Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.1983, Qupperneq 31
DV. ÞRIÐ JUDAGUR 30. ÁGUST1983.
31
Sandkorn
Sandkorn
Sandkorn
Til yfirheyrslu?
Alllr vita að á íslandi er það
dónaskapur að tala við
ókunnuga, eins og það er
einnig talið vera ó Bretlandi.
Þannig geta menn búið órum
saman í samliggjandi búsum
hér á landi ón þess að skipt-
ast ó kveðjum eða athuga-
semdum um rignlnguna.
Þegar slíkar hegðunarregl-
ur eru brotnar, verður flest-
um frekar illa við. Þannlg
gerðist það í sjoppu hér um
daginn að tveir menn voru
inni og var verlð að afgreiða
annan. Hinn stillti sér upp
aftan við þann fyrri og mynd-
aði þannig biðröð (sem er
reyndar óþjóðlegt, en lótum
það vera). Inn kom þar mað-
• ur, góðglaður og stillti sér
þegar í stað upp á sinum stað
í blðröðinni. Skyndilega upp-
götvaði só hinn sami að
maðurinn fyrir framan hann
var nábúi hans og höfðu þeir
búið í sömu biokk í fimmtán
ór án þess að talast við. Undir
áhrifum Bakkusar sló hann á
öxl nábúans og kastaði ó
hann kveðju og spurði hann
hvernig hann hefði það?
Hinn brást hinn versti við,
hrökklaðist undan og spurði:
„Hva! Er ég í yfirheyrslu hér
eða hvað?”
Aska?
„Taktu einn bolla af Lizzie
Borden High School Bekkn-
um árgangi 1972, hópur af al-
gjörum vUlingum, svo vUlt-
um, að skólanum var lokað.
Bœttu við ögn af Chuck
Berry. Kryddaðu vel með
brjálœðing sem setlar að
borga f yrir sig hrekk sem þau
léku á hann fyrir tíu árum.
Láttu þetta brenna hægt og
rólega. Hvað færðu svo úr
því?”
öskubing, mstti ætla. En
því miður mun útkoman vera
kvikmynd og við skulum vona
að kvikmyndin sé betri en
málkunnátta þess sem skrif-
aði prógrammið (allar tU-
vitnanir í prógrammið eru
orðréttar og stafsetningu í
engu breytt).
Hvað svo með kvlkmynd-
ina? Samkvæmt prógrammi
er hún þánnig: „Hugsaðu þér
að Midsummer Night’s
Dream eftir Shakespeare, að
það væri skrifað eftir
Eygene Ionesco...”(!)
Rulluf
Og svo er eln saga fengin að
láni úr Degi á Akureyri:
Það er ekki gott að fó sér of
mikið neðan i þvi eins og eft-
irfarandi saga sannar: Mað-
ur nokkur sem var á leið heim
tU sin eftlr svaU næturinnar
heyrðl sagt dlmmum rómi
fyrir aftan slg: „Ertu full-
ur?” Er hann leit við só hann
krókódil einn mikinn og mun
hann hafa verið sá er spurði.
Maðurinn hélt áfram og aftur
spurði krókódillinn:
„Fullur?” Gekk svo elna
ferðina enn og þá tók mannin-
um aö leiðast þetta. Hótaði
hann krókódilnum öUu iliu ef
hann hætti þessu ekki. En
krókódUllnn lét sér ekki segj-
ast og spurðl enn einu slnni
dimmum rómi: „FuUur?”
Tók þá maðurinn sig tU, fór
með hendlna upp í krókódU-
inn og langt niður i maga
hans. Kíppti hendinni síðan
snöggt tU baka og eftir stóð
krókódUlinn ranghverfur og
undrandi. Áfram hélt maður-
inn, en ekki hafði hann lengi
gengið er hann heyrði sagt
fyriraftan sig: „Rulluf?”
Lærið að
ganga!
í Morgunblaðinu um helg-
ina var að flnna augiýsingu
frá Módelsamtökunum um
fjölbreytt námskeiðahald og
var þar fyrst upptalið alhliða-
námskeið. A alhliðanám-
skeiði þessu cr boðið upp á
kennsiu í ólíklegustu hlutum.
Þar munu sérfræðlngar leiö-
beina m.a. i hreinlæti, göngu
og hagsýni.
Það er auðvitað þarft verk
að kenna fólki hreinlæti og
löngu tími til kominn með
suma. Og hagsýni er ansi
hreint gagnleg líka. Kannski
mætti bjóða þingmönnum
hópafsiátt ó hagsýnitímum.
En best er þó að fóik skuli
loks eiga kost á kennslu í
göngu! Og reyndar furðulegt
að móður nóttúru skuli svo
lengi hafa haldist uppi einok-
'un á þeirri kennslu. Hér var
þó kominn timi til þess að
markaðsöflin fengju að ieika
lausum hala.
Umsjón:
Ólafur B. Guðnason.
Kvikmyndir
Kvikmyndir
Bekkjarklfkan (Class Reunion)
Leikstjóri: Michael Miller
Handritshöfundur: John Hughes
Framleiðandi: Matty Simmons
Tónlist: Peter Bomstein, Mark Goldenberg
auk Chuck Berry
Aðalhlutverk: Gerrit Graham, Fred McCarren,
Miriarn Flynn, Stophen Furst, Shelley Smith,
Michael Lerner.
Ég hlakkaði til að fara á þessa
mynd. Mér var tjáð að sama fólk og
gerði stórskemmtUega mynd, Delta
klíkuna, stæði að baki þessari mynd.
Aö vísu er aöaUeikarinn úr þeirri
mynd látinn, þaö er annar leikstjóri
og annar handritshöfundur. En sami
framleiðandi.
Margir leikarar úr Delta-kUkunni
skjóta upp koUinum í Bekkjar-
klíkunni. Efni kvikmyndarinnar er
einhvers konar sambland af gríni á
hrollvekjumyndir og gríni á mennta-
skólamyndir. Eins og svo oft þegar
fengist er við tvö yrkisefni í einu
heppnast hvorugt. Markmið
Bekkjarklíkunnar er að fá áhorf-
endur tU að hlæja og þrátt fyrir'
stanslaus fíflalæti leUrenda í tvo tíma
heppnast það ekki nema að Utlu
leyti. Það er að vísu stundum fyndiö
aö sjá blinda manneskju ganga á
veggi, brjálaðan mann hoppa um í
köflóttu pilsi, hasssvælandi negra og
álíka „djúphugsuö” atriöi. En fljót-
lega hætta hlátraskölUn, bros dvel’ur
á vörum manns einhverja stund en
breytist fljótlega í grettu.
Kvikmyndin Delta-kUkan mun
vera 11. tekjuhæsta mynd í sögu
kvikmyndanna og því kannske ekki
að undra að framleiðandinn Matty
Simmons skyldi hóa Uðinu saman til
að endurtaka leikinn. En sami
brandarinn er ekki fyndinn tvisvar
og áhorfendur hlæja ekki endalaust
að klisjum sem sést hafa þrjátíu
sinnum áður á hvíta tjaldmu.
Bekkjarklíkan er því miöur harla
bitlaus grínmynd, þótt henni sé ekki
alls varnað. Maður hefur einhvern
veginn á tilfinninguni að tökur hafi
hafist eftir að fyrsta senan var
skrifuð án þess að búið væri að
ákveöa hvernig myndin ætti að vera í
heild.
Það væri ekki ónýtt ef Simmons
og hans liði tækist ems vel upp aftur
og í Delta-kUkunni. En við veröum aö
bíða enn um sinn eftir því.
ArniSnævarr
Fíílalætin í Bekkjarklikuiini hætta fljótlega að vera fyndin.
Bíóhöllin — Bekkjarklíkan:
BITLAUST GRÍN
STARFSMAÐUR - MYNDAGERÐ
DV óskar að ráða starfsmann í myndagerð blaðsins, við fram-
kötlun og stækkun mynda. Vinnutimi frá kl. 12 til 20.
Þarf að geta hafiö störf sem fyrst.
Umsóknum sé skilað til DV, Síðumúla 14, merkt „myndagerð"
fyrir 5. september.
»!™aríl lyri.
alla
ÚRVALS EFNI
AF
ÖLLU TAGI.
Fæst á næsta blaðsölustaö,