Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1983, Síða 21
DV. LAUGARDAGUR17. SEPTEMBER1983.
21
Samhvæmt
14. gr. um-
ferðarlaga
Eg ætlaöi að fara að sjá drottningu
dávaldanna um daginn en gat það
ekki vegna þess aö ég á í talsverðum
erfiöleikum með að vera á tveim
stöðum í einu af því að ég er ekki f ugl
eins og maðurinn í útlandinu sagði
eitt sinn. Ekki datt mér i hug að láta
dáleiða mig en á hinn bóginn hef ég
gaman af öllu yfirnáttúrlegu og þess
vegna hlakka ég afar mikið til um
áramótin þegar verðbólgan verður
komin niðurí þrjátíu stig.
Ef þessir verðbólguútreikningar
standast sé ég ekki betur en reikn-
ingsmeistarar verði að fara að leita
sér að annarri vinnu því að þá er búið
að f inna hina endanlegu lausn á verð-
bólguvandanum. Þegar þessi bólga
lætur næst á sér kræla þarf ekki
annað aö gera en vera nógu fljótur að
fella niður tolia af þurrkuðum eplum
ogmáliðerleyst.
En ég hef satt aö segja ekki ákaf-
’lega mikla trú á aö útreikningar
standist því að samkvæmt upplýs-
ingum þeirra sem best þekkja til
verðbólgu hafa útlend áhrif oft leikið
hana grátt og þau valda ekki síður
timburmönnum en hin innlendu.
Samt sem áður held ég að það sé
alveg rétt hjá ráðherrum að veislu-
höldum okkar atkvæðanna sé lokið
þótt enn séu eftir nokkur kokdilliboð í
ráðuneytum en það er hins vegar
ekki alls kostar rétt að við sitjum
uppi með timburmennina því aö þeir
ágætu menn virðast hafa tekið sér
endanlega bólfestu i höfðum þeirra
sem stofnuðu til gleöskaparins.
14. gr. umferðariaga
Þegar ég var í sveit á mínum
yngri árum þótti alveg sjálfsagt að
sláttur stæöi um það bil fram að rétt-
um enda voru tæki til heyskapar af
skornum skammti þótt yfirleitt væri
nóg af mannskap en nú, þegar ekki
er hægt að þverfóta fyrir stórvirkum
vélum í sveitum landsins, eru bænd-
ur svo fáliðaðir að ef þeim tdist ekki
að heyja á þremur vikum í júlí eða
ágúst verða þeir að kalla til Rauða
krossinn sem sendir umsvifalaust
þrautþjálfað lið til að bjarga heyj-
um.
Svona leikur tæknin okkur stund-
Háaloftið
Benedikt Axelsson
um grátt þótt hún komist ekki í hálf-
kvisti viö lögregluna sem leikur það
hlutverk þessa dagana aö klippa
númer af bílum sem hafa gerst brot-
legir við 14. gr. umferöarlaga.
Eins og í mörgum öðrum greinum
er ég dálítiö slappurí lögfræði en veit
þó að ef maður ekur yf ir götu á rauðu
ljósi fær maður sekt ef nógu kvik-
indisleg vitni eru að atburöinum til
að kæra mann en sleppur viö hana að
öðrum kosti. Það er sem sagt allt í
lagi samkvæmt minni lögfræðiþekk-
ingu að brjóta af sér svo framarlega
sem það kemst ekki upp.
Nú er Island stórt land, samanbor-
ið við Danmörku, og mjög merkilegt,
samanborið við öll hin, og til að menn
rugli ekki saman t.d. Þingeyingi,
sem á ættir að rekja til þeirra manna
sem stofnuöu fyrsta kaupfélagiö, og
Húnvetningi, sem á ættir að rekja til
sauöaþjófa, er landinu skipt niður í
sýslur og hefur hver sýsla sinn ein-
kennisstaf á bifreiðum.
Þetta er gert til að utanbæjar-
bifreiðir þekkist í umferðinni í
Reykjavík og hægt sé aö úthúða bíl-
stjórum þeirra í ræðu og riti fyrir lé-
legan akstursmáta á Miklubrautinni.
Ef maður flytur á milli umdæma
með bílinn sinn og konuna sina og
bömin verður að umskrá bilinn sam-
kvæint lögum en þvi miður má flytj-
andinn ekki aldeilis gera þaö þegar
honum hentar, hann verður aö gjöra
svo vel að vera búinn að því áður en
hann er stöövaður á Hringbrautinni
af tveimur fílefldum lögreglumönn-
um sem tilkynna honum að þeir hafi
fengið það verkefni að klippa
númerin af bilnum samkvæmt 14. gr.
umferðarlaga.
Sem betur fer er ekkert minnst á
konuna og bömin og virðist mega
flytja þau á milli umdæma að vild án
þess að það varði við umferðarlög og
maöur andar svolítið léttar því að
þótt ekki sé hægt að fara á konunni
sinni í vinnuna er hún algjörlega
ómissandi til ýmissa annarra hluta.
En maður er ekki fyrr farinn að
hrósa happi yfir þessu en það kemur
tilkynning í útvarpi þess efnis að
allir þeir sem ekki hafi nú þegar til-
kynnt aðsetursskipti megi búast við
óþægindum eins og opinberar stofnanir
orða það þegar þær ætla að fara aö
bjóða upp húsið okkar eða rífa af
bömunum okkar vidiótækið og allar
spólumar með Tomma og Jenna.
Svo ég snúi mér aftur að 14. grein-
inni virðist helsti gallinn á henni
vera sá að hún virðist ekki í gildi
nema um helgar og yfir blánóttina
þegar Bifreiðaeftirlit ríkisins er
lokað en það er stofnun sem sér um
að athuga hvort ljósin á bílnum
okkar séu í lagi og hvort við höfum
munað eftir því að borga trygging-
una af bílnum og setja á hann drullu-
sokkinn sem datt af stuttu eftir síð-
ustu skoöun og hefur ekki, þótt
merkilegt megi teljast, varðað við
umf erðarlög f ram að þessu.
Eg las það í ágætu blaði um daginn
að klippt hefðu verið númer af fjölda
bíla við nokkrar blokkir í borginni
og fólkið hefði ekki almennilega vit-
aö hvemig það ætti aö komast til
vinnu sinnar.
Eg hefði svo sem getað sagt því
það og ég hefði einnig getað sagt því
að ef maður viil ekki gerast brot-
legur við 14. gr. umferðarlaga er
vissara að hafa skoðun á hlutunum.
Kveðja
Ben. Ax.
IÐNRÁÐGJAFI Á
VESTFJÖRÐUM
Starf iðnráðgjafa í Vestfjarðakjördæmi er laust til umsóknar.
Umsóknir, sem tilgreini menntun og fyrri störf, sendist stjóm
Fjórðungssambands Vestfirðinga, Hafnarstræti 6, 400 —
Isafirði, fyrir 10. október nk. merkt Iðnráðgjafi.
FJÓRÐUNGSSAMBAND VESTFIRÐINGA.
Fyllingarefni
Nú höfum við allt fyllingarefni sem ykkur vantar, ásamt möl-
uðu undirlagsefni.
Ámokaö frá kl. 7.30 til 22.00 mánudaga til fimmtudaga. Föstu-
daga og laugardaga kl. 7.30 til 18.00.
Allar uppl. gefur skrifstofa okkar frá kl. 9—12 alla virka daga.
ElSMMtH 0®
Malarnám við Krísuvíkurveg.
Sími 50876.
METTE
3x1x1. Staögraiðsluverð 14.583.
3x1x1. Staðgreiðsluverð 10.858.
Tvíbreiður svefhsófí. Staðgreiðsluverð 9.810.
Kojur m/dýnum og skúffu. Staðgreiðsluverð 9.262.
Rúm m/dýnum og skúffu. Staðgreiðsluverð 5.595.
Verð og kjör við allra hæfi.
Sendum ípóstkröfu.
HAMRABORG 12 KÓPAVOGI
SÍMI46460