Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.1983, Síða 32
32
DV. FIMMTUDAGUR11. AGUST1983.
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Heimsmet
í
stauradvöl
Maður er nefndur Kees Sceffers og
er hann 25 ára gamall Hollendingur.
Kees, sem er prentari að mennt, var
búinn að vera atvinnulaus nokkuð
lengi þegar hann ákvað að nota tím-
ann til þess að gera eitthvað upp-
byggilegt, eins og til dæmis að setja
heimsmet. Kees karlinn réðst ekki á
garöinn þar sem hann var lægstur
heldur ákvaö aö reyna að hnekkja
meti Ameríkanans Frank Perkins í
því að dvelja sem lengst uppi á staur.
Bæjaryfirvöld í heimabæ hans, Stol-
wijk, studdu hann heils hugar við tii-
raun þessa og pössuðu einnig upp á aö
hann svindlaöi ekki. Sérstökum kofa
var komið fyrir uppi á staur og þar
dvaldi Kees í 404 daga. Eins og sjá
má af myndunum hafðí hann mörg
þægindi við höndina og þakinu var
hægt að renna tU hliðar þannig að
hann gæti séð tU sólar þegar vel viör-
aöi. Mat sinn fékk hann sendan upp
þrisvar á dag, en persónulegan úr-
gang lét hann síga niður í fötu þegar
losunar var þörf. Kees fékk að fara
nokkrum sinnum niður á dag til þess
að smella einum á vinkonuna og þvo
sér.
m---------------------------►
Kees eins og hann kom bæjar-
búum fyrir sjónir.
KONANEREKKIBESTI
VINUR MANNSINS
Það er gömul tugga að hundurinn'
sé besti vinur mannsins, en að hann.
sé það góður vinur að hann komist
upp á mUU hjóna er svo önnur tugga.
Það undarlega atvik átti sér stað í
Englandi fyrir nokkru að kona nokk-
ur ákvað að skilja við mann sinn
vegna þess aö hann var búinn að fáí
ofurást á hundi sínum. Taka verður
fram að þetta var enginn venjulegur
hundur og konan var engin venjuleg
kona, því að hann er af sjaldgæfu
Afganhundakyni og hefur unnið tilj
margra verðlauna fyrir eiganda sinn'
en konan er fyrrverandi fegurðar-
drottning en hefur hins vegar ekkij
unnið til verðlauna fyrir mann sinn.
Upp úr hjónabandinu slitnaöi þegar
konan fékk sig loksins fuUsadda af
dekri bónda síns við hundófétið.
„Það var alveg óþolandi að mann-
fýlan lét hundinn sofa í rúminu okkar
á nóttunni og þegar við ætluðum að'
elskast fór hann að vísu með hundinn
út, en þá tók hundskrattinn upp á því
að góla og væla þannig að ná-
grannamir vissu gjörla hvað var aö'
gerast. Eftir svoleiðis nokkuð missir
maður bara áhuga á kynUfi.” Eni
þetta var nú ekki ÖU sagan.
,Jí kvöldin sátu þeir báðir í sóf-
anum fyrir framan sjónvarpiö og,
góndu og þegar ég ætlaði að setjast
hjá þeim þá fór helvítið hann Oskar,
þ.e. hundurinn, að urra og sýndi
tennumar ef ég gerði mig Uklega tU
þess að ílendast hjá þeim. AUt okkar
Uf var farið að snúast i kringum
hundspottið og að lokum sagði ég
við mann minn: „Það er annaðhvort
hann eða ég.” Eiginmaðurinn velti
þessum úrslitakostum fyrir sér í
smástund og sagði svo: „Eg get nú
aUtaf fundiö mér aðra fegurðar-
drottningu, en ég get hins vegar
aldrei fundið annan Oskar. Vertu því
bless því að hundurinn verður kyrr.”
Konan hefur nú farið f ram á skilnað.
Alvörurotturvalda svefnleysi
Þegar Reykvíkingar renna i Lindargöturikið, tii þess að kaupa eitthvað tii
þess að bleyta i sór á vætusömu sumri, blasir þetta skilti við þegar brunað
er burt með hvita pokann eða pokana. Þar sem þeir eru nokkuð margir
sem asnast til þess að setjast undir stýri þegar gutlið i hvita pokanum er
farið að gutia i maganum er þessarar brýningar þörf. En þar sem verið er að
tala um aðvaranir á sígarettupakka, væri ekki nær að skella miða á
flöskurnar tilþess að brýningin fylgi mönnum alla leið?
DV-mynd Loftur/SLS.
Nýjustu fregnir frá Hvíta húsinu í
Washington herma aö forsetafrúin,
Nancy Reagan, eigi erfitt meö svefn
um þessar mundir. Áreiðanlegur
heimiidarmaður, sem ekki vUdi láta
nafns sins getið, sagði aö ástæða þess
væri rottugangur í húsinu. Þegar for-
setahjónin fluttu inn á sinum tíma
var húsið tekiö í ærlega hreingern-
ingu eftir síöasta dvalargest, en það
hefur ekki haft önnur áhrif en þau aö
magna tístið og skrjáfið í litlu brúnu
hnoðrunum á nóttunum. Ekki vildi
heimUdarmaðurinn láta hafa neitt
eftir sér um það hvort Ronald ætti
erfittmeðsvefn.
/ upphafí skyldi
endirínn skoða