Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.1983, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.1983, Blaðsíða 8
8 DV. ÞRIÐJUDAGUR 30. ÁGUST1983. Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd Syrgja Aquino Mikill harmur ríkir vegna morðs stjórnarandstöðuleið- togans Benigno Aquinos á Filippseyjum. Hefur fólk lát- ið það óspart í ljósi með mótmælaaðgerðum, fordæm- ingu á morðingjunum og gremju við stjórn Marcosar forseta. Um hálf milljón manna fylgdi líkbörum Aquin- os þegar þær voru bornar um götur höfuðborgar- innar Manila og var þessi mynd tekin við það tækifæri. Deilan leyst um einvígi þeirra Smyslovs og Ribli Stjórnarmenn ungverska skáksam- bandsins sögðu í gær að deilan sem kom í veg fyrir að Ribli tefldi við Smyslov hefði nú verið leyst. Campomanes, forseti alþjóða skák- sambandsins (FIDE), kom til Búda- pest um helgina í boði ungverska skák- sambandsins. Að loknum viöræðum við Ungverjana lofaði Campomanes að skipuleggja einvígi milli Ribli og Smyslov áður en FIDE heldur þing sitt í okóber. (Á dagskrá þingsins átti m.a. að koma deilan um einvígi Riblis og Smyslovs.) Hin opinbera fréttastofa Ungverja- lands hefur eftir Campomanes að eng- ar hindranir væru í vegi annars einvíg- is og að hann biði svars sovéska skák- sambandsins, svo að unnt væri að taka deiluna út af dagskrá FIDE-þingsins. Ungverska skáksambandið segist hafa komið áleiðis til forsetans orð- sendingu frá sovéska skáksambandinu og að öll vandkvæði séu núna úr sög- unni. ’ Campomanes forsetl FIDE tók sér ferð til Búdapest og hét Ungverjum að leysa máilð. Tékknesk íþrótta- kona hverfur Alena Niederlova, sem keppti fyrir Tékkóslóvakíu á Evrópu- meistaramótinu í dýfingum, fannst ekki þegar félagar hennar ætluðu að stíga um borð í flugvél sína á Rómarflugvelli um helgina. Lög- regluyfirvöld í Róm segja að hún kunni aö hafa orðið ástfangin og ekki viljað snúa aftur heim þess vegna. Embættismenn í ítalska utanrík- isráðuneytinu segja að þeir viti ekkert um hvar Niederlova er en svo virðist sem hún hafi stungið af á flugvellinum, þar sem hún hitti unnusta sinn, tékkneskan útlaga sem býr í V-Þýskalandi. Nieder- lova hefur ekki sótt um hæli sem pólitískur flóttamaður á Italíu en hefur þar landvistarleyfi sem ferðamaður. Sovétríkin: Skortur á verka- fólki í sovésk landbúnaðarstörf Eftirlaunaþegar og unglingar úr ýmsum borgum Sovétríkjanna þiggja nú laun fyrir aö aðstoða við komupp- skeru í Sovétríkjunum, því alvarlegur skortur er á landbúnaðarverkamönn- um, að sögn sovésks tímarits um land- búnaðarmál. Aö sögn tímaritsins hefur fólksflóttinn úr sveitum veriö svo mik- ill á síðasta áratug að nú veröi yfirvöld að hvetja borgarbúa til þess að hjálpa til við uppskeru á kartöflum, eplum og öðru. I Sovétríkjunum er það vaninn að borgarbúar hjálpi við slík störf en nú mun svo komið að þeir gegna lykil- hlutverki viö uppskerustörfin. Samkvæmt tímaritsgreininni hafa meira en sjö miiljónir Sovétmanna flutt úr dreifbýli á síöustu tíu árum og meira en ein miiljón hinna brottfluttu munu hafa verið landbúnaðarverka- menn á besta aldri. Og þó námsmenn og eftirlaunaþegar taki viljugir við störfum þeirra hafa þeir ekki kunnátt- una eöa þjálfunina sem til þarf, að sögn tímaritsins. Flóð í löndum Baska Meira en 30 manns létust í flóöum sem urðu í norðurhluta Spánar um helgina. Flóðunum hefur nú linnt og vegir og járnbrautir opnast hægt og sígandi en í gær var lítið um matvæli á flóðasvæðunum, símar flestir óvirkir og víða skortur á gasi og rafmagni og hreinu drykkjarvatni. Lögregluyfirvöld segja að ekki hafi enn tekist aö bera kennsl á öll líkin og talið er aö tala látinna hækki nokkuö eftir því sem skýrslur berast frá hjálp- arsveitum sem haldið hafa upp í f jöll- in. Carlos Garaikotxea, æðsta yfirvald á Baskasvæðunum, sagði að nú lægi næst fyrir aö reyna að koma iðnaði og annarri atvinnustarfsemi í gang að nýju. Juan Carlos Spánarkóngur og Soffía drottning hans fóru meö þyrlu yfir flóðasvæðin á sunnudag en þau höföu verið í fríi á Mallorca. Flóðanna varö einnig vart á svæðum Baska í Frakklandi þar sem fimm manns drukknuöu og sex er saknað. ÁKVEÐA KOSN- INGAR í ZAMBÍU Stjórnvöld í Zambíu hafa tilkynnt aö þing- og forsetakosningar verði haldn- ar í landinu 27. október. Kenneth Kaunda, forseti Zambíu, leysti upp þingið á föstudag í síðustu viku eftir aö hann haföi verið útnefndur eini for- setaframbjóöandi á flokksþingi UNIP- flokksins (Sameinaða þjóðlega sjálf- stæöisflokksins). Til þess að ná endur- kjöri þarf Kaunda að fá minnst 50% at- kvæöa en um 2 milljónir kjósenda eru á kjörskrá. Á þjóðþingi Zambíu eru 110 þing- menn, 105 kjörnir beinni kosningu en forseti tilnefnir 5 þingmenn. Á níunda flokksþingi UNIP var Kaunda útnefndur forsetaframbjóð- andi og einnig kjörin einróma 24 manna miðstjóm flokksins, tilnefnd af Kaunda. Hættir Begin við? Búist er við því að Menachem Begin, forsætisráðherra Israels, ákveði í dag hvort hann fylgi eftir orðum sínum um heigina og segi af sér. Nánustu félagar hans segja að hvort sem er geti orðið ofaná. Síðan Begin gaf þetta til kynna við meðráðherra sína og fleiri á sunnudag- inn hafa flokksbræður hans lagt fast aö honum að vera áfram. Að ísraelskum lögum verður forsæt- isráðherrann opinberlega að tilkynna forsetanum afsögn sína áður en hún tekur gildi. Begin hefur slegiö því á frest í tvo daga. — Sumir samherja hans eru ekki vissir um að hann ætli að láta veröa af því. Aðrir segja vonlaust að fá Begin til að hætta við. „Stormur í vatnsglasi Mikill meirihluti dönsku þjóðarinnar álitur að deila Dana og Svía vegna tilraunaborana Dana í Kattegat sé ekki annað en stormur í vatnsglasi. 79% aðspuröra sögöust þessarar skoðunar i skoðanakönnun sem Jyll- andsposten birti í gær. Jafnmargir sögðust styðja afstöðu dönsku ríkis- stjómarinnar í deilunni og aöeins 1% Dana sögðust styðja afstöðu Svía. 20% treystu sér ekki til að taka af- stöðu. Pierre Sehori ráðuneytisstjóri í sænska utanríkisráðuneytinu og Eigil Jörgensen, hinn danski starfsbróðir hans, hittust í Stokkhólmi í gær til að reyna að finna lausn á deilunni. Var þaö sjötti fundur embættismanna ríkisstjóma landanna vegna deilunn- ar. Báðum stjómum er umhugað að deilan leysist áöur en Olof Palme kem- ur í opinbera heimsókn til Kaup- mannahafnar 8. september. Enn sem komið er bendir þó fátt til þess að lausn sé í s jónmáli. -GAJ í Lundi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.