Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1983, Síða 6
6
DV. LAUGARDAGUR17. SEPTEMBER1983.
Ferðamál
Ferðamál
Ferðamál
Hinn sovéski Airbus, iL-86, sem tekur 350 FARÞEGA.
Flug til Sovétríkjanna er nú mjög
í brennidepli eftir að Sovétmenn
skutu niður kóresku farþegaþotuna
og myrtu þar með 269 manns. Ljóst
er að áætlunarflug milli risans í
austri og Vesturlanda veröur með
ýmsum takmörkunum næstu vikur.
En sovéska flugfélagið Aeroflot læt-
ur sér þetta eflaust í léttu rúmi
liggja. Fyrstu sex mánuði þessa árs
flutti félagið tæplega 50 milljónir far-
þega.
Aeroflot er stærsta flugfélag
heims og hefur mjög fært út kvíarnar
á undanfömum árum. Félagið held-
ur uppi áætlunarflugi jafnt til svört-
ustu Afriku sem auðnanna í Síberíu,
auk flugs til flestra höfuðborga
Evrópu og til staða við Karabiska
hafið, svo eitthvað sé nefnt. A síöasta
ári fluttu vélar félagsins um 100
milljónir farþega og þurfa stjórnend-
ur þess ekki aö hafa áhyggjur af lé-
legri sætanýtingu.
Flugmenn vopnaðir
Allur rekstur Aeroflot er í nánum
tengslum við flugherinn, enda hefur
herinn gripiö til flugflota Aeroflot
Ferðamál
Sæmundur Guðvinsson
þegar mikið liggur við, til dæmis við
innrásina í Afganistan. Flugmenn-
irnir hafa hlotið stranga herþjálfun
og eru í varaliöi flughersins. Þeir
bera jafnan vopn í starfi og hika ekki
við að nota þau ef tilraun er gerð til
flugráns. Þeir eru margir hverjir af-
burðasnjallir i starfi og tekst að
fljúga til ýmissa krummaskuða í
Sovét við hinar erfiðustu aðstæður.
Oft og tíðum er ekki um aðrar sam-
göngur aö ræða en flugið, sérstak-
lega yfir vetrarmánuðina.
Tregt um upplýsingar
Þótt hinar stóru Ilyushin 62 far-
þegaþotur Aeroflot og þriggja
hreyfla Tupolevsþotur séu tíðir gestir
á flugvöllum viðs vegar um heiminn,
er síöur en svo aö upplýsingar um
félagið liggi almennt á lausu. Til
dæmis er ekki vitað hve félagiö er
með margar vélar í rekstri, fjöldi
starfsmanna er ekki gefinn upp og
lítið fer fyrir fréttum af slysum og
óhöppum. Það eru meira að segja
ekki nema nokkur ár síðan félagiö
fór að láta dreifa prentaðri áætlun
innanlandsflugsins. Áður var látiö
nægja að hengja upp töflur í flug-
stöðvum hvar á var skrifað hvenær
næstu ferðir væru.
Innanlandsflugiö er stærsti þátt-
urinn í rekstri Aeroflot, en tilhögun
þess er ekki alltaf upp á það besta.
Oft eru farþegar mun fleiri en hægt
er að ráða við, sérstaklega yfir sum-
arleyfistímann. Erfitt getur reynst
að fá farseðil og bókanir veita ekki
tryggingu fyrir fari þar sem inn-
•fæddir eru iðulega látnir víkja fyrir
yfirstéttinni eða erlendum gestum
og ferðamönnum frá öörum löndum.
Reynt hefur verið aö bæta ástandið
með því að smiða stærri vélar eins og
til dæmis IL—86, sem er hinn sovéski
Airbus og tekur 350 farþega.
Þjónusta um borð er í lágmarki.
Matur er einungis framreiddur á
þeim leiðum þar sem flugtími er yfir
þrjár klukkustundir. Reykingar eru
alfarið bannaöar í innanlandsflugi og
sömuleiðis neysla áfengis.
„This plane is... "
Aeroflot hóf ekki reglubundið
áætlunarflug til annarra landa fyrr
en árið 1954. Síöan hefur verið lögð
mikil áhersla á að fjölga viðkomu-
stöðum og teygja áætlunarnetið sem
víöast, meðal annars í pólitískum til-
Úr fréttabréfi Ferdamálaráds:
Framhald verdur á
Bretland:
AmerisUlr hótelhringar breiða úr sér
Amerískar hótelkeðjur hafa
ákveðið að fjárfesta gífurlegar upp-
hæðir í nýjum hótelum á Bretlands-
eyjum. Þykir Könum sem Bretar
hafi farið sér fullhægt við að byggja
lúxushótel úti um land og hyggjast
nú bæta úr því ófremdarástandi.
Þaö eru Holiday Inn, Ramada og
Sheraton sem ætla nú að sýna Bret-
um fram á, að timi „king size” rúma
.................. . Ml
og miníbara á hótelherbergjum sé
runninn upp. Forsprakkar hótelkeðj-
anna hafa gert umfangsmiklar
markaðsrannsóknir víðs vegar um
England og Skotland. I kjölfariö
sigla minni hóteiliringar, svo sem
Marriott, sem fyrir skömmu keypti
Europa Hotel í Mayfair af Grand
Metropolitan fyrir 14 milljónir sterl-
ingspunda.
Raunar á Holiday Inn nú þegar 17
hótel á Bretlandi og hyggst fjölga
herbergjum um 550 á næstu sex
árum. Kostnaður er áætlaður sem
svarar um 1,7 milljónum íslenskra
króna á herbergi miðað við f jögurra
stjörnu hótel.
Sheraton hyggst opna átta ný hótel
fram til ársins 1989. Þau eiga að vera
fimm stjömu og kostnaður á hvert
herbergi liðlega tvær milljónir
króna.
Hótelhringarnir ætla aö hreiðra
um sig á stöðum eins og Plymouth,
Birmingham, Reading, Croydon,
Brighton, Glasgow og Manchester. I
flestum tilfellum leggja bresk fyrir-
tæki eitthvert fé í fyrirtækin og á
sumum stöðum veita byggðasjóðir
hagstæölán.
Þeir sem horfa með áhyggjusvip á
þessa þróun eru einkum eigendur
lítilla hótela þar sem veitt hefur
verið persónuleg og góð þjónusta en
þægindi litil miðað við lúxushótelin.
Telja eigendur hótelanna að stór
hluti viðskiptavina muni flykkjast
inn á fínu hótelin, ekki sist þeir sem
feröast í bisnesserindum.
- SG
Sovéska flugfélagid Aeroflot:
Flytur yfir 1OO milljónir
farþega á hverju ári
FERÐAMÁL, fréttabréf
Ferðamálaráðs Islandí ,er nýkomið
út. Þótt blaöið sé ekki stórt er þar að
finna ýmsan fróöleik og upplýsingar
um ýmislegt er að ferðamálum lýtur.
Við tökum okkur það bessaleyfi að
grípa nokkrar fréttaklausur úr
fréttablaðinu og fara þær hér á eftir.
Ferðist um
IMorðurlönd
Kynningarherferðin „Ferðist um
Norðurlönd” sem NT (Nordisk
Turistrad) og Noröurlandaráð
standa að, hefur verið tekin upp að
nýju. Verður um áramótin gefinn út
allstór sameiginlegur bæklingur í
alls 400 þúsund eintökum, þar sem
verða upplýsingar um ferðalög á
Norðurlöndum og sérstök áhersla
lögð á að skýra frá nýjungum og
hagkvæmum ferðakjörum. Einnig
verður í sérkafla skýrt frá öllum hóp-
og einstaklingsferðum milli Norður-
landanna sem á markaðnum eru.
Islenskum aðilum sem vilja koma
efni á framfæri við ritnefndina, er
bent á að snúa sér til Ferðamálaráös
Islands hiðfyrsta.
Ferðamyndbönd
Ferðamálaráð hefur nú í undir-
búningi, í samvinnu við fleiri aöila,
gerð myndbanda til kynningar á
ýmsum vinsælum ferðamannaleið-
um. Veröur fyrst tekin fyrir leiðin að
Gullfossi og Geysi, en síðan er fyrir-
hugaö aö mynda leiðina frá Akureyri
til Mývatns.
Kynning um borð
Um borð í millilandaferjunum
tveimur var í sumar starfsmaður á
vegum Ferðamálaráðs og fleiri
aðila, er annaöist landkynningu, þ.e.
sýningu kvikmynda og litskyggna,
svo og upplýsingamiðlun til erlendra
farþega um ferðaskilyrði hér á landi.
Mæltist þessi þjónusta mjög vel
fyrir.
Endurbætur á aðstöðu
Umtalsverður hluti af þeim fjár-
munum, sem Ferðamálaráð hefur til
umráöa á hverjum tíma, fer til um-
hverfismála og uppbyggingar og
endurbóta á aðstöðu fyrir ferðamenn
víðs vegar um landið bæði í byggðum
og óbyggðum. Er á yfirstandandi ári
um að ræða 2,2 millj. kr. er fara beint
til þessara verkefna.
Þetta fé fer í kostnað við gerð úti-
kamra og/eða vatnssalema á
vinsælum ferðamannastöðum, gerö
eða lagfæringu göngustíga, hreinsun
og sorphirðingu og margt fleira.
Ýmist eru verkefnin unnin af Ferða-
máiaráði eða sveitarstjÓTiir og aðrir
aðilar á stöðunum fá styrk til fram-
kvæmdanna eða þau eru unnin í sam-
vinnu við Náttúruverndarráð.
Meðal þeirra staða þar sem unnið
hefur verið í sumar má nefna Hom-
strandir, Mývatnssveit, Þjórsárdal,
Herðubreiðarlindir, Breiðamerkur-
lón, Landmannalaugar og Dettifoss.
Áhrif ferða-
mannastraums
A vegum Nordisk Turistrad hefur í
nokkur ár verið unnið að rann-
sóknarverkefainu „Turismens kon-
sekvenser” en nánar tiltekið er þar
fjallað um áhrif ferðamannastraums
á land, fólk og samfélag manna og
um uppbyggingu ferðaþjónustu.
Bráðlega mun koma út handbók sem
m.a. mun innihalda leiðbeiningar
fyrir bæjar- og sveitarfélög um
hvernig skuli standa að uppbyggingu
ferðaþjónustu. Næsta vor verður á
Alandseyjum haldinn lokafundur um,
þetta verkefni og er Islandi heimilt
að senda þangað allt að sex fulltrúa.
Loftpúðaskip eins og þau sem SAS ætier eð gere út.
SAS ætlar á sjóinn
SAS ætlar að taka upp áætlunar-
ferðir á sjó næsta sumar. Þá hyggst
félagiö taka í notkun tvö loftpúðaskip
sem eiga aö sigla milli Málmeyjar i
Svíþjóð og flugvallarins í Kaup-
mannahöfn. Gerður hefur verið
samningur um leigu á tveimur skip-
um sem taka 80 farþega hvort, að því
er segir í blaðinu Stand By.
Loftpúðaskipin verða máluð í SAS-
litum og farþegarými innréttað með
likum hætti og gerist I DC-9 flug-
vélum SAS á Evrópuleiðum, það er
að segja með EuroClass farrými og
túristafarrými. Sjófreyjur bjóða
drykki, útbýta dagblöðum og selja
toUfrjáilsan vaming á þeim 30 mínút-
um sem ferðin tekur. Skipin munu
sigla um 10 ferðir á dag fram og til
baka og tímaáætlun miðuð við flug-
áætlun SAS, enda eru farpantanir og
annað með sama hætti og um flug-
ferðværiaðræða.
SAS reiknar með að um þrjú
hundruð þúsund manns komi til með
að nota þessa nýju þjónustu á hverju
ári.
- SG
Norðiirlandaherferð
gangi. Nokkuð hefur borið á því, að
flugfreyjur hafi hlotiö snöggsoðna
þjálfun áður en þær hófu störf. Fyrir
lendingu hefur mátt heyra setningar
eins og þessa: „Dear passengers,
this plane is now going down! ”
Aerofloter eitt fárra fyrirtækja
sovéskra sem heldur uppi auglýs-
ingastarfsemi. Sagt er að í byrjun
hafi auglýsingar félagsins á Vestur-
löndum einkum falist í slagorðinu
„Fly by plane”, en í dag er slagorðið
„Aeroflot — at your service” mest
áberandi.
-SG