Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.1983, Blaðsíða 6
6
DV. MIÐVIKUDAGUR17. ÁGÚST1983.
Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur
Vikuleg verðkönnun:
Kjúklingamir á útsölu
Þaö ber helst til tíöinda núna í okkar
vikulegu verðkönnun aö mikiö veröfall
hefur oröiö á kjúklingum. Odýrastir
eru þeir í Víði, kosta þar aðeins 89,50.
Þetta er ótrúlega lágt verð sem mun
vera til komið vegna offramleiðslu.
Eggin hækka aftur á móti í veröi og
eru nú alls staöar komin upp í 69
krónur á nýjan leik eftir aö hafa verið
nokkru ódýrari.
Enn er dauft yfir grænmetis-
markaönum og eru ekki líkur á að
glaöna fari yfir honum fyrr en veörið
fereitthvaöaöveröa bjartara. DS.
Alltaf er miöaö við kílóverð nema á
smjörva, þarermiöaöviö300gramma
öskjur. Þar sem íslenskt hvítkál var til
hefur verðiö á því verið sett í sviga
fyrir aftan verö á innfluttu hvítkáli.
Ekki var til erlent hvítkál í Hagkaupi.
Þar fengust rauð epli á tvenns konar.
verði.
Hagkaup SS Glæsibæ Víðir Starmýri JL-Húsið Vörumark- aðurinn
Epli, rauð 46 (65) 45,35 47,50 44,60 44,40
Tómatar 54,50 59 65 65 74,50
Gúrkur 59,80 55 48 59 68,30
Egg 69 69 69 63 69
Gulrætur — — 89 81,70 86,95
Hvítkál -(51,20) 39 42,70 (49) 42,70 (43,75) 55,60
Nautahakk 155 156 165 172 162
Kjúklingar Svínabógur, 95 108 89,50 95 110
nýr 136,50 138 138 151
Smjörvi 59,45 62,05 59,80 59,80 -
Bleksveppirnir eru hraösoðnir í
olíunni, sítrónusafanum bætt út í og
kryddað. Þá er seyöinu bætt út í.
Haldið áfram aö sjóða þar til súpan er
orðin jafnþykk. Smakkið til.
Sultaöir sveppir
1 dl vínedik (án essensa)
3/4 dl sykur
1 dl vatn
salat, múskat, negull, sinnepsfræ,
piparkorn, soönir sveppir (helst glætu-
sveppir)
Sveppirnir eru soðnir en passað aö
suðan komi ekki upp í þeim. Þá er
lögurinn útbúinn. Edikinu, vatninu,
sykrinum og saltinu er blandað saman
í pott og soðið. Síðan er lögurinn látinn
kólna. Sveppirnir eru skomir í bita og
látnir í krukku. Nú er kryddinu bætt út
í krukkuna og leginum hellt yfir. Eftir
nokkrar vikur er rétt að skipta um lög.
Athugið að lokið sé vel skrúfað á
krukkuna eftir að búiö er að skipta um
lög. Krukkuna á að geyma á köldum
stað og sveppina verður aö nota innan
árs frá því þeir voru sultaðir.
Þessir sveppir eru ekki góðir tii átu enda er hér aðeins
um púða í sveppaliki að ræða.
DV-myndir: HJH.
Nokkrar sveppauppskriftir:
Hráefnið má tína í
skógum og kjarriendi
I framhaldi af frásögninni hér á
Neytendasíðunni fyrir helgi, af nám-
skeiði um sveppi sem haldiö var á veg-
um Norræna hússins, birtum viö nú
nokkrar sveppauppskriftir. Uppskrift-
irnar eru komnar frá Berit Thors en
hún er finnskur menntaskólakennari
og sá um áöurnefnt námskeið.
Sveppatínsla færist nú mjög í vöxt og
segja kunnugir að mun fleiri gangi nú
um kjarrlendi og skóga í leit að
sveppum en undanfarin sumur. Þá
hefur ásókn erlendra aðila í sveppina
aukist stórum, einkum eru starfsmenn
sendiráöa sólgnir í sveppi. Marga
sveppi, sem notaöir eru í eftirtaldar
uppskriftir, má tína á Islandi og auk
þess er í sumum tilvikum hægt aö nota
aöra sveppi ef þeir sem mælt er meö
finnast ekki. En höfum þá þessi orð
ekki fleiri og vindum okkur í uppskrift-
irnar.
Osta og sveppasalat
200gafsveppum
100 g af osti
eitt salathöfuð
Sósa: 1/2 dl mæjónes
3 msk. vín (hvítt eða rautt)
Byrjið á því að sjóða sveppina eina
sér og þegar þeir eru orðnir vel soðnir
á að láta þá kólna. Skeriö þá svo niður í
litla bita. Rífið salathöfuðið niður og
leggiö blöðin í skál. Osturinn og
sveppirnir eru lagðir ofan á salatblöð-
Hnoðið deigið uns það er orðið um
hálfum sm á þykkt. Látið það þá hefa
sig um stund. Á meðan er rétt að laga
fyllinguna. Steikið laukinn og sveppina
í feitinni. Bætið hveiti og rjóma við í
smáskömmtum og hrærið vel í. Krydd-
ið og látið fyllinguna malla á pönnunni
í nokkrar mínútur. Smyrjið nú fylling-
unni á deigið og passið að láta fylling-
una ekki ná alveg út í kantana. Bætiö
tómötunum á og stráið rifna ostinum
yfir. Matarolíunni er nú hellt út á fyll-
inguna, passið að hún dreifist jafnt yfir
alla pizzuna. Pizzunni er loks stungið
inn í heitan ofn í 15 mínútur.
Sumum finnst e.t.v. betra að nota
hvítlauk í stað lauksins, pizzan verður
þá „ítalskari” á bragðið. Þá kunna
sumir að kjósa heldur að nota tómat-
kraft í staö niöurskomu tómatanna.
in. Þá er röðin komin aö sósunni.
Hrærið hana upp og hellið henni yfir
salatiö. Stráið svo að endingu graslauk
yfir. Þetta salat er gott að borða með
ristuðu brauði.
Sveppapizza
Deig: Venjulegt pizzudeig úr u.þ.b. 3
1/2 dl af hveiti.
Fylling: 200 g af bragðsterkum svepp-
um (þó ekki beiskum)
lítill laukur
2msk.matarfeiti
3 msk. hveiti
2 dl rjómi
karrý, salt, hvítur pipar, niðursneiddir
tómatar, rifinn ostur, 1 msk. olía
Bleksveppasúpa
nýir f jallableksveppir
matarolía
sítrónusafi
salt og pipar
kjötseyði, eða annars konar seyði
Helmingsverðmunur
á kryddbaukum
Það verður seint of brýnt fyrir les-
endum að taka vel eftir verðmiðum á
hlutunum áður en þeir eru keyptir. Oft
borgar sig að fara á milli verslana til
aö leita að ódýrari hlutum en þeim sem
sjást í fyrstu búð. Þetta rak hún sig á
konan sem kom hér við á ritstjórninni i
um daginn. Fyrir nokkuð löngu hafði
hún keypt sér kryddbauk í versluninni
Nóatúni. Skömmu síðar (um hálfum
mánuði að hún taldi) átti sama konan
leið í verslun Sláturfélagsins í Austur-
veri. Þá var hún búin að gleyma því að
hún hafði keypt fyrri kryddbaukinn og
keypti því annan eins. Þegar heim var
komið rak hún hins vegar augun í þann
eldri. Og sjá, verömunurinn var geysi-
legur. Baukurinn sem fyrr hafði verið
keyptur hafði kostað 48,30 krónur en sá
er síðar var keyptur meira en helmingi
minna eða 22,20. Þó var heldur meira i
seinni og ódýrari bauknum. Innihald
virtist vera algeriega það sama en ör-
lítið var áletrun á bauknum mismun-
andi.
Konan sagði að sér hefði ekki þótt
það neitt skrýtiö ef seinni baukurinn
hefði verið uppundir helmingi dýrari
en sá fyrri. Hún vissi aö mikil velta
væri í Sláturfélaginu, líklega meiri en í
Nóatúni og því væru líkur á nýrri og
um leið dýrari sendingum þar. En að
það skyldi vera akkúrat öfugt kom
henni á óvart. Hvetur þetta menn enn
til varkárni við innkaup.
DS.