Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1983, Side 13

Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1983, Side 13
DV. LAUGARDAGUR17. SEPTEMBER1983. 13 Stundum vildi þaö koma fyrír þegar krakkar keyptu sér leikarabúnt hjá bóksalanum að i bunkanum leyndust gjörsamlega ókunnir leikarar i þeirra augum. Það olli að sjálfsögðu feikimikiiii gremju, því óþekktir eða ótöff leikarar voru næsta verðlausir íbýttinu. Þeir voru þá settir iruslið. Hór á myndinnisjást nokkrir algjöríega óþekktir og ótöff leikarar frá timum ieíkaramyndaæðisins. Sumar af hinum gamalkunnu þokkadisum sem prýddu leikaramyndirnar. Þarna má greina andlit ekki óþekktarí stirna en Ginu Loiiobrigidu, Connie, Marilyn Monroe, Siw Maimkvist, Söndru Dee og Heidi Briihl. mikið sem í var boðið, heldur geymdur á völdum stað í herberginu heima. Það var því að vonum að það væri allspennandi að taka plastið utan af leikarabúntunum sem fengust keypt í bókabúðunum og athuga hvað þau fælu í sér. Eftirvæntingin eftir því hvort í bunkanum leyndist leikari merktur serie S eða N, svo að ekki sé talað um serie FA, var oft á tíðum slfk að hendur krakkanna skulfu af ákafa er þeir handléku nýkeyptu búntin. Ef svo fór að sjaldgæf mynd leyndist í bunkanum þótti það einstök heppni og kaupandinn gekk nokkrum sentímetrum ofar gang- stétt heim á leið. En ef hinsvegar fór svo illa að innihaldið reyndist aðeins vera rusl í A og B klassa, urðu menn sárir og fýlulegir. Kaupmaöurinn var þá litinn homauga og ásakaður um pretti í huganum, jafnframt því sem búöarhillan hans þar sem leikara- búntin hvíldu í voru séð með gimd í auga. Þá var oft erfitt að standast freistinguna að eyða aðeins meim af vasapeningunum en mamma hafði leyft í annað búnt. Og freista gæfunnar upp á nýtt. Þáttur gúmmíteygjanna Það þótti ekki maður meö mönnum á timum þessa æðis nema hann ætti nokkur hundruð leikaramyndir. Gott þótti aö eiga um það bil þrjú hundruð stykki, sæmilegt var hálfu minna. Yfirleitt geymdu krakkar þessa leikara sína í búntum sem þau brugðu gúmmíteygju um í kross svo að hún snerti alla fleti bunkans. Ymsir flokkuðu sín söfn og höfðu þá öðmvísi lita teygju um einn flokk en annan til aðgreiningar. Býttimyndir eða ruslið var þá til dæmis saman í brúnni teygju, leikaramyndir með mönnum var svo sem sama um en voru kannski dálítið verðmætar geymdust í blárri teygju, og svo úrvalsflokkurinn, þar sem í vom serie S, N og FA, ásamt safni af myndum aðalgoðs viðkomandi, umvafið rauðri teyg ju. Sumir þessara safnara höfðu þann háttinn á að þeir merktu hverja leikaramynd sína á bakhlið hennar. Það var gert með ýmsum hætti, allt eftir frumleika hvers og eins. Einir voru þeir sem létu nægja að skrifa skírnamafn sitt aftan á, aðrir settu þar fangamark sitt, og enn aðrir auðkenndu sínar myndir með ein- hverju tákni eða symbóli, svo sem krossi, Davíðsstjörnu, þríhymingi eða jafnvel hakakrossi ef menn vildu vera svolitlir gaurar. Flestir ef ekki allir þeir, sem lentu í þessu safn- og býttiæði um og eftir 1960, áttu sinn uppáhaldsleikara sem þeir dáðu og virtu — og söfnuöu „villivekk” öllum leikaramyndum af sem þeir gátu komist yfir, burtséð frá gæðum þeirra. Til voru býttarar sem voru svo innlifaðir í aðdáun sína á vissum leikara, að þeir ekki hið ein- asta áttu allar leikaramyndir sem til voru af honum, heldur vom farnir að líkja eftir töktum og eða útliti þeirra, jafnt óafvitandi sem ekki. Þannig mátti ráða af þeim býtterum sem nálg- uðust mann með signar augabrýr, veif- andi hendi eins og snara væri í henni og hjólbeinóttir, svo að þeir væru virkir aðdáendur Roy Rogers og félaga hans, Triggers. Og ef þeir vom spurðir hvort þeir tímdu að býtta einum Roy fyrir tuttugu Fabian, var víst að svarið varð: Ertu vitlaus? Eg læt aldrei Roy fyrir svoleiðisrusl! Sjaltonn Hestonn og annar framburður Eitt af einkennum leikaramynda- æðisins — og sá þáttur þess sem sennilega er mörgum enn í fersku minni — var hvernig býttararnir bám fram nöfn þeirra kvikmyndastjarna sem prýddu leikaramyndimar. Eins og gefur að skilja var enskufram- burðurinn ekki upp á marga fiska hjá tíu til tólf ára gömlum krökkum á þess- um árum. Því vildi framburður ensku heitanna oft likjast ansi mikið gömlu góðu íslenskunni. Roy Rogers var borið fram Roji Roggers og Charlton Heston var borið fram Sjalltonn Hesstonn — og við það var enginn að gera athugasemdir. Hver og einn bar nöfnin fram eins og þau komu honum fyrir sjónir og eða á þann hátt sem hann gat stautað sig fram úr þeim. Kolvitlaus framburður, er kannski ein- mitt það helsta sem gerir þetta æðiað svo sjarmerandi minningu í hugum þeirra sem leikarabýttin stunduðu á sínumtíma. -SER. verslunum á fáum dögum þegar æðið stóðsemhæst. Á þessum árum í kringum 1960 voru kvikmyndastjörnur svo til einungis þekktar úr sjálfum kvikmyndunum. Sjónvarpið var í seilingarfjarlægö og fágætt var að erlend kvikmyndablöð með litmyndum af goðunum sæjust í búðarrekkum hérlendis. Tilkoma leikaramyndanna var því í sjálfu sér nokkuð stór bylting fyrir aðdáendur út- lendra bíóhetja. Og það sem að öllum likindum hefur ráðið mestu um vinsældir leikaramyndanna var hversu ódýr leið þær voru til að kynnast goðunum og „eiga” þær í hin- um ýmsu stellingum, litbrigðum og lát- brögðum. Vinsælustu goðin Langmestur hluti þessa varnings kom hingað til lands frá Svíþjóð og Danmörku. Eitthvað kom líka frá Hollandi, þar sem þetta æði upphófst í rauninni, en flestallar leikara- myndirnar í því broti, sem Islendingar þekkja, voru einmitt framleiddar í því Iága landi. Sem að líkum lætur var mest fram- leitt af leikaramyndum með þeim kvikmyndastjörnum sem skærast skinu á þeim árum sem þessa æðis gætti. Þannig var til dæmis ótölulegur fjöldi leikaramynda í umferð af stjörnum á borð við Brigitte Bardot, Roy Rogers, svo að ekki sé talað um sjálfan Elvis Presley. Þá var einnig til aragrúi leikaramynda ai þokkadísum eins og Ginu Lollobrigidu, nöfnunum Connie Francis og Froboess, Audrey Hepburn, Siw Malm- kvist, Söndu Dee og man ekki einhver eftir Heidi Briihl? Ýmis dýr úr kvik- myndaheiminum voru vinsæl á þessum myndum. Nægir þar að nefna hunda svo sem Lassie og Rin Tin Tin oghestinnFury. Nokkrir eða öllu heldur allmargir þeirra leikara sem prýddu þessar leikaramyndir voru á þessum árum næsta óþekktir hérlendis, að minnsta kosti hjá ungdómnum. Þessi óþekktu númer vildu samt slæðast inn í sum búnt sem að sjálfsögðu olli gremju kaupandans. Þetta voru leikarar sem náðu engri athygli safnaranna og voru umsvifalaust settir í rusliö, en svo var sá hluti safns hvers og eins býttara kallaður sem var notaður til að fylla vænan bunka sem svo var látinn í skiptum fyrir einhverja merka eða sjaldgæfa leikaramynd af „töff” goði. Leikaranöfn sem fylltu þennan flokk voru skinvana smástirni á borð við Fabian, Rex Gildo, Adamo og Horst Bucholz, hversemþað nú var. Serie A til serie FA Leikaramyndunum var skipt niður í seríur af framleiðanda þeirra eftir þvi hversu mörg eintök voru framleidd af hverri mynd. Mest var framleitt af leikaramyndum merktum serie A og B. Þær voru því einna ódýrastar í viöskiptum, og þurfti því iðulega aö leggja fram drjúgan skerf af slikum myndum ef von var að fá eina sjald- gæfa í staðinn. Næst A og B seríunni að gæðum voru myndir merktar serie F, L og X og því næst serie S og N, en þær síðastnefndu voru með þeim sjald- gæfustu og jafnframt verðmætustu í þessum býttibisness unglinganna. Allra sjaldgæfustu leikaramyndimar munu þó hafa verið merktar serie FA. Ef krakki átti slíka leikaramynd þótti hann eiga kjörgrip. Sá gripur var svo vissulega ekki látnn í skiptum hversu Hvergi meiri fjölbreytni í myndatökum Lítiö imi og kynnist nýjum möguleikum % m * -*Wm m Hinar v iiisæln ( \m I’hoto myiidatiikurnar a veröi \ iö allra ha*ii. Verið velkomin. LJÖSMYNDAÞJONUSTAN HF. LAUGAVEGi 178 REYKJAVIK, SIMI 85811.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.