Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1983, Síða 10
láf
Útlönd
Útlönd Útlönd Útlönd
„Svartfugl", eóa SR-71, som fer með þreföldum hraöa hljóðsins og er háfleyg mjög.
SAMKEPPNI í
NJÓSNAFLUGI
„Bjömlnn", TUSB, undir efdrUti benderlskrer herþotu. Tíður gestur yfir
IskmdsHum.
Mál suður-kóresku farþegaþot-
unnar hefur dregið skuggahliðar
njósnaflugs inn í sviðsljósið. Menn
eru í því umtali öllu minntir á að
flugvélar hafa verið notaðar til þess
að gægjast inn á yfirráðasvæði óvin-
arins og jafnvel prófa hjá honum við-
brögðin.
I fyrstu yfirlýsingum Sovétmanna
í öllu fjaðrafokinu út af árásinni á
Júmbóþotuna reyndu þeir að svara
fordæmingum fyrir að senda með
köldu blóði 269 saklausa borgara inn
í eilífðina með því að gefa í skyn að
Boeing-747 vélin hefði veriö í njósna-
flugi. Og þar sem sókn þykir besta
vömin viidu þeir snúa fordæming-
unni á hendur Bandaríkjastjómar
fyrir að skirrast ekki við að tefla í
hættu 269 mannslífum með því að
dulbúa njósnaverk sem farþegaflug.
Njósnavélar
þykja ómissandi
Njósnir úr lofti hafa fyrr valdiö úlf-
úð milli austurs og vesturs. Fróðir
menn segja aö n jósnaflug hafi aukist
jafnt og þétt með árunum enda sé
hemaðarsérfræðingum mikil nauö-
syn á öllum fróðleiksmolum sem þeir
geti hnuplað um andstæðinginn.
Jafnvel á tímum háþróaðra njósna-
hnatta hefur gamla góða njósnaflug-
vélin eða könnunarflugvélin, eins og
notendurnir vilja sjálfir kalla hana,
reynst ómissandi. — Sérfræðingar
ætla aö það séu naumast færri en
fjörutíu njósnavélar frá ýmsum
löndum á lofti í einu dag hvern.
Bandaríkjamenn viðurkenndu að
þeir hefðu haft eina siíka á sveimi í
grennd viö svæðiö þar sem kóreska
farþegavélin var skotin niður, en að
hún hefði verið lent aftur í bækistöð
sinni í Alaska fullri klukkustundu
áður en árásin var gerð á kóresku
vélina. Þeir töldu að í stutta stund
hefðu Sovétmenn haft báðar þessar
vélar inni á radar hjá sér samtímis.
Margþætt verkefni
Njósnaflugvélar eru hannaðar sér-
staklega og aðallega meö það fyrir
augum að taka loftmyndir Langt inni
á yfirráðasvæði óvinarins og hlera
fjarskipti hans. En ósjaldan eru þær
einnig sendar annarra og hættulegri
erinda. Að prófa viðbragðssnerpu
loftvamakerfis óvinarins.
Sovétmenn hafa viljað gefa í skyn
að Boeing 747-þotan hafi verið tekin í
misgripum fyrir bandarísku RC-135
njósnavélina sem var á sveimi á
þessum slóðum skömmu fyrir árás-
ina. Á Vesturlöndum hafa menn ekki
viljað taka þessa skýringu gilda þar
sem þessum flugvélategundum svipi
ekki svo mikið saman. Þó þarf það
ekki að vera mjög fjarlæg skýring.
Hafi RC-135 vélin verið þarna gagn-
gert í þeim erindum að prófa við-
brögð loftvarna Rússa við
Kamtsjatka-skaga er ekki ólíklegt að
sovésku orrustuþoturnar, sem send-
ar voru á loft, hafi verið að svipast
um eftir henni en flogið fram á far-
þegaþotuna í staðinn. Og því verður
ekki á móti mælt að svo langt var
kóreska farþegaþotan komin af
réttri leið og inn yfir yfirráðasvæði
Rússa að þeir hafa naumast átt sh'kr-
arvélarvonþar.
Rússar bráðir
Það hefur lengi loöað við Rússana
aö vera taugatrekktir út af njósna-
flugi og það kann að hafa verið móð-
ur í þeim þegar orrustuvélarnar
voru sendar í loftið eftir að RC-135
véhn hafði skapraunað þeim. Hver
sem síðan ákvörðunina tók kann að
hafa látið skapið hiaupa með sig í
gönur.
Eitt frægasta njósnaflugsmálið,
sem upp hefur komið, var 1960 þegar
Eitt viðemeste njósnafíugsmilið
reis út ef ferð Frencis Gery Pow-
ers sem skotinn ver niður i U-2
njósnevól sinni yfir Sovótrikjun-
um.
U-2, bandarisk njósnavél, með flug-
manninn Grancis Gary Powers við
stýrið var skotin niður yfir Sovét-
ríkjunum í maímánuði. Það kældi
sambúð ríkjanna og gerði að engu
áform um fund fjórveldanna sem
halda átti í París það ár. Réttarhöld-
in yfir Powers leiddu athyglina að
njósnakapphlaupi risaveldanna.
Til njósnaflugs reiða Rússar sig
enn að miklu leyti á eldri heföbundn-
ar sprengjuflugvélar sem búnar
hafa verið háþróuðum tækjakosti.
Bandaríkjamenn hafa haldið nokkru
forskoti í gerð nýtískulegra véla sem
gagngert hafa verið smíðaðar til
njósnaflugs.
Njósnahnettir
hafa annmarka
Njósnavélar bæta upp og fylla í
skörð sem upplýsingasöfnun njósna-
hnattanna nær ekki til. Þær vinna
ýmis verk sem geimtækin geta ekki
unnið. Gervihnettirnir eru til dæmis
á eilífu hringsóh umhverfis jörðina
og fara tiltölulega hratt yfir. Enginn
þeirra er þess umkominn að taka ná-
kvæma myndaröö af sama deplin-
um. Gervihnöttur á borð við „Stór-
fugl”, eins og bandaríski Lockheed-
hnötturinn er kallaður, er útbúinn
afamæmum myndatökubúnaði en
hann er 24 stundir aö fara sporbraut
sína og því liöur sólarhringur frá því
að hann tekur mynd af einum blettin-
um og þar til hann tekur mynd af
sama blettinum aftur.
Aftur á móti getur njósnaflugvél
sveimað tímunum saman yfir sama
svæðinu í mikilli hæð og tekið þús-
undir mynda eða hlerað f jarskipti.
U-2 og SR-71
Það var U-2, sem með sitt gífur-
lega vænghaf gat komist upp í 27.500
metra hæð — sem fyrst uppgötvaði
rússnesku eldflaugarnar á Kúbu 1962
en þær voru tilefni Kúbudeilunnar.
En eftir að slíkar vélar höfðu verið
skotnar niður yfir Sovétríkjunum,
Kina og Kúbu, hallaði bandariska
leyniþjónustan (CIA) sér meira að
enn fullkomnari flugvél. — SR-71,
sem betur er þekkt undir nafninu
„Svartfugl”, fer með þreföldum
hraða hljóösins og eins og U-2 kemst
hún upp i 27.500 metra hæð. Hún er
því afskaplega erfitt skotmark fyrir
aðrar flugvélar eða eldflaugar.
„Svartfuglar” voru notaðir í Víet-
namstríðinu og eins í deilum Austur-
landa nær. Einnig hafa þessar vélar
reynst mjög nytsamar þegar Banda-
ríkjastjóm hefur verið beðin um að
hafa eftirlit með því hvort ákvæði
vopnahléssamninga Israela og
araba hafi verið haldin.
Hlera úr
mikilli fjarlægð
Á meöan sumar vélar eru smiðað-
ar meö það fyrir augum að fljúga í
myndatökuleiðangra yfir óvinasvæði
sem krefst þess aö þær rjúfi lofthelgi
viðkomandi ríkis eru aðrar útbúnar
til hlustunar. Svo sem eins og RC-135
sem getur sinnt slíku verkefni ágæt-
lega og samt verið langt utan hins
bannaöa svæðis. Með sérstökum
radarbúnaöi (kallaöur SLAR) geta
þær numið fjarskipti á mjög löngu
færi án þess aö þurfa að hætta sér í
færi við loftvarnir óvinarins. SLAR
er til dæmis notaður til þess að nema
hljóðmerkin sem notuð eru í tilraun-
um með nýjar eldflaugar.
Eftir íslömsku byltinguna 1 Iran
1979 varð CIA að yfirgefa mikilvæg-
ar hiustunarstöðvar á landamærum
Sovétríkjanna og Irans en þær voru
mjög notaðar til að hlera eldflauga-
tilraunir Sovétmanna. Við missi
þessara stöðva uröu ,,Svartfuglam-
ir” enn mikilvægari en áður. Sumar
þessar vélar hafa bækistöðvar í
AkrotiriáKýpur.
1 Evrópu þar sem herir Vestur-
landa horfast í augu við algert ofur-
efli skriðdreka og annars hefðbund-
ins herbúnaðar Varsjárbandalagsins
geta upplýsingar sem fást meö
njósnaflugi gert allan gæfumuninn.
Vamarlið NATO er þunnskipað og
dreift yfir stórt svæði og hraði liös-
flutninga gæti því skipt höfuðmáli ef
til innrásar kæmi einhvers staðar og
flytja þyrfti liðsauka þangaö. Því
fyrr sem njósnaþjónustan getur gert
viðvart um slíkar hreyfingar því
lengri frestur til viðbragða.
„Björninn"
og „Foxbat"
Sovétmenn nota mikinn fjölda
njósnaflugvéla og stjórnir Vestur-
landa hafa æ ofan í æ kvartað undan
ferðum slíkra véla i námunda við
viökvæma staði þar sem annaöhvort
fara fram heræfingar eða unnið er að
uppsetningu nýrra herstöðva. I einu
landi V-Evrópu segja menn að þaö
gerist að meðaltali þrisvar í viku að
orrustuþotur séu sendar á loft til
þess að stugga við sovéskum njósna-
flugvélum sem þyki gerast full að-
gangsharðar.
Einhver mest notaða njósnavél
Sovétmanna er „Bjöminn”, sem er
tíður gestur inni á flugumsjónar-
svæði Islendinga. Vélartegundin
heitir Tupolev TU-95. Auk þess að
stunda njósnir, myndatökur og hler-
anir getur hún leiðbeint eldflaugum
sem sendar em af löngu færi til
höfuös skipum.
Á meðan Bandaríkjamenn nota
„Svartfugl” hafa Sovétmenn sinn
.í'oxbat”, sem er MIG-25, en hún
nær mikilli lofthæð. Á miðjum síð-
asta áratug var frá því greint að ein
slík hefði flogið yfir Vestur-Evrópu
án þess að loftvarnir NATO hefðu
nokkuð getað við því gert.