Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.1983, Blaðsíða 2
BÍLASAIAN
GRENSÁSVEGI 11 -
108 REYKJAVlK - SiMI 83150
; ..'’Sl
Votvo245DL statíon.
Blár, irg. '82, oklnn 58þús. km.
Vorð 440.000, skiptíá ódýrari.
Gotf.
Blir, irg. 79, okinn 45.000.
VorO 150.000.
Citroén GSA.
DrappUtur, irg. '82, oklnn 34
þús. km.
Vorð285.000, skiptíi ódýrari.
Mitsubishi yfírbyggður,
Hvrtur, irg. 52, okinn 36 þús.
km.
Verð 460.000, skiptíi ódýrari.
Bronco.
Grænn, irg. 78, oklnn 78 þús.
km. 8 cyl. sjiifsk. vökvast., einn
m/öllu.
Skipti i ódýrari.
Econoiino sondibíii.
Drappiitur, irg. '80, ekinn 26
þús. km, 6 cyi., vökvastýri, bein
sala.
Ver0400.000.
Einn sá fallegasti, allur klæddur
að innan, skipti á ódýrari.
DV. ÞRIÐJUDAGUR 30. ÁGUST1983.
íslandsrallið:
VAR KEPPT ÓFORMLEGA
Á BÖNNUÐUM LEKMJM?
— Náttúruverndarráð f er f ram á rannsókn og stöðvun keppninnar
Sýslumannsembættiö í Norður-
Múlasýslu hefur nú til athugunar
meint brot forsvarsmanna Islands-
raUsins á leyfi því er dómsmálaráöu-
neytiö veitti þeim til keppninnar. Er
rannsókn þessi gerð aö óskum Nátt-
úruverndarráðs sem segist hafa haft
af því spumir að keppt hafi verið
óformlega í Jökuldal og á Brúaröræf-
um þrátt fyrir aö þessar leiðir hafi
verið feUdar út úr upphaflegri dag-
skrá rallsins vegna mótmæla sýslu-
manns Norður-Múlasýslu og heima-
manna.
I frétt frá Náttúruverndarráði seg-
ir að ekið hafi verið á miklum hraða
inn allan Jökuldal og upp á Brúarör-
æfi og hafi leyfður hámarkshraði
verið lítt í hávegum hafður.
Ennfremur segir í tilkynningunni
að góð sönnun fyrir þessu hafi birst í
viðtali sem Tíminn átti við Omar
Ragnarsson um síðustu helgi en þar
segir Omar meðal annars að Frakk-
inn Jean Claude Bertrand hafi byrj-
að keppnina áður en hún hófst form-
lega á Sprengisandi 25. ágúst siðast-
Uðinn.
Og auk þess að fara fram á rann-
sókn þessa máls hefur Náttúru-
verndarráð óskað eftir því við dóms-
málaráðuneytiö að það stöðvi keppn-
ina meðan rannsóknin fer fram.
Þá hefur Náttúruverndarráð feng-
ið þær upplýsingar frá ýmsum aðil-
um, sem orðið hafa á leið keppenda
eða fariö um keppnisslóðimar þegar
keppnin var nýyfirstaðin, að víða
hafi verið ekiö út fyrir slóðir, jafnvel
ágrónulandi. SþS
,Má ég bjóða þér að smakka é ljúffengri melónu.” ttalinn Coslmo er mikill sölumaður og hann og ávaxtasala bans setja mlltiitn svip á lifið í miöbsenum á Akur-
syri- i DV-mynd -klp
Seldi tómata á torgum
i Torino en selur nú tómata
á Ráðhústorginu á Akureyri
Akureyringar hafa fengið sinn úti-
markað á Ráöhústorgið. Hefur ungur
Itali, Cosimo að nafni, opnað þar græn-
metis- og ávaxtasölu og hefur haft
mikið að gera frá því að hann tyllti sér
á torgiö meö kassa sína og vigtir fyrir
umhálfummánuöi.
„Það mætti halda að það hefðu ekki
fengist ávextir hér á Akureyri síðan
1925, það eru slík lætin í kringum
þetta,” sagði einn Akureyringur sem
viö hittum á torginu. „En það er gott
aö fá þetta hérna og þetta lífgar upp á
tilveruna og lífið hér í miðbænum,”
bætti hann við.
Cosimo hefur veriö hér á Islandi í
þrjú ár. Hann kom hingað sem skipti-
nemi og hefur dvaliö hér síðan, síðast
sem sjálfboðaliði við skóladagheimilið
á Akureyri en þar fékk hann þó eitt-
hvert kaup síöustu vikurnar.
,,Ég hugsa ekkert um peninga og hef
aldrei gert það," sagði hann við okkur.
„Núna er ég þó svolítiö að spekúlera í
þeim því mig langar í skóla á Egils-
stööum í vetur og þarf pening til að
geta stundað þar nám.
Cosimo, sem talar nokkuð góða ís-
lensku, er ekki óvanur torgsölu. Hann
var 9 ára gamall þegar hann seldi
tómata og ferskjur á torgum úti í
Torino á Italíu og honum fannst gaman
aðþví.
„Þetta er annað hérna á Akureyri.
En þaö er voða gott fólk hérna og það
hefur tekið mér mjög vel. Það eru allir
tilbúnir að hjálpa mér og allir vilja
kaupa af mér, jú,og ég er með góða
vöru og ódýra," sagöi Italinn ungi og
brosti út undir eyru.
Hann sagðist fá sínar vörur frá heild-
sölum í Reykjavík og víðar og hann
feng; hjálp hjá vinum sínum við að ná í
vöruna og við aö selja hana. „Þaö er
gaman að þessu en það er stundum
svoh'tiö kalt héma. Italía og Island eru
ólík og fólkiö líka. En ég kann vel við
mig og er ekkert að hugsa um að fara
til Italíu á næstunni — nema þá
kannski í stutta heimsókn,” sagði
Cosimo og var þar meö rokinn til aö af-
greiða eina Akureyrarfrú meö tómata
og vínber úr kössunum sínum
mörgu... -klp
KALLTÆKISTOLIÐ
— átti að notast í nýjan Kentucky-veitingastað
Kalltæki fyrir veitingastað var það
sem þjófarnir, sem fóru inn
á athafnasvæði Dvergs við Flata-
hraun aöfaranótt laugardags, höföu
upp úr krafsinu. Kalltækið var ásamt
mörgum öörum vörum í gámi.
Dvergur er umboðsaðili fyrir Haf-
skip í Hafnarfirði og því eru margir
gámar á svæðinu. Þrjótamir brutu
upp lása á um fimmtán gámum en
fóru aðeins inn í einn þeirra.
Þar tóku þeir kalltækiö sem fyrir-
hugaö var að nota í nýjan Kentucky-
veitingastað sem verið er að opna.
Einnig rótuðu þeir mikiö til.
Við aö brjóta lásana á gámunum
upp notuðu þeir stóran skrúflykil og
skildu þeir hann eftir við gámana.
Máhð er nú tU rannsóknar hjá Rann-
sóknarlögreglu ríkisins. -JGH