Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1983, Blaðsíða 4
DV. FÖSTUDAGUR 9. SEPTEMBER1983.
6,5 mills hækka í 10 mills:
10 AUKAMILUÓNIR A
mAniim FYRIR ORKUNA
— hvað segja stjórnmálamennimir?
Það eru skiptar skodanir um ágœti þess bráðabirgðasamkomulags sem gert var í Sviss í fyrradag á fundi full-
trúa Alusuisse og tslensku viðrœðunefndarinnar um orkusölu til álversins í Straumsvík.
Fulltrúar stjórnmálaflokkanna eru ekki á einu máli, segja mismikið og misjafnt.
H jörleifur Guttormsson, fyrrverandi
iðnaðarráðherra:
Nú eru útlending-
amir kampakátir
— en þessir samningar þýða f raun uppgjöf
íslenskra stjómvalda
„Eg hef ekki séð neinn samning, en
eftir því sem skilja má á skrifum
stjómarblaðanna er hér um ákaflega
alvarlegan atburð að ræöa og stefnt í
algera ófæru,” sagöi Hjörleifur Gutt-
ormsson, fyrrverandi iðnaðar-.
ráðherra, í samtali viö DV í gær. „Sú
hækkun á raforkuverði, sem hér er
verið aö semja um, er dýru verði keypt
og kemur þar aðallega þrennt til. I
fyrsta lagi fallast íslensk stjórnvöld á
helmings stækkun álversins. Þau
fallast á að Alusuisse fái heimild til að.
selja þriðja aðila helming hlutabréfa í
álverinu, en það þýðir í reynd að í
heiminn er kominn nýr umboösaöili ís-
lenskra orkulinda. Ennfremur fallast
þau á kröfu Alusuisse um að taka
skattakröfu Islendinga úr einföldum
gerðardómi og setja í mun flóknari far-
veg. Ailt þetta fær auöhringurinn fýrir
raforkuverðshækkunina og þó svo að
verð á áli hafi hækkað um helming á
undanförnum 6 mánuðum, endurspegl-
ast sá þáttur hvergi í samningunum.
Islendingar hafa ekki einu sinni skipt á
sléttu, þessir samningar þýða í raun
uppgjöf íslenskrastjómvalda.” -EIR.
Magnús H. Magnússon, varafor-
maður Alþýðuflokksins.
Magnús Magnússon,
varaformaður
Alþýðuflokksins:
Getur
gengið
— í mjög stuttan tíma
„Eg hef ekki sótt þingflokksfundi aö
undanförnu og veit því ekki hver hugur
manna er þar,” sagði Magnús
Magnússon, varaformaður Alþýðu-
flokksins í gær. „En persónulega lít ég
þannig á að ef hér er um að ræða
bráðabirgðasamkomulag, sem gildir
aðeins í mjög stuttan tíma, þá er þetta
viðunandi. Og ég undirstrika, — í mjög
stuttan tíma. Ef hér er aftur á móti um
aö ræða endanlega afgreiðslu málsins
þá er þetta samkomulag afleitt og afar
slæmC ” sagði Magnús Magnússon. EIR.
Hjörleifur Guttormsson, fv. iðnaðarráðherra, á fundi með dr. Miiller, aðal-
samninganefndarmanni Alusuisse.
ÍSALg
Birgir ísleifur Gunnarsson alþingismaður:
reiðir nú hærra raforku-
verð en norsku álverin
Birgir Isleifur Gunnarsson alþingis-
maður.
„Eg tel þetta bráðabirgöasamkomu-
lag viðunandi eins og sakir standa,”
sagði Birgir Isleifur Gunnarsson
alþingismaður í gær, ,,en verðið þarf
að hækka, það er ljóst. I þessu sam-
bandi vil ég benda á að samkvæmt
þessu samkomulagi, sem nú hefur
— en ekkinógsamt
náðst, er ISAL farið að greiða hærra
raforkuverð en norsku álverin. Islend-
ingar f á nú 10 mills á meðan Norðmenn
láta sér nægja 9,43 mills og samkvæmt
þeim heimildum, sem ég hef, ætla
Norðmennirnir ekki að fara fram á
neina endurskoðun á sínum verðum í
náinni framtíð. Þetta er athyglis-
verður samanburður en breytir ekki
þeirri staðreynd að við verðum að
halda áfram að leita hófanna og kanna
hvar kaupin gerast best á eyrinni í það
og það skiptið,” sagði Birgir Isleifur.
-EIR.
Páll Pétursson, formaður þingflokks
Framsóknarflokksins.
Páll Pétursson, formaður
þingflokks
framsóknarmanna:
„Nocomment”
— segi ekki orð
— Þið fáið ekki orð upp úr mér.
sagði Páll Pétursson á Höllustöðum,
formaður þingflokks framsóknar-
manna í gær.
— Nocomment!,nocomment!
-EIR.
Svo mælir Svarthöfði
Svo mælir Svarthöfði
Svo mælir Svarthöfði
Pólitík handa börnum
öðru hverju vill svo til að undir-
ritaður sér Alþýðublaðið. Ekki
er nú lesningln beint spennandi en
það er þó meira um að vera þar
flesta daga en í Þjóðviljanum sem er
svo altekinn af stjórnarandstöðunni
að undanfarnar vikur hefur maður
alitaf verið að lesa sama blaðið.
Aiþýðublaðið hefur þó tilhneigingu
til breytinga þótt tími þess fari nú
að mestu i að ræða hvað kratar elgi
að gera eftir að það fór að rigna upp í
nefið á þeim, a.m.k. fyrir vestan.
Það sem þeir ætla að gera á næstunni
er að ræða sveitarstjórnarmál,
flokksmál og landsmál í Munaðar-
nesi. Sigurður E. Guðmundsson
verður aðalræðumaður og talar um
húsnæðismál, liklega til þess að
flokkurinn fái hina skuldugu til að
koma í munaðinn uppi í nesinu.
Undb- liðnum sveitarstjórnarmál
ræðir Guðmundur Árni Stefánsson
vanda sveitarfélaga á íslandi undir
iiðnum: Kjarnorkuvopnalaus sveit-
arfélög. Þessl stórpólitíska ráðstefna
Alþýðuflokksins í Munaðarnesi mun
færa flokkinn nær þeim öriögum sem
honum voru ráðin með brottför Bene-
dikts Gröndals.
Sumir menn eru i pélitíkinni þar
sem mest ber á henni. Aðrir sltja við
það heima hjá sér að semja
ályktanir, frumvörp og áiltsgerðir
handa bæklingum, tli að geta komið
á almannavettvang án þess að þurfa
að gera annað en visa til prentaðra
bæklinga með ósk um að þá ætti fólk
að kynna sér. Þessi einkastjómmál
fleyta flokkum varla langt á veg en
þau era hugguleg og kyrrlát og bera
dauðann í sér. Stjórnarandstaða
Alþýðuflokksins, svo dæmi sé tekið,
heyrist ekki en Alþýðubandalagið
hefur alfarið tekið þann þátt stjóra-
málanna að sér af allri þeirri kergju
og þrástagi sem þ ví einu er iagið.
Alþýðuflokkurinn unir sér við eld-
húsborðin á meðan. við að krassa
niður mismunandi löng uppköst að
einhverju sem enginn fær að vita
um af því að í f jölmlðlum er ekki flutt
efni bæklinga, jafnvei þótt þeir séu
sendir þangað.
Nýlega gerði einn helsti foringi
krata, Sighvatur Björgvinsson það
að tiliögu sinni hér í DV að
Alþýðuflokkur og Bandalag
jafnaðarmanna tækju upp ákveðna
samstöðu í helsíu málaflokkum á
komandi þlngi svo sem eins og við af-
greiðslu fjárlaga og fleira. Kjartan
Jóhannsson vék sér frá eldhúsborði
stjórnmálanna um sinn og lýsti þvi
yfir í Alþýðublaðinu að hann
væri hlynntur samstöðunni en foringi
bandalagsins segir í sama blaði að
hann reikni ekki með neinni sam-
stöðu umfram það sem eðlilegt getur
talist milli flokka í st jóraarandstöðu.
Þá ættu svörin sem sagt að liggja
fyrir. Hvoragur þessara aðila virðist
gera sér grein fyrir hver annast
stjórnarandstöðuna fyrir þá um
þessar mundir. Þá er heldur ekki
athugað hver staða þessara tveggja
samstöðulausu samtaka verður i
næstu kosningum. Ætli þeir hefðu
ekki gott af elnhverju samstarfi, og
sterkara er í einstöku stórmálum að
koma fram sem tíu þingmenn en
6+4. Þá mundu tíu þingmenn veita
Alþýðubandalaginu nokkra keppni í
stjóraarandstöðunni sem væri hoil
fyrir krata. Þeir vissu þá frekar
hvað þeir vttdu.
En við skulum ekki gleyma kjara-
orkuvopiialau.su sveitarfélögunum.
Menn era að vísu ungir og telja
margt brýnna en viðhorf og skoðanir
á stórmálum í íslensku efnahagslifi.
Baraapélitik hefur ekki beiniinis ver-
ið rekin í landinu. En sandkassa-
leikir eru þó enn ofarlega í huga
margra sem fara beint úr umsjá
skóla út í stjóramálaiífið. Þetta
beraska fólk verður eðlilega að hafa
sin áhugamál. Hitt er annað hvaða
erindi þau áhugamál eiga á vettvang
fullorðinna. Kjaraorkuvopnalaus
sveitarfélög ætti auðvitað að ræða
frekar á fjórðungsþingum enda
stendur slikum þingum nær að
hbtdra að Langanesið ráðist á Rauf-
arhöfn eða Eiðaþinghá helli sér yfir
Reyðarfjörð en Alþýðuflokknum
sem hefur engin ráð á kjarnorku-
vopnum svo vitað sé. Alþýðublaðið
og ritstjóri þess telja óbeint að sveit-
arfélög á íslandi ráði nú þegar yfir
talsverðu af kjaraorkuvopnum. Það
er huggulegur f jandi mitt i friðarhá-
tiðinnl.
Svarthöfði.