Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.1983, Qupperneq 32

Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.1983, Qupperneq 32
32 DV. ÞRIÐJUDAGUR 30. ÁGUST1983. Sviðsljósið Sviðsljósið Sviðsljósið afkrafti Hlutlrnir geta oft á tíðum verið öfugsnúnir. Hvernig litist þér á að vera elskaður og dáöur af öllum sem ekki þekkja þig en hataður af þínum nánustu? Svo er nefnilega komið fyrir engum öðrum en Ringo Starr. Sá gaur er aðallega þekktur fyrir trommuleik sinn hjá Bítlun- um og á hann í vandræðum með sautján ára gamlan son sinn, hann Zak. Stráksi hcfur tekið upp á þeim ósóma að drekka, og það í óhófi, og einnig neytir hann eiturlyfja af miklum krafti. Menn gengu á strák til að reyna aö fá skýringu á þess- um miður heilbrigðu iifnaðarhátt- um. Aðalástæðuna sagði hann vera að hann hataðl kariinn hann pabba sinn. Einnig hataði hann það að vera sonur bítils, sömuleiðis hataði hann Ringo fyrir að hafa skilið við móður sína, hana Maureen. Zak hataöi hann ennfremur fyrir að hafa gifst Barböru Bach og að lokum sagöist hann einnig hata að heyra af afrekum föður síns við trommusettið. Ekki verður hatast meira i bili. Maura- bani Þetta nýfædda litla afstyrmi á myndinni er eins og allir vita myr- mecophaga tridactyla. Dýrfð fæðist blint en að nokkrum mán- uöum liðnum er það vandamál úr sögunni og dýríð þess albúið að taka til starfa. Um ætt þess og upp- runa er það helst að segja að þetta er suður-amerískt spendýr af ætt- bálki tannleysingja, og eru skordýr aðalfæða þeirrar ættar. Þar sem dýr þessi hafa ekki tennur til að bryðja pöddumar með sjúga þaa þessa geðslegu fæðu upp með þar til gerðum rana. Þó allt sé sogið sem að rana kemur þá er ein teg- und skorkvlkindls sem er efst á óskallstanum og er það hinn sistrit- andi maur. Enda er það svo að skepna þessi er á islensku kennd vlð uppáhaldsfæðu sina og köiluö mauraæta. i. Tvœr klassískar, í það minnsta að sjá i svarthvitu. Mikil hárgreiðslusýning var haldin í veitingahúsinu Broad- way á fimmtudaginn í síðustu viku. Fyrir þessari sýningu, sem stóð í einar tvær klukkustundir, stóð heildverslunin Eldborg sem fékk hingað til lands tvo Englendinga, þau Maureen Quigley og Laurence Hegarty. Komu þau frá hárgreiösluskóla þar í landi sem heitir Jingles. Á sýningu þessa mættu um f jögur hundruð manns og fylgdust með þeim Maureen og Laurence. Voru menn mjög ánægöir með útkomuna, enda skrautleg. -DVmyndir E.Ó./SLS. Eins og sjá má báru sumar greiðslurnar vott um mikla hug- kvæmni. Þessi greiðsla kemur sér ábyggilega vel í vætutíðinni hér sunnanlands. Pessi unadsfagra leggjadís heitir Elendra Vallone og er ítölsk leikkona. Hún var valin til þess að leika á móti Marlon Brando í kvikmynd sem gera á um líf og störf Al Capone stórglœpamanns. Er leikstjórinn var spurður hvað hefði ráðið því að hún Elenora var valin í hlutverkið var svarið mjög heiðarlegt: ,,Vegna útlitsins auðvit- að. ” En til þess að karlremban vœri ekki yfirgengileg var því bœtt við að stúlkan vœri mjög góð leikkona. Hún á ekki langt að sœkja þá gáfu því að foreldrar hennar i eru þekktir leikarar heima á Ítalíu. Stressað- irgræða meira Að undanförnu hefur verið fjall- að um hve hættulegt það er að vera taugaveiklaður og stressaður meö tilliti til hjartasjúkdóma. Ný og at- hyglisverð könnun sem gerð var í Ameríku leiddi í ljós að það borgar sig fjárhagslega að vera stress-- aður. Könnunin var framkvæmd við Washington háskólann i St. Louis og voru 283 rannsakaðir. 1 ljós kom að þeir sem voru taugaveiklaöir og stressaöir í þessum hópi höföu hvorki meira né minna en 21 pró- sent meiri tekjur en hinir „heil- brigðu”. Þeir sem kaliaðir voru heilbrigðir voru þeir sem ekki höfðu fengið fleiri en þrjá andlega kvilia, eins og taugaspenning eða vanstiilingu á taugum. Hinir óheilbrigðu voru hins vegar þeir sem voru sífeilt kvíðnir, fengu aösvif, verk fyrir brjóstið, kvíða- köst eða voru sífellt veíklaðir á taugum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.