrifað
uppskrift aftan á hann.
fimmtudagskvöld. Hljómsveitina Pax og
Vobis skipa: Skúli Sverrisson bassi, Þorvald-
ur Þorvaldsson gítar, Asgeir Sæmundsson
hljómborð og söngur, Sigurður Hannesson
trommur. Tæknimaður Halldór Bragason.
Tónleikar í Safari
I kvöld, fimmtudaginn 11. ágúst, hafa 3
hljómsveitir ákveðið að leita inn úr rigning-
unni og halda tónleika hér í borg undir þaki
Safari á Skúlagötunni. Þær hljómsveitir sem
þama koma fram hafa nú þegar skapað sér
orðstír og eru landsþekktar: Tappi Tíkarrass
hefur nú þegar hljóðritað lp. sem kallast
Miranda og mun hljómsveitin kynna hana.
Vonbrigði ætla sér líka að koma fram og
kynna Kakófóníuna sína. Skemmst er að
minnast er Vonbrigði hreint og beint trylltu
landann hér á tónleikum með títtnefndri
fóníu.
Roggkha-Roggkha-Drumm er ný dans- og
skemmtihljómsveit en nær væri að kaila hana
einfaldlega roggkhabillí hljómsveit. Þrátt
fyrir andlega niðurdrepandi og/eða upplífg-
andi veður ættu aUir, jæja, flestir, að hafa
gagn og gaman af þessum tónleikum í það
minnsta gleði, ánægju og yndisauka. Verði
verður stillt í hóf.
Tónleikar í IMorræna húsinu
Næstkomandi laugardag kl. 17.00 stendur
IslandsdeUd Ung Nordisk Musik samtakanna
fyrir tónleikum í Norræna húsinu. Arleg tón-
Ustarhátíð samtakanna verður haldin i Osló í
lok ágúst og gefur á laugardagmn að heyra
framlag Islands á henni, auk fleiri nýrra tón-
verka.
Tilgangur tónleikanna er að auki sá að afla
fjár tU utanfarar islensku þátttakendanna á
hátíðinni.
Flutt verða verk eftir Mist Þorkelsdóttur,
Lárus HaUdór Grimsson, Kjartan Olafsson,
HUmar Þórðarson, Hauk Tómasson, Guðna
Agústsson og Atla Ingólfsson.
Tilkynningar
Hjálpræðisherinn
Fimmtudagur kl. 20.30: Kvöldvaka, bergmál
frá krossfaraferöinni, kapteinn Daníel og
Anna Gúrina stjórna og tala. Skuggamyndir,
happdrætti og veitingar. Allir velkomnir.
Samkeppni í gerð íslenskra
jólamuna
HeUnilisiðnaðarfélag Islands er 70 ára í ár. I
tilefni afmæUsins verður efnt til samkeppni í
gerð íslenskra jólamuna. Hurmy.idin er að
nota íslensku uUina á einhvern hátt t.d. prjón-
að, heklaö, saumaö eða ofið, svo að eitthvað
sé nefnt. Nota má uUina óunna. Einnig koma
til greina munU úr tré t.d. renndir eða út-
skomir. Þrenn verðlaun verða í boði. 1. verð-
laun verða kr. 10.000,-. Félagið áskUur sér for-
gang að hugmyndunum hvort sem það verður
til sölu, birtingar eða kennslu.
Félagið hvetur aUa tU þátttöku og er ágætt
að nýta sumarið til íhugunar. Nánari upplýs-
ingar verða veittar í versluninni Islenskur
heimilisiðnaðurí síma 11784.
Skilafrestur er til 1. október 1983. Geymið
tilkynninguna.
Nefndln.
Minningarspjöld
Hallgrímskirkju
fást á eftirtöldum stöðum: Hjá bókaútgáfunni
Iðunni Bræðraborgarstig 16, Kirkjúhúsinu
Klapparstig 27, verslun HaUdóru Olafsdóttur
Grettisgötu 26, blómaversluninni i Domus
Medica, EgUsgötu 3, bókaútgáfunni Emi og
örlygi Síðumúla 11, afgreiðslu BibUufélagsins
í HaUgrímskirkju (kl. 13—15) og hjá kirkju-
verði.
Sögufélag Borgarfjarðar
Sögufélag Borgarfjarðar hefur sent frá sér
annað bindi af æviskrám Akumesinga og tek-.
ur það yfir æviskrár þeirra sem bera nöfn
með upphafsstöfunum G—I. Bókin er alls 534
bls, að stærð. Þar af eru 757 myndir á 120 blað-
. síðum. Bókin er prentuð í Prentverki Akra-
' ness. Ritun æviskránna hefur annast Arí
Gíslason ættfræðingur á Akranesi. Fyrsta
bindi þessa mikla ritverks kom út nokkra
! fyrir síðustu jól.
Tímaritið Áfangar,
kom fyrst út fyrir tæpum þremur árum, í
nóvember 1980, og síðan hafa komið út ellefu
tbl. og eru átta þeirra fáanleg hjá útgáfunni.
Ritið er að miklu leyti Utprentað á úrvals
pappír. Kappkostað er að birta stórar og
góðar Utmyndir og tiltölulega stuttar en gagn-
yrtar greinar um hina og þessa staði sem
segja má að séu ferðamannastaðir eða gætu
orðið það. Einnig eru birtar leiðbeiningar og
upplýsingar fyrir ferðamenn, s.s. um hótel,
tjaldsvæði og flutningsaðUa. Birtar eru leið-
beiningar um gönguleiðir og fylgja þeim yfir-
leitt kort af viðkomandi stað. Nákvæmar
upplýsingar um ökuleiðir á hálendi Islands
hafa verið birtar. Um er að ræða greinar-
góðar lýsingar á slóðum á hálendinu, farar-
tálmum og vegalengdum.
Höfundar efnis, mynda og greina eru fjöl-
margir og Uggur nærri að tvö hundruð manns
hafi átt efni i tímaritinu Aföngum frá upphafi.
Tímaritið Afangar er fyrst og fremst
áskriftarrit, en fæst þó í lausasölu í flestum
verslunum og sölutumum. I áskrift kostar
hvert eintak kr. 65,00, en aðeins kr. 45,00 ef öll
útkomin tölublöð eru keypt og að auki þrjú
næstu, samtals 11 tbl.
Afmæli
70 ára var í gær, 10. ágúst, frú Ásdis
Guðmundsdóttir, Héðinshöfða í Vest-
mannaeyjum, Hásteinsvegi 36. — Hún
ætlar að taka á móti afmælisgestum
sínum á heimili sonar síns í Máva-
hrauni 19 í Hafnarfirði á morgun,
föstudaginn 12. ágúst. — Eiginmaður
Ásdísar var Gísli Gíslason bátasmiður
í Vestmannaeyjum.
70 ára er í dag, 11. ágúst, frú Guðmuud-
ina Eiríksdóttir Snædal frá Auraseli i
Fljótshlíð. — Hún er fædd vestur í N-
Dakota-fylki í Bandaríkjunum og er
eiginmaður hennar Steini Snædal
bóndi. — Heimilisfang þeirra er:
Hensel N-Dakota 58241 box 247, síminn
á heimilinu er 901-701-657-2218.
t
Kæru vinir nær og fjær.
Hugheilar þakkir fyrir alla þá samúö og vinsemd
sem þiö hafið sýnt okkur við sviplegt fráfall eigin-
manns míns, föður, tengdaföður og afa,
Péturs Guðjónssonar
FRAMKVÆMDASTJÓRA.
Bðra Sigurjónsdóttir
Sigurjón Pétursson Þóra Hrönn Njálsdóttir
Guðjón Þór Pétursson ' Guðlaug Pétursdóttir
Magnús — Pétur og Pétur Þór.