Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.1983, Blaðsíða 1

Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.1983, Blaðsíða 1
FÆREYINGAR MOKA NÚ UPP „STROKUÞORSKI” AF ÍSLANDSMIÐUM! — talið að þorskurinn haf i hreinlega flúið kalda sjóinn við íslandsstrendur Frá Eðvarði T. Jónssyni, frétta- ritara DV í Færeyjum: „Islenski” þorskurinn virðist nú hafa strokið í einhverjum mæli til Færeyja, því fádæma góð þorskveiði hefur verið við Færeyjar í vor og sumar. Halda færeyskir sjómenn því fram að sá þorskur sem veiðst hafi sé upprunnin á Islandsmiðum og hafa fiskifræðingar í Færeyjum staðfest að svo sé. Hafi hann hreinlega flúiö úr kalda sjónum við Islandsstrendur. Nú í ágústlok var gert ráð fyrir að veiða ekki meira en 25 þúsund tonn á öllu árinu. Ihugar færeyska lands- stjórnin nú að stöðva veiðarnar en þess má þó geta að yfirleitt er afli færeyskra báta á heimamiöum minnstur á haustin og eykst venjulega ekki aftur fyrr en í janúar. Engin heildarstefna í fiskveiðum er í gildi í Færeyjum og vill landsstjómin nú í samráði við fiskifræðinga hefjast handa um mótun slíkrar stefnu. Gert er ráð fyrir að verðmæti út- flutnings hækki um allt að 30 prósent frá síðasta ári en nú í ágúst hafði magn útfluttra sjávarafuröa aukist um 32 prósent og verömætið um 27 prósent. Miklar birgðir af fimm-punda pakkningum liggja nú í geymslu í Bandaríkjunum, eða nálægt fjögur þúsund tonn, en talsmenn Fiskasölu Færeyja eru bjartsýnir á að það muni allt seljast á næstunni. Otflutningur á þorskflökum til Bandaríkjanna hefur stóraukist á þessu ári. En þrátt fyrir góðærið hafa erlendar skuldir Færeyinga vaxiö um helming á síðustu þremur árum og nema þær nú um 2.200 milljónum færeyskra króna. -JGH. Gamansamir á Reykjavíkurflugvelli hafa haft það fyrír sið að búa til vegvísa til aðseturs flugmálastjóra. Eins og sjá má á myndinni hefur nú verið settur upp vegvísir sem á stendur: „Peterslane" sem liklega myndi útleggjast á þvi ylhýra „Pétursstræti". DV-mynd Einar. Austfiröingar deiiaum radarstöð áLanganesi — sjá bls. 3 Náttúru- verndarráö sakarrallí- menn umsvindl -sjábls.2 og baksíðu Stressaöir græöameira - sjá bls. 32 Fjöguríslands- metísundi — sjá íþróttir bls. 18-19 LeystuUng- verjardeil- unaumein- vígiRibliog Smyslov? — sjá erlendar fréttir ábls.8og9 Gullskipið: NOKKUR HLUTIR HAFA FUNDIST Leitarmenn á Skeiðarársandi eru nú farnir að sjá fyrstu merki þess að hið aldna skip Het Wapen van Amst- erdam sé að koma í dagsljósið á ný. Við hreinsun á sandi sem dælt hefur verið ofan af skipinu hafa fundist við- V i i ■■■■■: ■■■■■■. arbútar, keöjubútur og vinkiljárn. Það mun hins vegar enn verða nokkur bið á að skipið sjálft komi í dagsljósið því ekki veröur vatninu dælt innan úr þrónni fyrr en búið er aö styrkja þilið kring um skipiö nægjanlega. Talið er að það verk taki nokkra daga og því ekki búist viö að dæling hefjist að nýju fyrr en um eða upp úr næstu helgi. -SÞS. Nú or beðið með eftirvæntingu eftir framvindu mála á Skeiðarársandi. Fyrstu hlutirnir úr gullskipinu hafa komið f Ijós. Myndin er tekin á meðan enn var verið að deela. DV-mynd E.B.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.