Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1983, Page 17
DV. LAUGAKDAGUR1. OKTOBER1983.
17
Bflar
Bflar
Bflar
Bflar
Bflar
Renault-bíll Prost sem nú leiðir
beimsmeistarakeppnina.
Kappakstursbílar
á bílasýningu
Á bílasýningum reyna bílafram-
leiðendur allt til þess að vekja athygli
á því sem þeir hafa upp á að bjóða og
fá áhorfendur til að staldra við. Eitt af
því sem ávallt ber mikiö á á stórum
bílasýningum eru kappakstursbílar
sem stillt er upp í básum framleiðend-
anna. Á alþjóölegu bílasýningunni i
Frankfurt á dögunum voru nokkrir
slíkir til sýnis ásamt sérsmíðuðum
rallbílum. Þar á meðal mátti sjá
Renault-bíl Frakkans Alain Prost, sem
nú leiðir Formulu 1 kappaksturinn,
rétt á undan Nelson Piquet sem ekur
Brabham.
Porsche.
Lancia.
Fiat.
TVÖFALDIR
HJÓLBARBAR
— tvö eöa f leiri dekk á hverja felgu
Dekkjaframleiðendur eru sífellt að
þreifa sig áfram með nýjungar. Eitt
það nýjasta í hjólböröum eru dekk sem
sumir kalla „jó-jó” dekk. Nafnið fá
þau af því að tvö dekk eru sett saman
svo að í útliti likjast þau leikfanginu jó-
jó, nema hvað spottann vantar.
Dekk.af þessari gerð voru kyirnt á
bílasýningunni í Frankfurt á dögunum
og vöktu þar athygli. Það er talið að
dekk af þessari gerð hafi margt fram-
yfir „venjulegt” dekk. Veggripið er
sagt betra, bæði i þurru og blautu og
eins i akstri i snjó. Bremsuhæfni á
einnig aö aukast. Hættan á því að
dekkin fljóti í rigningu á einnig að
minnka því stýrieiginleikar aukast aö
mun.
Varadekkið á að verða óþarft þegar
slik dekk eru i notkun því annar
helmingurinn á að halda þótt hinn
springi.
Þessi tvöföldu dekk eru hugsuð undir
venjulega fólksbíla, en hugmyndir eru
um að setja þrjú eða fleiri dekk á
hverja felgu undir sportbíla og aðra
hraðakstursbila.
Tvöfalt dekk af „ jó-jó” gerð. Þetta dekk kemur frá Goodyearverksmiðjunum.
Verid vtðbúm vetrarkomnnni
Vetur konungur er farinn að sýna
klæmar og senn líður að því að búa
þurfi bílana undir veturinn. Ljósabún-
aðurinn er væntanlega í lagi hjá öllum
þótt enn sjáist einn og einn bíll í um-
ferðinni með vanstillt eða vanbúin ljós.
Fyrstu viðbrögð bíleigenda við yfir-
vofandi vetrarkomu er að setja frost-
lög á vélina og ísvara í rúðusprautuna.
Næst liggur beinast við að kanna
ástand vetrarhjólbarðanna þannig að
fyrsti snjórinn komi ekki flatt upp á
menn.
Á næstunni kemur pistill á bílasíð-
unni um hagnýt atriði sem menn geta
gert sjálfir til að vera viðbúnir vetrin-
um.
Volvo:
240 lögreglubílar til Saudl-Arabíu
Allir bílaframleiðendur hafa á sín-
um vegum sérstakar deildir sem
sinna eingöngu framleiðslu á sér-
pöntuöum bílum svo sem sjúkrabíl-
um og lögreglubílum. Nýlega fékk
sérbíladeild Volvoverksmiðjanna
stóra pöntun á lögreglubílum. Það
var Saudi-Arabía sem pantaöi 240
sérsmíðaða lögreglubíla af gerðinni
240 GL. Þetta er ein stærsta sérpönt-
un sem verksmiðjurnar hafa f engið.
Bilarnir eru afgreiddir með B-28E
mótor, grindin er sérlega styrkt og
vökvastýri og loftkæling fylgir með i
pakkanum. Ennfremur eru bílamir
búnir ýmsum aukabúnaði, stólar eru
styrktir, stór sjúkrakassi, málbönd
og á toppinn fer síðan meiri háttar
„jólatré” með ljósum og sírenu.
Hjá Volvo er þessi pöntun talin
geta orðið til þess að opna dyrnar að
ferkari viðskiptum í Arabíu því á síð-
asta ári voru fluttir inn samtals 447
þúsund bílar til iandsins, 392 þúsund
frá Japan og 85 þúsund frá Banda-
ríkjunum og Evrópu.
Fyrstu 40 bílarnir voru fluttir nú
nýlega til Mekka þar sem þeir verða
notaðir við gæslu í árlegum píla-
grímaferðum múhameðstrúar-
manna þangað og á næstu dögum
bætast síðan 200 bílar við.
Sérbíladeild Volvo afgreiddi einnig
nýlega 20 sérsmiðaða sjúkrabíla til
Libanon vegna átakanna þar i landi.