Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.1983, Qupperneq 3

Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.1983, Qupperneq 3
DV. ÞRIÐJUDAGUR 30. AGUST1983. 3 Radarstöö á Langanesi mikilvægt skotmark komi til stríösátaka — tillögu bæjarfulltrúans vísað f rá á aðalfundi Sambands sveitarfélaga í Austf jarðakjördæmi Bæjarfulltrúi Sjálfstæðis- flokksins á Eskifirði mótmælir allri hernaðar- uppbyggingu eystra: „Ég bar þessa tillögu fram þar sem ég tel ekki réttlætanlegt aö auka hern- aðarumsvif á landinu. Aö mínu mati myndi radarstöð á Langanesi vera mikilvægt skotmark ef til stríösátaka kæmi og ég tel aö meö byggingu hennar og enduruppbyggingu stöövar- innar aö Stokksnesi myndi átaka- punkturinn milli austurs og vesturs færast austar á landinu,” sagöi Hrafn- kell Jónsson, bæjarfulltrúi Sjálfstæðis- flokksins á Eskifirði, í samtali við DV. Á aöalfundi Sambands sveitarfélaga í Austfjaröakjördæmi, sem haldinn var í síðustu viku, bar Hrafnkell fram tillögu um hermál sem fundarstjórar visuöu frá. Annar fundarstjóranna var flokksbróöir Hrafnkels, Theódór Blön- dal, bæjarfulltrúi Sjálfstæöisflokksins á Seyðisfirði. Tillaga Hrafnkels hljóöaöi efnislega á þessa leið: „Tillaga um landvarnir.” „Aöalfundur Sambands sveitarfélaga í Austfjarðakjördæmi, haldinn á Seyð- isfiröi 25.-26. ágúst 1983, mótmælir öllum áformum um uppbyggingu hem- aðarmannvirkja á Austur- og Norö- austurlandi. Jafnframt skorar fundur- Bamaleikhúsiö var stofnað á fæðingardcgi Karls Guðmundssonar leikara, 28. ágúst, honum til heiöurs. Hér er Karl ásamt einum af væntanlegum leikurum, Hebu Margréti Haröardóttur sem er 3 ára. BARNALEIKHÚS TEKUR TIL STARFA Barnaleikhúsið Tinna var formlega stofnaö sunnudaginn 28. ágúst síöast- liöinn. Markmið Barnaleikhússins er að skapa aöstöðu fyrir böm og hvetja þau til dáða á öllum sviöum leiklistar. I frétt frá Bamaleikhúsinu segir aö í fyrstu muni leikhúsið eingöngu sýna leikrit eftir böm. Er stefnt aö því í framtíðinni aö virkja barnaheimili, bama- og gagnfræðaskóla landsins svo og ýmsa sérskóla fyrir böm og skapa þessum stofnunum aöstööu til sýninga. Fyrsta verkefni Barnaleikhússins verður bamaskemmtun á 10 ára af- mæli Flugleiða. Skemmtunin fer fram á Hótel Loftleiðum helgina 17. og 18. september. Meöal annars veröur frumsýnt þar leikrit eftir Magnús Geir Þórðarson sem er 9 ára gamall. Þeir sem hafa áhuga á aö koma fram á veg- um Bamaleikhússins á afmælishátíö- inni geta sent skriflegar umsóknir til Bamaleikhússins Tinnu, Vonarstræti 1, Reykjavík. -ÓEF. inn á þingmenn og ráöherra Austur- lands að koma í veg fyrir allar ráða- gerðiríþessaátt.” Hrafnkell bar tillögu sína fram í alls- herjarnefnd aö morgni síöari dags aðalfundarins en þá sat nefndin að störfum. Var hún samþykkt þar sam- hljóöa. Er tillagan var svo borin fram á aðalfundinum ákváöu fundarstjórar aö taka málið af dagskrá. „Henni var vísað frá á þremur forsendum,” sagöi Theódór Blöndal, annar fundarstjór- anna. „I fyrsta lagi barst hún of seint, ekki var gert ráö fyrir umræðu um her- mál á fundinum. Þá tengdist tillagan ekki neinu umræöuefni á fundinum og loks hafði ekkert veriö rætt um hermál fyrri dag aðalfundarins. Má geta þess aö þetta er í fyrsta sinn sem tillaga um öryggis- og utanrikismál Islands er borin fram á aöalfundi Sambands sveitarfélaga í Austfjaröakjördæmi.” Theódór sagöi aö stjórnmál heföu hér ekki spilaö neitt inn í, þaö heföi verið álit flestra að rétt væri að visa til- lögunni frá. Theódór sagöi einnig aö sér fyndist óeðlilegt að einstaklingar gætu borið upp tillögur í nefndum um efni óskyld umræöuefnum fundarins. Hrafnkell A. Jónsson sagöi að sér hefði fundist eölilegt aö nefndir gætu ályktað um mál sem ekki heföu komið til umræðu á aöalfundinum sjálfum. „Tillagan var samþykkt samhljóöa svo líta má svo á aö um tillögu nefnd- arinnar hafi verið aö ræða,” sagði Hrafnkell. Undir lok aðalfundarins var komið aö liönum önnur mál og bar þá Hrafn- kell aftur fram tillögu sína. Vilhjálmur Hjálmarsson bar þá fram frávísúnar- tillögu og var hún samþykkt með 16 at- kvæðum gegn 12. Vísaði Vilhjálmur til bess að hermálið væri mjög umfangs- mikiö og of stuttur tími væri eftir af fundartímanum til að hægt væri aö ræöa þaö mál til hlítar. Aö sögn Hrafnkels voru margir gengnir af fundi er frávísunartillagan var samþykkt enda einungis 10 mínút- ur eftir af fundinum og komiö fast aö kvöldmatartíma. -sa. SVAR VIÐ DÝRTÍÐINNI SOGAR NÁNAST HVAÐ SEM ER MEÐAL ANNARS: VATN. MÖL OG SAND - HENTUG FYRIR ALLAR GERÐIR AF TEPPUM. BIÐJIÐ UM MYNDALISTA PÓSTSENDUM ASTRA SÍÐUMÚLA 32. - SÍMI86544. Fyrir: fyrirtækihót- el, byggingar- verktaka, stofn- anir, verk- stœði og heimili. VERÐ: 34 lítra kr. 6.818,- 43 lítra kr. 7.656,- 51 lítra kr. 9.638, Fæst í kaupfélögum um allt land. Árs ábyrgð, allir varahlutir fyrirliggjandi. Ódýr vikuferð 14. sept. Gisting á lúxushótelinu Montparnasse Park Innifalið: Flug - Akstur - Gisting - Morgunverður - Skoðunarferð um París - Skoðunarferð um Versali - íslensk fararstjórn

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.