Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1983, Side 32
1
hverri
viku
Báðarþyrlur
Gæslunnar
óflughæfar
— varahlutir
fástekki
leystir úr tolli
Báöar þyrlur Landhelgisgæslunnar
eru nú óflughæfar. Ástæöan er sú aö
fjármagn fæst ekki til aö leysa út vara-
hluti, aö sögn Þorsteins Þorsteins-
sonar, flugrekstrarstjóra stofnunar-
innar.
„Þetta er ekkert sem kemur okkur á
óvart. Þetta er vandamál sem öll ríkis-
fyrirtæki eiga viö aö stríða,” sagöi
Þorsteinn.
Minni þyrlan, TF-GRO, getur ekki
flogiö þar sem rótorblað vantar. Þaö
blaö er komiö til landsins en fæst ekki
úrtolli.
„Fyrir nokkru urðum viö varir viö
hnignun í rótorblaðinu. Eftir leitarflug
viö Eyrarbakka sáum við aö hnignunin
var komin niöur fyrir þau mörk sem
viö teljum örugg,” sagöi Þoreteinn.
TF-RÁN kom úr skoöun í gær. Enn
vantar aö leysa út olíuþrýsimæli til aö
hún veröi flughæf. Þoreteinn sagöist þó
vona aö þaö gerðist fyrir kvöldiö.
-KMU/KLP.
Leitað við
Ölfusárós
Leit aö bræðrunum tveim, sem fór-
ust meö Bakkavík ÁR-100 í fyrradag,
stóö fram yfir miönætti í nótt. Leit
hófst að nýju í morgun.
Leitaö er meðfram strandlengjunni
milli Eyrarbakka og Þorlákshafnar og
inn í ölfusárós. Mikiö brak úr bátnum
hefur rekiö á land, aöallega vestan
megin við ósinn.
Það þykir ganga kraftaverki næst aö
Vigfús Markússon, 22 ára, skyldi kom-
ast lífs af úr þessum hildarleik. Honum
er lýst sem miklum þrekmanni. Hann
hefur hlotið þjálfun við köfun og unnið
við að leysa netaflækjur úr skrúfum
skipa. Sú reynsla hans hefur áreiðan-
lega átt stóran þátt i björgun hans.
Vigfúsi heilsaðist vel á Sjúkrahúsi
Suöurlands á Selfossi í morgun. Daníel
Daníelsson yfirlæknir sagöi aö Vigfús
heföi ekki óskað ennþá aö gefa skýrslu
um atburöinn.
-KMU.
LOKI
Þá hefur endanlega veríð
tekið fyrir rassaköstin /
Læragjá.
FÖSTUDAGUR 9. SEPTEMBER 1983.
27022 AUGLÝSINGAR SÍÐUMÚLA33
SAAÁAUGLÝSINGAR —AFGREIÐSLA
SKRIFSTOFUR
ÞVERHOLTI11
86611 RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12—14
Frjalst,ohao dagblað
Nauthólsvík:
Lækurinn vinsæli i Nauthólsvík
mun hugsanlega aldrei opnast fram-
ar til baöa. Heitt vatn hefur ekki
runnið í hann frá því í apríl síðast-
liðnum.
„Það er eins líklegt að þetta verði
svona um alla framtíð,” sagöi Ámi
Gunnarsson, verkfræðingur hjá
Hitaveitu Reykjavíkur, þegar DV
spuröi hann um hversu lengi yrði
vatnslaust í Læknum.
„Viö höfum veríð að auka dælingu
úr Reykjavíkursvæðunum. Þar af
leiðandi höfum við þurft að fuilnýta
afgangsvatnið,” sagði Ami.
Borholusvæði Hitaveitunnar era
þrjú; Laugardalssvæði sem er tæp-
lega 130 gráðu heitt; og Reykjasvæði
í Mosfellssveit sem er um 80 gráðu
heitt.
Hitaveitan selur viðskiptavinum
sinum 80 gráöu heitt vatn. Vatnið úr
Reykjavíkursvæðunum er hins veg-
ar mun heitara. Það þarf því að kæl-
astniöur.
Til kælingarinnar notar Hitaveitan
frárennslisvatn. Það vatn er orðið
um 40 gráðu heitt eftir aö viðskipta-
vinurinn hefur notaö þaö til upphit-
unar.
Lækurínn i Nauthóisvik meðan
volgt vatn rann um hann. Hita-
veitan hgfur nú breytt rekstrínum
þannig að ekkert vatn verður af~
gangs.
Aður rann afgangur af þessu frá-
rennslisvatni um öryggisventil úr
gömlu geymunum á öskjuhlíð niður í
Lækinn í Nauthólsvík. Eftir að Hita-
veitan fór að nýta heitari svæðin
meira þarf hún á öllu frárennslis-
vatninu aö halda til kælingarinnar.
„Þaö er ákaflega erfitt að segja til
um það hvort það verði til afgangs-
vatn fyrir Lætónn í framtíðinnL Það
þarf ektó að búast við neinu. Þetta er
algerlega háð rekstri Hitaveitunn-
ar,”sagðiArni.
Lækurínn var á sínum tíma fjöl-
sóttur baðstaður. Mitól vinna hefur
veriö lögð í að gera umhverfi hans
snyrtilegt.
-KMU.
KAPPSIGUNG í HAFNARKJAFTINUM
Þessa skemmtilegu mynd tók Sveinn Þormóðsson Ijós-
myndari í hafnarkjaftinum í Reykjavík. Þarna heyja þrír bát-
ar kappsiglingu inn höfnina, tveir skelfiskbátar og einn
netabátur. í þessari kappsiglingu er ekki keppt við klukk-
una heldur um bryggjupláss i Reykjavíkurhöfn. Þar er oft
þröngt á þingi og allir vilja fá sem besta piássið.
-klp/D V-mynd S.
Kom með fulla tösku af
lyfjum á lögreglustöðina
Maður sem sýnilega hafði fengið
sér of stóran skammt af lyfjum og
áfengi kom ráfandi inn á lögreglu-
stöðina við Hverfisgötu eldsnemma í
morgun.
Þegar lögreglumennimir ætluðu
að fara að ræða við hann var af og
frá aö fá upp úr honum orð af viti.
Maðurinn var með tösku í hendinni
og þegar lögreglan kannaöi innihald
hennar nánar kom í ljós að hún var
full af lyf jaglösum merktum Apóteki
'Mosfellssveltar.
Þótti mönnum á stöðinni það grun-
samlegt og var lögreglan í Hafnar-
firði beðin um að athuga apótetóð í
Mosfellssveitinni nánar en það er í
hennar umdæmi. Kom þá í ljós að
brotíst hafði veriö þar inn og ein-
. hverj u af lyf jum stolið.
Var verið að kanna í morgun hvort
meira magn en það sem var í tösk-
unni væri horfið og beðið eftir aö
rynni af manninum svo hægt væri aö
yfirheyra hann.
-klp-