Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1983, Side 17

Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1983, Side 17
DV. LAUGARDAGUR17. SEPTEMBER1983. 17 Bækur oi> bókasöfnnn XXV II,: Gömlu tímaritin auðsveip yf irvöldum I tveim síðustu greinum hefur starfsemi Landsprentsmiðjunnar verið á dagskrá, en fremur hægt miðaö, enda um mjög áhugavert tímabil aö ræða, sem ekki sæmir að hlaupa yfir í flaustri. Að sjálfsögðu hlutu tímaritin að koma fyrst til um- ræðu, ekki aðeins sem meiri háttar verkefni prentsmiðjunnar, heldur enn frekar vegna mikilvægis þeirra fyrir sögu landsmanna og allt þjóðlíf. Rit þau, sem um var fjallað voru þó hvorki mikil að vöxtum né urðu þau langlíf hvert um sig, en öll voru þau talin vönduð og vel rituö, enda marg- ir aöstandenda kunnir menntamenn síns tíma. Þau áttu þaö hinsvegar öll sameiginlegt að vera hógvær í skrif- um, enda talin þóknanleg yfirvöldum og látin njóta þess, þegar tækifæri gáfust. En nú höfðu ný viðhorf haldiö innreið sina til Islands í kjölfar erlendra frelsisstrauma, sem ekki urðu stöðvaðir, þótt hægt miðaði fyrstístað. Þjóðólf ur boðberi frelsisstraumanna Boðberi þeirra varð biaðið Þjóðólf- ur, sem hóf útkomu h. 5. nóvember 1848, og leiö fyrst undir lok, er 66 árgangar voru að baki árið 1920. Augljóst er, að enginn vegur er hér að greina frá ferli Þjóðólfs eða hinna ýmsu útgefenda og ritstjóra á meöan þeir komu þar við sögu, enda veru- lega utan þess ramma, er greinum þessum hafa verið settar. I þessu sambandi f er hinsvegar vel á að taka upp nokkum kafla úr áðurnefiidu riti Halldórs Hermannssonar, Isiandica Vol. XI, þar sem segir frá upphafi Þjóðólfs og þeim jarðvegi, sem telja verður, að hann hafi sprottið úr. Fer kafli þessi því hér á eftir í lauslegri þýðingu: Sprottinn úr byltingarjarðvegi „Byltingarhreyfingin 1848 kemur fram á ýmsan hátt í bókmenntum Is- lands, en það er sérstaklega áhuga- vert fyrir okkur í því sambandi, að hún varð tilefni til fyrsta raunveru- lega fréttablaðsins þar, blaðs, sem í langan tima varð aðalmálgagn hinn- ar stjómmálalegu andstöðu. Hinn 20. janúar 1848 andaöist Kristján kon- ungur áttundi, en við völdum tók son- ur hans, Friðrik sjöundi Er hinn nýi konungur tilkynnti valdatökuna gaf hann þegnum sínum loforð um frjáls- lynda stjómarskrá. Stjórnarskrársamkoma fyrir Danaveldi Var mál þetta nánar skýrt í stjórnarbréfi dags. 28. janúar, en samkvæmt því átti Island ekki að taka neinn þátt í samkomu, sem kveðja skyldi saman til móttöku á stjórnarskrá fyrir Danmörku og hjálendur hennar. Þetta var þakkar- vert fyrir Islendinga, en gleði þeirra varð skammvinn, þar sem lög um kosningu til hinnar dönsku sam- komu, dags. 7. júlí 1848, sögðu svo fyrir, að fimm fulltrúar skyldu koma þar fram fyrir Island, og skyldu þeir valdir af konungi, ef mögulegt reyndist úr hópi alþingismanna. Þessar fréttir urðu tilefni til veru- legrar ólgu á Islandi, og bámst öfga- kenndar skýrslur um óánægju al- mennings brátt til höfuðborgar Dan- merkur. Ákváðu Islendingar að lok- um að senda bænaskjal til konungs, að þeim yrði að minnsta kosti leyft að velja f ulltrúa sína til samkomunn- ■ ar. Því hafnaði stjórnin meC bréfi dags. 23. september 1848, þar sem hún lýsti yfir, að slíkt myndi tefja, að stjómskipunarsamkoman yrði kölluö saman, og með ógnandi ástand í huga í hjálendunum væri engin slík frestun æskileg. Konungur dregur í land Hins vegar var tilkynnt í bréfinu sá ásetningur konungs, að engin bindandi stjórnskipuleg fyrirmæli yröu innleidd varðandi innanríkis- mál Islands fyrr en þau hefðu verið borin undir þjóðfund í þvi landi. Þessi yfirlýsing vakti ánægju og beið þjóöin eftir að frekar yrði að- hafzt við framkvæmd á. loforðum y>. S H.iLFSMÁNADAIÍ - HIT HANDA ÍSLENDINGUM. KOSTAI) Ofjl O'KMD ÍT E. JóiiHsyni. II. Ilclgrnsyni. £. f»«rðftrsyni. ÁbjTgfiarmaftur 5*vb. llall^rinisson. F y r s < a á r. 1 - '21. btad. BEYKJAVÍ JK, 1 H 4 O. Titilsíöa á fyrsta tölublaði tímaritsins Þjóöólfs. engin ný brögð til þess að halda and- stæðingi í skef jum, og enn í dag eru takmarkanir á prentfrelsi þekktar víða um heim, aðeins gengið hreinlegar til verka. Uppgangstímabil Engin tök eru á hér að rekja frekar sögu „Þjóðólfs”, sem þó væri skemmtilegt viðfangsefni, enda fróð- legt að fylgjast með framvindu mála á þessu tímabili, þegar hagur lands- manna tók aö lokum aö batna eftir margra alda erfiðleika. Komu þar margir merkir og þjóðkunnir menn við sögu við ritstjórn, þótt ekki verði þeir taldir, en geta verður þó að Matthías Jochumsson var ritstjóri um alllangt skeið eða frá 26. árg., 25. tbl. til 32. árg., á árunum 1874—1880. Þjóðólfur fimmtugur Þegar Þjóðólfur átti 50 ára afmæli h. 5. nóv. 1898, undir ritstjórn Hann- esar Þorsteinssonar (1860—1935), síðar þjóðskjalavarðar, kom út tvö fýlgiblöð í tilefni þessara tímamóta, sem vert er að minnast. Var hið fýrra mikill bálkur í ljóðum eftir M.J., þar sem drepið er á ýmsa merka viðburði á útgáfutíma blað- sins og nefndir þeir ritstjórar, sem hverju sinni réðu málum. Er ljóðið í leikrænum frásagnarstíl þar sem ferðalangurinn Þjóðólfur hefur að mestu orðið. Verður ekki staðizt þá freistingu að taka upp eftirfarandi erindi, þar sem minnzt er á útkomu fyrmefnds „Hljóðólfs” svo og þjóð- fundinn fræga 1851: Þjóðólfur brýst fram á vígvölltnn Bödvar Kvaran skrifarum bækurog bökasöfnun Blaðaskrá Þjóðólfs Isíðara fylgiblaðinu var birt, ,Skrá yfir íslenzk blöð og mánaðarrit 1848—1898”, eða frá upphafi Þjóðólfs fram til þessa tíma, en í lokin fróðleg greinargerð ritstjórans um hin út- gefnu rit og almenna framvindu í blaðaútgáfu Islendinga. I skrá þess- ari greinir frá samtals 83 blöðum og mánaðarritum, er stofnað hafði ver- ið til á 50 ára tímabili, þar af 69 hér á landi, 12 meðal Islendinga í Vestur- heimi og 2 í Kaupmannahöfn. Voru jafnframt þá 2/3 hlutar þessara rita fallnir í valinn, þar af 48 af 69 útgefii- um á Islandi. Sjálfur leið Þjóðólfur undir lok árið 1920 sem fyrr getur og var þá aðeins eitt landsmálablað, lsafold á lífi af þeim, er út höfðu komið á fyrrnefndum 50 árum. Augljóst er af framansögðu, að nú tekur að þyngjast róðurinn að geta nema mjög lítils hluta af því, sem prentað var, enda prentsmiöjum tek- ið að fjölga. Hinsvegar hefur starf- semi Prentsmiðju landsins enn ekki verið getið aö ráði né þess, er þaðan kom, á meðan hún var ein um hituna. Verður því reynt að gera því nokkur skil í næstu grein. Böðvar Kvaran konungs. Um þetta leyti var aðeins eitt tímarit gefið út í Reykjavík, mánaöarritið Reykjavíkurpóstur- inn, gætiö, íhaldsamt málgagn, þá á fallandi fæti. Sagði Páll Melsteð skil- ið við það í lok september 1848 og fékk hann brátt þá hugmynd að koma á fót nýju blaði, er hann yrði ritstjóri fyrir, en útgefið af þremur Reykvikingum. Sveinbjörn Hallgrímsson Áður en undirbúningi að hinu nýja fyrirtæki var lokið varð P.M. að hverfa frá Reykjavík til þess að gegna opinberum skyldum, og fói hann því máliö í hendur Sveinbimi Hallgrimssyni, aðstoðarpresti í ná- lægri sókn. Lauk hann ráðgerðum út- gáfuáætlunum og hinn 5. nóvember 1848 kom út fyrsta tölubiað Þjóðólfs í Reykjavík, fjórar blaðsíður í fjórðungsbroti. Skyldi það koma út hálf smánaðarlega. Skeleggur baráttumaður Ávarpaði ritstjóri almenning í löngum leiðara, þar sem hann sagði, að nú væru þeir tímar, er þjóðin ætti að halda vöku sinni og vera á verði, og lýsti hann opinskátt yfir fylgi sínu við þjóðlega stjórn fyrir Island og óskorað verzlunarfrelsi. Þessu fylgdi hann eftir með öðrum greinum til stuðnings hinni frjálslyndu hreyf- ingu, veittist að stjórnvöldum og gagnrýndi almenna hegðan eða ein- stakar athafnir embættismanna stjómarinnar. Viðbrögð stjórnvalda Eins og vænta mátti mætti blaðið strax fjandskap opinberra ráða- manna og á öðm ári reyndu yfirvöld að stöðva útkomu þess með því að koma í veg fyrir afnot af prentsmiðj- unni, hinni einu í landinu um þetta leyti í opinberri eigu og undir eftirliti stjórnvalda. En ritstjórinn, studdur af nokkrum vina sinna, hélt án tafar til Kaupmannahafnar og lét prenta þar tvöfalt blað, er hann gaf nafnið Hljóðólfur (2. árg. 30.-31. tbl., 25. apríl 1850). Jafnframt áfrýjaði hann máli sínu til dómsmálaráðherra Dana, sem ógilti aðgerðir embættis- manna á Islandi, en án þess að veita ritstjóranum nokkrar bætur. Blaðiö var siðan að nýju prentað í prent- smiðjunni í Reykjavík, en ritstjórinn varð að greiða prentkostnaðinn fyrirfram.” Þröngir kostir Af framansögðu er augljóst, hvaða kosti landsmenn áttu við að búa um þessar mundir, enda þótt það hafi ekki aö jafnaöi heft möguleika þeirra til prentunar, þegar um annað en blöðin var að ræða. Fyrmefndur Sveinbjörn Hallgrímsson lét af rit- stjóm Þjóðólfs eftir fjögur ár, og tók þá við Jón Guðmundsson, fyrrum sýslumaður og reyndur stjómmála- maöur, er sat á Alþingi á annan ára- tug. Brá sízt til hins betra fyrir stjómvöld við komu hans að blaðinu, enda var hann harðskeyttur mjög í þeirra garð og prentsmiðjunnar, þegar hann taldi ástæðu til, sem ekki var ósjaldan. M.a. voru Þjóðólfi sett- ir þeir kostir, þegar Alþingistiðind- in voru i prentun, að ekki fékkst prentuð nema hálf örk af blaöinu á mánuði. Þetta voru að sjálfsögöu Fyrstur var Sveinbjörn (því síðar kom Jón), Að setja í mig stafina og kenna mér ganginn. Léttur var eg snemma, litli anginn. Og hljóp eins og sendill um holt og frón. En ei var í þann tíð svo greiðlegur gangur, Gistingin misjöfn, og opt var eg svangur. Þá sendu menn til flýtis sín hraðboð til Hafnar. Að herma fyrir austan, hvað segðu „þeir nafnar”. Brýr vora fáar, og gr jótugar götur, Þá gengu ’allir póstar sem flakkaratötur. Og stiröari vom þá stjórnarskrámar, Þá stöðvaðist eg viku við Hellirámar. En svo komu dagar, og svo komu ráð; Svona var að lif a upp á Kongsins náð! Nú fór eg að kynnast og koma mér betur, Við konurnar einkum. Því alla þá vetur Leiddi mig hann Sveinbjörn minn, ljúfur og glaður, Lystugri fæðist ei blaðamaöur. Hann lék sér með allskonar bernsku-brall; Baulu lét hann skammast við Ingólfsf jall; Og kotunginn hló sig úrkryppu og dróma, Og kerling hans jós í mig floti og rjóma. Og við það mín frjálslund og „frísprok” svo dafnar Að fóstri og eg máttum sigla til Hafnar. Þá hló séra Sveinbjörn, og „Hljóðólf” mig nefndi Og heit sitt að gugn’ ekki drengilega efndi. En svo kom hinn halti, en harðvígi Jón, Sem hnúum ei sparaði að manna þig, frón! Fyrir alvöra varð eg þá búenda blað, Og eg bý enn í dag þeirri röggsemi að. Þjóðfundarárið er mér í minni Á meðan eg held mínu gamla skinni: Þá voru drengir til snarpir og snjallir; Því aldregi vakti hjá Islendingi Alvara og þjóðfylgi meira á þingi En þegar við blikandi byssustingi, Bændurniræptu: „Vérmótmælumallir”, Þeir Hannes og Halldór, þeir Herrans þjónar, Hopuðu í þann tíð ei meir en þeir „ Jónar”. En fljótt komst þó aptur á f riður að kalla; Þótt fykju nokkur embætti, tel eg það varla.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.