Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.1983, Blaðsíða 36
sé.
ÁRMÚLA 38 REYKJAVÍK,
SÍMI82166 OG 83830.
19.og20.
Næsti fundur Jslendinga og Sviss-
lendinga um álmáliö verður í London
næstkomandi föstudag og laugardag.
Nokkrar vonir eru tii að þar verði
samkomulag um einhverja
„byrjunarhækkun” raforkuverðs ál-
versins en síðan haldi viðræður um
frekari hækkun og önnur atriöi
áfram.
-HH
Smásagnakeppni
móðurmálskennara:
Saga Olgu
Guðrúnar
27022 AUGLÝSINGAR SÍÐUMÚLA33
SMÁAUGLÝSINGAR — AFGREIÐSLA
SKRIFSTOFUR ÞVERHOLTI 11
86611 RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12—14
MIÐVIKUDAGUR 17. ÁGÚST 1983.
Verðjöf nun á raforkuverði 250 milljóna skattur í ár:
Verðiöfnunin orð
in að ójöfnuði
Rafmagnsnotendur á nokkrum
þéttbýlisstöðum borga 10—20%
hærra verð fyrir rafmagnið en not-
endur í strjálbýUnu, sem Rafmagns-
veitur ríkisins og Orkubú Vestf jarða
þjóna. Samt rennur í ár 250 miUjóna
verðjöfnunargjald á aUa almenna
rafmagnsnotkun til þessara tveggja
veitustofnana.
AUir almennir rafmagnsnotendur
borga 19% í þetta veröjöfnunargjald,
til viðbótar við raunverulegan raf-
magnsreUtning og 23,5% söluskatt.
Af 250 miUjónunum í ár fara 80% eða
200 miUjónir tU Rarik en 50 mUljónir
til Orkubúsins, 20%.
Álagning verðjöfnunargjaldsins
var tekin upp fyrir 20 árum og hefur
verið framlengd síðan árlega og
hækkuð með tröppugangi. Síðustu ár
hafa þyggjendur gjaldsins getað
boðið lægri taxta en ýmsir aðrir sem
borga það.
Samband íslenskra rafveitna, sem
hefur innan sinna vébanda allar
helstu rafveitur og þar með Rarik og
Orkubúið, hefur ítrekað mótmælt
framlengingu verðjöfnunargjalds-
ins. Það lítur svo á að „sérstakar
félagslegar aðgerðir til jöfnunar á
rafmagnsverði” eigi aö kosta beint
úr ríkissjóði, af almannafé, og vera
póHtísk ákvöröun ráðandi stjóm-
valda.
Þær rafveitur á þéttbýlisstöðum
sem nú hafa hærri taxta en strjál-
býUsveitumar eru aöallega á
Suðurnesjum en einnig á Suðurlandi
ogNorðurlandi.
HERB
hlautl.
verðlaun
UrsUt i smásagnakeppni Samtaka
móðurmálskennara vora tilkynnt í
Torfunni í gær. Verðlaunin, kr.
20.000, hlaut Olgá Guðrún Ámadóttir
fyrir söguna Vertu ekki með svona
blá augu.
AUs bárast keppninni 77 sögur.
Veröa gefin út tvö smásagnasöfn
meö úrvali þeirra; 21 sögu auk
verölaunasögunnar. Heimir Pálsson
mun sjá um útgáfu bókanna.
Dómnefnd skipuðu Sigurlx.rj.
Hilmarsdóttir, Silja Aðalsteinsdóttir
og Símon Jón Jóhannsson. Formaður
Samtaka móöurmálskennara, Sig-
urður Svavarsson. kvað dómnefnd-
inni hafa verið mikill vandi á
höndum viðvaiið.
„I stuttu máli fjallar sagan mín
um fimmtán ára gamla stúlku, sem
býr á sveitabæ, nálægt sjávarþorpi.
Ég lýsi degi í Ufi þessarar stelpu og
hún býr kannske ekki viö alveg
venjulegar aðstæður. Eg bendi á að
sveitaUfið er ekki aUtaf með sældinni
úttekið,” sagöi Olga Guðrún.
-FG.
Hundur
beit
stúlku
Stór Labradorhundur beit 10 ára
gamla stúlku þar sem hún var gest-
komandi i húsi á Seltjarnamesi í
gær. Hundurinn beit stúlkuna í lærið
og varð að sauma fjögur spor.
-JH
LOKI
Það var eins gott að óg
henti ekki gömlu
oiíufíringunni.
_ ______7 Ráðhústorginu
Dagblaðið—Vfsir gall við Ráðhústorginu á mánudaginn. Og sjá: Það var enginn ann-
ar en Óli blaðasali sem var mættur til að bjóða frændum okkar Dönum eintak. Óli og
tuttugu og fjórir sölukrakkar DV og Vikunnar sýndu þarna og sönnuðu að hæfileikar
þeirra eru ekki bundnir við nein iandamæri.
Þessi sölumennska á Ráðhústorginu var annars það eina sem minnti á daglegt
amstur ferðalanganna. Tivolí, Bakkinn, Strikið, Dýragarðurinn og skoðunarferð um
borgina var það sem var á dagskránni og það mátti engan tíma missa.
SGV/DV-mynd Nanna.
HlaupíSúluá
Skeiðarársandi
Úmerkilegt
miöaö viö
það sem
áöurvar
— segir Sigurjón Rist
vatnamæ lingamaður
Hlaup hófst í ánni Súlu á Skeiðarár-
sandi í gærmorgun. Var vatnsmagn í
ánni að vaxa fram á kvöld í gær en
búist var viö að hlaupið rénaði með
morgninum. Talsvert bar á jaka-
hröngU í ánni en vatnsmagn var áætlað
á annað þúsund teningsmetra á
sekúndu meðan hlaupið stóð sem hæst.
Sigurjón Rist vatnamæUngamaður
sagði í viðtali við DV í morgun að
sUkar hlaupskvettur úr Grænalóni
væru orðnar árlegur viðburður. Lónið
er við vesturrönd Skeiðarárjökuls, í
þverdal sem jökuUinn girðir fyrir. I
dalinn safnast vatnsfyUa sem hleypur
fram og orsakar flóð í Súlu.
„Þessi hlaup núna eru orðin ómerki-
leg miðað við það sem áður var,” sagði
Sigurjón. „Aður náði vatnsyfirborð
Grænalóns nær 200 metra hæð en nú
verður ekki nema 13—20 metra lækkun
á því við hlaup. Þetta orsakast vegna
rýmunar á jökUnum”.
Sagði Sigurjón að hlaupið í Súlu væri
með hefðbundnum hætti og bjóst við aö
þaö gengi niður í dag. Mannvirkjum á
sandinum stafaði ekki hætta af því, aö
því er síðustu fregnir hermdu þótt
vissulega skapaðist þama varhuga-
vert ástand.
-JSS
Vinnuslys
umborö
i Esju
Vinnuslys varð um borð í ms.Esju í
Reykjavíkurhöfn í gær. Fullorðinn
starfsmaöur rikisskips féll i stiga um
borð i skipinu en þar var hann að vinna
við gáma. Kom hann illa niður og mun
meðal annars hafa lærbrotnað. Þessi
mynd var tekin þegar verið var að
flytja þann slasaða og sjúkraflutninga-
mennina frá borði, en þeir voru hífðir í
landmeðkrana.
-klp-