Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1983, Qupperneq 28
36
DV. FÖSTUDAGUR19. ÁGUST1983.
Rafsuðuvélar og vír
Haukur og Olafur
Ármúla 32 - Sími 37700.
f STAÐAR NEM!
Öll hjól eiga að stöðvast
algerlega áðuren
að stöðvunarlínu
er komið.
UUMFEROAR
RÁÐ
FULLT
HÚS
MATAR
1/2 nautaskrokkar, tilbúnir í frystinn, kr. 129 kg,
flokkur U.N.I., nýslátrað.
1/2 svínaskrokkar, tilbúnir i frystinn, kr. 140 kg,
flokkur S.V.I.A., nýslátrað.
1/1 lambaskrokkar, sagaðir, I. flokkur, kr. 101,20
kg, slátrað í okt. '82.
1/1 lambaskrokkar, sagaðir, II. verðflokkur, kr.
94,10 kg.
1/2 folaldaskrokkar, tilbúnir í frystinn, kr. 73 kg,
flokkur FO.I.A., slátrað í okt. '82.
1/2 nautaskrokkar, tilbúnir í frystinn, kr. 117 kg,
flokkur U.N. II og A.K.I., nýslátrað.
Nautaframpartar, flokkur U.N.I, skorið eftir
óskum, kr. 102 kg.
Nautalæri, flokkur U.N.I, skorið eftir óskum, kr. 167
kg.
Nautaframpartur, flokkur U.N.II, skorið eftir
óskum, kr. 92 kg.
aPSHT Nautalæri, flokkur U.N.II, skorið
eftir óskum, kr. 153 kg.
Nissan dísil, 6 cyl.,
turbo, 107 ha.
GJvarahlutir
Hamarshöfða 1, simar30610 £»83744.
Hafa verið settar í flestar gerðir jeppa og sendibif-
reiða. Einnig heppileg í báta. Mjög þýðgeng og
hljóðlát. Vél á staðnum.
LEITIÐ UPPLÝSINGA.
Þyngd: 307 kg.
Hestöfl: 107/3800 sn/min.
„ER G0SBARN ÚREYJUM”
— staldrað við hjá Ásbirni Guðjónssyni,
bifvélavirkja á Eskifirði
„Hefurðu nokkra von um að vera bú-
inn með bílinn fyrir f jögur?” Þetta var
það fyrsta sem við heyrðum er við lit-
um inn hjá Ásbirni Guöjónssyni, bif-
vélavirkja á Eskifirði. Það var allt
brjálað að gera á verkstæöinu hjá
honum enda allir á síðasta snúningi
með aö gera klárt fyrir verslunar-
mannahelgina.
„Ég er að reyna að koma honum af
stað noröur í land, í Vaglaskóg,” sagði
Ásbjöm og leit upp úr vélarrúminu á
Homet-bíl er við spurðum hvaö væri aö
h já honum þessum.
Ásbjörn sagðist vera gosbarn úr
Eyjum og hefði flust til Eskifjarðar
1974. Hann hefði starfað við bifvéla-
virkjun frá 1968 og kynni vel við sig á
Eskifirði en þar rekur hann annað
tveggja bílaverkstæða á staðnum.
,,En Eyjamar kalla nú alltaf,” bætti
hann brosandivið. >
Hann sagði að það væri sæmilegt að
gera, misjafnt þó, en mest yfir sumar-
ið. ,,Það má eiginlega segja aö þessi
tími núna, fyrir verslunarmannahelg-
ina, sé annasamastur.”
örugglega rétt miöað viö þá umferð
sem var á planinu hjá honum. Við vild-
um heldur ekki trufla lengur enda ljóst
að halda varö áfram ef allir áttu að
geta fengið bílana sína fyrir klukkan
fjögur.
Ásbjörn gaf sér tima tll að lita upp úr vélarrúminu á Hornetinum. „Er að reyna
að koma honum af stað norður í land.”
-JGH.
DV-mynd: Bjamleifur.
Frá hestamóti Storms á Vestf jörðum:
Vel skipulagt mót á Söndum
B-flokkur gæðinga.
1. Frímann frá Bolungarvík. Eig-
andi Gísli Einarsson. Knapi Jón
Árnason. Einkunn 8,22.
2. Sóti frá Bolungarvík. Eigandi og
knapi Sigmundur Þorkelsson.
Einkunn8,16.
3. Bótólfur frá Bolungarvík. Eigandi
Einar Þorsteinsson. Knapi Guð-
finnur B. Einarsson. Einkunn 7,90.
300 m brokk.
1. Sleipnir frá Bolungarvík. Eigandi
og knapi Jóhann Bragason. Tími
41,51sek.
2. Vinur frá Þingeyri. Eigandi Inga
Guðmundsdóttir. Knapi Þorkell
Þórðarson. Tími 43,72 sek.
3. Funi frá Þingeyri. Eigandi Krist-
inn Jónasson. Knapi Steinar Jóns-
son. Tími 44,22 sek.
250mskeið.
1. Vinur frá Isafirði. Eigandi og
knapi Jóhann E. Guömundsson. Tími
32,00 sek.
2. Jörp frá Þingeyri. Eigandi og Frlmann frá Bolungarvlk stóð efstur í B-flokld gæðinga og var vallnn glæsl-
knapi Svanberg Gunnlaugsson. Tími legasti hestur mótsins. Knapi og eigandi er Gisli Einarsson.
32,8 sek. Ljósm.:ElínBjörkUnnarsdóttir.
Laugardaginn 6. ágúst síðastliðinn
fór fram hið árlega mót vestfirskra
hestamanna á Söndum í Dýrafirði.
Þátttaka var mjög góð. Undanrásir
fyrir kappreiöarnar hófust á föstu-
dagskvöldið. Á laugardagsmorgun-
inn voru hestar í gæöingakeppninni
dæmdir. Dómarnir voru endanlegir
þar sem engin sérstök úrslitakeppni
fór fram. Aö venju hófst mótið form-
lega meö hópreið og hátíðlegri móts-
setningu sem byrjaði á tilsettum
tíma í blíðskaparveðri þó síðar ætti
eftir að væta. Því næst voru sýndir
hestar sem tóku þátt í A- og B-flokki
gæðinga og strax á eftir hófust úrslit
í kappreiðum. Völlurinn var þungur
vegna rigninga undanfarið. Fram-
kvæmd mótsins var aðstandendum
þess til sóma, það bókstaflega rann
áfram. Urslit urðu sem hér segir:
A-flokkur gæðinga.
1. Gustur frá Bolungarvík. Eigandi
Bragi Björgmundsson. Knapi
JóhannBragason. Einkunn7,85.
2. Vinur frá Isafirði. Eigandi og
knapi Jóhann E. Guðmundsson.
Einkunn 7,80.
3. Víkingur frá Bolungarvík. Eig-
andi Hálfdán Ingólfsson. Knapi
Hallgrímur Jóhannsson. Einkunn
7,68.
3. Víkingur frá Bolungarvík. Eig-
andi Hálfdán Ingólfsson. Knapi Hall-
grímur Jóhannsson. Tími 33,04 sek.
150mskeiö.
1. Freyja frá Þingeyri. Eigandi og
knapi Gunnlaugur Sigurjónsson.
Tími 19,68 sek.
2. Hetta frá Suðureyri. Eigandi
Oskar Gunnarsson. Knapi Hafliði
Gíslason. Tími 20,70 sek.
300 m stökk.
1. Hetja frá Hvammi á Barðaströnd.
Eigandi og knapi Katrín Péturs-
dóttir. Tími 24,50 sek.
2. Klerkur frá Bolungarvík. Eigandi
Björgmundur Bragason. Knapi
Jóhann Bragason. Tími 24,95 sek.
3. Sóti frá Hrauni, Ingjaldssandi.
Eigandi Guömundur Hagalínsson.
Knapi Hreinn Ásgeir Guðmundsson.
Tími 26,30 sek.
250 m unghrossahlaup.
1. Funi frá Þingeyri. Eigandi Krist-
inn Jónasson. Knapi Ragnar Guð-
mundsson. Tími 21,37 sek.
2. Faxi frá Alviðru í Dýrafirði. Eig-
andi Jóna Kristjánsdóttir. Knapi
Steinar Jónasson. Tími 22,21 sek.
3. Glaður frá Bolungarvík. Eigandi
Einar Þorsteinsson. Knapi Guð-
finnur Einarsson. Tími 24,00 sek.
Glæsilegasti hestur mótsins var
valinn Frímann frá Bolungarvík.
Knapaverðlaun voru veitt fyrir bestu
ásetu og prúömannlegustu fram-
komu og hlaut þau Gunnlaugur
Sigurjónsson frá Þingeyri.
-EBU.