Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1983, Síða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1983, Síða 6
mi HSflMSTqag .e HuOACiirraö'í .va DV. FÖSTUDAGUR 9. SEPTEMBER1983. • Efstasund • Ljósheima • Grunna • Austurbrún • Hátún • Þórsgötu • Sólvelli • Skúlagötu • Grundarstíg • Grettisgötu • Skipholt • Arnarnes Garðabæ • Fossvogshverfi • Höfðahverfi • Túngötu. .... EINNIG VANTAR OKKUR SENDLA Á AFGREIÐSLU. VINNUTÍMI KL. 12-18 AÐ FULLU EÐA HLUTA. ATH. ÞARF AÐ HAFA HJÓL. wí3& Líbanon: Friðargæslusveitir kalla á skothríð frá herskipum Bandarískir sjóliöar í alþjóölegu friðargæslusveitunum í Beirút hafa hótað að auka sprengjuárásir sínar í hefndarskyni fyrir sprengjuárásir á stöðvar þeirra. Bandariska freigát- an Bowen, sem liggur undan Beirút, skaut tveim skotum aö fallbyssu- hreiðrum sem höföu angrað Banda- ríkjamenn með skothríð sinni. Bandaríkjamenn sögðu ekki hvaða fylkingu Líbanonbúa fallbyssu- hreiðrið haföi tilheyrt en almennt er Líbanski stjómarherinn hefur staðið í ströngu frá því ísraelsmenn drógu heri sina burt frá svæðinu umhverfis Beirút. taiið að þar hafi stórskotalið drúsa verið á ferðinni. Samkvæmt frásögnum útvarpsins í Beirút féllu nokkrar sprengjur á Vestur-Beirút og einnig einkaspítala og reyndist nauðsynlegt að flytja sjúklinga á brott. Sagði útvarpið einnig að eftir skotin frá freigátunni hefði fallbyssuhreiðrið þagnað en ekki hefur frést um mannfall. Meðan á skothríöinni umhverfis Beirút stóð reyndu menn aö koma á aftur tilraunum til friðarsamninga og sögðu talsmenn Líbanonstjómar aö Saudi-Arabar hefðu failist á að halda áfram samningaumleitunum sinum og friðarumleitunum. Saudi- Arabar tilkynntu í gær að þeir hygð- ust láta af þvi hlutverki sínu. Stanslaus átök hafa veríð milli Kristinna hægrimanna og drúsa, frá því Israelsmenn drógu heri sína til baka frá Shouf-fjöllum. Þá hefur stjómarher Líbanon einnig búið um sig umhverfis Beirút, til þess að stöðva hugsanlega sókn drúsa til höfuðborgarinnar. Chile: Tveir látnir eftir mótmæli Tveir létust og nokkur f jöldi mót- mælenda særðist í Chile í nótt þegar til átaka kom milli mótmæl- enda og lögreglu í Santíagó og Valparaíso að loknum löngum degi mótmæla gegn ríkisstjórn Pinochets. Samkvæmt frásögn óháðrar útvarpsstöðvar í Chile munu um 600 manns hafa verið teknir fastir af lögreglumönnum sem óku fram og aftur um miðborg Santiagó í gær og dreifðu mann- fjölda hvar sem fólk hafði komið saman. Lögregluyfirvöld segja að allir þeir sem handteknir voru hafi verið látnir lausir fljótlega. HongKong: Fellibylur genguryfir Fellibylurinn Ellen gekk yfir Hong Kong í nótt og er þaö talinn einn versti fellibylur sem þar hefur gengiö yfir í fjögur ár. Tylft skipa losnaði upp í höfninni og rak á land. Þó hefur ekki frést af mannskaða um borð í skipunum. Tilraunir til þess að ná áhöfninni af líberíska olíuskipinu Pacific Coral mistókust þó en skipið hafði tilkynnt að þaö væri við það að sökkva. I landi lést einn maður og um 50 manns meiddust. Kom veðrið harð- ast niður á fátækrahverfum í Hong Kong þar sem kofar hrundu og fjöldi manna er heimilislaus. Þá rifnuðu verkpaiiar frá húsum í byggingu og verslunarskilti þeytt- ust eins og trjálauf um götur borgarinnar. Rannsékná dauða pólsks námsmanns Pólsk yfirvöld lýstu því yfir í gær að ákæra yrði gefin út á hendur tveimur lögregiumönnum, sjúkra- bílstjórum og tveimur læknurr fyrir að eiga sök á dauöa náms- manns sem lést eftir handtöku í maísíðastliðnum. Grzegors Przemyk, sautján ára gamall, lést nokkrum dögum eftir að lögregian dreifði hópi fólks sem safnast haföi saman undir fánum Samstöðu til aö mótmæla her- stjórninni. Talið er að hann hafi veriö handtekinn við það tækifæri en lögreglan segir að hann hafi ver- ið handtekinn vegna ölvunar snemma að morgni. Dauöi Przemyk vakti mikla reiði og tugir þúsunda voru viðstaddir jaröarför hans sem snerist upp í stuðnings- fundviðSamstöðu. Przemyk var fyrst fluttur á lög- reglustöð þar sem talið er að honum hafi verið misþyrmt. Siðan var hann fluttur í sjúkrabíl á geö- veikrahæli en sleppt daginn eftir. Hann lést síðan einum degi siðar af innvortis áverkum. Rannsóknin beinist að því hvort hann hafi feng- ið áverkana á lögreglustöðinni og í sjúkrabílnum og einnig eru læknamir geröir ábyrgir fyrir að hafa sent hann heim án þess aö gera sér grein fyrir hversu illa hannvarslasaður. Skrifstofum 4 erofíot lokað Ronald Reagan Bandaríkjaforseti hefur aukiö við refsiaðgerðir stjómar sinnar gegn Sovétmönnum, skipað svo fyrir aö skrifstofum sovéska flugfé- lagsins Aeroflot í Bandaríkjunum verði lokað og bannað bandarískum flugfélögum að eiga samstarf við sovéska flugfélagiö. Reagan hefur beð- ið Flugmálastofnun Bandarikjanna um að banna bandarískum flugfélög- um að samhæfa áætlanir sínar við áætlanir Aeroflot og banna öll við- AFGREIÐSLA SIMI27022 skiptasambönd við flugfélagið. Þessi aðgerð Bandaríkjaforseta fylgir í kjölfar fundar þeirra George Shultz, utanríkisráðherra Bandaríkj- anna, og Andrei Gromyko, utanríkis- ráðherra Sovétríkjanna, um málefni kóresku farþegaþotunnar sem Sovét- menn skutu niður yfir Sakhalin-eyju í fyrri viku. Bandarískir embættismenn sögðu fund utanríkisráöherranna hafa verið „algerlega ófullnægjandi”. Koma þessar aðgerðir Bandarikja- manna til viðbótar við fyrri refsiað- gerðir sem tilkynntar vom á mánudag og þóttu frekar mildar. Reagan hefur fyrirskipað að skrif- stofum Aeroflot í New York og Wash- ington verði lokaö og aö þrír starfs- menn flugfélagsins skuli fara úr landi. Þetta bann mun ekki hafa mikil áhrif þar sem Aeroflot var svipt lendingar- leyfi í Bandaríkjunum 1982, í kjölfar setningar herlaga í PóllandL Eftir „ófullnægjandl” fund utanrik- isráðherra Bandarikjanna og Sovét- ríkjanna hefur Ronald Reagan Banda- ríkjaforsetl fyrirskipað lokun skrif- stofa sovéska flugfélagsins Aeroflot i Bandarikjunum. Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.